Morgunblaðið - 06.10.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
Gleymdu vegirnir á Vestfjörðum
Jafnvel fölsku tenn-
urnar eru í hættu!
Frá Hallgrími Sveinssyni:
GÍSLI Eiríksson, fyrirliði Vestfírð-
inga í vegamálum, lýsir ástandi vega
í umdæmi sínu sem óvenju slæmu
þessa dagana, í viðtali í Mbl. ný-
lega. Gísli segir þar meðal annars
að vegirnir þurfí að fá að þorna
áður en hægt verði að hefla og vega-
kerfið sé veikt.
Þetta er alveg rétt hjá Gísla.
Vegakerfið er svo veikt á vissum
hluta Vestfjarða, að stundum liggur
við að neyðarástand skapist. Orsök-
in er meðal annars sú, að það vant-
ar ofaníburð, öðru nafni slitlag, á
fjölda vega hér um slóðir. Þeir bein-
línis æpa á ofaníburð. Og þegar
hann er ekki fyrir hendi, þýðir lítið
að hefla, hvort heldur rigning er eða
sólskin.
Miklar framfarir hafa átt sér stað
á liðnum árum í vegagerð á Vest-
fjörðum. Og Vestfjarðagöngin eru
eins og hvert annað ævintýri. Vítt
og breitt eru komnir varanlegir slit-
lagspartar, þar sem menn aka eins
og greifar. Og sumsstaðar eru meira
að segja ágætir kaflar af malarveg-
um. En síðan taka oft við gjörsam-
lega ófærir troðningar, þar sem
ekki eru bara holur, heldur gígar
einnig og þessir óvegir eru stundum
sem nýrunnið hraun yfírferðar,
vegna þess að slitlagið er löngu fok-
ið út í veður og vind. Þetta eru hin-
ir gleymdu vegir á Vestfjörðum.
Gömlu vegaverkstjórarnir höfðu
það sem fyrsta boðorð að mölbera
hvern einasta vegarspotta sem til
náðist á hverju sumri. Annað þótti
goðgá. í hita bardagans hafa menn
gleymt þessu vinnulagi, eða hvað á
að halda, þegar vegir eins og Dynj-
andisheiðin hafa verið látnir drabb-
ast svo niður, að Vestfírðingar dauð-
skammast sín fyrir að láta nokkurn
mann aka þar um. Áður fyrr voru
þeir yfir sig montnir af þessum heið-
arvegi, því oft á tíðum var hann sem
steyptur væri, svo góður var ofaní-
burðurinn. En um daginn sást mað-
ur signa sig áður en hann lagði á
heiðina og þess munu dæmi hjá
mönnum í akstri hér, að þeir hafa
orðið að taka út úr sér fölsku tenn-
urnar, til að halda þeim heilum!
Margir telja að nú sé runninn
upp tími mulningsvélanna við vest-
firska hringveginn. Ræsa verði all-
ar mulningsvélar snemma í vor.
Þetta verði að vera forgangsverk-
efni, nokkurs konar ný ofaní-
burðarstefna. Svo sem eins og 50
milljónir króna myndu gera krafta-
verk í þessu efni. En hvar á að
taka þá peninga? Ef þeir eru ekki
til undir liðnum viðhaid, sýnist fátt
annað til ráða en fresta einhverjum
nýbyggingum um nokkur ár og
nota fjármuni sem við það sparast
í þetta nauðsynjaverk.
En það er ekki nóg að mala efni
og láta það svo biða í haugum við
vegkantana árum saman, eins og
mörg dæmi eru um. Það verður að
keyra það út í vegina. Þá geta strák-
arnir hans Gísla heflað og leikið við
hvern sinn fingur, þó hann rigni
eldi og brennisteini. Ef horfið verður
að þessu ráði, munu bæði heima-
menn og ferðafólk lofa og prísa
Vegagerðina fyrir mjúka og góða
vegi hér vestra næsta sumar, slík
yrðu viðbrigðin frá núverandi hörm-
ungarástandi.
HALLGRÍMUR SVEINSSON,
Hrafnseyri.
Grensásdeildin
lengi lifi!
Islenskar lækninqajurtii
Námskeið verður haldið
14. og 15. okt. kl. 20.00 — 22.00.
