Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 16

Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Miðlun og Tölvumyndir verðlaunuð MIÐLUN ehf. og Tölvumyndir hf. hafa unnið til alþjóðlegra verð- launa fyrir Símakrók, gagnakerfi krókaleyfishafa. Kerfið fékk verðlaun fyrir hönnun gagnvirkr- ar símaþjónustu á ársþingi Int- eractive Service Association (ISA), sem haldin var í San Diego fyrir skömmu. ISA eru alþjóðleg samtök fyrirtækja, sem fást við gagnvirka margmiðlun. Á með- fylgjandi mynd sjást Friðrik Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Tölvumynda, og Árni Zophonías- son, framkvæmdastjóri Miðlunar, með verðlaunagripinn. Símakrókurinn er sjálfvirkt þjónustusímkerfi, sem fyrirtækin hönnuðu fyrir Fiskistofu. Skip- stjórar krókabáta tengjast kerf- inu með því að hringja í ákveðið símanúmer og lesa inn tilkynning- ar um sóknardaga, nýtingu o.fl. Talvélin flytur upplýsingarnar síðan á alnetið þar sem þær liggja frammi. í umsögn dómnefndar keppninnar segir að hönnun kerf- isins hafi tekist einkar vel og með því sé hægt að safna saman upp- lýsingum hvaðanæva að úr heim- inum á fljótlegan og auðveldan hátt og hafa þær síðan tiltækar á alnetinu. Árni segir að Símakrókurinn hafi hlotið mikla athygli á árs- þinginu og telur að það sé vegna þess að kerfið sé notað í alvöru- viðskiptum eða til að miðla upp- lýsingum á milli sjómanna á stóru svæði og opinberrar stofnunar. „Svipuð kerfi þekkjast um allan heim en eru víðast hvar eingöngu notuð í símatorgsþjónustu eða leikjum útvarpsstöðva. Nú sjá menn hvernig hægt er að nota tæknina til að safna upplýsingum úr heilli atvinnugrein og miðla henni á alnetið. Þessi tækni er hins vegar síður en svo bundin við fiskveiðar. Hún hefur óþijót- andi möguleika í för með sér fyr- ir þá sem geta safnað saman upp- lýsingum í gegnum símkerfi og vilja hafa þær tiltækar á alnet- inu.“ Hann segir að kerfið hafi verið kynnt fyrir fulltrúum ýmissa fyr- irtækja á ársþinginu en of snemmt sé hins vegar að segja til um hvort samningar um sölu á því náist. Verkefna- miðlun í matvæla- iðnaði ALÞJÓÐLEG verkefnamiðlun í matvælaiðnaði hefst í dag á Scandic Hótel Loftleiðum. Þátttak- endur eru 140 talsins og koma frá 18 þjóðum Evrópu. Tilgangur þessa er að koma á samstarfi á milli íslenskra og erlendra fyrir- tækja í matvælaframleiðslu og tengdum greinum. Unnt er að fá styrki frá Evrópusambandinu, EVREKA og Norræna iðnaðar- sjóðnum til slíkra verkefna. Það eru Iðntæknistofnun og Samtök iðnaðarins sem hafa um- sjón með verkefnamiðluninni, sem stenc|ur í dag og á morgun. Afkoma 13 stærstu sveitarfélaga landsins fer batnandi eftir mikinn hallarekstur Morgunblaðið/Ásdís Stefntað 100 milljóna halla íár ÁÆTLAÐ er að halli af rekstri 13 af 14 stærstu sveitarfélaga landsins verði um 100 milljónir króna á þessu ári, samanborið við um 1.700 milljóna króna halla á síðasta ári og rösklega 6 milljarða króna halla árið 1994. Ekki er þó gert ráð fyrir því að rekstrar- og þjónustugjöld þess- ara sveitarfélaga minnki neitt að ráði heldur er fyrst og fremst reiknað með minni fjárfestingu. Þannig er áætlað að Ijárfesting umræddra sveit- arfélaga muni