Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bosnía
og Serbía
semja
Enn óljóst hvað grandaði breiðþotu TWA
120 kafarar taka þátt í
mikilvægasta hluta leitar
New York. Reuter.
Reuter
ÚTFÖR Jill Ann Ziemkiewicz, flugþjóns hjá TWA, sem fórst með
flugi 800 frá New York til Parísar fyrir viku, var gerð frá dóm-
kirkju heilags Patreks í New York í gær. Einn samstarfsmanna
hennar var með mynd af Ziemkiewicz í barmi við útförina.
LEITIN að vísbendingum um það
hvers vegna farþegaflugvél flugfé-
lagsins TWA fórst skömmu eftir
flugtak frá John F. Kennedy-flug-
velli í New York fyrir viku hélt
áfram í gær og skoðuðu kafarar
brak á hafsbotni undan Long Island.
Leitarmenn höfðu á þriðjudag
fundið 108 lík og höfðu verið borin
kennsl á 78. Frásögnum um það
hvort fleiri lík hefðu fundist á hafs-
botni bar ekki saman.
Óbeinar vísbendingar um
hermdarverk
James Kallstrom, yfirmaður
bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, sagði á þriðjudagskvöld að
rannsóknarmenn hefðu óbeinar vís-
bendingar um að hermdarverk hefði
grandað vélinni og 230 manns um
borð [ henni.
Embættismenn sögðu að með að-
stoð sónars hefði fundist stórt svæði,
sem á væri mikið brak, þar á meðal
15 metra hátt stykki. Svæðið væri
þrír km á lengd og einn km á breidd.
Rúmlega 120 köfurum var ætlað
að kanna svæðið í dag. Meðal ann-
ars áttu þeir að rannsaka 18 metra
langan bút úr skrokki flugvélarinn-
ar, sem lægi á hafsbotni 29 km
undan ströndinni.
Rannsóknarmenn sögðu að verið
gæti að hljóð- og flugritar vélarinnar
væru á þessu svæði, þótt leitartæki
hefðu reyndar enn ekki numið merki,
sem þeir eiga að senda frá sér.
„Það er ljóst að þetta er lykilþátt-
ur í rannsókninni," sagði Robert
Francis, varaformaður bandarísku
samgöngu- og öryggisnefndarinnar,
um leitina í gær.
Ottast seltuna
Óttast er að saltur sjórinn eyði-
ieggi vísbendingar um orsakir þess
að breiðþota TWA fórst og þarf því
að hraða leitinni.
Enginn möguleiki útilokaður
Kallstrom sagði að enn hefði
enginn möguleiki verið útilokaður,
þótt haliast væri að því að sprengja
eða flugskeyti hefði grandað vélinni
og ýmislegt benti til þess að svo
hefði verið. Hins vegar væri ekki
hægt að draga af þeim óyggjandi
niðurstöður og það yrði ekki gert
fyrr en öll gögn hefðu verið rann-
sökuð.
Heimildarmenn, sem kunnugir
eru rannsókn málsins, sögðu í sam-
tali við Reuter-fréttastofuna að
ummerki, sem fundist hefðu á broti
úr væng vélarinnar, bentu til þess
að sprengja hefði getað valdið
sprengingunni.
I fréttaskýringarþættinum Night-
line á sjónvarpsstöðinni ABC var
haft eftir heimildum í Washington
að „á tveimur brotum úr vélinni
væru einhvers konar leifar af efn-
um, sem væru fullkomlega í sam-
ræmi við það að sprengja" hefði
verið í vélinni, en ekki þau ummerki
eða efni, sem brennandi þotuelds-
neyti skilur eftir sig.
Kallstrom sagði að bútur úr væng
hefði verið fluttur í rannsóknarstofu
FBI í Washington til nánari grein-
ingar.
Belgrad. Reuter.
LEIÐTOGAR Serbíu og Bosníu
komust í gær að samkomulagi um
að koma símasambandi og sam-
göngum á milli ríkjanna í eðlilegt
horf. Teknar verða upp lestar-, flug-
og rútuferðir á milli ríkjanna og
íbúar þeirra munu ekki lengur þurfa
á áritunum að halda er þeir fara
yfir landamæri þeirra.