Kennt að búa til jurtasmyrsl, te og seyði.
Verð kr. 4.900.
Einnig einkaviðtöl, ráðgjöf og
ilmolíunuddtímar.
Anna Rósa Róbertsdóttir MINMH
grasalæknir og ilmolíunuddari,
sími 551-0135.
Vefnaðarvöruverslunin
Horn
Kársnesbraut 84 Kópavogi
Útsala - útsala
Útsala hefst
mánudaginn 7. október.
Verulegur afsláttur.
ALLT Á AÐ SELJAST.
Opið frá kl. 9-20
Frá Sigrúnu Knútsdóttur:
NÝLIÐIÐ sumar hefur einkennst
af miklum hremmingum í heilbrigð-
iskerfinu, bæði vegna fjárhags-
vanda sjúkrahúsa og ekki síður
vegna ástandsins innan heilsugæsl-
unnar vegna uppsagna heilsu-
gæslulækna.
Þessar hremmingar eru nú að
mestu yfírstaðnar. Heilsugæslu-
læknar eru komnir aftur til starfa
og dregið hefur úr fjárhagsvanda
sjúkrahúsanna í Reykjavík eftir að
heilbrigðis- og fjármálaráðherra
samþykktu að veita auknum fjár-
munum til þeirra og koma þannig
i veg fyrir lokanir deilda og upp-
sagnir starfsfólks.
Þessi aukafjárveiting var þó skil-
yrt og var m.a. gert samkomulag
milli fjármálaráðherra, heilbrigðis-
málaráðherra og borgarstjóra um
áframhaldandi rekstur Grensás-
deildar sem endurhæfingardeildar.
Samkvæmt samkomulaginu er
deildinni ætlað að sinna sjúklingum
bæði frá bráðadeildum Sjúkrahúss
Reykjavíkur og frá Landspítalan-
um. Starfsfólk og velunnarar deild-
arinnar fögnuðu að vonum þessari
ákvörðun stjórnvalda.
Allt frá því að umræður hófust
um að leggja deildina niður sem
endurhæfingardeild hefur heil-
brigðisráðherra lagt áherslu á mik-
ilvægi deildarinnar og stutt starf-
rækslu hennar.
Margir hafa lagt baráttunni um
að Grensásdeildin fái að starfa
áfram sem endurhæfíngardeild lið,
bæði með fundahöldum og blaða-
skrifum og eiga þeir allir þakkir
skildar.
Því miður hafa stjórnendur
Sjúkrahúss Reykjavíkur ekki enn
ákveðið hvenær deildin verður opn-
uð að fullu samkvæmt samkomu-
lagi stjórnvalda. Það er þó von okk-
ar sem leggjum áherslu á skilvirka
endurhæfingu að þess verði ekki
langt að bíða að deildin verði starf-
rækt að fullu með hag þeirra sem
þurfa endurhæfingu og með arð-
semi fyrir þjóðfélagið að leiðarljósi.
SIGRÚN KNÚTSDÓTTIR,
yfirsjúkraþj álfari Grensásdeildar.
- kjarni máisins!
r
"N
Fallegar stífar
teygjubuxur.
Tegund 40-005.
Stærðir: S, M, L, XL.
Litir: jöklahvítt og svart.
Verð aðeins kr.
1.285
v_____________
Hirzlan
OPIÐ í DAG
SUNNUDAG. kl. 13-17
á nýjum stað!
Auðbrekku 19 Kópavogi
Veggsamstæða kr. 33.250 (einsogámynd)
Margir möguleikar á uppsetningu
Skúffuskápur á tijólum
47*45x63 kr.11,500
Skrifborð 160x80*75 kr.10.900
Hornborð 80x80x75 kr.8.950
Skrifborð 120x80x75 kr. 9.500
Vélritunarborð á
105x40x69 kr. 5.950
Bokahillur verð frá kr. 3.300 til 5.900,
Svart / hvítt / beyki / fura / (kirsuberja)
* _j)sr
Kommóður verð frá kr. 8.700
Svart / Hvítt / beyki / kirsuberja
Skrífborð verð frá kr. 8.600
Svart / hvítt / beyki/fura
Sjónvarpsskápar verð frá kr. 5.900
Svart / hvítt / beyki /fura/mahoni / kirsuber
Hirzlan