nema 4,1 milljarði króna á þessu ári samanborið við 5,4 milljarða í fyrra, að því er fram kejnur í Hagtölum mánaðarins sem Seðlabanki Islands gefur út. Stefnt var að því á síðasta ári að ná halla umræddra sveitarfélaga niður og var áætlað að halli af rekstri þeirra yrði um 200 milljónir króna en raunin varð sem fyrr segir 1.700 milljóna króna halli. Þetta svarar til 7,8% halla af rekstri þeirra. Sveitarfélögin í landinu hafa aðeins einu sinni á undanförnum 17 árum verið samanlagt rekin með afgangi. Hallinn hefur þó aldrei verið meiri en árið 1994 er hann var nær þriðjungur af tekjum sveitarfélaganna og nærri 2% af lands- framleiðslu. Með hallarekstri undangenginna ára hefur skuldastaða sveitarfélaganna versnað til muna. Vanmetnar lífeyrisskuld- bindingar setja strik í skuldastöðuna Hreinar skuldir sveitarfélaganna námu í árslok um 22 milljörðum króna og miðað við hallarekst- ur ársins 1995 og þá áætlun sem liggur fyrir þetta ár er áætlað að hreinar skuldir sveitarfélag- anna verði 25 milljarðar króna í árslok, eða sem svarar til um 5,1% af landsframleiðslu. í þessum tölum er hins vegar ekki tekið tillit til skuldbindinga sveitarfélaganna vegna Iífeyris- réttinda starfsmanna. I Hagtölum mánaðarins kemur fram að framlög í sérsjóði sveitarfélag- anna, sem og Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem sum sveitarfélög greiða í fyrir starfsmenn sína, hafa framlög um árabil verið minni en svo að þau standi undir lífeyrisréttindum sjóðsfélaga. Fyrir vikið hefur safnast óformleg skuld sveit- arfélaganna við lífeyrissjóðina og er reiknað með því að þessar lífeyrisskuldbindingar nemi nú um 15-20 milljörðum króna umfram eignir viðkom- andi sjóða. Þegar þessari skuld er bætt við aðr- ar skuldir sveitarfélaganna nema heildarskuldir þeirra um 8-9% af landsframleiðslu og um 130-150% af skatttekjum. „Slíkar skuldir eru viðráðanlegar fyrir sveitarfélög í vexti, en við- sjárverðar ef tekjur og umsvif eru að dragast saman.“ Sala á fyrirtækjum gæti grynnkað á skuldum Á móti er hins vegar bent á að sveitarfélög- in eigi verulegar eignir í fyrirtækjum sínum sem hægt væri að nota til að grynnka á skuldum ef vilji stæði til. „Samkvæmt skýrslu Hagstof- unnar um ársreikninga sveitarfélaga nam eigið fé slíkra fyrirtækja tæpum 55 milljörðum króna í árslok 1994. Þá er ótalið að hlutabréfaeign margra sveitarfélaga er vanmetin í reikningum. Fæstar þessara eigna skila eðlilegum arði af því fé sem í þdm er bundið, þótt á því séu undantekningar. í mörgum tilfellum stafar arð- bresturinn af því að viðskiptavinir fyrirtækj- anna greiða lægra verð fyrir þjónustu en vera þyrfti ef eðlilegrar ávöxtunar væri krafist af eigin fé. Slík greiðvikni er hins vegar vandmeðf- arin. Sú staða gæti komið upp að hægt sé með eignasölu að lækka vaxtakostnað og í framhald- inu skattheimtu svo mikið að nemi meira en niðurgreiðslunni sem fólgin er í verði þjón- ustunnar." ) I I I ) * t ) I Mikil hlutabréfaviðskipti á Verðbréfaþingi íslands það sem af er þessuári Arið 1996þeg- ar orðið metár HEILDARVELTA hlutabréfavið- skipta á Verðbréfaþingi íslands það sem af er þessu ári er þegar orðin meiri en á öllu