Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 4
4 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjórburasysturnar héldu upp á átta ára afmæli sitt heima og í skólanum
Gaman í skólanum -
en jafnvel skemmtilegra
ef maður á afmæli
SUMIR skóladagar eru í huga barna enn
skemmtilegri en aðrir. Það eru afmælis-
dagarnir. Einn slíkur rann upp í gær í
Varmárskóla í bekk 3. EG og að þessu
sinni var tilefnið fjórfalt. Systurnar og
fjórburarnir Alexandra, Brynhildur,
Diljá og Elín Guðjónsdætur voru prúð-
búnar í rauðri peysu og svörtum skokk
enda orðnar átta ára.
Þegar blaðamann og ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði átti einmitt
að syngja afmælissönginn. Undir stjórn
Eddu Gísladóttur, umsjónarkennara
bekksins, var sunginn sérstakur söngur,
sem er sannarlega enginn venjulegur
afmælissöngur. Það var sungið, klappað
og trommað til heiðurs afmælisbörnun-
um. Þegar spurt var hveijir væru orðn-
ir átta lyftu flestir í bekknum upp hendi
en svo kom í ljós að nóvember var sann-
kallaður afmælismánaður en auk fjór-
buranna eiga þrír aðrir einnig afmæli í
mánuðinum. „Ég á afmæli eftir níu daga,
en það er á laugardegi," sagði Axel hálf-
svekktur en auðvitað á að syngja fyrir
hann, fyrsta skóladag eftir afmælið.
Bekkjarsystkinin Sigfríð og Steinar
Þór upplýstu blaðamann að það væri
gaman í skólanum á afmælisdögum.
„Stundum er komið með kökur og
nammi,“ sögðu þau. „Þá má líka stríða,"
gall í öðrum. Krakkarnir bættu þó við
og tóku fram að aðeins mætti stríða í
góðu.
Systurnar höfðu ólíkar hugmyndir um
hvað skemmtilegast væri að gera í
skólanum. Elínu finnst mest varið í að
lita, Brynhildi þykir skemmtilegast í
lestri og Diljá í frímínútum, en þá má
leika sér að vild. Alexöndru þykir valið
best en þá fær hún að ráða hvað hún
lærir. Vinkonur hennar Linda og Tinna
voru henni alveg sammála.
Eftir afmælissönginn gleymdu sér all-
ir við að klippa út lestrartré og lestrar-
orma. Það verkefni er þáttur í norrænu
lestrarkeppninni, Mími, en fyrir hveija
bók sem börnin lesa hengja þau orm á
lestrartréð. Verkefni barnanna er að
vinna úr efni bóka og túlka það á vegg-
spjaldi. Að sjálfsögðu eiga foreldrar síð-
an að fylgjast með og aðstoða börn sín
við að skilja efnið.
1
Éj ■ ! ' - :í' mi | r -
wmmi
iwmmí:-
'mmmi ttmmii
jiitfBiH
. !
MHKfð
Morgunblaðið/Golli
AFMÆLISSÖNGUR er sunginn í hvert sinn sem einhver í 3. EG í Varmárskóla
á afmæli. Tinna og Axel tóku vel undir í söngnum en í þetta sinn var sungið fjór-
um sinnum fyrir fjórburasystumar.
Morgunblaðið/Kristinn
SYSTURNAR og gestir þeirra áttu örlítið bágt með að tolla á mynd, því það var
svo ósköp skemmtilegt í fjórföldu átta ára afmæli.
Frumvarp um tilskipun ESB um vinnuvernd barna
„Gengið eins
langt og hægt er“
Þingvallaprestakall
Gamlan
Árnesing
langar
heim
SÉRA Heimir Steinsson, út-
varpsstjóri, hefur sótt um stöðu
sóknarprests í Þingvallapresta-
kalli, fyrstur manna eftir að
staðan var auglýst. Ástæðu
þess segir hann vera einfald-
lega þá, að „gamlan Árnesing
langi heim,“ og verst frekari
yfirlýsinga af þessu tilefni.
Umsóknarfrestur um presta-
kallið rennur út 30. nóvember
nk., og hefur samkvæmt upp-
lýsingum frá Biskupsstofu eng-
in önnur umsókn borizt enn
sem komið er. Það hefur þótt
nokkuð óvenjulegt, að umsókn
séra Heimis skyldi kunngjörð
svo snemma, en að sögn Bald-
urs Kristjánssonar, biskupsrit-
ara, gaf Biskupsstofa ekki út
neina tilkynningu um umsókn
hans. Það hafi orðið opinbert
eftir öðrum leiðum.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra mælti á Alþingi á fímmtudag
fyrir frumvarpi á breytingu á lög-
um um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum, sem er
ætlað til að innleiða ákvæði tilskip-
unar Evrópusambandsins frá 1994
(94/33) um vinnuvemd barna og
ungmenna, sem ísland er skuld-
bundið til að gera samkvæmt
EES-samningnum, en dráttur hef-
ur orðið á vegna ágreinings um
það hvernig hægt sé að fram-
fylgja tilskipuninni en jafnframt
tryggja, að íslenzkum unglingum
sé eftir sem áður heimilt að stunda
launavinnu, eins og hefð er fyrir
hér á landi.
