Morgunblaðið - 19.10.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 19
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Þorkell
Breytingar hjá Kælismiðjunni Frosti hf.
Einn stærstí hluthaf'■
inn selur sinn hlut
Vinnumiðlun
tengd evr-
ópsku sam-
skiptaneti
BORGARSTJÓRINN í Reylqa-
vík, Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, opnaði formlega EES-vinn-
umiðlun á íslandi hjá Vinnu-
miðlun Reykjavíkur í gær. Við
opnunina var íslenska skrifstof-
an beinlínutengd við skrifstofu
evrópsku vinnuþjónustunnar,
EURES, „European Employ-
ment Services“ í Brussel. EUR-
ES er samskiptanet sem Evr-
ópusambandið setti á fót til
þess að auðvelda fólki að nýta
sér frjálsan atvinnu- og búsetu-
rétt innan Evrópska efnahags-
svæðisins. EES-vinnumiðlanir
eru í öllum aðildarríkjum EES
og eru þær beintengdar tveim-
ur sameiginlegum gagnagrunn-
um sem kynntir voru af Klöru
B. Gunnlaugsdóttur, Evróráð-
gjafa á íslandi, við opnunina.
Starfandi félagsmálaráð-
herra, Guðmundur Bjarnason,
flutti ávarp við opnuuina og
Vali Kolotourou, yfirmaður
EURES, flutti erindi um skipu-
lag og möguleika EURES.
Einnig fjölluðu verkefnissljór-
ar EURES á íslandi, Danmörku,
írlandi og Bretlandi um vinnu-
markaðinn og EURES í viðkom-
andi löndum.
EINN stærsti hluthafinn í Kæli-
smiðjunni Frosti hf., Eignarhaldsfé-
lag KS, seldi fyrir skömmu um 20%
hlut sinn í fyrirtækinu. I kjölfarið
sögðu fjórir starfsmenn Kælismiðj-
unnar upp störfum en þeir eru jafn-
framt hluthafar í Eignarhaldsfélag-
inu.
Hlutabréfin dreifðust á nokkra
aðila en Sabroe Soby í Danmörku
keypti um 9% hlut. Sabroe átti fyrir
11% hlut, og er því komið með tæp-
lega 20% hlutafjárins. Kælismiðjan
Frost er umboðsaðili Sabroe og hafa
fyrirtækin átt í nánu samstarfi um
þróun á kælibúnaði.
Páll Halldórsson, stjórnarformað-
ur Kælismiðjunnar Frosts sagði að
aðstandendur Eigharhaldsfélagsins
hefðu viljað aðrar áherslur í rekstri
fyrirtækisins en hinir hluthafar þess.
Niðurstaðan hefði orðið sú að fjórir
starfsmenn í fyrirtækinu sögðu upp
störfum og seldu sinn hlut.
Kælismiðjan Frost var stofnuð í
lok ársins 1993 og byggir á grunni
lítils fyrirtækis frá Kópavogi, SJ
Frosts og kælideildar Slippstöðvar-
innar Odda. Stofnaðilar voru fyrrum
eigendur SJ Frosts, Eignarhaldsfé-
lagið Alþýðubankinn og nokkrir
fyrrum starfsmenn Slippstöðvarinn-
ar Odda. Fyrirtækið sérhæfir sig í
þróun, hönnun og framleiðslu á
kælibúnaði.
Hlutabréf í Kælismiðjunni Frosti
eru skráð á Opna tilboðsmarkaðnum
og hafa hækkað allnokkuð í verði á
síðustu misserum. Bréfin voru seld
á genginu 1,5 fyrr á árinu en hag-
stæðasta kauptilboð er nú 2,2.
Samkeppni um
veggspjöld
OPIN samkeppni um hönnun á vegg-
spjöldum fyrir átakið „íslenskt já
takk“ er í gangi. Keppnin er haldin
í samráði við FÍT, Félag íslenskra
teiknara.
Veggspjöldin eiga að vera þrjú í
seríu en mega standa sjálfstætt.
