Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 56

Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 56
OPIN KERFI HF. Simi: 567 1000 HPVectrí AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru í fyrirrúmi 03> NÝHERJI S 10RGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, •ÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBI@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kirkjusandur * Utfærslu „ háhýsa hafnað 3KIPULAGSNEFND hefur komist ið þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt ið samþykkja útfærslu fyrirhugaðra íýbygginga við Kirkjusand á þeirri 'orsendu að ekki hafi tekist að full- íægja kröfum sem gerðar eru til íljóðvistar á nýbyggingarsvæði í jyggingar- og mengunarvarnareglu- jerðum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- irstjóri segir að þegar erindi Ar- nannsfeils var upphaflega til umfjöll- mar í skipulagsnefnd og borgarráði rafi menn ekki velt þvi fyrir sér hvort jm endurbyggingarsvæði eða ný- jyggingarsvæði væri að ræða. Lægri byggð möguleg Guðrún Ágústsdóttir, formaður skipulagsnefndar, segir að eins og nálið horfi nú verði ekki hægt að oyggja þau háhýsi sem sýnd hafí verið á teikningum til þessa. Hins /egar er möguleiki á lægri byggð að Guðrúnar sögn. Gengið er út frá því að um nýbyggingarsvæði sé að ræða, að fengnu áliti borgarlögmanns, sem “ þýðir að umferðarhávaði við húsvegg má ekki fara yfir 55 desibel, sam- kvæmt reglugerðum. Lagðar voru fyrir fund nefndarinn- ar tillögur arkitektsins, Helga Hjálm- arssonar, um ráðstafanir til þess að mæta kröfum um um hljóðstig. Þar er gert ráð fyrir 5,5 metra háum hljóðskermi við Sæbraut og jarðfyll- ingu að honum, á lóð húsanna, og 3 metra háum gegnsæjum skermi á umferðareyju milli brautarhluta Sæ- brautar, sem veldur því að hæsta hljóðstig við efstu hæð hússins næst götunni reiknast 54,5 desibel. í bókun nefndarinnar segir hins vegar að ekki sé réttlætanlegt við nýskipulag að viðhafa svo miklar ráðstafanir til þess **_^að ýryggja viðunandi hljóðvist. Ármann Örn Ármannsson, fram- kvæmdastjóri Ármannsfells, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að unnið væri að nýrri útfærslu og yrði um að ræða dálitla tilfærslu á húsum innan lóðar. ■ Lægribyggð/6 ■ Umferðarhávaði/43 Morgunblaðið/Þorkell FÓLKI fjölgar á fjöllum þessa dagana. Ferðamenn njóta feg- urðar hálendisins og ekki dreg- ur úr ævintýrinu að láta svolít- ið á móti sér í lífsþægindum. Súpuveisla við vaskinn Þessir ferðamenn létu rigning- argjólu á Hveravöllum í fyrri viku ekki á sig fá heldur gæddu sér á sjóðheitri súpu við úti- vaskinn. Þrotabú Arnarflugs Lýstar kröfur 1,1 milljarður LÝSTAR kröfur í þrotabú Arnarflugs hf., sem lýst var gjaldþrota haustið 1990, nema samtals rúmum 1,1 milljarði króna. Þar af eru samþykktar for- gangskröfur 155 milljónir og af þeim greiðast 15,5%, eða 17,8 milljónir. Almennar kröfur eru 1.000.253 þúsund krónur og fæst ekkert upp í þær, að sögn Brynjólfs Kjartanssonar, skiptastjóra þrotabúsins. Skiptafundur í búinu verður haldinn í dag á skrifstofu Brynj- ólfs. Brynjólfur sagði í samtali við Morgunblaðið að fjöldi for- gangskröfuhafa væri 153, en þar er aðallega um að ræða launakröfur og kröfur frá lífeyr- issjóðum. Almennar kröfur eru samtals 200 talsins. Stærsti al- menni kröfuhafinn er Rík- isábyrgðarsjóður með kröfu upp á 237 milljónir og einnig er hollenska flugfélagið KLM með stóra kröfu. Umskipti hafa orðið í rekstri Landsvirkjunar eftir fjögurra ára taprekstur Hagnaður 970 milljónir á fyrri hluta ársins HAGNAÐUR Landsvirkjunar á fyrstu sex mánuðum ársins nam tæpum 970 milljónum króna. Þetta er mun betri afkoma en á sama tímabili í fyrra, en þá nam hagnað- urinn 160 milljónum. