Morgunblaðið - 27.09.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 23
Daiiskur húmor
TONIIST
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
DANSKURSAXÓFÓN-
KVARTETT
Nýi danski saxófónkvartettinn lék
verk eftir J.S. Bach, Astor Piazzolla,
George Gershwin, Lárus H. Gríms-
son og Jean Francaix. Fimmtudagur-
inn 24, september, 1996.
BELGÍSKI hljóðfærasmiðurinn
Adolphe Sax (rétt heiti hans var
Antoine Joseph, 1814-1894), smíð-
aði saxófóninn árið 1840 og fékk
einkaleyfí viðurkennt árið 1846 og
er þessi smíði hans raunar eina
nýja hljóðfærið sem hefur náð al-
þjóðlegum vinsældum síðan stál-
hörpupíanóið kom fram. Hljóðfærið
Hátíðar-
tónleikar í
Hveragerð-
iskirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir í Hvera-
gerðiskirkju á vegum Tónlistarfé-
lags Hveragerðis og Ölfuss og
Kirkjukórs Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna sunnudaginn 29.
september. Tónleikarnir eru haldnir
í tilefni 50 ára afmælis Hveragerðis-
bæjar.
A tónleikunum kemur fram fjöidi
einsöngvara auk kirkjukórsins og
blásarakvartetts. Tveir ungir tón-
listarmenn, Páll Sveinsson og Stef-
án Ingimar Þórhallsson, munu
frumflytja slagverkstónverk sem
þeir hafa samið sérstaklega fyrir
þessa tónleika. Meginþema tónleik-
anna eru verk eftir tónskáld og ljóð-
skáld sem tengjast Hveragerði á
einn eða annan hátt og er verk-
efnaval fjölbreytt. Nær allir flytj-
endur eru Hvergerðingar eða tengj-
ast Hveragerði á einhvem hátt.
Aðgangseyrir er 500 kr. og renn-
ur hann í sjóð til styrktar kaupum
á flygli á kirkjuna. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.
------» » «-----
60. sýning- á
BarPari
60. SÝNING á leikritinu BarPari
verður næstkomandi laugardag, 28.
september, kl. 20.30.
Örfáar sýningar eru áætlaðar og
verður sú síðasta laugardaginn 5.
október en þá verður höfundurinn,
Jim Cartwright, viðstaddur.
Leikritið gerist á bar og segir þar
frá hjónunum sem eiga og reka bar-
inn. Einnig koma við sögu gestir
þeirra af ýmsu sauðahúsi, skrautleg-
ir og skemmtilegir persónuleikar.
Hlutverkin eru fjórtán en aðeins
tveir leikarar, Saga Jónsdóttir og
Guðmundur Ólafsson, fara með þau
öll.
Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir,
leikmynd og búninga gerði Jón Þór-
isson en lýsingu annaðist Lárus
Björnsson.
------*—*—*-----
Síðasta sýning-
arhelgi Guðjóns
og Fries
í ANDDYRI Norræna hússins hefur
staðið yfír sýning á grafíkverkum
eftir sænsku listakonuna Ullu Fries.
Listakonan kallar sýninguna Samtal
við náttúruna, en myndefnið sækir
hún til hins smæsta í náttúrunni.
Ulla Fries notar koparstungu-
tækni við að vinna verk sín, en kop-
arstunga er með elstu djúpþrykkað-
ferðum sem notuð er í grafík.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 29.
september og er hún opin til kl. 19.
í sýningarsölum í kjallara hefur
Guðjón Ketilsson sýnt tréskúlptúra
eða rýmisverk. Sýningin er opin
daglega kl. 14-19 og lýkur sunnu-
daginn 29. september.
er til í sex stærðum, en Es sópran-
inn og b-bassinn eru ekki oft notað-
ir. Bæði alt- og tenórsaxófónninn
náðu miklum vinsældum í jazz-tón-
list en minna hefur farið fyrir notk-
un hans í alvarlegri tónlist. Það er
töluverður munur á ieikmáta jazz-
ista og klassískt menntaðra hljóð-
færaleikara en tenórinn þykir vera
mannlegasta hljóðfærið. Nýi danski
saxófónkvartettinn er skipaður
Jorgen Bove, Chritian Hougaard,
Torben Enghoff og Per Engholm,
allt ágætum hljóðfæraleikurum,
sem skiluðu viðfangsefnum sínum,
leikandi léttum, ef til vill þó um of
í sama styrk og án þess að slaka á
í hryn.
