Morgunblaðið - 20.08.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tökur á
„Maríu“
hafnar
TÖKUR á kvikmyndinni Maríu hóf-
ust á Snæfellsnesi í gær. Kvikmynd-
in er framleidd af íslensku kvik-
myndasamsteypunni, fyrirtæki Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, í samvinnu
við þýska kvikmyndafyrirtækið Blue
Screen Film.
Aðalhlutverkið í myndinni er í
höndum einnar eftirsóttustu leikkonu
Þýskalands, Barböru Auer. Hún hef-
ur af þýskum tímaritum verið kölluð
„sú fagra í fílabeinsturninum", að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu, og hefur hlotið fjölda verðlauna
fyrir leik sinn. Handritshöfundur og
leikstjóri myndarinnar er Einar
Heimisson.
Kvikmyndin er örlagasaga þýskrar
konu sem kemur til íslands í kjölfar
síðari heimsstyijaldarinnar, ásamt
hópi þýskra kvenna til að starfa á
íslenskum bóndabæjum.
------♦ ♦ ♦-----
A
Arekstur í
Hvalfirði
HARÐUR árekstur varð er bifreið
með kerru aftan í keyrði inn á bíla-
plan við söluskálann Þyril og í veg
fyrir bifreið sem kom úr Reykjavík.
Engin slys urðu á fólki en sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar í
Borgarnesi eru báðir bílarnir óöku-
færir. Bifreiðin sem ekið var í veg
fyrir lenti út af þjóðveginum en mildi
þótti að hún valt ekki.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi og á Akranesi var umferð mjög
hröð um helgina og voru óvenju
margir ökumenn teknir fyrir of hrað-
an akstur.
Ökumaður bifhjóls var sviptur
ökuleyfi eftir að hafa verið tekinn á
149 km hraða í Hvalfirði.
------»■-»-♦----
Meint nauðg-
un kærð í
Keflavík
RANNSÓKNARDEILD lögreglunn-
ar í Reykjanesbæ hefur til rannsókn-
ar kæru tvítugrar stúlku vegna
meintrar nauðgunar á skemmtistað
í Keflavík aðfaranótt laugardags.
Stúlkan var flutt á neyðarmóttöku
fyrir fórnarlömb nauðgana á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur og gaf hún skýrslu
morguninn eftir.
Hinn kærði var handtekinn um
helgina en var sleppt að lokinni yfir-
heyrslu.
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 7
Ef þu gerir kröfur.
veldu þá aðeins það besta.
AB heíur í liðlega 70 ár framteitt
rúmdýnur og annan svefnbunað í hæsta
gæðaftokki. Þeir framleiða dýnurnar í
mörgum gerðum og stífteikum til að
mæta mismunandi þörfum. En
flaggskipið í þessari framleiðslu'j
rúmdýnan DUX:
að,
■
\ /S
etna smnar
yfiríagi úr náttúrulegu tatexi. Ofan á þetta
kemur svo vönduð yfirdýna úr bómutl
eða latexi. Þú tiggur ekki á DUX 2002,
þú tiggur í henni, þannig að viðkvæmar
axtir og mjaðmir ganga djúpt og notalega
ofan í yfirhorð dýnunnar.
Þú sofnar fyrr - þú sefur betur,
i. JJ /.
ISWIFT|_
Algiör draumur - í staðinn fyrir
„enn einn“ notaðan
(Á síðustu 12 árum hafa
1.607 íslendingar keypt sér
nýjan Suzuki Swift.)
Til afgreiðslu strax:
• • Superior White
• • Aleutian Blue
• • Antares Red
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17,108 Reykjavík. Simi 568 51 00.