Morgunblaðið - 19.10.1996, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Kristinn
AÐGERÐIN í fullum gangi á Landspítalanum í gær og leynir einbeitingin sér ekki
lýá þeim Thomas Carlstedt og Rafni Ragnarssyni.
A
Utlit fyrir að aðgerðirn-
ar beri góðan árangur
LÆKNARNIR slaka á að aðgerð lokinni. Frá vinstri: Thomas
Carlstedt, Rafn Ragnarsson og Ari Ólafsson.
Jón Olafsson stj órnar for maður
Islenska útvarpsfélagsins:
Ein efnisleg at-
hugasemd gerð
vegna fréttar
SÆNSKI bæklunar- og handa-
skurðlæknirinn Thomas Carlstedt
gerði í gær skurðaðgerðir á tveimur
íslenskum börnum sem þjáðst hafa
af taugalömun í handlegg. Lömun-
in, sem kallast „brachial plexus
áverki“, er afleiðing svokallaðrar
axlarklemmu í fæðingu.
Carlstedt til aðstoðar voru þeir
Rafn Ragnarsson, yfírlæknir á lýta-
lækningadeild Landspítalans, og
Ari Ólafsson, bæklunar- og handa-
skurðlæknir á bæklunardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Læknarnir voru sammála um að
aðgerðirnar hefðu tekist vel. Reynd-
ar stóð til að gera aðgerð á fjórum
börnum en þegar til kom voru tvö
þeirra veik og verða því að bíða enn
um sinn.
Axlarklemma orsakast af erfíð-
leikum í fæðingu. Til þess að losa
um axlirnar verður að toga í höfuð
bamsins og þá getur það gerst að
taugar sem liggja niður í handlegg
togna eða slitna með þeim afleiðing-
um að handleggurinn lamast. Flest
þau börn sem verða fyrir þessum
áverka í fæðingu fá oftast vemleg-
an bata á nokkrum árum án skurð-
aðgerðar. Ákveðinn hluti hlýtur
hins vegar varanlega skaða.
Markmiðið er að bæta starfs-
og hreyfigetu handarinnar
Af þeim um það bil 100 þúsund
börnum sem fæðast í Svíþjóð á ári
hverju verða um 100 eða 0,1% fyr-
ir axlarklemmu, að sögn Thomasar
Carlstedt. Af þeim hljóta um 15%
varanlega áverka. Hann segir hlut-
fallið vera svipað í öðrum vestræn-
um löndum jafnvel þó að fæðingar-
þjónustan sé í háum gæðaflokki.
„Þetta er neyðarástand sem
skapast í fæðingunni og það sem
máli skiptir í þeirri stöðu er að
bjarga lífí bamsins og móðurinnar,"
segir hann. Það verður að gerast
TILRAUN verður gerð með nýja
tilhögun við gerð fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1997.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri sagði í borgarstjórn á fímmtu-
dag að gera eigi breytingar á verk-
lagi og samskiptum í stjórnkerfi
borgarinnar á þann veg að gerð
verði rammafjárhagsáætlun í stað
fullbúinnar fjárhagsáætlunar sem
taki til allra verkefna borgarinnar.
strax og þá geta afleiðingamar orð-
ið þær sem áður er lýst. Hann seg-
ir árangur aðgerðar fara eftir því
hversu mikill áverkinn sé. Markmið-
ið sé að bæta starfs- og hreyfígetu
handarinnar.
ísiensku læknarnir lýsa ánægju
sinni yfír lærdómsríku samstarfí við
Thomas Carlstedt og segja mikinn
akk í því að geta leitað til hans í
framtíðinni. Hann hefur mikla
reynslu af aðgerðum sem þessum
og hefur á síðustu árum meðhöndl-
að langflest þeirra barna sem orðið
hafa fyrir axlarskaða í Svíþjóð.
Hann hefur unnið á Karólínska
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi en starf-
ar nú á The Royal National Ort-
hopaedic Hospital í Lundúnum.
Foreldrar gagnrýna
Tryggingastofnun greiðir aðeins
hluta af kostnaðinum við aðgerðina
og komu sænska skurðlæknisins.
