Morgunblaðið - 19.10.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 35
árviss skoðun á kartöflum með það
fyrir augum að halda vörð um heil-
brigði þeirra og gæta að því hvort
þær séu að úrkynjast. Á vissu ára-
bili er ákveðinn kartöflustofn tekinn
og kynblandaður með það fyrir aug-
um að fá heilbrigða einstaklinga. Á
sama tíma og Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins rannsakar fóður
handa skepnum, þurfum við að salta
í kartöflupottinn til að þoia við fyrir
ólykt. Af einhvetjum ástæðum hefur
tekist ógæfulega með alla yfírstjórn
kartöfluræktar í landinu. Samt hafa
sumir einstaklingar lagt mikið á sig
til að bæta veg kartöflunnar. Einn
Kambránsmanna flutti útsæðispoka
með sér þegar hann kom heim úr
tugthúsinu í Kaupmannahöfn. Þetta
útsæði gat af sér frægt kartöflukyn
í görðum kringum Eyrarbakka og
Stokkseyri.
Margir verða þeirrar gæfu aðnjót-
andi að alast upp á sveitaheimilum,
sem hafa búið að sínu eigin útsæði
lengi. Einnig rekast gestir á frábær-
ar kartöflur sem hafa verið ræktaðar
á þéttbýlisstöðum. Þessi garðávextir
er mjölmiklir og ilmandi eins og hvert
annað gott grænmeti. Svo eru aðrir
sem leggja mikið upp úr fljótvöxnum
kartöflum. Þær þola illa geymslu og
gjalda þess þegar lyktin gýs upp.
Það mætti hugsa sér að heimila inn-
flutning á ætum kartöflum á meðan
stórræktendur hirða ekkert um
hvernig framleiðslan er, reyna engar
kynbætur og engar rannsóknir og
vita ekki einu sinni hvort hægt er
að koma upp kyni bæði fljótvöxnu
og mjölmiklu. Þá mætti fella inn-
flutning niður en fyrr ekki.
Höfundur er rithöfundur
haft þær afleiðingar að möguleikar
barna og ungmenna til að standa á
eigin fótum og vera efnahagslega
sjálfstæð hafa minnkað. Böm þurfa
því lengri tíma til að aðlagast sjálf-
ræðisaldrinum en til 16 ára. Það er
líka þversagnarkennt að foreldrar
séu forsjárskyldir gagnvart börnum
sín til 16 ára aldurs en framfærslu-
skyldir til 18 ár aldurs þeirra, en
þá verða þau fjárráða og lögráða.
Það eitt útaf fyrir sig mælir með
því að sjálfræðisaldurinn og fram-
færsluskylda foreldra fari saman.
Einnig er það íhugunarefni að
greiðslum barnabóta til foreldra
skuli ljúka við 16 ára aldur barns,
en ekki við 18 ára, þegar börnin
verða fjárráða.
Mótþróaskeiðið
Því er líka stundum haldið fram
að á þessum aldri gangi börn í gegn-
um ákveðið mótþróaskeið, þar sem
oft reynir mjög á foreldra við að
gegna uppeldisskyldu sinni og sýna
börnum sínum nauðsynlegan aga og
aðhald. Einmitt á þessu viðkvæma
mótunar- og mótþróaskeiði barna
öðlast þau sjálfræði, sem gerir for-
eldrum oft erfitt um vik, t.d. að
hafa eftirlit með útivist og skóla-
göngu ungmenna eða sýna þeim aga
og setja þeim mörk, ef þau leiðast
á villigötur. Á það ber því einnig að
líta að framlenging á forsjárskyldum
foreldra um tvö ár, sem eru svo
mikilvæg fyrir þroska barna, felur
í sér aukna vernd, öryggi og aðhald
fyrir börnin.
Afstaða dómsmálaráðherra
Haft var eftir Þorsteini Pálssyni
dómsmálaráðherra á landsfundi
sjálfstæðismanna nýlega, a'ð hann
hefði ekki sannfærst um að rétt
væri að hækka sjálfræðisaldurinn.
