Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
251. TBL. 84.ARG.
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Landnemi
ákærður
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSK yfirvöld birtu í gær
ákæru á hendur stjórnanda öryggis-
mála í byggð gyðinga í grennd við
þorpið Husan á Vesturbakkanum, en
hann er sakaður um að hafa orðið
11 ára arabadreng, Hilmi Shousha,
að bana sl. sunnudag.
Maðurinn, Nahum Kurman, ók bíl
sínum inn í Husan í leit að drengjum
sem kastað höfðu grjóti í bíla gyð-
inga. Hann er sagður hafa barið
drenginn niður, stigið síðan ofan á
hálsinn á honum og barið hann í
höfuðið með skammbyssuskefti.
Drengurinn lést á sjúkrahúsi af
heilablæðingu en að sögn lækna varð
hann fyrir höggi sem skar í sundur
slagæð í hryggjarsúlu.
Kurman segir vitnisburð meira en
20 arabískra sjónarvotta rangan,
hann hafi alls ekki barið Shousha
heldur reynt að lífga hann við og
kallað á sjúkrabíl.
Minnkandi líkur taldar á stórsigri Clintons í kosningunum í Bandaríkjunum
Reuter
MOÐIR Nahums Kurmans
faðmar hann áður en honum
var birt ákæra um morð á
ellefu ára palestínskum pilti.
Lát arabadrengs
Bob Dole
talinn saxa
á forskotið
Washington. Reuter.
LÍKURNAR á að Bill Clinton, for-
seti Bandaríkjanna, vinni stórsigur
í forsetakosningunum á þriðjudag
eru taldar hafa minnkað og nokkr-
ir fréttaskýrendur spáðu því í gær
að Bob Dole, forsetaefni repúblik-
ana, fengi meira fylgi en búist
hefur verið við.
Fréttaskýrendurnir sögðu að
svo virtist sem stuðningurinn við
Clinton færi minnkandi vegna
umfjöllunar fjölmiðla um að demó-
kratar hefðu þegið mikla fjármuni
af fjármálamönnum frá Asíu. Ross
Perot, forsetaefni Umbótaflokks-
ins, sé sá sem hafi hagnýtt sér
þetta mál best.
„Fjáröflunarhneykslið sá fyrir
kveikiefninu en Perot kom með
neistann,“ sagði Alfred Tuchfar-
ber, sérfræðingur í skoðanakönn-
unum við Cincinnati-háskóla.
Lítill munur í Flórída
Nýjasta könnun Reuter-frétta-
stofunnar bendir til þess að for-
skot Clintons hafi minnkað og sé
nú aðeins 5,5 prósentustig. Sam-
kvæmt öðrum könnunum er mun-
urinn þó meiri, eða 12-16 pró-
sentustig.
Kannanir í nokkrum ríkjum
benda til þess að forskot forsetans
fari minnkandi. Tii að mynda er
orðinn mjög lítill munur á fylgi
Clintons og Doles í Flórída.
„í hreinskilni sagt tel ég að
kosningarnar geti nú farið á hvorn
veginn sem er,“ sagði Tuchfarber,
en aðrir stjórnmálaskýrendur vildu
ekki taka svo djúpt í árinni. Nokkr-
ir þeirra sögðu þó líklegt að Dole
tækist að saxa verulega á forskot
forsetans síðustu dagana fyrir
kosningar. Clinton var með 12
prósentustiga forskot í kosningun-
um árið 1992 og sigraði með fimm
stiga mun.
Repúblikönum spáð sigri
Minnkandi stuðningur við Clint-
on dregur einnig úr líkunum á því
að demókratar fái meirihluta á
þinginu. Fréttaskýrendur eru því
sem næst allir sammála um að
repúblikanar haldi meirihluta í öld-
ungadeildinni og flestir spá þeim
sigri í fulltrúadeildinni.
Clinton flutti í gær ræðu í Kali-
forníu og ræddi þá í fyrsta sinn
kröfur um að lögum um fjármögn-
un stjórnmálaflokkanna yrði
breytt. Hann lagði til gagngerar
breytingar á lögunum og tók undir
Reuter
BOB Dole, forsetaefni repúblikana, hóf í gær fjögurra daga
„sigurferð" um 14 ríki í Bandaríkjunum og hyggst ekki unna
sér hvíldar fyrr en kosningabaráttunni lýkur. Ferðin hófst í
Columbus í Ohio og með honum voru tveir fyrrverandi forset-
ar, George Bush (t.v.) og Gerald Ford.
tillögu Doles um bann við ijárfram-
lögum frá erlendum borgurum.