Ejup Ganic, varaforseti Bosníu,
undirritaði samninginn fyrir hönd
stjórnar sinnar, en hann fer fyrir
fyrstu sendinefndinni sem fer frá
Bosníu til að ræða viðskipti og sam-
göngumál. Hitti Ganic m.a. Slobod-
an Milosevic, forseta Júgóslavíu
(Serbíu og Svartfjallalands) að máli.
Ganic bar lof á samninginn, sem
hann sagði upphafið á því að þessar
þjóðir gætu að endingu náð sáttum.
Um nýjan kafla í samskiptum þjóð-
anna væri að ræða. Tóku serbnesk-
ir ráðamenn undir það að samning-
urinn væri sönnun þess að nokkuð
hefði þokast í átt til sátta á milli
Bosníu og Serbíu í kjölfar Dayton-
friðarsamkomulagsins, sem undir-
ritað var í lok síðasta árs.
I samkomulagi sem utanríkis-
ráðherrar ríkjanna undirrituðu í
gær, samhliða samningi um sam-
göngur, segir að „borgarar Bosniu
og Júgóslavíu ættu að geta farið
yfir landamærin með því að sýna
vegabréf og að ekki þyrfti frekari
skjöl til“.
Stríð mótorhjólagengja á Norðurlöndum
Norðmenn ræða hvort
leyfa eigi hleranir
Reuter
Viðbúnaður í Tsjetsjníu
MEÐLIMIR OMON-sérsveita
rússneska innanríkisráðuneytis-
ins gera öryggisrannsókn á
rútufarþegum í Tsjetsjníu í
fyrradag. Tsjetsjenskir skærulið-
ar hafa hótað víðtækum hryðju-
verkum í Rússlandi. Evrópuráðið
hefur nú fordæmt hernaðarað-
gerðir Rússa í tsjetsjenska sjálf-
stjórnarlýðveldinu.
MIKIL umræða er nú í Noregi um
hvort að leyfa eigi hleranir, vegna
stóraukinna glæpa sem tengjast blóð-
ugum átökum mótorhjólagengja.
Átökin hafa breiðst um Skandinavíu
frá Danmörku. Á þriðjudagskvöld var
skotið á félaga í Bandidos-mótorhjó-
lagenginu í sænska bænum Hasslarp
skammt frá Helsingborg en hann ók
sjálfur á sjúkrahús þar sem gert var
að sárum hans. Maðurinn var skotinn
skammt frá bækistöðvum Vítisengl-
anna.
Nokkrar skotárásir hafa verið
gerðar á félaga í mótorhjólagengjum
í Noregi undanfarnar vikur og hefur
einn látið lífið í þeim, Dani sem skot-
inn var í Drammen. Þá hefur verið
skotið á menn í miðborg Óslóar og
gerðar árásir á aðsetur Vítisenglanna
í Kaupmannahöfn. Átökin tengjast
aðallega dóttursamtökum Vítisengl-
anna sem upprunnir eru í Kaliforníu,
og Banditos, sem stofnuð voru í Tex-
as. Samtökin náðu fyrst fótfestu í
Danmörku en breiðast nú hratt út
til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
Efasemdir í Stórþinginu
Norðmenn eru mjög uggandi
vegna stóraukins ofbeldis í tengslum
við mótorhjólagengin og fyrr í vik-
unni lagði talsmaður Verkamanna-
flokksins, Olav Akselsen, til að lög-
reglunni yrði heimilað að hefja hler-
anir, þar sem ný tegund ofbeldis
krefðist nýrra rannsóknaraðferða.
Hleranir eru leyfðar í Svíþjóð og
Danmörku og er fullyrt að erfiðlega
gangi að rannsaka mál mótorhjóla-
gengjanna á Norðurlöndum, vegna
þess að hleranir eru ekki leyfðar í
Noregi. Norska lögreglan hefur enda
fagnað tillögu Akselsens.
Samkvæmt frétt Aftenposten eru
hins vegar miklar efasemdir á meðal
þingmanna á Stórþinginu um ágæti
hlerana og á það einnig við um
Verkamannaflokkinn. Þykir ólíklegt
að þingið taki málið fyrir, fyrr en í
fyrsta lagi haustið 1997.
Auk herbergja- og símhlerana, hef-
ur verið rætt um að fólk geti borið
vitni, án þess að nöfn þess komi fram,
og í því sambandi vitnavemd. Þá hef-
ur einnig verið rætt um að lögregla
fari að bera vopn að staðaldri.
