Morgunblaðið - 25.07.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 43
Hátíð á
Víðistaða-
túni
í ÁR eru liðin 30 ár frá því að
íþrótta- og leikjanámskeið í
Hafnarfirði iiófu göngu sína. I til-
efni af afmælinu verður hátíð á
Víðistaðatúni á morgun föstudag.
Hátíðin hefst kl. 13 með ávarpi
Geirs Hallsteinssonar, eftir það
verður fjölbreytt dagskrá.
Á túninu verða útileiktæki, raf-
magnsbílar verða á tennisvellin-
um, unglingar úr Vitanum bjóða
upp á andlitsmálun, „streetbail"-
leikir, hestamannafélagið Sörli
teymir hesta undir börnum, Golf-
klúbburinn Keilir verður með míní-
golf og púttvelii, Siglingaklúbbur-
inn Þytur verður með báta á tjörn-
inni, Svalabræður koma færandi
hendi, Króni og Króna heimsækja
börnin og Kjörísbíllinn mun gefa
800 ísa.
Veitingar verða í boði Æsku-
lýðsrás auk þess munu allir fá
Svala frá Sól og Svalabræðrum.
-----»- ■»-»...-
Útivistar-
dagar í Lóni
ÚTIVISTARDAGAR verða á
Stafafelli í Lóni nú um helgina
26.-28. júlí.
Leikinn verður jazz á tjaldstæð-
unum fram eftir kvöldi á föstudag
og á laugardegi verður gengið um
Framfjöll frá tjaldstæðunum í
Austurskóga þar sem verður tjald-
að _og grillað.
Á sunnudegi verður gengið um
innfjöll frá Eskifelli, inn Jökulsár-
gljúfur að Kollumúla. Þar verður
á sunnudagskvöld upplestur undir
heitinu Stafafell: Fjallabúskapur
og ferðir á síðustu öld.
Boðið er upp á áframhaldandi
ferð yfir í Múladal fyrir þá sem
vilja lengja ferðina til miðviku-
dags. Frekari upplýsingar veitir
Ferðaþjónustan Stafafelli.
-----» ♦ ♦
Sumarhátíð
í Vatnsdal
SUMARHÁTÍÐ Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna verður
haldin að Hvammi II í Vatnsdal,
dagana 26.-28. júlí.
Farið verður í skoðunarferð í
Blönduvirkjun, útreiðartúra, út-
sýnisflug yfír Vatnsdal ef veður
leyfir, ýmsa leiki og íþróttir auk
þess sem grillveisla verður bæði
föstudags- og laugardagskvöld.
Þetta er 3. sumarið í röð sem
slík útihátíð er haldin á vegum
SKB og hjónanna Þuríðar Guð-
mundsdóttur og Gunnars Ást-
valdssonar í Hvammi. Þátttakend-
um hefur stöðugt farið fjölgandi
og eru þeir nú vel á annað hundr-
að talsins.
-----» ♦ ♦
Sumarhátíð
í Laugardal
VINNUSKÓLI Reykjavíkur heldur
árlega sumarhátíð sína í Laugar-
dalnum í dag og hefst hátíðin með
íþróttakeppni klukkan 9.
Formleg setning verður við
Laugardalshöll klukkan 10 og
hefst þá skemmtidagskrá sem
stendur til hádegis. Fram koma
m.a. Radíusbræður, Reggea On
Ice, Stjörnukisi og ungir og upp-
rennandi listamenn úr nemenda-
hópi Vinnuskólans. Hátíðinni lýkur
um hádegisbil með grillveislu.