Eyrir liggur þó að verkefnastjórn á
hans vegum, sem falið var að koma
með tillögur vegna átaks í ávana-
og fíkniefnavörnum, mælti með því
að hækka sjálfræðisaldurinn í 18 ár.
Stjórnarandstaðan lagði á sl. Al-
þingi til að sjálfræðisaldurinn yrði
hækkaður í 18 ár. Á yfirstandandi
þingi hefur undirrituð ásamt
Guðnýju Guðbjörnsdóttur lagt málið
fram á nýjan leik. Ástæða er til að
ætla að málið hafi meirihlutastuðn-
ing á Alþingi. Vonandi kemur dóms-
málaráðherra ekki í veg fyrir að á
málið verði látið reyna í atkvæða-
greiðslu á Alþingi.
Sýningarhandrit
skal það heita
í MORGUNBLAÐ-
INU sl. þriðjudag birt-
ist pistill eftir Svein
Haraldsson sem und-
anfarið hefur skrifað
leiklistargagnrýni fyrir
blaðið. Sveinn fjallaði
í pistli sínum um sýn-
ingu Nemendaleikhúss
Leiklistarskóla íslands
á verkinu „Komdu,
Ijúfi leiði", sem undir-
ritaður leikstýrði og
var jafnframt höfund-
ur sýningarhandrits,
ásamt leikhópnum.
Ekki hafði ég hugs-
að mér að gera umfjöll-
un Sveins að sérstöku
Hávar
Sigurjónson
umtalsefni nema hvað
mér finnst ástæða til
að leiðrétta ákveðna
skekkju sem kemur
fram í máli hans um
hvernig eigi að feðra
tiltekinn texta, eins og
í þessu tilfelli, þegar
um er að ræða samsett
handrit, byggt á texta
tveggja leikrita eftir
Georg Búchner. Hvort
kalla eigi slíkt handrit
leikgerð eða eitthvað
annað og hvern eigi að
kenna það við. Ég kaus
að kalla það sýningar-
handrit, þar sem hér
er ekki um það að ræða
Með því að tilgreina mig
og leikhópinn höfunda
sýningarhandritsins tel
ég, segir Hávar Sigur-
jónsson, að öllu hafi
verið til skila haldið og
á engan hallað.
að textinn hafi verið færður í leik-
búning, hann var jú þegar í þeim
búningi. Þetta er því klárlega ekki
leikgerð og þaðan af síður nýtt leik-
rit.
Sveini finnst einnig ómaklegt að
titla Búchner höfund, þar sem hann
samdi aldrei verk undir titlinum
„Komdu, ljúfi leiði.“ Þessu er ég
ekki sammála þar sem Búchner er
óumdeilanlega höfundur textans og
þrátt fýrir að ýmislegt hafi verið
fellt út og jafnvei fært til, var engu
aukið við né merkingu breytt. Með
því síðan að tilgreina mig og leik-
hópinn höfunda sýningarhandrits-
ins tel ég að öllu hafi verið til skila
haldið og á engan hallað. Þá er tit-
illinn sem við völdum sýningunni
hafður innan tilvitnunarmerkja, þar
sem hann er tekinn úr texta sýning-
arinnar og meðfram ætlaður til að
fyrirbyggja þann misskilning að hér
sé á ferðinni nýtt og áður óuppgötv-
að leikrit eftir Georg Búchner. Hvað
þá heldur sjálfan mig. Ég hef held-
ur ekki orðið var við að sá misskiln-
ingur sé útbreiddur.
Höfundur erleikstjóri og
leikiistarráðunautur
Þjóðleikhússins.
*
8UZUKI
—
MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • vökvastýri
• veltistýri • samlæsingum • þjófavörn •
rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4
hátölurum • upphituðum framsætum •
öryggisloftpúðum fyrir ökumann og
farþega í framsæti • styrktarbitum í
hurðum • samlitum stuðurum.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
Höfundur er alþingismaður.