Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunhlaðið/Jón Svavarsson
VERÐLAUNAHÖFUNUM var vel fagnað við komuna í Leifs-
stöð. Frá hægri, Berglind Ingvarsdóttir og Benedikt Einarsson,
Erla og Arni Þór Eyþórsbörn og Halldóra Sif Halldórsdóttir
og Davið Gill Jónsson.
Tóbaksvarnir ræddar á Alþingi
Tengsl tóbaks-
verðs og vísi-
tölu ^erði slitin
íslendingar keppa í
dansi á Englandi
Dansað til
sigurs
DANSPÖRIN sem sýndu leikni
sina á dansmótum í Englandi í
vikunni komu heim í gær með
samanlagt 20 verðlaunagripi í
farteskinu. Suður-amerískir
dansar lágu vel við íslendingun-
um ungu en þrjú pör sópuðu að
sér verðlaunum í m.a. rúmbu;
djæf, cha cha og Paso doble. I
flokki 12-15 ára sigraði danspar-
ið Benedikt Einarsson og Berg-
lind Ingvarsdóttir í þremur mót-
um víðs vegar um England.
I flokki 11 ára og yngri sigr-
uðu Halldóra Sif Halldórsdóttir
og Davíð Gill Jónsson á London
Open Championship mótinu og
komust i úrslit í öðrum mótum
sem þau tóku þátt í.
Dansað frá morgni
til kvölds
Systkinunum Erlu og Árna Þór
Eyþórsbörnum gekk einnig mjög
vel en þau kepptu í flokki 16 ára
og eldri. Þau komust m.a. i
undanúrslit í International
keppninni sem þykir mjög góður
árangur. Síðan svifu þau um
dansgólfið í Royal Albert Hall
ásamt 24 bestu pörum heims.
„ Við áttum ekki von á að sigra
í þremur danskeppnum því sam-
keppnin var mikil, til dæmis
kepptu 100 pör í okkar aldurs-
flokki á einu mótinu,“ sagði Berg-
lind Ingvarsdóttir í samtali við
Morgunblaðið. „í fimm daga
var dansað næstum stanslaust frá
morgni til kvölds. Það er mjög
erfitt en auðvitað er gaman þegar
vel gengur,“ sagði dansherra
Berglindar, Benedikt Einarsson.
Berglind og Benedikt eru 14
ára og hafa dansað saman í fimm
ár. Þau Davíð GiII og Halldóra
Sif eru ekki gömul í hettunni enda
aðeins 11 ára en hafa þó keppt
fjórum sinnum áður á erlendum
mótum. „Okkur gekk sérstak-
lega vel í þetta skipti en saman-
lagtfengum við 11 bikara," sagði
Halldóra Sif.
„Við höfum dansað saman í sex
ár en ég bauð Halldóru Sif fyrst
upp í dans þegar við vorum fjög-
urra ára,“ bætti Davíð við hreyk-
inn á svip.
TILLAGA til þingsályktunar, sem
miðar að því að tengsl tóbaksverðs
og lánsfjárvísitölu verði rofin, var
tekin til fyrstu umræðu á Alþingi
sl. fimmtudag. Varð tillagan tilefni
líflegra skoðanaskipta þingmanna
um stefnu í tóbaksvarnarmálum.
Fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar er Þuríður Bachman, Alþýðu-
bandalagi, en auk hennar og
flokksbróður hennar Svavars
Gestssonar standa þingmenn úr
Framsóknarflokki, þingflokki jafn-
aðarmanna og Kvennalista að til-
lögunni.
Að sögn framsögumanna er til-
lögunni ætlað að þjóna sem innlegg
í forvarnir gegn tóbaksneyzlu, ekki
sízt í því skyni að hamla gegn tób-
aksneyzlu unglinga. Vísa þeir til
þess, að almennt sé viðurkennt,
að sterk tengsl séu milli tóbaks-
verðs og tóbaksneyzlu. Hingað til
hafi það hins vegar hamlað gegn
hækkunum tóbaksverðs í forvarna-
skyni, að mið er tekið af því við
útreikning vísitölu neyzluverðs.
Lagt er til, að þessi tengsl tób-
aksverðs og vísitölu verði slitin og
reiknuð verði sérstök vísitala án
tóbaks til að nota við ákvarðanir
um lánskjör. Nú þegar hafi þrjú
Evrópulönd, Belgía, Frakkland og
Lúxemborg, kosið að fara þessa
leið, í samræmi við tilmæli frá
Evrópusambandinu og Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni.
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, tók undir að æskilegt væri
að hækka tóbaksverð, en hann
varaði við aðgerðum sem hrófluðu
við útreikningi vísitalna, þar sem
slíkt væri til þess fallið að auka
óvissu á lánamarkaði og gæti
þannig átt þátt í því að halda vöxt-
um háum.
Samningur um endurvinnslu drykkjarumbúða
Getur sparað
s veitar félögum
tugi milljóna
SORPA hefur gert samning við
Norsk Returkartong AS um endur-
vinnslu drykkjarumbúða úr pappa,
s.s. mjólkur-, grauta- og ávaxta-
safaumbúðir. Með endurvinnslunni
er hægt að draga verulega úr sorp-
hirðukostnaði sveitarfélaga.