FRÉTTIR
Reiknaður umferöarhávaöi með hljóðtálmum vegna nýbygginga við Kirkjusand
RÁÐGJAFAR: F0RSENDUR:
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins 5. mars1996 7 h. hús/ 4m bílsk.: 9 h. hús/4m bílsk.: 6 h. hús/ 4m bílsk.: Umferð 1996: 22.000 bílar á sólarhr. Meðalhraði: 60 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 7%
1. hæð 4. hæð 7. hæð 49.5 dB 61.5 dB 66,0 dB 1. hæð: 49,0 dB 4. hæð: 57,5 dB 7. hæð: 65,5 dB 9. hæð: 65,5 dB 1. hæð: 48,5 dB 4. hæð: 52,5 dB 6. hæð: 59,0 dB
Hljóð- og raftækniráðgjöf ehf. 1. júlí 1996 7 h. hús 1. hæð 4. hæð 7. hæð /4m bílsk.: 49,2 dB 61,5 dB 66,0 dB Umferð 1996: 22.000 bilar á sólarhr. Viðmiðunarhraði: 60 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 7%
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins 2. júlí 1996 7 h. hús 1. hæð 4. hæð 7. hæð /4m bílsk.: 53,0 dB 65,0 dB 69,5 dB * Við útreikning e miðað við að 4 m Umferð 2008: 30.000 bílar á sólarhr. Meðalhraði: 70 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 8%
Hljóð- og raftækniráðgjöf ehf. 23. júlí 1996 7 hæða hús m.v. 5,5 m hljóðskerm og 3 m skermvegg*: 7. hæð: 54,5 dB bilskyli viö loðarmork gegni hlutverki hljúðtálma í öllum tilfellum nema því síðasla. Þarergengið útfrá 5,5 m hljúðskermi inni á lúð og 3 m vegg á eyju milli brautarhluta Sæbrautar. Umferð 2016: 27.000 bílar á sólarhr. Viðmiðunarhraði: 60 km/klst. Hlutfall þungra bíla: 10%
Moka upp bleikju
í Blöndulóni
ENN eru menn byrjaðir að moka
upp bleikju í Blöndulóni og skurðum
og ám tengdum því. í skýrslu fiski-
fræðinga við Veiðimálastofnun er
því spáð að fyrr eða síðar muni
gæði silungs á þessum slóðum fara
versnandi, en ekki um sinn og vænt-
anleg stækkun lónsins muni raunar
tefja þá þróun. Eigi að síður hafa
menn orðið varir við mikið magn
af smárri bleikju, ekki síst í skurð-
unum. Er það horaður fiskur þótt
að sögn sé mikið æti að hafa á
svæðinu.
Geir Birgir Guðmundsson,
stangaveiðimaður með meiru og
höfundur „Þingeyingsins", sem hef-
ur um árabil verið ein gjöfulasta
fluga fyrir lax og silung hér á landi,
var á svæðinu fyrir skömmu og
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið að sér litist illa á það sem
fyrir augu bæri. Óttaðist hann að
annað umhverfisslys á borð við
rústun lífríkis Sogsins og bleikiunn-
ar í Þingvallavatni í kjölfar bygg-
ingu Steingrímsstöðvar væri yfir-
vofandi.
„Mér var sagt þegar ég kom í
Áfangafell, að ég gæti veitt á stöng
í skurðunum, eða í net í lóninu og
kaus ég stöngina. Mér var þá sagt
að mikill fiskur væri á ferðinni, en
hann væri magur. Það var ekki
ofmælt. Það negldi fiskur í fyrsta
kasti og gaf það tóninn. En allur
þessi fiskur var smár og kviðdreg-
inn. Hann var einnig bjartur. Eg
fékk það strax á tilfinninguna að
ég væri að draga fiska sem væru
samkvæmt kalli náttúrunnar á leið
til sjávar. í raun gönguseiði af
ýmsum stærðum. Þetta voru fiskar
á bilinu frá því að vera mjög smáir
upp í tæpt pund þannig að maður
gat ímyndað sér að þeir stærri
væru að reyna aftur og jafnvel í
þriðja sinn að komast til sjávar,
enda hefur bleikja löngum gengið
úr sjó, langt upp Blöndu og í þver-
ár hennar um allan Kjöl.“
Geir Birgir heldur áfram: „Nú
kemst enginn fiskur lifandi til sjáv-
ar. Eina leiðin er í gegn um túrbín-
urnar og þeir fiskar verða bara að
seiðafóðri fyrir fisk neðan virkjun-
ar. Ég get auðvitað ekki sannað
neitt, enda enginn vísindamaður,
en mér finnst það sláandi, að á
sama tíma og þarna er mikið æti
að finna, skötuorma, mýflugnalirf-
ur og fleira, þá er engin slík fæða
í þessari bleikju, hún ráfar stefnu-
laust skurð úr skurði og veiðist á
það sem kastað er fyrir hana, hvort
heldur er hefðbundnar flugur eða
gular baunir og tyggjókúlur!