Margir fréttaskýrendur telja þó
að forsetinn hafi dregið of lengi
að taka af skarið í málinu. „Þögn
hans benti til þess að hann væri
á einhvern hátt samsekur. Þetta
hefur örugglega skaðað hann,“
sagði Gregory Valliere hjá Was-
hington Research Group sem ann-
ast stjórnmálakannanir fyrir fjár-
málafyrirtæki á Wall Street.
■ Guðs vilji/21
Her Rúanda ræðst
inn í Goma í Zaire
Reuter
Flokki Iliescu spáð ósigri
ION Iliescu, forseti Rúmeníu, hef-
ur ívið meira fylgi en helsti and-
stæðingur hans ef marka má síð-
ustu skoðanakannanir fyrir for-
setakosningarnar á morgun. Þær
benda hins vegar til þess að Jafn-
aðarmannaflokkur hans (PDSR)
bíði ósigur í þingkosningum fyrir
bandalagi stjórnarandstæðinga,
CDR, sem aðhyllast róttækar um-
bætur í efnahagsmálum.
Iliescu hefur verið við völd í
Rúmeníu frá því einræði komm-
únista leið undir lok árið 1989.
Kannanirnar benda til þess að
hann hafi um 30% fylgi, fjórum
prósentustigum meira en helsti
keppinautur hans, háskólakenn-
arinn Emil Constantinescu. Sam-
kvæmt kosningareglunum þarf
frambjóðandi að fá a.m.k. helming
atkvæðanna til að ná kjöri í fyrri
umferðinni.
Rúmeni heldur hér á mynd af
Constantinescu og hrópar vígorð
gegn kommúnistum í Búkarest.
Gisenyi. Reuter.
HERMENN frá Rúanda réðust í
gær inn í Goma í austurhluta
Zaire til að aðstoða uppreisnar-
menn af ættflokki Tútsa sem
reyndu að ná borginni á sitt vald.
„Liðsmenn RPA [Föðurlands-
hers Rúanda] í herbúningum hafa
komið inn í miðborg Goma, á
aðaltorgið. Þeir fóru landveg eða
yfir Kivu-vatn á bátum,“ hafði
stjórnarerindreki á svæðinu eftir
sjónarvottum. „Við erum 110%
viss um að RPA er í Goma. Það
hefur verið staðfest," sagði annar
stjórnarerindreki.
Anastase Gasana, utanríkis-
ráðherra Rúanda, sagði þó ekkert
hæft í því að hermenn rúandíska
stjórnarhersins tækju þátt í bar-
dögunum í Zaire, en bætti við að
herinn væri reiðubúinn að hefna
stórskotaárása hers Zaire á Rú-
anda. „Við höfum rétt til að verj-
ast ef árásir Zaire-hers halda
áfram,“ sagði hann.
Stjórn Zaire ákvað í gær að
slíta stjórnmálasambandi landsins
við Rúanda og tvö önnur ná-
grannaríki, Búrúndí og Úganda,
sem hún sakar einnig um að hafa
stutt uppreisnarmennina.
Fyrr um daginn höfðu þúsundir
manna flúið frá bænum Gisenyi
í Rúanda vegna sprengjuárása
hersins í Zaire. Tugir þúsunda
Zaire-búa hafa lagt á flótta vegna
átakanna í austurhluta Zaire og
þar var fyrir um 1,1 milljón flótta-
manna frá Rúanda og Búrúndí.
Tútsarnir berjast við stjórnar-
her Zaire og Hútúa úr röðum
flóttafólksins, sem tóku þátt í
drápum á allt að milljón Rú-
andabúum, einkum Tútsum, árið
1994.
Ottast miklar farsóttir
Sadako Ogata, yfirmaður
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, óttast að enn meiri
hörmungar séu yfirvofandi í aust-
urhluta Zaire en árið 1994, þegar
50.000 Hútúar, þá nýkomnir frá
Rúanda, létust af völdum farsótta
í flóttamannabúðunum. Ofsa-
hræðsla ríkir meðal Hútúanna og
margir þeirra hafa verið á faralds-
fæti vegna átakanna í að minnsta
kosti viku.
Garðar Guðjónsson, kynningar-
fulltrúi Rauða kross íslands, sagði
í gær að félaginu hefðu því miður
borist rangar upplýsingar um að
Jón Valfells, starfsmaður Alþjóða
Rauða krossins, hefði farið frá
Goma í Zaire á fimmtudag til
Rúanda. Jón og aðrir starfsmenn
Alþjóða Rauða krossins hefðu enn
verið í borginni í gærkvöldi og
ekkert amaði að fólkinu. Stofnunin
liti svo á að starfsmennirnir myndu
njóta verndar Rúanda-hers og ráð-
gert væri að flytja þá til Gisenyi
i Rúanda í dag og þaðan til höfuð-
borgarinnar, Kigali.