Inntak veggspjaldanna verður að
vera í samræmi við slagorð átaksins
„Íslenskt já takk“. Veggspjöldin
verða prentuð til dreifíngar en tillög-
um skal skilað í stærðinni A-3. Til-
lögum skal skilað til Samtaka iðnað-
arins. Tillögurnar skulu merktar
dulnefni en raunverulegt nafn,
ásamt heimilisfangi og símanúmeri
viðkomandi skal fylgja með í lokuðu
umslagi merktu dulnefninu. Skila-
frestur er til 21. október 1996.
Fimm manna dómnefnd hefur
verið skipuð og í henni sitja: Björn
Br. Bjömsson, grafískur hönnuður
FÍT, Guðmundur Oddur, deildar-
stjóri grafískrar hönnunar í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, Halla
Helgadóttir, grafískur hönnuður
FÍT, Lína G. Atladóttir, Samtökum
iðnaðarins og Þór Ottesen, Alþýðu-
sambandi Islands. Veitt verða
300.000 króna verðlaun fyrir bestu
tillöguna ásamt 150.000 króna
greiðslu til höfundar. Dómnefnd vel-
ur til sýningar úr úrvali tillagna.
Verðlaun verða afhent við hátíðlega
opnun sýningarinnar í Perlunni, 29.
nóvember.
GENGIÐ var frá samningnum í Álverinu í Straumsvík. Frá vinstri:
Andrés Andrésson, Helgi Örn Viggósson og Karl Wernersson frá
Digital á Islandi og Björn Jónsson og Guðni B. Guðnason frá ISAL.
*
ISAL kaupir tvo Alpha-
Server 4100 miðlara
ÍSLENSKA álfélagið hf. hefur gert
samning við Digital á íslandi ehf.
um kaup á tveimur AlphaServer
4100 miðlurum sem tengdir eru
saman í svonefndan klasa. Verð-
mæti samningsins er á fjórða tug
milljóna en í honum felst auk búnað-
ar viðhaldssamningur til 3ja ára,
segir í frétt frá Digital á íslandi.
Fram kemur að kaupin eru gerð
í tengslum við stækkun álversins,
en AlphaServer klasinn mun gegna
aðalhlutverki í kerstýringarkerfí fyr-
irtækisins. Afkastaaukningin með
nýja kerfínu er margföld en það
byggist á 64-bita Alpha RISC ör-
gjörvum, sem eru þeir afkastamestu
á markaðnum.
Kerfið sem AlphaServer klasinn
leysir af hólmi byggist einnig á
klasatækni Digital en með 32-bita
VAX miðlunum. Það hefur reynst
mjög áreiðanlegt með nær 100%
uppitíma undanfarin 3 ár. Að fara
í 64-bita högun tryggir betri fjár-
festingarvernd þar sem tækniþróun-
in á sviði miðlara byggist öll núorð-
ið þeirri stærð.
Þá kemur fram að lítil bilanatíðni
bæði hvað hug- og vélbúnað varðar
er aðall klasatækningar frá Digital
ásamt því að hægt er að láta marg-
ar tölvur vinna saman sem eina og
auka þannig afköst verulega. ÍSAL
einblínir á fyrrnefnda þáttinn, þar
sem hver stund þegar tölvuvinnslan
liggur niðri getur reynst mjög dýr.
í nýja klasanum getur engin ein ein-
ing sem bilar tekið kerfíð niður í
heild sinni. Ef t.d. slökkt er á ann-
arri vélinni getur hin tekið sjálfkrafa
við þeirri þjónustu sem þar var í
gangi. Yfír 45.000 Digital klasa-
kerfí eru í notkun í heiminum í dag,
en fyrirtækið hefur haft forystu á
þessu sviði allt frá því að það fann
upp klasatæknina fyrir 13 árum, að
því er segir í fréttinni.
Ferðaskrifstofa íslands hf.
Flugleiðir kaupa
þriðjungshlut
FLUGLEIÐIR hafa keypt þriðjungs-
hlut í Ferðaskrifstofu íslands hf.
Eftir kaupin eru Flugleiðir stærsti
einstaki hluthafinn í ferðaskrifstof-
unni. Kjartan Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu ís-
lands, mun áfram stýra rekstri fyrir-
tækisins og ekki er gert ráð fyrir
neinum breytingum á starfsmanna-
haldi í kjölfar kaupanna.
