Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 24

Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Stöðug mannaskíptí standa Listahátíð fyrir þrifum Hvert er hlutverk Listahátíðar í Reykjavík, er þörf á henni og fyrir hveija er hún. Þór- oddur Bjarnason ræddi við Signýju Páls- dóttur framkvæmdastjóra hátíðarinnar 1996, sem lauk nýverið, og komst að því að hún hefur áhuga á að breyta framkvæmd hennar og skipulagi verulega, og Svein Ein- arsson, sem setið hefur í framkvæmdastjóm hátíðarinnar, sem segir ávinninginn með til- komu Listahátíðar mikinn. GALDRA Loftur ópera Jóns Ásgeirssonar í uppfærslu íslensku Óperunnar var best sótta atriði Listahátíðar í ár fyrir utan hljóm- leika erlendra popphljómsveita í Laugardalshöll. 1.700 manns borguðu sig inn á sýningar á henni. HELSTA gagnrýni á Listahátíð í Reykjavík 1996 kom fram í skrif- um Þrastar Helgasonar blaða- manns á Morgunblaðinu þar sem hann bar listahátíð í Bergen ítrek- að saman við þá reykvísku. „í þeim skrifum er verið að bera okkur saman við listahátíð sem fær 200 milljónir í opinbera styrki á meðan að við fáum 28 milljónir. Við sníðum okkur stakk eftir vexti og gerum hátíð fyrir það fjármagn sem okkur er skammtað," sagði Signý. Yfirstjórn hátíðanna tveggja er ólík. I Bergen er listrænn stjórn- andi ráðinn til fjögurra ára og honum gefið svigrúm til stefnu- mótunar og sér auk þess um fjár- hagslega stjórnun hennar. Allar ákvarðanatökur um dagskráratriði Listahátíðar í Reykjavík þurfa að fara fyrir fjölmennt fulltrúaráð sem kemur saman tvisvar á ári og í sitja fulltrúar allra samtaka lista- manna á landinu og listastofnana. Ráðið velur þijá menn í fram- kvæmdastjórn sem sitja þar ásamt fulltrúa ríkis og borgar. Formaður framkvæmdastjórnar er einnig list- rænn stjórnandi hátíðarinnar og ráðinn til tveggja ára sem varafor- maður og síðan tveggja ára sem formaður, af ríki og borg til skipt- is. „Stöðug mannaskipti standa hátíðinni fyrir þrifum ásamt því að hún á að vera svo lýðræðisleg að það verður henni einnig til traf- ala,“ segir Signý en hún hefur það hlutverk í tengslum við dag- skránna að framkvæma ákvarðan- ir framkvæmdastjórnar og fulltrúaráðs. Ákvarðanataka er því á mörgum höndum. Alltaf gagnrýnisraddir „Síðan ég tók við starfi fram- kvæmdastjóra hefur Listahátíð gengið í alþjóðasamtök listaHátíða og við höfum verið að kynna okkur hvemig listahátíðir annars staðar fara fram. Listahátíð í Reykjavík er orðin 26 ára og stjórnarfyrir- komulag hennar hefur nær ekkert breyst frá byijun. Það hafa alltaf verið uppi gagnrýnisraddir á hana í gegnum árin og það er löngu kominn tími til að breyta stjórnar- fyrirkomulaginu." Skipuð var nefnd í árslok 1994, tilnefnd af fulltrúaráði Listahátíð- ar, til að endurskoða samþykktir fyrir Listahátíð. Nefndin sat á vikulegum fundum í hálft ár þar sem var farið í gegnum allt sem betur mátti fara og gerðar tillögur að gagngerum breytingum á skipulagsskrá. Þessar breytingar segir Signý ekki enn hafa náð fram að ganga, en verið sé að vinna að þeim. „Þórunn Sigurðardóttir næsti formaður framkvæmda- stjórnar hefur mikinn áhuga á því að fylgja breytingum á samþykkt- unum eftir, enda sat hún í fyrr- nefndri nefnd. Það verður byijað að vinna að gagngerum breyting- um á næstu vikum. Helsta niður- staðan er sú að leggja áherslu á að reka hátíðina enn faglegar og þar þyrfti fyrsta verk að verða að ráða listrænan stjórnanda í fullt starf. Listrænn stjórnandi Listahátíðar þyrfti að vera ráðinn í að minnsta kosti fjögur ár í senn. Svona stjórnandi myndi hafa meira sjálfstætt vald en myndi síðan ráða sér dagskrárnefnd til ráðaneytis. Með þessu er miklu auðveldara að koma listrænni stefnumótun á hátíðina og byggja hana jafnvel í kringum ákveðin þemu sem gætu þá snúist um sér- íslensk efni. Svo er auðvitað alltaf spurning hve mikið á að leyfa sér og hafa ber í huga að Listahátíð í Reykjavík á einkum að vera fyr- ir íslendinga. Hún er til þess að íslendingar fái notið þess besta sem er að gerast erlendis, þess sem þeir fá ekki tækifæri til að sjá að öðrum kosti auk þess að hvetja íslenska listamenn til sér- stakra dáða.