Morgunblaðið - 19.10.1996, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 19.10.1996, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bflasala Nissan Micra 1.3 LX '95. Hvítur, 5 dyra, sjálf.sk. ek. 30 þús. km. Álfelgur o. fl. verö. 950 þús (Lánakjör). Verið velkomin. Við vinnum fyrir þig Opið laugardag kl. 10-17, sunnud kl. 13 - 18. - Sáttmálinn minn - hamingju- og hugræktarnámskeið í Reykjavík 21.-24. okt. 3 kvöld, fyrri hluti 2.-5. des. 3 kvöld, seinni hluti Ert þú reiðubúin/nn að: • líta á þig og alla aðra sem guðlegar verur? • að leyfa guðlegum kjarna þínum að skína í gegnum persónuleika þinn? • að velja hamingjuna fyrir þig? • að lifa í allsnægtum? • að gera tíænina virkari í lífinu þínu? - Ef svo er þá hentar þetta nátnskeið fyrir þig. Upplýsingar og skráning í síma 553 3934, Guðrún Óladóttir, reikimeistari. •pið •,P„9ordo9 «9 sonnudoa0 tl.l7 ;>'!•) K'sTnr Kolapovtið o Eldgosamatcir og gozdfaogg I. Vörur frá býli til borgar - Eyfirsk gæðaegg Frá Býli til borgar - nýi sölubásinn sló í gegn þriðju helgina í röð. Eyfirsku gæðaegginn "rúlluðu" út og einnig piparkökumar, íslenska kryddið frá Pottagöldrum og eldgosamaturinn undarlegi (sjálfupphitandi dósamatur fyrir ferðamenn). -gott úrval af gæðavörum á góðu verði frá býli til borgar. i frítt i ýsuflökum, þú kaupir eittt kíló og færð annað frítt. Boðið er upp á glænýja smálúðu, nýja Rauðsprettu, reyktan Gulllax, Hvalkjöt, nýjan Lax og kæsta og saltaða Skötu. Einnig glænýja — Tindabykkju, sjósigin fisk fiskibollur, fiskibökur og fiskirétti. ■O Reyktir sviðakjammar |. Hrossalundir, hrossa innralæri og hrossafille Benni er með hrossastórsteikur um helgina -á meðan birgðir endast. Hann er líka með nýtt lambakjöt, hrossasaltkjöt á úrvalsverði, hangilærin góðu, áleggið ljúfa, ostafylltu lambaframpartana, gómsætu hangibögglana og einnig kynnir hann nýja Dalakoff áleggspylsu um helgina. O Kynning - Kökugcrð Sigránar I Sigrún kynmr Ömmubrauð og eftirréttakökur Margir segja aö kökumar hennar Sigrúnar frá Ólafsfirði séu bestu kökur í heimi. Þú ættir að prófa þéttu formkökumar, mjúku kleinumar, ömmusnúðana og gómsætu ostatertumar. Þessa helgi kynnir hún Ömmu- brauð úr grófu rúgmjöli og maltsírópi og nýja og spennandi eftirréttarköku. KOLAPORTIÐ I DAG SKAK Umsjón Marjjeir Pétnrsson STAÐAN kom upp á stór- móti í Tilburg í Hollandi sem nú stendur yfir. Ungi hollenski stórmeistarinn Loek Van Wely (2.605) hafði hvítt og átti leik gegn sjálfum Anatólí Karpov (2.775) FIDE heimsmeistara: 40. Bxd7! - Bxd7 41. Rxf6! - Dxf6 42. Dxf6+ — Rxf6 43. Bxe5 - Bh3 44. Bxf6+ - Kf7 45. Hf4 og með tveimur peðum undir í endatafli dugði heims- meistaratitillinn skammt. Karpov gafst upp eftir 66 leiki. Staðan á mótinu í Til- burg var þannig þegar tefldar höfðu verið sex umferðir af ellefu: 1. Shirov, Spáni 4 'U v. 2. Gelf- and, Hvíta Rússlandi 4 v. 3. Van Wely 3‘A v. 4-7. Adams, Englandi, Lautier, Frakklandi, Piket, Hollandi og Leko, Ungverjalandi 3 v. 8—11. Karpov, Júdit Polgar, Sutovsky, ísrael og Svidler, Rússlandi 2'A v. 12. Almasi, Ungvetjalandi 2 v. Það hefur gengið afar illa hjá Karpov. Hann tap- aði strax í fyrstu umferð fyrir Aimasi og hefur að- eins náð að vinna Lautier. • f g h HVÍTUR leikur og vinnur. Árnað heilla Ljósmyndastofa Sigríöar Bachmann. BRÚÐKAUP. Gefín voru saman 17. ágúst i Dóm- kirkjunni af sr. Karli V. Matthí- assyni Þóra Soff- ía Bjarnadóttir og Ólafur Sig- urðsson. Heimili þeirra er í Feþu- bakka 12, Reykjavík. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst í Dóm- kirkjunni af sr. Jakobi Á. Hjálm- arssyni Elín Gisladóttir og Óskar Jakobs- son. Heimili þeirra er á Víði- mel 45, Reykja- vík. Ljósmyndastofa Sigríðar Bachmann. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Kona datt í Heijólfi UNGA konan sem að- stoðaði eldri konu sem datt um borð í Herjólfi, á bíladekki, mánudaginn 15. júlí sl. er vinsamlega beðin að hringja í síma 552-0852. Gæludýr Fuglar og köttur ÓSKA eftir kettlingi, heist svartri læðu, og fin- kupari. Á sama stað fæst fískabúr með dælu og fylgihlutum gefíns. Upp- lýsingar í síma 587-6413 eða 568-2373 eftirkl. 19. Hlutavelta ÞETTA er besti veiði- hundur sem ég hef átt. Ég þarf bara að fella bráðina og hann sér um afganginn. ÞESSAR duglegu stelpur, þær Jóhanna Kristín og Tiff- any, héldu hlutaveltu nýlega til styrktar Rauða krossi Islands. Með morgunkaffinu BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júní í Dómkirkj- unni af sr. Áma Bergi Sigur- bjömssyni Inger Rósa Olafsdóttir og Gunnar Ingi Halldórsson. Heimili þeirra er á Freyjugötu 44, Reykjavík. Ljósmyndastofa Sigríðar Bachmann. Víkverji skrifar... VÍKVERJA kom ekki á óvart að aðeins um þriðjungur full- orðinna hjólreiðamanna noti hjálma, samkvæmt könnun, sem Slysavarnafélagið gerði fyrir stuttu. Þrátt fyrir reiðhjólaslys, þar sem fólk hefur sloppið við meiðsl með því að nota hjálm, og hin, þar sem hjálmleysið hefur valdið hættuleg- um meiðslum, er það staðreynd að meirihluti hjólreiðamanna, sem eiga að heita komnir til vits og ára, gerir hreinlega grín að minnihlutan- um, sem notar hjálm. Hjálmafólkið er sagt „bjánalegt", það lítur út „eins og geimverur“ og svo er jafn- vel spurt hvort menn séu með hjálp- arhjól á hjólhestinum, fyrst þeir eru með hjálm — eins og smábörn. Vík- veija finnst það undarlegur hégómi að vilja ekki gera sig „bjánalegan" með reiðhjólahjálmi — ætli mönnum þyki ekkert bjánalegt að rotast eða slasast fyrir það að nota ekki hjálm? Kunningi Víkveija, sem var kominn í rökþrot í umræðum um þetta mál fyrir skömmu, lýsti því yfir að höf- uðið á honum væri úr gegnheilu beini og þess vegna þyrfti hann ekki hjálm .. . XXX ÍKVERJI er ekki hrifmn af „lyftutónlistinni" sem ævin- lega er spiluð í Flugleiðavélum fyr- ir flugtak og eftir lendingu. Af hveiju þarf að þreyta flugfarþega með íslenzkum popplögum í út- þynntri útsetningu fyrir sinfóníu- hijómsveit einmitt við upphaf og endi flugferðar? Víkverji er satt að segja orðinn hundleiður á að heyra Sinfóníuhljómsveit Islands sarga Stórir strákar fá raflost eftir Bubba og aðra gamla slagara í hvert sinn sem hann stígur upp í Flugleiðavél. Kannski er hugsunin á bak við tón- listarflutninginn að hann hafl róandi áhrif á farþega, en í tilfelli Víkveija hefur hann þveröfugar afleiðingar. xxx ISKÓLA lærði Víkveiji að orðið verð væri eintöluorð og ekki hægt að nota það í fleirtölu. Nú tala menn hins vegar hver um ann- an þveran um beztu verðin, lægstu verðin, verðin sem fáist fyrir fiskinn o.s.frv. B.T. tölvur (það er reyndar skrifað B.T. Tölvur, en Víkveiji vill nú ekki samþykkja að nota megi stóran staf í miðju heiti fyrirtækis- ins) auglýsa þannig í Morgunblað- inu í gær: „Ávallt betri verð í B.T. Tölvum“ — með sérstakri áherzlu á málvilluna!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.