Tvö fyrstu viðfangsefnin voru
fúgur úr Kunst der Fuge, nr. I og
IX, sem bæði voru mjög vel flutt.
Eftir Piazzolla voru leikin tvö verk,
fyrst Milonga del Angel og þá svíta
í sex þáttum, eins konar tango-
svíta, létt og leikandi verk, sem
þeir félagar léku mjög vel, smá-
útsetning á þekktu stefi úr Amer-
íkumaður í París, eftir Gershwin,
er eins og allar lærðar dægurla-
gaútsetningar, of skrautlegar til að
ná dægurlaginu og lenda einhvers
staðar á milli góðra og ofgerðra
smáverka sem hvorki er hægt að
kalla dægurlög eða flokka sem al-
varlega tónlist.
Saxófónkvartett eftir Lárus H.
Grímsson er á margan hátt
skemmtilegt verk. Upphafið er slá-
andi hugmynd, sem Lárus dvelur
of lengi við, og eins og fyrr segir
var leikur félaganna um of einlitur
í styrk og hraða, hvergi slakað á
og keyrt áfram í óaflátanlegum
hryn svo verkið í heild var án allra
andstæðna í meðferð Nýja danska
saxófónkvartettsins.
Lítili kvartett, eftir Francaix, er
stílaður á gamansemi og skemmti-
lega ritaður þó vei hefði mátt leika
aðeins með alvöruna, því gaman og
alvara er samtvennd og ekki tii
hvort án annars. Nýi danski saxó-
fórikvartettinn er vel spilandi hópur
og samhljómur hans góður. Þó er
eitt sérkennilegt við svo samstæðan
hljóm hljóðfæra, að hljómblærinn
verður of samstæður og þær and-
stæður, sem í öðrum hljóðfærasam-
setningum skapa margbreytileika í
blæ, eru ekki fyrir hendi. Hljómur-
inn verður allt of einlitur og á köfl-
um þreytandi, ekki síst þegar efnis-
skráin er nær öll samsett af verkum
sem flest eru unninn út frá hinum
sæta ferhljómi dægurlaganna. Það
sem þó bætti svolítið um var glað-
legur og hressilegur leikur félag-
anna, með þeim létta „humor“ sem
Danir eru frægir fyrir.
Jón Ásgeirsson
4—
l li
í gluggatjaldadeild Vogue í Skeifunni 8 er geysimikið
úrval af gluggatjaldaefnum og öðrum efnum. Við
höfum einnig yfir 300 sýnishorn sem við sérpöntum
eftir fyrir þig. Þau efni er einnig hægt að panta
eldvarin og sem myrkvunartjöld.
Sérhæfð ráðgjöf og þjónusta
Sérfræðingur verslunarinnar, Helga Jónsdóttir,
sem lært hefur gluggatj aldauppsetningar í Kanada,
kemur heim til þín og ráðleggur þér um snið og efni í
samræmi við ríkjandi stíl heimilisins og hún saumar
einnig gluggatjöldin fyrir þig.
Herbergispúðar, 860 kr. j
Efni og tölur í stíl, 870 kr.
Stofupúðar, 1120 kr.
Dúkar 90x90 cm, 1595 kr.
Löberar, 2 stxrðir, 1570
og2100 kr.
Sýnishorn af
sérpöntunarlista
m Allt x stíl í eldhúsið:
Tilbúnir kappar, 1075 kr./m,
efni í stíl á 870 kr./m,
hitaglófi, 320 kr., * pottaleppar, 190 kr„
diskamotta,420kr„ * dúkarfrál050kr„
svunta, 1150 kr.
ögu<
Gluggatjaldadeild,
Skeifunni 8, sími 5814343
Það er engin ástæða til að kaupa
nokkurn veginn það sem þú vilt
þegar þú geturfengið nákvæmlega það sem þú vilt.
Reykjavík Hafnarfjörður Keflavík Selfoss
Skólavörðustíg 12, símar 552 5866 og 552 5750 Strandgötu 31, Hafnargötu 54, Eyravegi 15,
Mjódd Þarabakka 3, sími 557 2222 sími 555 1092 sími 421 2612 sími 482 2930
Akureyri
Skipagötu 18,
sími 462 3504
J_