“ Hlutverk listahátíðar I samþykktum fyrir hátíðina segir í fyrstu grein: „Listahátíð í Reykjavík er stofnun, sem hefur það markmið að undirbúa og halda í Reykjavík hátíðir, þar sem fram fari alhliða listkynning. Leitast skal við að kynna sérstaklega ís- lenskar og norrænar listir, auk alþjóðlegra lista.“ Streymi erlendra listamanna til landsins til sýningar - og tónleika halds er sívaxandi allt árið um kring. Innlendir listviðburðir eru einnig margir og fjölbreyttir og því hlýtur sú spurning að vakna hvort hlutverk Listahátíðar sé ekki orðið veigaminna heldur en áður þegar hún var helsti vettvangur nýrra strauma og stefna í alþjóð- legri list hér á landi. „Listahátíð á að gefa okkur tækifæri á að gera eitthvað sem annars er ekki mögu- legt. Listahátíð getur stuðlað að því að eitthvað mjög sérstakt sé gert hér innanlands og haft list- rænt frumkvæði að því að lista- stofnanir vinni saman eins og var gert á síðustu hátíð með Niflunga- hringinn. Með því fulltrúalýðræði sem ríkir í dag verður hátíðin dálít- il ölmusustofnun. Hingað leita ein- staklingar og stofnanir um styrk til að setja eitthvað upp og þá er alltaf spurning hver stendur að atriðinu, Listahátíð eða einkaaðil- ar. Ég veit að næsti formaður framkvæmdastjórnar hefur hug á því að hafa atriðin færri og veg- legri.“ Signý tekur undir að gaman væri að geta nýtt erlendu gestina betur og eins að gefa íslenskum listamönnum aukið pláss og tíma í dagskránni. Hún segir að þetta sé háð fjármagni og meiri undir- búningstíma fyrir hátíðina. „I sam- bandi við gagnrýni á bókmennta- dagskrá hátíðarinnar og fyrir- spurnir um sérstakar höfunda- kynningar þá má benda á að við höldum hér bókmenntahátíð sem sinnir því hlutverki vel. Það má líka alveg skoða möguleika á að hafa þessa hátíð, kvikmyndahátíð og Óháða listahátíð á sama tíma og Listahátíð eins og tíðkast til dæmis í Edinborg." Þörf á markaðsstjóra Lengd hátíðar er einnig spurn- ing sem vert er að velta fyrir sér. í samþykktum hátíðarinnar segir að hátíðin skuli haldin fyrstu tvær vikurnar í júní. í ár var hátíðin í rúman mánuð og fannst mörgum sem fyrstu tvær vikurnar hefðu verið kraftmestar og hátíðin hefði síðan smám saman runnið út í sandinn. Ástæður þessa voru þær að sögn Signýjar að Þýska Sin- fóníuhljómsveitin í Berlín átti ein- ungis kost á að koma 29. júní og þegar búið var að láta undan því þá hafi atriði tínst inn í bilið sem skapaðist á milli. Markaðsöflun hátíðarinnar hef- ur einnig verið til umræðu og hana þarf að auka og bæta að mati Signýjar. „Ef það ætti að gera þetta almennilega ætti að vera hér markaðsstjóri í fullu starfi. Sumar- ið er líka að mörgu leyti slæmur tími fyrir hátíðina. Það var gott á sínum tíma en núna er að mörgu leyti erfitt að vera með menningar- starfsemi í júní. Þú nærð ekki til starfsmannafélaga til að selja miða og það eru engir skólar í gangi sem halda uppi mikilli menningar- aðsókn í Reykjavík. Ég held að það yrði til bóta að færa hátíðina fram á haust.“ Ef ætti að gera alvarlega og góða markaðsrannsókn þyrfti hún að vera tengd miðasölunni, að mati Signýjar, eins og hún kynnt- ist í Edinborg. „Miðasalan fer þar fram í kerfi sem heitir Bocs sem er bæði miðasala og skráir um leið allar upplýsingar um þann sem kaupir miða. Með þessu er hægt að gera nákvæma úttekt á hvers- konar hópar fólks sækja hátíðina á hveiju ári og því auðvelt að sjá úr hveiju þurfi að bæta næst.“ Hún benti einnnig á að ferða- mannatímabilið væri ekki farið nógu vel af stað í júní og illmögu- legt væri að stíla inn á það. Hlut- fall erlendra gesta var um 5% á hátíðinni og algengustu fyrir- spurnir um miða erlendis frá voru á Björk, Evgení Kissin, og íslensk tónskáld. 