Drykkjarvöruumbúðir úr pappa
hefur hingað til ekki verið hægt að
endurvinna vegna plasthúðar á
umbúðunum og álþynnu innan í
mörgum þeirra. Með nýrri tækni á
þessu sviði hefur þessi möguleiki
opnast og býður Norsk Returkar-
tong upp á þessa þjónustu.
Að sögn Ógmundar Einarssonar,
framkvæmdastjóra Sorpu, geta
sveitarfélög sparað stórfé í sorp-
hirðu með endurvinnslu drykkjar-
umbúða úr pappa. „Hægt er að
nota sömu gáma og notaðir eru
undir dagblaðapappír fyrir
drykkjarumbúðimar. Ef sveitarfé-
lögin velja að notfæra sér þennan
möguleika munum við hjá Sorpu
sjá um að flokka sorpið úr gámun-
um. Ég hef bent á það að þrátt
fyrir að þyngd drykkjarvöruumbúða
sé ekki mikil taka þær mjög mikið
pláss, þvi geta sveitarfélögin í al-
vöm farið að huga að því að breyta
sorphreinsuninni úr vikulegri
hreinsun í hálfsmánaðarlega og
sparað með því tugi milljóna."
Samstarf við
Mjólkursamsöluna
Sorpa hefur einnig skrifað undir
samstarfssamning við Mjólkursam-
söluna um að auglýsa og kynna
þennan endurvinnslumöguleika og
segir Ögmundur að með samstarfs-
samningnum sé Mjólkursamsalan
fyrst íslenskra fyrirtækja sem kosta
einhveiju fé til að kynna möguleika
á að endurvinna eigin umbúðir.
Ferðabanni um
Yatnajökul aflýst
ALMANNAVARNIR ríkisins hafa
ákveðið að aflétta banni við ferða-
lögum inn á Vatnajökul, í kjölfar
þess að jarðvísindamenn hafa
staðfest að eldgosi þar sé lokið.
Sýna ber varúð
á jöklinum
Almannavarnir brýna þó fyrir
fólki að sýna ýtrustu varúð og
vera ekki á ferð í nágrenni gos-
svæðis nema í góðu skyggni.
Ástæða viðvörunarinnarer sú
að sprungur hafa myndast í
grennd við gosstöðvarnar og fara
þær hægt stækkandi, sökum þess
að jökullinn sígur inn að gosspr-
ungunni og er talið mögulegt að
sprungur muni á næstunni ná eitt-
hvað út fyrir svæðið.
Reuter
BOUTROS Boutros-Ghali, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, undirritar innsetningar-
skjöl dómaranna við Hafréttardóminn. Guðmundur Eiríksson er lengst til vinstri í hópi dómaranna.
Hafréttardómur tek-
ur formlega til starfa
ALÞJÓÐLEGI hafréttardómurinn í
Hamborg tók í gær formlega til
starfa, er dómararnir, þeirra á með-
al Guðmundur Eiríksson, fyrrver-
andi þjóðréttarfræðingur utanríkis-
ráðuneytisins, sóru eiðstaf við há-
tíðlega athöfn í ráðhúsi Hamborg-
ar. Sendimenn um 130 ríkja voru
viðstaddir og var fulltrúi Islands
Helgi Ágústsson, ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins.
Ræðumenn við athöfnina voru
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
Klaus Kinkel utanríkisráðherra
Þýzkalands, Henning Voscherau,
borgarstjóri Hamborgar, og Thom-
as A. Mensah frá Ghana, forseti
Hafréttardómsins.
í gær var einnig lagður hom-
steinn að nýrri byggingu Hafréttar-
Guðmundur
Eiríksson einn
dómara sem sóru
eiðstaf í gær
dómsins. Hún á að verða tilbúin að
tveimur árum liðnum, en dómstóll-
inn starfar nú í bráðabirgðahús-
næði, sem Þýzkaland leggur honum
til.
Seta íslendings og Breta í
dómnum táknræn
Helgi Ágústsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að það markaði
þáttaskil fyrir ísland og önnur ríki,
sem ættu hagsmuna að gæta á
hafinu, að dómurinn tæki til starfa.
Nú væri í fyrsta sinn kominn dóm-
stóll, sem sérstaklega ætti að taka
á hafréttardeilum. „Það má segja
að það sé táknrænt að hér situr
annars vegar íslendingur og hins
vegar brezki dómarinn, David And-
erson, sem var þjóðréttarfræðingur
í brezka utanríkisráðuneytinu í fisk-
veiðideilum íslands og Bretlands
1972-1976,“ sagði Helgi.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar
hafa dómararnir við Hafréttardóm-
inn að undanförnu einbeitt sér að
undirbúningsvinnu, til dæmis samn-
ingu starfsreglna dómsins, og er
því verki enn ekki lokið. Guðmund-
ur segir að berist skyndilega mál,
sem krefjist skjótrar úrlausnar,
geti dómurinn þó tekið það til með-
ferðar. Enn hefur engum málum
verið vísað til dómsins.
:
i
1