í rammafjáráætluninni verður
einstökum stofnunum og fyrirtækj-
um borgarinnar ákvarðaður fjár-
hagur sem forstöðumenn þeirra eru
lýstir ábyrgir fyrir. Ingibjörg Sólrún
sagði í umræðum um nýtt vinnulag
við fjárhagsáætlunargerð að með
þessu móti væri skýrt hver bæri
ábyrgð á fjárhag stofnana og fyrir-
tækja borgarinnar. Hún sagði að
aukinni ábyrgð fylgdi aukið frelsi
Eldri borgari, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, stóð fyrir söfnun
meðal einkaaðila til þess að af að-
gerðinni gæti orðið. Meðal annars
greiða Flugleiðir fargjald læknisins
og Hótel Saga gefur gistinguna.
Óformleg samtök foreldra barna
með axlarskaða hafa gagnrýnt
Tryggingastofnun fyrir að vilja ekki
greiða fyrir komu sérfræðings hing-
að til lands. Aftur á móti hefur
stofnunin verið tilbúin að greiða
fyrir að senda börnin og foreldra
þeirra utan til aðgerðar, jafnvel þó
að það hafi mun meir kostnað í för
með sér.
Aðspurður hvort bömin tvö sem
voru veik og komust þess vegna
ekki í aðgerðina væru búin að missa
af henni segir Rafn: „Engan veginn.
Eg held að við eigum hauk í homi
þar sem Thomas er. Ég geri ráð
fyrir að hægt verði að banka upp á
hjá honum þegar þar að kemur.“
til að nýta fjármuni á þann hátt sem
best væri talið á hverjum stað.
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi
D-lista, fagnaði hugmyndum um
nýju tilhögunina. Sagði hann sér-
staklega jákvætt að fjárhagur eigi
að takmarkast af áætluðum tekjum.
Árni hvatti eindregið til þess að
áfram verði haldið á þessari braut
og drög gerð að því að móta fjár-
hagsstefnu til tíu ára.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Jóni Ólafssyni,
stjórnarformanni íslenska útvarps-
félagsins.
„Vegna ítrekaðra yfírlýsinga
Elínar Hirst í tengslum við frétta-
stjóraskipti á Stöð 2 og Bylgjunni
vil ég taka fram eftirfarandi:
Það er stefna íslenska útvarps-
félagsins að fréttastofa þess sé
sjálfstæð og ritstjórnarlegt frelsi
hennar algjört. Hlutverk stjórn-
anda félagsins er að ráða frétta-
stjóra, setja fréttastofunni fjár-
hagsramma í samráði við hann og
hafa eftirlit með því að sá rammi
sé haldinn. Þar með eru upptalin
afskipti yfírstjórnar félagsins af
fréttastofunni, - það er aldrei hlut-
ast til um ritstjórnarleg málefni
og ritstjórnarlegt vald liggur hjá
fréttastjóranum einum.
Elín Hirst hefur sjálf margsinnis
lýst því yfir opinberlega að ná-
kvæmlega svona sé málum háttað,
og að hvorki ég né aðrir í hópi
eigenda eða stjórnenda félagsins
hafi reynt að hafa afskipti af rit-
stjórnarstefnu fréttastofunnar eða
einstökum fréttum. Það skýtur því
skökku við að Elín skuli nú kjósa
að gefa yfirlýsingar, sem ganga
þvert á allt sem hún hefur áður
sagt um málið.
Það skal þó upplýst hér, að einu
sinni hef ég gert efnislega athuga-
ELÍN Hirst fráfarandi fréttastjóri
Stöðvar 2 og Bylgjunnar sendi síð-
degis í gær frá sér eftirfarandi
yfírlýsingu:
„Vegna yfirlýsinga sem Jón Ólafs-
son, stjórnarformaður ÍÚ, hefur
sent frá sér vegna ummæla minna
í fjölmiðlum í gær og í dag, óska
ég eftir að eftirfarandi svar mitt
verði birt.
„Ég hef lýst því yfir opinber-
lega, síðast í júlí í sumar, að eig-
endur Stöðvar 2 hafí aldrei reynt
að hafa áhrif á fréttaflutning
fréttastofunnar meðan ég var
fréttastjóri, og það var sannleikan-
um samkvæmt á þeim tíma. Það
var ekki fyrr en undir það síðasta
að halla fór á ógæfuhliðina í þess-
um efnum og ég sé mig knúna til
að nefna dæmi um það.
