Morgunblaðið - 11.08.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1996 27
JÓHANN
FRIÐÞÓRSSON
óska þér velfarnaðr á þeirri leið,
sem þú hefur nú lagt út á. Ástvinum
þínum votta ég innilega samúð.
Megi hinn Hæsti vera með þér nú
og ævinlega.
Bruno Hjaltested.
Vinur okkar, Sveinn Ólafsson,
er vaknaður til veruleikans, sem
bíður allra handan jarðlífsins. Hann
vissi eins og Einar, skáld, Bene-
diktsson, að „heiðloftið sjálft er
huliðstjald, sem himinsins dýrð oss
felur“. Hann mat kenningar sænska
sjáandans Swedenborg (1688-
1772) svo mikils, að hann kynnti
mörg verk hans og þýddi. Aðgengi-
legasta verkið á þeim vettvangi
hygg ég vera bók Helenar Keller,
„Emanuel Swedenborg og eilífðar-
trúin mín.“
Ég heimsótti Svein á spítalann
eftir að hann hafði fengið hjarta-
áfall. Hann var hinn rólegasti, en
langaði á því stigi málsins til að fá
svolítið svigrúm hérna megin til að
ganga betur frá sínum málum. Eina
vonin til þess var að fara í hjartaað-
gerð. Hann vissi vel, að hvergi
væri völ á færari læknum og hjúkr-
unarfólki en hér á landi, svo að
hann lagði í þetta ótrauður. En eft-
ir aðgerðina, sem í fyrstu virtist
ætla að skila árangri, kom í ljós,
að ýmislegt hafði raskast, þannig
að til lítils var að snúa hingað aft-
ur. Ég veit, að Sveinn ákvað sjálfur
að láta þessu lokið þegar fyrir lá
að engin von væri um sæmilega
heilsu.
Hann gerði mér þann greiða síð-
astan í lifanda lífi, að biðja Jóhönnu
dóttur sína að senda mér bók, sem
Leon S. Rhodes, vinur hans, fékk
útgefna á þessu ári og fjallar um
reynslu fólks, sem hefur næstum
dáið, en snúið hingað aftur. Gallup-
stofnunin gerði á því könnun hversu
„sjaldgæf" þessi reynsla væri. Út-
koman var reyndar sú, að í Banda-
ríkjunum einum fundust um
8.000.000 frásagnir! Yfirleitt fannst
fólkinu það vera utan jarðlíkamans
og upplifa þar margt, sem skildi
eftir bjargfasta sannfæringu um,
að langt sé frá, að allt sé búið,
þegar skilið er við hér.
Við hjónin erum forsjóninni
þakklát fyrir indæl kynni við Aðal-
heiði og Svein gegnum árin. Við
vitum að Aðalheiður er þannig gerð,
að hún skynjar nálægð Sveins í
andanum, þó að hann sé augum
ekki sýnilegur. Og svo eiga þau
börn, sem munu vel fyrir öllu sjá.
Skarð verður samt eftir svo
sterkan persónuleika sem Sveinn
var, en þá er líka tilhlökkunarefni
að hittast aftur á grænum grundum
eilífðarinnar. Ekki er sama hvernig
á er litið svo sem fram kemur í
kvæði eftir Edwin Markham, sem
Helen Keller vitnar til í bókinni sem
Sveinn þýddi.
Þom á rósarunna rifur hold
Og liljan hímir föl í fúamold
Og fiðrildisins litskrúð fýkur skjótt
Hver dagur endar brátt í dauðans nótt
Nei, nei!
Á þymirunna þokkafull vex rós
Og eyrar svartar prýðir liljan ljós
Og fiðrildanna fegurð við þér skín
Við ferðalokin bíður Drottinn þín!
Úlfur Ragnarsson, læknir.
+ Jóhann Friðþórsson fæddist
á Akureyri 10. ágúst 1940.
Hann lést 28. júlí síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Ás-
kirkju 8. ágúst.
Við fráfall Jóhanns frænda míns
Friðþórssonar, koma upp í huga
minn margar ljúfar minningar frá
æskuárum okkar á Akureyri.
Jóhann var sonur Fanneyjar Jó-
hannsdóttur og Friðþórs Jakobsson-
ar vélstjóra við Laxárvirkjun, móð-
urbróður míns. Bróðir Jóhanns er
Jakob, tvö hálfsystkini átti Jóhann,
samfeðra, Hilmar, búsettur á Dal-
vík. og Hólmfríði sem er látin.
I desember 1943 kom Fanney frá
Laxárvirkjun með drengina sína tvo
í hús foreldra minna á Oddeyrar-
götu. Friðþór var þá orðinn mjög
veikur og lést í janúar 1944. Frið-
þór móðurbróðir minn var elskaður
af fjölskyldunni og lát hans mikið
áfall. Mestur og sárastur var þó
missir Fanneyjar og drengjanna
ungu, og þurfti hún nú ein að ann-
ast uppeldi þeirra. Hjá okkur í Odd-
eyrargötu bjuggu þau næstu fimm
árin, eða þar til þau fluttu í Möðru-
vallastræti ásamt Aðalbjörgu systur
Fanneyjar og móður þeirra, Onnu
Aðalheiði. í sama húsi bjó Helga
systir Fanneyjar og Sveinn Frí-
mannsson ásamt dóttur og í næsta
húsi Þórður bróðir þeirra og Signý
kona hans ásamt dóttur. Þetta voru
góðar og samheldnar fjölskyldur og
nutu Jóhann og Jakob þess í ríkum
mæli.