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, segir útlit fyrir að hagnaður ársins verði um 650 millj- ónir. I upphafi árs var því spáð að hagnaðurinn yrði 64 milljónir króna. Landsvirkjun hefur verið rekin með tapi síðastliðin íjögur ár. Tapið í fyrra nam 630 milljónum og 1.500 milljónum 1994. Samtals nemur tapið á þessum fjórum árum u.þ.b. 7.800 milljónum. Ástæðan fyrir tap- inu er sú að áætlanir um sölu raf- magns frá Blönduvirkjun brugðust og gengisþróun var óhagstæð. Umskipti hafa orðið í rekstri Landsvirkjunar á þessu ári. Hagn- aður fyrstu sex mánuðina nam 970 milljónum og fé frá rekstri nam alls um 1.065 milljónum. „Það eru einkum tvær skýringar á bættri afkomu fyrirtækisins milli ára. Annars vegar hefur tekist vel til með aðhald í rekstri á meðan tekjur hafa hækkað um tæpar 40 milljónir króna frá því sem var í janúartil júní 1995. Meginskýringin á bættri afkomu er hins vegar sú að fjár- og lánastýring Landsvirkj- unar hefur tekist mjög vel. Það sem af er ári hafa nettó vaxtagjöld lækk- að um sem nemur 775 milljónum króna á milli ára,“ sagði Halldór. Þrátt fyrir nærri eins milljarðs hagnað á fyrri helmingi ársins gera áætlanir ráð fyrir að hagnaður Landsvirkjunar á árinu öllu verði í kringum 650 milljónir. Að sögn Halldórs er skýring á lækkun hagn- aðar milli mánaða sú að tekjur fyrir- tækisins eru að jafnaði minni á seinni helmingi ársins og útgjöld meiri. Um síðustu áramót námu heild- areignir Landsvirkjunar 76,5 millj- örðum króna. Eigið fé nam 25,6 milljörðum og langtímaskuldir lið- lega 49 milljörðum. ■ Horfur á metverði/4 Mayen Varðskipið Týr, statt á loðnumiðunum, fór til aðstoðar norskum rækjutogara við Jan Mayen ■ .r'V y>-Langanes ÍSlAND NORSKI togarinn Polar Prawns. Islenskt varðskip aðstoðar norskan togara VARÐSKIPIÐ Týr fór í gær til aðstoðar við 500 tonna norskan rækjutogara, Polar Prawns, við Jan Mayen. Norski togarinn hafði fengið í skrúfuna og komist í var við eyna. Að sögn Helga Hallvarðs- '“^onar, yfirmanns gæslufram- kvæmda Landhelgisgæslunnar, leitaði umboðsmaður norska skips- ins hér á landi eftir því hvort hægt væri að senda þyrlu með kafara til Jan Mayen. Svarta þoka var þar um slóðir og ekki flugfært. Þegar Norðmenn fréttu að ís- lenskt varðskip með kafara um borð væri á loðnumiðunum við 200 mílna mörkin norðan við land ósk- uðu þeir eftir aðstoð varðskipsins. Helgi áætlaði að sigling Týs norð- ur til Jan Mayen tæki 11 klukku- stundir. Afgreiða á sparnaðartillögur Sjúkrahúss Reykjavíkur í dag Veruleg uppstokk- un á þjónustu SPARNAÐARTILLÖGUR fyrir Sjúkrahús Reykjavíkur gera ráð fyr- ir verulegri uppstokkun á þjónustu sjúkrahússins og fela meðal annars í sér uppsagnir starfsfólks, fækkun rúma og fækkun deilda, skv. upplýs- ingum sem Morgunblaðið aflaði sér I gær. Stjórn sjúkrahússins áformar að afgreiða tillögumar frá sér í dag, en yfir tillögunum, sem þykja rót- tækar og miða að grundvallarbreyt- ingu til framtíðar, hefur hvílt mikil leynd frá því að framkvæmdastjórn kynnti þær stjórn sjúkrahússins sl. þriðjudag. Stjórnarmenn voru sam- mála um að greina ekki opinberlega frá tillögunum fyrr en að lokinni endanlegri afgreiðslu sem að öllum líkindum verður í dag. Sjúkrahúsinu er gert að spara 200-250 milljónir á árinu auk þess sem við er að etja 85 milljóna kr. rekstrarhalla frá fyrra ári. Þeir, sem rætt var við í gær, töldu að úr því að um svo háar tölur væri að ræða, væri óhjákvæmilegt að til uppsagna kæmi, fækkun rúma og deilda og notendur þjónustunnar yrðu varir við samdráttinn í auknum bið- listum frá því sem nú er eða þeir hreinlega kæmust ekki að. Ljóst væri að það gengi ekki að ná fram öllum sparnaðinum á þessu ári enda væri komið fram á mitt ár. Gera þyrfti gagngera grundvallarbreyt- ingu, sem kæmi skýrast fram á næsta ári, þó hafist yrði handa við hana í ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.