Ferðaskrifstofa íslands hf. er
hluthafí í hótelum á Kirkjubæjar-
klaustri, Flúðum, Stóru-Tjörnum og
Hvolsvelli og yfir stendur bygging
nýs hótels á Egilsstöðum sem fyrir-
tækið á fjórðungshlut í. Fleiri verk-
efni af þessu tagi eru á dagskránni
að því er fram kemur í frétt í tilefni
kaupanna. Þá sér fyrirtækið um
rekstur og markaðssetningu Eddu-
hótelanna, sem eru staðsett víðs
vegar um landið, auk umsvifamikils
reksturs á sviði ráðstefnuhalds og
skipulagðra ferða um ísland með
erlenda ferðamenn.
Einingar í ferðaþjónustu
þurfa að stækka
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra Flugleiða, segir að kaupin
séu þáttur í að skilgreina fyrirtækið
enn frekar sem alhliða ferðaþjón-
ustufyrirtæki, en stefnt sé að því
að auka þann hlut í starfsemi félags-
ins verulega á næstu árum, sem sé
sala á pakkaferðum til íslands.
„Þáttur í þvi er að styrkja innviði
ferðaþjónustunnar hérna. Við teljum
að einingar í ferðaþjónustu þurfi að
stækka hér og styrkjast mjög veru-
lega,“ sagði Einar.
Hann sagði að þeir hefðu til hlið-
sjónar það sem væri að gerast á
alþjóðamarkaði í þessum efnum, en
þaðan kæmu 75% af tekjum Flug-
leiða. Mjög verulegur hluti af starf-
semi Flugleiða erlendis fælist í sölu
á ferðum hingað til lands og þetta
væri sá þáttur starfseminnar sem
þeir vildu auka. „Við viljum gera það
með tvennum hætti. Annars vegar
að styrkja markaðsstarf okkar er-
lendis og hins vegar með því að taka
meiri þátt í ferðaþjónustuþróuninni
hér heima, bæði með þátttöku í fyrir-
tækjum og einnig með sámvinnu við
fyrirtæki um þróun á ferðaþjón-
ustunni," sagði Einar enn fremur.
Hann sagði að Fiugleiðir vildu
einnig nýta betur þá fjármuni sem
notaðir væru til sölu- og markaðs-
starfs erlendis en þar væri um rúm-
an einn milljarð króna áriega að
ræða.
Styrkir ferðaþjónustuna
Kjartan Lárusson, framkvæmda-
stjóri Ferðaskrifstofu íslands hf. og
stærsti hluthafi áður eri kaupin fóru
fram, sagði að fyrirtækin styrktu
hvort annað með þessu móti. Þetta
væri þróunin að fyrirtækin stækk-
uðu með sameiningu eða með því
að smærri fyrirtæki sameinuðust
stærri fyrirtækjum, það hefðum við
séð á þeim markaðssvæðum sem við
hefðum mest samskipti við í Evrópu
og Skandinavíu.
„Nú eru nokkurs konar vatnaskil
í ferðaþjónustu. Menn eru mikið að
endurskipuleggja sig. Flest alvöru-
fyrirtækin eru með stefnumótunar-
vinnu í gangi eða þegar tilbúna og
allir vinna hver í sínu homi að því
sama, að búa fyrirtækin sín undir
21. öldina, sem vissulega er skammt
undan, ekki síst í ferðaþjónustu þar
sem menn eru að vinna að skipulagn-
ingu og öðru 4-5 ár fram í tím-
ann,“ sagði Kjartan.
Hann sagði að þetta væri eðlilegt
skref í þróun ferðaþjónustunnar að
hans mati og yrði til þess að styrkja
hana. .
Vantar skáparými?
Nýja fataskápalínan hjá
Innval nýtir rýmið til fulls !
Þetta er í boði:
• Hver skápur sniðinn eftir máli án aukakostnaðar
• Sérsniðnir skápar og hurðir að hallandi þaki
• Hurðarammar á hjólabraut, fjölbreytt úrval,
m.a. gull, silfur og 180 litir
• Margvíslegt útlit og speglar
• Nýjar hurðir fyrir gamla skápinn
Nýja fataskápalínan leysir vandann
SERVERSLUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA