Morgunblaðið - 19.10.1996, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 29
NEYTENDUR
McDonald's og KS| bjóða hefipnum
vinningshafa á leik íslands og Irlands
á Irlandi þann 10. nóvember nk.
96
97
Getraunaseðlar fylgja með Stjörnumáltíðum
og landsleikstilboði hjá McDonald’s
til 27. október.
VILTU VINNA
FERÐ TIL
ÍRLANDS?
Sjálfsafgreiðslu-
afsláttur
ER þetta fiskurinn sem aðrir vildu ekki?
Morgunblaðið/Þorkell
Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum lítra
af eldsneyti á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís.
• Sæbraut við Kleppsveg
• Mjódd í Breiðholti
• Gullinbrú í Grafarvogi
Fisksalar segja að 80%
viðskiptavina kaupi ýsu
TLI það séu ekki um
80% sem kaupa alltaf
ýsu í matinn“, segir
Garðar Smárason
eigandi Stjörnufiskbúðarinnar við
Háaleitisbraut. „Þar á eftir er það
karfi, rauðspretta, steinbítur, ufsi og
gellur" sem spurt um. Aðrar tegund-
ir fylgja fast á eftir.
Búrinn var vinsæll um tíma en það
er engin sérstök tegund fyrir utan
ýsuna sem er í tísku núna.“
Garðar Einarsson hjá fiskbúðinni
Hafrúnu tekur í sama streng og seg-
ir ýsuna langvinsælasta og þriðji
fisksalinn tók svo sterkt til orða að
hann seldi mest af ýsu og væri bara
að fylla upp í fiskborðið með hinum
fisktegundunum.
Unga fólkið kaupir ýsuna í
raspi eða sósu
Garðar hjá Stjörnufiskbúðinni seg-
ir að roskið fólk kaupi ýsuna heila
en unga fólkið vilji hana flakaða,
roðfletta og beinlausa. „Það er líka
mjög vinsælt að fá hana tilbúna í
raspi eða sósu.“
Kaupir unga fólkið hnoðmör og
harðfisk?
„Það er töluvert um það og hnoð-
mör hefur verið að sækja í sig veðr-
ið. Harðfiskurinn er alltaf vinsæll og
það er líka mikið spurt um saltfisk
núna.“
Finnst fólki harðfiskur ekki dýr
á þriðja þúsund krónur kílóðið?
„Það kemur fyrir að fólk spyiji
hversvegna harðfiskskílóið kosti
þetta mikið. Harðfiskverkandi út-
skýrði hinsvegar fyrir mér að í eitt
kíló af harðfiski þyrfti 12 kíló af
heilum fiski. Það skýrir verðmuninn.
Hversu oft í viku heldurðu að
fólk borði fisk?
„Mín tilfinning er að það sé allt á
bilinu einu sinni til þrisvar í viku.
Margir viðskiptavinir koma og kaupa
hjá mér í soðið þrisvar í viku.“
Þorskurinn miklu betri en ýsan
Úlfar Eysteinsson á Þremur frökk-
um hjá Úlfari segir ýsuát íslendinga
hafa skapast af hefð.
„Við seldum og seljum enn þorsk-
inn til útlanda því hann er verðmæt-
astur og borðum sjálf ýsuna sem
ekki er hægt að selja." Úlfar segir
að hér áður fyrr hafí enginn viljað
kaupa ýsuna af okkur saltaða,’signa
eða sem harðfisk. „Við fórum ein-
faidlega að borða ýsu því við gátum
ekki selt hana. Þessa hefð eigum við
eftir að bijóta hvenær sem það nú
verður. Fólk á eftir að átta sig á því
að þorskurinn er til dæmis miklu
betri fiskur en ýsa, safameiri og að
öllu leyti skemmtilegri fisktegund.
Erlendis tíðkast ekki þetta mikla
ýsuát. I Þýskalandi er til dæmis karfi
og ufsi algengar tegundir en aðeins
einu sinni á ári borða þeir ýsu.“
Matreiðir þú stundum ýsu sjálfur?
„Ég er með hana á matseðlinum
Nokkrir fisksalar voru
teknir tali í vikunni og
Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir komst að
því að flestir kaupa allt-
af ýsuflök í matinn.
GARÐAR Smárason fisksali
segir að unga fólkið vilji ýsu-
flakið roðflett, beinhreinsað og
helst tilbúið í sósu eða raspi.
ÚLFAR Eysteinsson mat-
reiðslumaður segist því miður
halda að næsta kynslóð komi
til með að borða ýsu í raspi
eða mauksjóða hana.
hjá mér, pönnusteiki hana og velti
henni í hveiti og eggi. Stundum raða
ég síðan ofan á hana rækju, helli
yfir liana hollandersósu, strái yfir
osti og gratínera hana. Ég býð hana
líka í „orly“-deigi.“
Fólk borðar ekki ýsu á
veitingahúsum
„Það undarlega er hinsvegar að
fólk velur sér annað en ýsu á diskinn
sinn þegar það fer út að borða."
Úlfar segist selja minnst af ýsu en
býður yfirleitt 6-7 físktegundir á
matseðlinum. „Ég held að þetta stafi
að sumu leyti af þekkingarleysi, fólk
er hrætt við að matreiða framandi
físk. Hluti skýringarinnar er að
margar físktegundir eru oft ekki
nógu aðlaðandi í fiskbúðunum. Það
er búið að skera lúðuna í kótelettu-
sneiðar og þá fæla beinin frá. Hún
ætti að vera flökuð roðflett og skor-
in í hæfilegar sneiðar þannig að
hægt sé að skella henni beint á pönn-
una.
Það nákvæmlega sama gildir um
aðrar tegundir eins og t.d. rauð-
sprettu, þú vilt ekki fá hana með
haus, sporði og beinum. Þessvegna
sitjum við áfram í ýsuátinu", and-
varpar Úifar. „Kynslóðin sem tekur
við af okkur lendir í þeim hremming-
um að borða pylsur, pítsur, hamborg-
ara, og ýsuflök í raspi með tómat-
sósu eða mauksoðna. Hefurðu tekið
eftir því að ýsan vill losna í sundur
eða eigum við að segja molna. Þess-
vegna nota ég hana alltaf í minn
rómaða plokkfisk.“
Saltfiskurinn að týnast
Hver er uppáhaldsfiskurinn þinn?
„Gellur eru í miklu uppáhaldi og
ég held iíka upp á keilu sem er svip-
uð og skötuselur þ.e.a.s. kjötið er
mjög þétt. Mér finnst saltfiskur líka
góður en við erum alveg að týna
honum. Hann er flokkaður í fyrsta,
annan,_ þriðja og síðan innanlands-
flokk. í innanlandsflokknum eru titt-
ir sem eru ólíkir þeim þykka og góða
saltfiski sem ég ólst upp við.“
Úlfar segir að fiskur sé afskaplega
mismunandi eftir árstíðum og fólk
eigi að taka mið af því. „Nú er til
dæmis rauðsprettutíminn og þá er
um að gera að borða mikið af rauð-
sprettu. Steinbítur er líka þykkur,
fínn og feitur núna og uppúr áramót-
um fáum við hrogn og lifur. Loðnan
kemur í febrúar og svo mætti áfram
telja.“
Ysa í súrsætri sósu
Attu auðvelda uppskrift handa
þeim sem vilja halda sig við ýsuna ?
„Það er heillaráð að eiga súrsæta
sósu í ísskápnum. Síðan biður fólk
fisksalann sinn að roðfletta og bein-
draga ýsuflakið eða þorskflakið ef
það þorir að fara ótroðnar slóðir.
Þegar heim er komið er flakið skorið
í mátulega bita, þeim velt uppúr
hveiti og þeir settir á pönnu í olíu
með því grænmeti sem til er.
Kryddið með hvítlauk, karrý og
salti og hellið heitri sósunni yfír.
Þetta er réttur sem hægt er að elda
á örfáum mínútum. Það tekur bara
tíma að sjóða hrísgijónin eða kartöfl-
urnar. Það þarf ekki að taka fram
að ufsinn verður hvítur við mat-
reiðslu sé hann notaður í þennan
rétt. Ufsinn er þéttur og passar ein-
staklega vel í þennan súrsæta rétt.
• Klöpp við Skúlagötu
• Háaleitisbraut
• Ánanaustum
• Hamraborg, Kópavogi
• Langitangi, Mosfellsbæ
• Reykjanesbraut, Garðabæ
• Vesturgötu, Hafnarfírði
• Suðurgötu, Akranesi
• Básinn, Keflavík____________________léttir þér lífid ^
Úlpur, kr. 7.895 -
Húfur,kr. 1.150-
Stærðir: 4-16
9.795,-. Treyjur, (úr pile) kr. 3.895 - 4.195,-
2.295,-. Fingravettlingar, kr 1.250 -1.295,-
Treflar, kr. 1.095,-
'mUTIUFtm
OLÆSIBJE ■ SÍUI 581 2982
- kjarni málsins!