Fischler gagnrýndur
fyrir riðuummæli
London, Brussel. Reuter, The Daily
Telegraph.
UMMÆLI Franz Fischlers, er fer
með landbúnaðarmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
þess efnis að tengsl séu á milli kúar-
iðu og riðu í sauðfé hafa vakið furðu
og reiði margra. Ráðherrar og hags-
munaaðilar í mörgum Evrópuríkjum
gagnrýndu Fischler harðlega og
sögðu hann ýta undir það að neyt-
endur myndu sniðganga kindakjöt
líkt og þeir hafa sniðgengið nauta-
kjöt á síðustu mánuðum.
Talsmenn Fischlers og embættis-
menn í Brussel hafa síðustu tvo
daga keppst við að draga úr ummæl-
um hans og segja að alls ekki hafí
verið ætlunin að gefa í skyn að kúar-
iða gæti borist í sauðfjárstofna. Fisc-
hler hafi einungjs verið að greina
EVRÓPA^
frá niðurstöðum vísindalegra rann-
sókna er fóru fram í rannsóknarstof-
um í Frakklandi.
Þá sögðu talsmenn hans að alls
ekki hafí verið ætlunin að gefa í skyn
að hættulegt væri að borða lamba-
og kindakjöt og Fischler gæddi sér
reglulega á slíku kjöti sjálfur.
Nýsjálenskir embættismenn
sögðu í gær að þeir myndu ekki líða
það að reynt yrði takmarka útflutn-
ing á lambakjöti til Evrópu. Nýsjá-
lendingar framleiða 53% af öllu
kindakjöti er selt er á heimsmarkaði
og hefur kjötsala til Evrópu stórauk-
ist á síðustu mánuðum vegna ótta
evrópskra neytenda við kúariðu.
Fulltrúar nýsjálenska landbúnað-
arins sögðu riðu aldrei hafa komið
upp á Nýja-Sjálandi og drógu jafn-
framt í efa að nokkuð nýtt væri að
finna í þeim rannsóknum er Fischler
hefði vitnað til.
Philippe Vasseur, landbúnaðar-
ráðherra f’rakklands, hvatti fjöl-
miðla til að sýna stillingu er hann
ræddi við fréttamenn eftir að fundi
evrópskra landbúnaðarráðherra lauk
á miðvikudag. „Það er engin ástæða
til að æsa sig upp,“ sagði Vasseur.
Standast ekki
eig’in kröfur
EIN af hveijum tíu sendingum af
grænmeti eða ávöxtum, er Finnar
flytja inn frá öðrum Evrópusam-
bandsríkjum, stenst ekki staðla
ESB um bætiefni og skordýraeitur.
Greindi finnskur matvælaeftirlits-
maður frá þessu í fyrradag.
Finnsk tollayfirvöld hafa einnig
rannsakað innflutt grænmeti og
ávexti frá ríkjum utan ESB og kom
í ljós að mun minna hlutfall þess
innflutnings stóðst ekki reglur
sambandsins, eða 5,6%.
Finnskar reglur eru í samræmi
við reglur annarra Evrópusam-
bandsríkja en Seppo Lehvanen, er
starfar hjá rannsóknarstofu
fínnska tolleftirlitsins, sagði Norð-
urlöndin yfirleitt gera fleiri og ítar-
legri rannsóknir á innfluttum mat-
vælum. Ekki síst hefði verið mikið
um leifar af skordýraeitri í ferskum
vörum frá Ítalíu og Spáni og að
einhvetju leyti Hollandi.
Sendingar frá ríkjum utan ESB
eru hins vegar yfirleitt í lagi og
sagði Lehvanen að t. d. hefði engin
sending frá Ungveijalandi gefíð
tilefni til athugasemda á þessu ári.
Einna mest voru vandamálin við
innflutning á rauðum pipar, sel-
leríi, dilli, mangó, papaya og vín-
beijum.
Embættismenn er fylgjast með
kjötinnflutningi segja hins vegar að
nær allar kjötsendingar er berist til
Finnlands uppfylli kröfur og megi
það líklega helst rekja til þess að
strangara eftirlit er með slíkum út-
flutningi í upprunalöndunum.