í lok september lét Jón Ólafsson
bera mér þau skilaboð að hann
teldi að frétt um samkomulag
Stöðvar tvö um sýningarrétt á
enska fótboltanum frá haustinu
1997 ætti að vera aðalfréttin í
fréttatímanum 19:20 það kvöldið.
Ég sendi þau skilaboð til baka að
fréttin kæmi á þeim stað í frétta-
tímanum sem hún ætti heima, og
hvergi annarsstaðar.
Þann fyrsta október síðastliðinn
sagði Jón Ólafsson orðrétt við mig
þegar ég innti hann eftir ástæðum
þess að hann vildi skipta um frétta-
stjóra; að honum líkaði ekki minn
stíll sem fréttastjóri, þar sem ég
semd við frétt á Stöð 2 og það
gerðist nýlega - eftir að ég kynnti
Elínu ákvörðun um skipulags-
breytingar á fréttastofu. Tilefnið
var þetta: Fyrir skömmu birti Stöð
2 frétt um hæstaréttardóm sem
féll Eimskipafélagi Íslands í vil
með samhljóða atkvæðum allra
fimm dómaranna. Pétur Kr. Haf-
stein var einn dómaranna og
fréttastofa Stöðvar 2 velti upp
þeim fleti á málinu, að dómsniður-
staðan kynni að vera tortryggileg
vegna hugsanlegs fjárstuðnings
Eimskipafélagsins við forseta-
framboð Péturs!
Ég lýsti þeirri skoðun minni við
Elínu að mér þætti þessi aðdróttun
tilefnislaus, ósmekkleg og út í hött,
þó ekki væri nema vegna þess að
allir fímm dómararnir komust að
sömu niðurstöðu. Frétt af þessu
tagi væri til þess eins fallin að
tortryggja störf Péturs Kr. Haf-
stein sem hæstaréttardómara. Elín
var mér ósammála og taldi þetta
vera frétt sem ætti fullan rétt á sér.
Þetta er eina dæmið um efnis-
legar athugasemdir mínar við
fréttaflutning Stöðvar 2 - og lái
mér hver sem vill.
Ég vil að lokum ítreka að ég
harma brotthvarf Elínar frá frétta-
stofunni, en yfirlýsingar hennar í
kjölfarið hitta engan fyrir nema
hana sjálfa."
hugsaði ekki nóg um hagsmuni
fyrirtækisins. Hann nefndi dæmi
um tvær fréttir sem hefðu kostað
Stöð 2 tugi milljónir króna í auglýs-
ingatekjur, önnur fréttin var um
dóm sem féll í Hæstarétti í máli
Eimskipafélags íslands, en í hinu
tilfellinu var um að ræða frétt um
tryggingamál hjá Sjóvá-Almenn-
um. Jón sagði ennframur að með
þessum fréttum væru meiri líkur
á því að þessir aðilar kæmu með
hlutafjárframlag til Stöðvar þijú.
Hann taldi ótækt að fréttastjóri
stöðvarinnar væri ekki meðvitaður
um þessa hagsmuni eigenda Stöðv-
ar 2 og Bylgjunnar. Ég sagði hon-
um að ég teldi hagsmunum eig-
enda fyrirtækisins best borgið með
því að stöðin ræki sjálfstæða og
óháða fréttastofu sem þjónaði ein-
ungis hagsmunum almennings."
------»--» ♦-----
Innbrot í
Hj álpartækj a-
bankann
BROTIST var inn í Hjálpartækja-
bankann við Hátún í fyrrinótt.
Innbrotið uppgötvaðist snemma
í gærmorgun. Farið hafði verið inn
um glugga á Hjálpartækjabankan-
um og hafði þjófurinn á brott með
sér tölvubúnað fyrir um 100 þúsund
krónur.
Reykjavíkurborg gerir tilraun
Rammafjárhagsáætlun næsta ár
Elín Hirst um afskipti stjórnarformanns
Islenska útvarpsfélagsins
Sagði fréttir auka
líkur á fram-
lagi til Stöðvar 3
-
i
t
[
I
E
I
l
>
I
.
I
5
I
i