Árin þeirra í Oddeyrargötu voru
mér og foreldrum mínum gleðiár.
Ég var stolt af þessum litlu frænd-
um mínum og leit á þá nánast sem
bræður mína og foreldrum mínum
þótti afar vænt um þá.
Jóhann var fallegur drengur, ljós-
hærður, brúneygður og ljúfur í lund.
Þeir bræður voru mjög samrýmdir
og kom það snemma í ljós. Mér er
alltaf minnisstætt atvik, er móðir
mín fékk Jóhann „lánaðan" í heim-
sókn til vinkonu minnar. Jóhanni
var þar gefið sælgæti, hann horfði
á sælgætið, leit síðan upp og sagði:
„Ég á bróður heima“. Þannig var
Jóhann. Síðar fluttu Fanney og
Aðalbjörg til Reykjavíkur ásamt
drengjunum. Þar lærði Jóhann bif-
vélavirkjun og stundaði þá iðn sína
til æviloka.
Jóhann kvæntist Þórunni Eyjólfs-
dóttur og eignuðust þau soninn
Eyjólf, augastein foreldra sinna.
Leiðir þeirra Þóru skyldu síðar.
Jóhann frændi minn var dulur
að eðlisfari og flíkaði ekki mjög til-
finningum sínum, en hann var
traustur og góður drengur, sem
öllum vildi vel. Síðustu árin reynd-
ust honum erfið á ýmsa lund, en
hann átti ávallt öruggt skjól hjá
móður sinni.
Nú er hann horfinn, þessi góði
drengur, til nýrra og bjartari heim-
kynna.
Við Björn og börnin okkar send-
um Eyjólfí syni hans, elsku Fann-
eyju, Jakobi, Báru og fiölskyldu
innilegar samúðarkveðjur.
Hvíl í friði, elsku frændi.
Hanna Marta Vigfúsdóttir.
Imm±m Krossar
| áleiði
I viöarTit og málaoir.
Mismunandi mynshjr, vönduð vinna.
Sími 8B3 8989 og 883 8736
+
Mínar innilegustu þakkir til allra, sem
studdu mig við andlát og útför sam-
býlismanns mfns,
ÁSVALDAR STEINGRÍMSSONAR.
Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks
deildar 11E Landspítalans.
Anna Sólveig Gunnarsdóttir.
Þökkum öllum þeim er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ARNBJÖRNS KRISTJÁNSSONAR,
Mararbraut 19,
Húsavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
og læknum á Sjúkrahúsi Húsavíkur fyrir
góða umönnun og hlýju.
Helga Benediktsdóttir,
börn og fjölskyldur þeirra
101*10 t«toi
&
I
1
I
5
I
i
íDaCta
úara blómiabúB/
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tæfiifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fáftafeni 11, sími 568 9120
P
I
5
|
S
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
MOSAIK
Hamarshöfói 4 - Reykjavik
sími: 587 1960 -fax: 587 1986
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁSGEIR ÞORSTEINSSON,
lést að morgni 9. ágúst sl.
Ásta Sigurðardóttir,
Ragnar Örn Ásgeirsson, Jónina Ágústsdóttir,
Þorsteinn Ásgeirsson, Ingibjörg Ásgrímsdóttir,
Helga Ásgeirsd. Thorlacius, Einar Thorlacius,
Sigurður Asgeirsson, Guðrún Zóphaniasdóttir
Kristjana Laufey Ásgeirsdóttir,
Ólafía Ásgeirsdóttir, Árni Rúnar Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR HANNAH,
Georg V. Hannah, Eygló Geirdal,
Bryndís Þ. Hannah, Gísli Thoroddsen,
Guðmundur B. Hannah, Svandi's Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RAGNHEIÐAR RÖGNVALDSDÓTTUR LÍNDAL,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 1-A, Landakoti.
Eiríkur Stefánsson,
Grétar H. Óskarsson,
Ingibjörg Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður míns, tengdaföður, sonar
og bróður,
JÓHANNS FRIÐÞÓRSSONAR
bifvélavirkja,
Álftamýri 54,
Reykjavík.
Eyjólfur Jóhannsson, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir,
Fanney Jóhannsdóttir,
Jakob Friðþórsson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auð-
sýndu samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæra unnusta, föður,
sonar, bróður og mágs,
ÍSLEIFS HEIÐARS KARLSSONAR,
Ástúni 8,
Kópavogi.
Heiður Hjaltadóttir,
Hjalti Þór (sleifsson,
Karl Stefánsson, Valborg ísleifsdóttir
Guðrún Karlsdóttir, Guðjón Helgason,
Herdfs Karlsdóttir, Árni Arnarson,
Stefán Karlsson.
+
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda vináttu
og hlýhug við andlát og útför móður
minnar, tengdamóður og ömmu,
SIGURBJARGAR
INGIMUNDARDÓTTUR,
Laugarnesvegi 118,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Landspítalans og Heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins fyrir mikilsverða
umönnun.
Fyrir hönd vandamanna,
Ingimundur Sigurpálsson,
Jóhann Steinar Ingimundarson,
Hilmar Ingimundarson,
Hallveig Hilmarsdóttir,
Vala Guðný Guðnadóttir,
Sigurbjörn Ingimundarson.