Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 41
ATVINNU UGL YSINGAR
„Au pair“ Portúgal
Óskum eftir stúlku, á aldrinum 18-22 ára,
til að gæta fjögurra mánaða drengs, auk
þess að sinna húsverkum, frá miðjum septem-
ber '96 til 1. september '97.
Upplýsingar hjá Jóhönnu í síma 568 5427
milli kl. 16.00-18.00.
Kennarar óskast!
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar við
Myllubakkaskóla í Keflavík:
1. Almenn kennsla í 1. bekk, hlutastaða (2/3)
með kennslutíma frá kl. 12.40-16.15.
2. Smíðakennsla í 2.-6. bekk, hluta-
staða (1/2).
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum
421 1450 og 421 1884.
Skólastjóri.
Fjölhæfur ritari
Lítið, framsækið þjónustufyrirtæki leitar að
fjölhæfum ritara til þess að annast af-
greiðslu viðskiptavina, símavörslu, auk hefð-
bundinna ritarastarfa.
Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund
og helst að kunna á t.d. Excel/Word.
Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 23. ágúst, merktar:
„H - 15231“.
Saumakonur
Verslunin Sautján auglýsir:
Vegna stækkunar á saumastofu okkar við
Laugaveg bráðvantar okkur nú þegar vanar
saumakonur til starfa.
Sveigjanlegur vinnutími.
Nánari upplýsingar veita Lovísa eða Yvonne
í síma 511 1719.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Rafmagnsverk-
fræðingur eða
tæknifræðingur
Kennara vantar til kennslu í tölvu- og
rafeindagreinum.
Stundakennsla kemur til greina.
Umsóknir berist til skrifstofu skólans
í síðasta lagi 22. ágúst nk.
Frá Grunnskólanum
í Súðavík
Kennara vantar við Grunnskólann í Súðavík.
Um er að ræða grunnskóla með 50 nemend-
ur í 1.-10. bekk. Skólinn er í nýju, rúmgóðu
húsnæði með góðri íþróttaaðstöðu.
Meðal kennslugreina:
Almenn kennsla á yngra- og unglingastigi,
tungumál, íþróttir, tónmennt, stærðfræði á
unglingastigi, raungreinar og umsjón með
félagslífi.
í þoði er mikil vinna og ýmis hlunnindi fyrir
áhugasama.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Súðavíkurhrepps, sími 456 4912, hjá skóla-
stjóra í síma 456 4961 og hjá kennurum í
símum 456 4916 og 456 4973.
Lögmannsstofa
- afleysingar
Ritari óskast í 1/2 starf eftir hádegi á lög-
mannsstofu í afleysingar í ca 6 mánuði.
Þarf að geta hafið störf strax.
Starfið er aðallega fólgið í ritvinnslu og síma-
vörslu.
Gerðar eru kröfur um góða ástundun og
góða íslenskukunnáttu.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, óskast sendar til afgreiðslu
Mbl., merktar: „Lögmannsstofa - afleysingar
- 1078“, í síðasta lagi 22. ágúst nk.
Vesturbyggð,
Aðalstræti 63,450 Patreksfirði
Grunnskólinn
Örlygshöfn
Við grunnskólann að Örlygshöfn í Vestur-
byggð eru eftirtaldar stöður lausar
til umsóknar:
1. Staða skólastjóra.
2. Staða kennara.
3. Staða við mötuneyti.
4. Staða vistavarðar.
5. Staða ræstitæknis.
Um er að ræða tvö stöðugildi við skólastjórn-
un og kennslu 17-20 nemenda skólans og
vistavörð, mötuneytisstarf og starf ræsti-
tæknis gegn fastri mánaðargreiðslu.
Starfið hentar einstaklega vel hjónum og/eða
sambýlisfólki eða öðrum þeim, sem eru til-
búnir til að deila saman húsnæði.
Möguleiki er á að tveir aðilar geti sinnt öllum
stöðunum eða að minnsta kosti fjórum þeirra
og hafi þannig verulega tekjumöguleika.
Húsnæðishlunnindi og flutningstyrkur í boði.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar á bæjarskrifstofu
Vesturbyggðar í síma 456 1221.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra
Þroskaþjálfar
og/eða annað sérmenntað fólk
á meðferðarsviði
Við auglýsum lausar til umsóknar tvær
stöður forstöðumanna við sambýli fyrir
þroskahefta.