Það er eitthvað óeðlilegt við
þetta. Menn hafa alltaf vitað af
þessari miklu sjóbleikju sem þarna
hefur gengið og m.a. hefur Seyðisá
á Kili þótt vera afburðagóð sjó-
bleikjuá í gegn um árin. Enn veið-
ist í henni, nú orðið bleikja sem
gengur úr Blöndu og lóninu. En
hvað er langt í að Seyðisá verði
ónýt sem veiðiá með sama áfram-
haldi? Hvers vegna var ekki reiknað
með þessu, t.d. með fiskvegagerð?“
bætir Geir Birgir við
Fróðlegt að fylgjast með
Síðasta sumar var mikil veiði á
þessum slóðum, í skurðunum, lón-
inu, í Seyðisá og víðar. Fiskur þótti
sérstaklega vænn og fallegur í
Seyðisá og veiddust bleikjur allt að
10 pund og mikið var um 2-4 punda
bleikju, feita og fallega. Þær fregn-
ir sem nú berast eru, að fiskur sé
farinn að ganga í Seyðisá og komið
hafi skot þar sem menn hafa feng-
ið 20-30 fiska yfír daginn, en minna
og jafnvel ekkert suma daga. Nú
er sá tími kominn, að fiskur á venju
samkvæmt að renna af krafti úr
Blöndu fram í Seyðisá og verður
fróðlegt að fylgjast með framvindu
mála. Fleiri en Geir Birgir hafa lent
i smáfiskinum i skurðunum, en
fregnum ber saman um að enn veið-
ist vænn fiskur í lóninu. Sá fískur
sem veiðst hefur í Seyðisá hefur
verið vænn, en miðað við síðasta
sumar hefðu menn viljað sjá meira
magn.
♦ ♦ ♦-----
LEIÐRÉTT
Rangtföðurnafn
ÞAU leiðu mistök urðu í mynda-
texta á forsíðu sérblaðs Morgun-
blaðsins, Úr verinu, að föðurnafn
ungs veiðimanns misritaðist. Valgeir
Friðriksson var ranglega sagður
Guðmundsson, eins og sjá má af
myndatextanum. Morgunblaðið bið-
ur Valgeir afsökunar á þessum mis-
tökum um leið og þau eru leiðrétt.
Bakaraofninn á að hitna
í 230 gráður
í þættinum Matur og matgerð í
Mbl. í gær misritaðist í síðari upp-
skriftinni um grillaða silunginn hve
mikið á að hita bakaraofninn. Sagt
var 130 gráður en þar átti að standa
230 gráður.
„FOSSINN" í Seyðisá á Kili, einn besti veiðistaður árinnar um
árabil.
Septembertilboð
til Benidorm
24. september
25 dagar
frá kr. 45.532
Takmarkað sætamagn — bókaðu strax
Nú bjóðum við glæsilegt tilboð til
Benidorm þann 24. sept. í 25 daga
á ótrúlegu til boðsverði þar sem þú
getur notið yndislegra daga í
yndislegu veðri og tryggrar þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða á meðan
á dvöl þinni stendur. Beint flug til
Alicante þann 24. september og í
boði eru afbragðsgóðir gististaðir,
allir með íbúðum með einu svefn-
herbergi, stofu, eldhúsi, baði og
svölum. Móttaka, veitingastaðir
og verslun er einnig í hótelinu.
Bókaðu meðan enn er laust. .
45.532
Verð kr.
m.v. hjón með 2 börn,
2-1 I ára, El Faro, 24. sept.
Verð kr.
59.960
íslenskur hjúkrunarfræðingur
með í ferðinni.
HEIMSFERÐIR
M.v. 2 í íbúð, 24. sept., El Faro.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.