Ráðherrann sagði frumvarpið í
öllum meginatriðum í samræmi
við tillögur nefndar, sem í áttu
sæti m.a. fulltrúar vinnumarkað-
arins og vann að undirbúningi
þess að ísland gæti framfylgt
umræddri tilskipun ESB án þess
að umbylta hérlendri hefð fyrir
atvinnuþátttöku barna og ungl-
inga. Ráðherra sagði að með frum-
varpinu væri eins langt gengið og
mögulegt sé til að tryggja áfram-
haldandi möguleika unglinga til
atvinnuþátttöku, en framfylgja
jafnframt ákvæðum tilskipunar-
innar um bann við bama- og ungl-
ingavinnu.
Þetta er gert með því að setja
þá meginreglu, að börn megi ekki
ráða í vinnu, en skilgreindar ítar-
lega undantekningar frá henni,
sem heimili vinnu barna og ungl-
inga eftir tilteknum reglum, sem
setja m.a. hámark á vinnutíma
þeirra, sem er mismunandi eftir
aldurshópum.
Stangast á við
sjómannalög
Jóhanna Sigurðardóttir kvað í
umræðum um frumvarpið það
myndu stangast á við sjómanna-
lög, þar sem unglingum undir 18
ára aldri yrði samkvæmt ákvæðum
frumvarpsins ekki heimilt að vinna
slíkan vinnutíma eins og tíðkast á
sjó. Einnig gæti það, að mati Jó-
hönnu, stangazt á við reglur um
heilsdagsskóla.
Dagblaðið The Virginian Pilotum fiskréttaverksmiðju Iceland Seafood
Stærsta fjár-
festing í borg-
inni frá 1986
225 STÖRF skapast í borginni
Newport News í Virginíufylki, þeg-
ar ný fiskréttaverksmiðja Iceland
Seafood tekur þar til starfa um
mánaðamótin ágúst/september
1997. í dagblaðinu The Virginian
Pilot var fyrir skömmu greint frá
því, að fjárfesting Iceland Seafood
væri hin stærsta í borginni frá því
að Canon-fyrirtækið opnaði þar
verksmiðju árið 1986.
í frétt blaðsins er tíundað, að
fjárfesting Iceland Seafood nemi
meira en 19 milljónum dollara, eða
um 1,3 milljörðum króna. Haft er
eftir Howell Carper, forstjóra Ice-
land Seafood, að fyrirtækið hafi
viljað ráðast í þessa stóru fjárfest-
ingu, þar sem þarfir viðskiptavina
þess hafi breyst og fyrirtækið þurfí
að bregðast við því.
Þá er haft eftir forstjóranum, að
um 100 starfsmenn fylgi fyrirtæk-
inu frá fyrri verksmiðju í Camp
Hill, en 125 heimamenn verði ráðn-
ir til viðbótar. Þá megi reikna með,
að starfmönnum eigi eftir að fjölga
og þeir verði allt að 350 talsins.
Byijunarlaun starfsmanna verða að
meðaltali 8 dollarar, eða um 340
krónur á tímann en geta farið í
allt að 10 dollara eða 680 krónur
með uppbótum.
Þá kemur einnig fram í frétt-
inni, að með fiutningi verksmiðj-
unnar reiknar Iceland Seafood með
að lækka flutningskostnað vöru um
600 þúsund dollara á ári, eða um
40 milljónir króna, vegna nálægðar
við höfnina í Hampton Road og
þykir hagur hafnarinnar vænkast
mjög við þessi viðskipti.
Aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Col-
umbia Ventures
Aðilar
hafa færst
nær sam-
komulagi
JIM Hensel, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Columbia Vent-
ures, segir að viðræður fyrir-
tækisins við Landsvirkjun og
íslensk stjómvöld á síðustu
dögum hafi fært aðila nær
endanlegu samkomulagi um
byggingu nýs álvers við Grund-
artanga.
Hensel vildi ekki tjá sig um
ummæli Kurts Wolfensberger,
framkvæmdastjóra álsviðs
Alusuisse-Lonza, sem höfð
voru eftir honum í Morgun-
blaðinu á þriðjudag um að ekki
væri arðbært að reisa lítil ál-
ver, líkt og fyrirhugað væri við
Gmndartanga. Hann sagði á
hinn bóginn augljóst að fyrir-
tækið íhugaði ekki byggingu
álvers hér á landi nema að
stjórnendur fyrirtækisins teldu
þau áform arðbær.
Fundargerðir birtar
í nóvember
Að sögn hans er stefnt að
því að formlegar fundargerðir
um viðræðumar verði birtar
um miðjan nóvember en sagði
of snemmt að segja til um
hvað í þeim fælist. Þess væri
þó vænst að í þeim skjölum
væru áform fyrirtækisins og
samstarf þess við Landsvirkjun
og íslensk stjórnvöld útfærð
nánar.
Jim Hensel fullyrti að stefnt
væri að því að lokaákvörðun
um áform fyrirtækisins yrði
tekin fyrir áramót.