27.000 gestir sóttu hátíðina. Þar af komu um 13.500 á popptónleika á hátíðinni en tekjur af þeim runnu í vasa skipuleggjenda því Listahá- tíð lánaði i raun einungis nafn sitt. Aðsóknartölur þar fyrir utan voru stærstar á Galdra Loft (1.700), Þýsku Sinfóníuhljómsveitina í Berlín (1.450),Heimskórinn (1.300), Sirkus Ronaldo (1.200) og Evgení Kissin (1.100). Signý sagði aðspurð að það væri gífur- lega mikil fjárhagsleg áhætta að halda popptónleika eins og þá sem nú var boðið upp á og það geti Listahátíð ekki leyft sér. Ekki er búið að ganga frá reikn- ingum hátíðarinnar. „Ég er að reyna að láta enda ná saman. Það tókst á síðustu hátíð en ég get ekki sagt neitt ennþá um útkom- una núna. Ég er að mörgu leyti mjög ánægð með þessa hátíð en við gerum betur næst.“ Fyrstu óperurnar eru Listahátíð að þakka Sveinn Einarsson sat í fram- kvæmdastjórn hátíðarinnar fyrstu skiptin sem hún var haldin og einu sinni síðar. Hann sagði að Listahá- tíðir tækjust misvel enda væru áherslur milli þeirra misjafnar. Hann kvað ávinninginn, sem hlot- ist hefði með tilkomu listahátíðar í menningarlífið, mikinn og þær hefðu allar að hans mati skilið mikið eftir sig. „Ég held þó að fækka mætti at- riðum á Listahátíð og leggja í stað- inn meira í hvert þeirra. Hátíðin í ár var auk þess alltof löng. Eitt af aðal hlutverkum hátíðarinnar á að vera að stuðla að flutningi innlendra verka sem annars ættu ekki mögu- leika á að verða að veruleika líkt og var með sýningu íslenska dans- flokksins á Féhirslu vors herra og Galdra Loft óperu Jóns Ásgeirssonar í íslensku óperunni. Þannig var það einnig með Tímanum og vatninu eftir Atla Heimi Sveinsson á síðustu Listahátíð." Hann sagði einnig að það væri Listahátíð að þakka að fyrstu stóru óperur íslendinga, Þrymskviða eft- ir Jón Ásgeirsson og Silkitromma Atla Heimis Sveinssonar komust á fjalirnar. „Hátíðin er mjög oft mik- il lyftistöng fyrir íslenska listsköp- ( un og verður íslenskum listamönn- • um til innblásturs. Strax á fyrstu árum hátíðarinnar fóru að koma hingað þekktir erlendir listamenn enda vorum við í óvenju góðri að- stöðu með Vladimir Ashkenazy okkur innan handar. Hann sagði bara; ef þið komið og spilið hér þá skal ég koma og spila hjá ykk- ur. Þannig náði hann oft í bestu listamenn sem völ var á. Mér finnst það hreinlega heilsusamlegt sjónarmið fyrir íslenska menningu ( að láta heimsóknir þekktra er- lendra listamanna ekki vera bara skammvinna flugeldasýningu heldur að reyna að hlú að þeim frækornum sem þeir sá með komu sinni. Það var til dæmis gert hér þegar brúðuleikhúsmaðurinn Mic- hael Meschke kom á Listahátíð. Hann setti upp sýningu sem ís- ( lenskir aðilar héldu áfram með < eftir að hann hvarf af landi. Það eru til mörg slík dæmi.“ ' Hann sagði aðspurður að það væri vissulega góð hugmynd að búa til langa dagskrá í kringum einstaka listamenn en hún væri hvorki betri né verri en hver önn- ur. „Ég held að það sé ekki til nein ákveðin formúla að góðri há- tíð. Sú hugmynd að byggja hátíð í kringum ákveðin þemu held ég í að sé engu réttara en það form ( sem nú er í gangi. Ef það væri < gert yrði hátíðin kannski einhæfari í staðinn. En það má kannski reyna það í eitt eða tvö skipti. Leiklist útundan Bókmenntir og leiklist voru lítt áberandi í dagskrá hátíðarinnar. Bókmenntaatriði einkenndust af innlendum ljóðaflutningi auk mál- < þings um William Morris. Leiksýn- ingar voru þtjár. Forsýnt var eitt leikrit í Borgarleikhúsi, eitt í Þjóð- ( leikhúsi og Jötunninn í Loftkasta- lanum. „Leiklist og bókmenntir urðu svolítið útundan á þessari hátíð og úr því þarf þá að bæta næst. Mér fannst reyndar Ijóðasamkeppnin og útgáfa ljóða úr henni vera myndarlegt framtak en kannski mætti leggja meiri áherslu á bók- $ menntir þar sem við erum nú einu | ( sinni bókmenntaþjóð. Til þess eru < ýmsar leiðir. ' Það er alltaf örvandi að fá úr- valsleiklist frá útlöndum á Listahá- tíð en við höfum lent í því þegar okkur bjóðast góðar sýningar að eiga ekki nægilega stórt hús undir sýningarnar. Tilkoma tónlistar- húss myndi breyta miklu í þessum efnum og leggja verður áherslu á < að koma því upp fyrir listahátíðar- * árið 2000 þegar Reykjavík á að d verða ein af menningarborgum ( Evrópu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.