síðasta ári. Velta viðskiptanna þá rúmu 7 mánuði sem liðnir eru af þessu ári nemur tæplega 3,2 milljörðum króna að söluvirði en heildarvelta hlutabréfaviðskipta á þinginu allt síðastliðið ár nam 2.858 milljónum króna. Umfang hlutabréfaviðskipta hefur aukist mikið frá því að Verð- bréfaþing íslands kom til sögunn- ar. Árið 1991 var heildarvelta þeirra hlutabréfaviðskipta sem skráð voru á þinginu 5 milljónir króna en árið 1994 var veltan komin í 1.335 milljónir króna og 2.858 milljónir árið á eftir sem fyrr segir. Þingvísitala hlutabréfa hefur líka hækkað verulega það sem af er þessu ári. Allt síðasta ár hækk- aði vísitalan um 36% en á þessu ári hefur hún hækkað um 52%. Hækkun vísitölunnar síðustu tólf mánuði er hins vegar enn meiri eða 80%. Einnig metviðskipti á Opna tilboðsmarkaðnum í þessum veltutölum hér að framan er ótalin sú aukning sem orðið hefur á viðskiptum með hlutabréf þeirra fyrirtækja sem skráð eru á Opna tilboðsmarkaðn- um. Heildarviðskipti með þessi hlutabréf það sem af er þessu ári nema tæpum 1.100 milljónum króna en allt síðasta ár námu við- skiptin á Opna tilboðsmarkaðnum röskum 756 milljónum króna að söluvirði. Heildarumfang hlutabréfavið- skipta hér á landi í ár er því þeg- ar orðið tæpum 670 milljónum króna meira en það var allt síð- asta ár. í töflunni hér til hliðar má sjá hvernig gengi hlutabréfa í einstökum fyrirtækjum á Verð- bréfaþingi hefur þróast. Fyrirtæki á Verðbréfaþingi breyting á gengi hlutabréfa frá áramótum Breyting frá áramótum Gengi 31.12.95 19.8.96 Vinnslustöðin Tæknival Marel Síldarvinnslan Haraldur Böðv. 152% ■1148% ■ 142% i 135% 128% OLÍS Plastprent Skagstrendingur Grandi Hampiðjan Skinnaiðnaður Þormóður rammi Skeljungur Útg.f. Akureyringa Flugleiðir Eimskip Lyfjaverslun ísl. SR-Mjöl íslandsbanki Olíufélagið Ehf. Alþýðub. Sæplast Auðlind Hlutabréfasj. Hlutabrsj. Norðurl. Alm. hlutabrsj. ísl. hlutabréfasj. Jarðboranir Próunarfélagið KEA -5% 1,03 2,10 4,55 3.48 2,19 2,41 3,25 3.25 2.25 2,87 2,90 2,92 3.40 3,09 2,23 5,00 2,35 2,10 1,33 5,64 1,18 4,04 1.49 1,89 1,57 1,32 1.41 2,52 1,40 2,10 2,60 5.20 11,00 8,18 5,00 4,80 6.25 6.20 4,00 4.94 4,90 4,70 5.40 4,90 3,45 7.25 3.40 3,02 1,88 7.95 1,66 5,55 1,97 2,47 2,00 1,66 1,76 3,12 1,57 2,00 Greiðslukortaveltan nam 104 milljörðum Kortanotk- un eykst en tékkum fækkar HEILDARVELTA kreditkorta fyrstu sex mánuði ársins nam tæp- um 36 milljörðum og er það 13,6% hækkun frá sama tímabili í fyrra. Færslufjöldi jókst á sama tíma um 7,3%. Heildarvelta debetkorta nam tæpum 68 milljörðum og er það 37,7% aukning. Fjöldi debetkorta- færslna jókst um tæplega 50% frá sama tímabili í fyrra. Notkun tékka hefur dregist saman um 3% og nam heildarvelta tékka tæpum 368 millj- örðum fyrstu sex mánuði ársins. Tékkanotkun dróst saman um 19% á sama tímabili. í Hagtölum mánaðarins kemur fram að kortum fjölgaði um 5,3% frá fyrsta ársfjórðungi til loka ann- ars ársíjórðungs 1996 en fjöldi korta var rúmlega 171 þúsund í lok júní. Greiðslukortanotkun íslendinga eykst hlutfallslega mun meira er- lendis heldur en innanlands á fyrri hluta ársins. I i \ i \ i \ i L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.