Morgunblaðið - 25.07.1996, Page 21

Morgunblaðið - 25.07.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTU D AGUR 25. JÚLÍ1996 21 23.000 byssum skilað BREZK yfirvöld eru himinlif- andi yfir viðbrögðum fólks við áskorun um að fólk skilaði inn byssum _sem það hefði í fórum sínum. Askorunin var gefin út í júní sl., í kjölfar fjöldamorðs á skólabörnum, sem geðveikur byssumaður framdi í Dunblane í Skotlandi í marz síðastliðnum. Á eins mánaðar tímabili söfn- uðust 22.939 byssur, 695.197 hleðslur og 2.862 stykki af annars konar vopnum. Rúmenar og Ungveijar deila RÚMENSK stjórnvöld sögðu í gær, að opinber stuðningur Ungveijalands við sjálfstjórn- arkröfur ungverskra minni- hlutahópa utan landamæra Ungveijalands skaðaði enn frekar samskipti nágrannaríkj- anna tveggja, sem nú þegar eru spennu hlaðin vegna deilna um stöðu ungverska minnihlut- ans í Rúmeníu. Gagnrýni Rúm- ena nú er til komin vegna stuðnings ungversku stjórnar- innar við yfirlýsingu, sem gefin var út af ráðstefnu um stöðu ungverskra minnihlutahópa sem fram fór í Búdapest fyrir tveimur vikum. Um 1,6 milljón- ir Ungveija búa í Rúmeníu og um 600.000 í Slóvakíu. Efla hryðju- verkavarnir WILLIAM Perry, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í fyrradag að bandaríski heraflinn væri nú að efla aðgerð- ir til vamar gegn árás- um hryðju- verka- manna. í sprengjuá- rás hryðju- verkamanna við herbúðir í Sádí-Arabíu létust 19 hermenn í síðasta mánuði. Perry sagði hermönnum berast stöðugt al- varlegri hótanir frá hiyðjuverka- mönnum. Óhugnaður í Omarska MÚSLÍMSKUR Bosníu-maður, sem lifði af dvöl í hinum al- ræmdu fangabúðum í Omarska, sagði frá því fyrir rétti alþjóð- lega stríðsglæpadómstólsins í Haag í gær, að gæzlumenn úr her Bosníu-Serba hefðu neytt fanga til að bíta af kynfæri samfanga síns. Vitni hafa sagt margar slíkar hryllingssögur af atburðum í búðunum. Fyrsti kven- þingsmalinn JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands og formaður íhalds- flokksins, skipaði í fyrrakvöld hina 48 ára gömlu Jacqui Lait í embætti „þingsmala" flokks- ins, eða „Party Whip“. Lait er fyrsta konan í 160 ára sögu brezka Ihaldsfokksins til að gegna þessu virðingarembætti í flokknum, sem margir þekkja úr sjónvarpi í höndum hins hála Francis Urquart. William Perry. Lottófé til íþrótta- mála JOHN Major, forsætisráð- herra Bretlands, brá á leik við unga íþróttaáhugamenn í Downing-stræti 10 í gær í til- efni af yfirlýsingu hans um að ætlunin væri að nota 100 milljónir punda (um 10 millj- arða króna), sem aflað hefði verið með breska þjóðarlottó- inu, til að stofna breskan íþróttaskóla. Sagt var að skóla þessum væri ætlað að efla veg breskra íþróttamanna. Reynt að bregðast við matareitrun í Japan Tókýó. Reuter. JAPANAR eru felmtri slegnir eftir að tveir menn til viðbótar létu lífið vegna víðtækrar matareitrunar, sem hefur valdið dauða sjö manna frá því að hún gerði fyrst vart við sig í maí, og þáðu í gær hjálp frá Banda- ríkjamönnum. Ryutaro Hashimoto, forsætisráð- herra Japans, kvaðst finna til van- máttar gagnvart 0-157 bakteríunni, sem lifir í þörmum. Héldum að ástandið færi batnandi „Þessi andlát komu hvert á eftir öðru, einmitt þegar við héldum að ástandið færi batnandi," sagði Hashimoto við blaðamenn. „Mér finnst ég vera bjargarlaus, að tak- mörk sérþekkingar læknavísinda nútímans geti verið fundin." Tíu ára stúlka og 85 ára gömul kona létust af völdum bakteríunnar á þriðjudag. Hashimoto sagði að nú riði á að finna uppruna og smitleið bakter- íunnar. Alvarlegasta tilfellið var í Sakai, Ráðamenn þiggja hjálp Bandarikja- manna skammt frá Osaka. Þar liggja 96 börn á sjúkrahúsum og er ástand þeirra alvarlegt. 