Forstöðumaður ber faglega og fjárhagslega
ábyrgð á rekstri sambýlisins í samræmi við
erindisbréf og vinnureglur, er um stöðuna
gilda. Hann annast daglega verkstjórn og
skipulagningu þeirrar þjónustu, er sambýlið
veitir, og er íbúunum til aðstoðar og liðveislu
í ýmsum persónulegum málum.
Umsækjendur skulu hafa menntun á félags-
eða uppeldissviði. Stjórnunarreynsla er
æskileg svo og reynsla af að starfa með
fötluðum. Af sjálfu leiðir, að forstöðumaður
þarf að geta tamið sér skipulögð vinnubrögð
og eiga auðvelt með að vinna í samstarfi við
aðra.
Nánari upplýsingar um stöður þessar eru
veittar á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Glerárgötu 26, Akureyri, og í síma skrifstof-
unnar sem er 460 1400.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst nk. og skulu
skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendar Svæðis-
skrifstofunni.
Trésmiðir
- Neskaupstað
óskum eftir að ráða trésmiði til vinnu
á Neskaupstað.
Upplýsingar gefur Teitur Gústafsson í síma
562 2700 eða 567 4002 á skrifstofutíma.
ÍSTAK
Skúlatúni 4.
HUMARHÚSIÐ
Ræsting
Óskum eftir að ráða starfsmann í ræstingar.
Vaktavinna. Laun samkvæmt taxta FSV.
Umsóknum skilað til afgreiðslu Mbl. merkt-
um: „R - 1080“ fyrir 23. ágúst.
Framreiðslunemi
Óskum eftir að ráða nema í framreiðslu.
Umsóknum skilað til afgreiðslu Mbl. merkt-
um: „F - 1081“ fyrir 23. ágúst.
M
MARKHÚSIÐ
20 nýir starfsmenn
Vegna stóraukinna verkefna leitum við nú
að hæfileikaríku og hressu starfsfólki til þess
að hringja og/eða svara í símann fyrir við-
skiptavini okkar á kvöldin frá
kl. 18.00-22.00.
Um er að ræða krefjandi störf þar sem gæði
og áreiðanleiki er okkar leiðarljós.
Við bjóðum spennandi starf í góðu starfsum-
hverfi, þar sem allir starfsmenn hljóta þjálfun
í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að vera a.m.k. 20 ára og
þarf að geta slegið gögn inn í tölvu.
Umsóknir óskast sendar til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Markhúsið ehf. - 1076“, fyrir
23. ágúst nk.
Markhúsið er sérhæft markaðsfyrirtæki sem leggur áherslu á beitingu
beinnar markaðssóknar í starfi sínu. Við höfum yfir að ráða öflugum gagna-
grunnum til vinnslu markhópa, þekkingu og reynslu af beinni markaðs-
sókn, tækjabúnaði til vinnslu verkefnanna og einu öflugasta síma- og tölvu-
kerfi sem völ er á í símaþjónustu. Meðal viðskiptavina okkar eru Póstur
og sími, Ríkisútvarpið, Landsbréf, íslandsbanki, Sjónvarpskringlan, Brim-
borg, Flugleiðir, Sjóvá-Almennar o.fl.
M
Iþróttakennarar
Grunnskólinn í Ólafsvík auglýsir stöðu
íþróttakennara lausa nú þegar. Leitað er að
áhugasömum og metnaðarfullum íþrótta-
kennara með framtíðarráðningu í huga.
í Ólafsvík er fyrirhuguð bygging nýs íþrótta-
húss og þar er kröftugt og vaxandi starf
u.m.f. Víkings á flestum sviðum íþrótta, þar
sem ætíð er þörf fyrir hæfa og vel menntaða
íþróttakennara til þjálfunar þarna og ungl-
inga.
Húsnæðisfríðindi og flutningsstyrkur.
Umsóknir skal senda til undirritaðra sem
jafnframt veita allar nánari upplýsingar.
Gunnar Hjartarson, skólastjóri,
símar 436 1150/436 1293.
Sveinn Þór Elinbergsson, aðstoðarkólastjóri,
símar 436 1150/436 1251.
Grunnskólinn í Ólafsvík.