28 barnanna eru í lífshættu, þar af þijú í dái. Rúmlega 6.400 manns hafa fengið bakteríuna í Sakai. Bakterían kom fram þar fyrir tveimur vikum og var rakin til skólamáitíða, sem útbúnar voru í eldhúsum á vegum Sakai-borg- ar. Ekki hefur þó tekist að komast að því úr hvaða mat bakterían barst. Ánnars staðar í Japan hafa 2.000 manns fengið bakteríuna síðan í maí og fimm látið lífið. Heilbrigðis- og menntamálaráðu- neyti Japans lýstu því yfir í gær að grípa ætti til aðgerða til að rekja og uppræta 0-157 bakteríuna. Heilbrigðisráðuneytið hyggst beita ákvæði í matvælalöggjöfinni, sem skyldar alla matvælaframleið- endur til að taka fram uppruna hrá- efnis þannig að auðveldara verði að rekja matareitranir. Þiggja hjálp frá Atlanta Einnig hefur verið ákveðið að þiggja hjálp sérfræðinga Sjúkdóms- varnastofnunarinnar (CDC) í Atl- anta í Bandaríkjunum, þar sem er að finna helstu sérfræðinga heimsins í faraldursfræðum og rannsóknum lítt þekktra sjúkdóma. Menntamálaráðuneytið ákvað að hópur átta vísindamanna myndi hefja sérstaka rannsóknaráætlun á 0-157 bakteríunni. Vísindamenn eiga erfitt með að átta sig á þessum útbreiddu matar- eitrunum. 0-157 er ein af 200 gerð- um staflaga baktería í þörmum og er ekki óþekkt. Hana er oft að finna í hráu kjöti. 0-157 hefur hins vegar ekki verið talin það öflug baktería að hún geti valdið svo útbreiddum matareitrunum. Fjölmiðlar í Japan segja neyðar- ástand ríkja vegna matareitrananna og hafa gagnrýnt seinagang stjórn- valda í þessu máli harðlega. Aðgerðir gegn Iran og Líbýu Róm. Reuter. ÍTALSKA utanríkisráðuneytið lét í gær í ljósi áhyggjur vegna sam- þykktar laga í Bandaríkjunum, sem kveða á um refsiaðgerðir gegn er- lendum fyrirtækjum sem fjárfesta í olíu- og gasvinnsluverkefnum í Líbýu og Iran. David Johnson, tals- maður Bills Clintons Bandaríkja- forseta, sagði að forsetinn hygðist undirrita lögin á næstunni. Talsmaður ráðuneytisins sagði að ítalir styddu Evrópusambandinu (ESB) til fulls í mótmælum þess við aðgerðum sem gætu bitnað á ítalska ríkisolíufélaginu Agip. ítalir fá megnið af sinni hráolíu frá Líbýu. A þriðjudag fór fulltrúadeild Bandaríkjaþings að dæmi öldunga- deildarinnar og samþykkti frum- varp til laga um hertar refsiaðgerð- ir gegn Líbýu og íran. Framkvæmdastjórn ESB varaði við því að gagnráðstafanir, sem til greina kæmu vegna laga um að- gerðir gegn Kúbu, gætu varðað lagasetningu í Bandaríkjunum. létt Sterk, TRAVEL REGNSETT 100% vatns- og vindhelt Stærðir: X-XXL - 4 litir * Taska fylglr Verð krjjffir Nú kr. 4.933 ANCIENT 100% vatns- og vindhelt. Stærðir: S-XXL 2 litir. Taska fylgir Verð Núkr. 7.293 og lofta vel... RGGNFATALINAN 1996 FRÁ agu*sport H0LLANDI W0RKER 100% vatns- og vindhelt. Stærðir: S-XXL - 2 litir Taska fylgir Verð ktJJrf" Nú kr. 4.329 Póstsendum um allt land. FESTIVAL BARNAREGNSETT Stærðlr: 4-10 ára -4 litir * Taska fylgir Verð frjukfrrff22 Núkr. 2.941 0YSTER 100% vatns- og vindhelt Öndunarefn! Stærðir: S-XXL -.2 litir Verð kr Nú kr. 12.851 PLANET UNIVERSE 100% vatns- og vindhelt Stærðir: S-XXL - 2 lltir * Taska fylgir Verð kiuASSS" Nú kr. 5.996 CELTIC REGNSETT 100% vatns- og vindhelt Stærðir: S-XL - 2 litir * Taska fylgir I VerðlquÍíSSf NÚ kr. 3.700 I ^mafíelðh/ólaverslunln —.~ ORNINNP* SKEIFUNNI 11. SÍMI 588 9890

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.