Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 8
8 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
FRETTIR
MORGTJNBLAÐIÐ
NEI, nei, Árni minn, ekkert gítarsóló góði . . .
Þáttur um tölvufyrirtæki í Hveragerði
sýndur í kandadísku sjónvarpi
EINAR B. Bragason í tölvuveri Smart Net í Hveragerði.
Hundrnð
þúsunda
heimsóttu
heimasíðu
Smart Net
Hveragerði. Morgunblaðið.
KANADÍSKIR sjónvarpsmenn
komu hingað til lands í júnímán-
uði gagngert til þess að gera
sjónvarpsþátt um alnetsþjón-
ustuna Smart Net í Hveragerði.
Þann 15. október síðastliðinn var
þátturinn síðan sýndur á Disco-
very Channel í Kanada. Er
skemmst frá því að segja að eft-
ir að þátturinn fór í loftið hafa
allar línur verið rauðglóandi hjá
Smart Net í Hveragerði.
Einar B. Bragason, eigandi
Smart Nets, segist hafa verið
að vinna í tölvuveri fyrirtækis-
ins nóttina sem þátturinn var
sýndur. Skyndilega tók hann
eftir því að eitthvað mikið var
að gerast á miðlaranum. „Ég
hélt að kerfið væri bilað svo ég
endurræsti það en „bilanirnar“
héldu áfram þátt fyrir það. En
þegar mér fór að berast fjöldi
bréfa í tölvupósti þar sem fólk
lýsti ánægju sinni með þáttinn
gerði ég mér grein fyrir því að
kerfið var ekki bilað heldur
voru heimsóknirnar svo margar
að það réð ekki við álagið.“
Bandbreiddin sem Smart Net
hefur yfir að ráða ræður við
u.þ.þ. 120.000 heimsóknir á sól-
arhring. En síðan þátturinn var
sýndur í Kanada hafa heim-
sóknir til Smart Nets verið ríf-
lega það á hverjum sólarhring.
Og færri komast að en vilja því
yfirleitt er löng bið eftir því að
komast að. „Það er einfaldlega
allt stíflað," sagði Einar. „Kerf-
ið sem ég hef yfir að ráða ræð-
ur við milljón heimsóknir á sól-
arhring en þar sem Póstur og
sími selur bandbreidd innan-
lands eftir kílómetrafjölda eig-
um við sem rekum alnetsþjón-
ustur á landsbyggðinni afar erf-
itt uppdráttar. Þar sem við
fáum aukna bandbreidd á mun
betra verði í Reykjavík stend
ég núna frammi fyrir því að
neyðast til að flytja hluta af
minni starfsemi til Reykjavíkur
eingöngu vegna Iandsbyggðar-
stefnu Pósts og síma. Við von-
umst nú samt sem áður til að
breyting verði þarna á og að
við fáum að sitja við sama borð
og alnetsþjónustur á höfuðborg-
arsvæðinu.“ Á heimasíðu Smart
Nets eru upplýsingar um ísland
og hafa myndir af landinu verið
sérlega vinsælar. Einar segir
greinilegt að fólk þyrsti í upp-
lýsingar um land og þjóð og því
séu á alnetinu miklir ónotaðir
möguleikar.
Hefursótt um þreföldun á
bandbreidd
Fjöldi íslenskra fyrirtækja
er með heimasíðu hjá þjón-
ustunni og hafa þau ekki farið
varhluta af þeim miklu vin-
sældum sem Smart Net nýtur
núna. Aðspurður sagði Einar
að þessi umfjöllun um Smart
Net og Island væri ómetanleg.
„Þetta er stórkostlegt tækifæri
sem okkur gefst núna til að
kynna land og þjóð. Enda finn
ég fyrir miklum og jákvæðum
viðbrögðum frá fyrirtælqum
hér heima sem gera sér grein
fyrir þeim möguleikum sem
heimasíða á jafn vinsælum stað
býr yfir. Því það er ekki nóg
að koma sér upp heimasíðu,
fólk verður líka að vita að hún
sé til, því annars er heimasíðan
manns eins og öngstræti í
New York sem enginn rekst
inn í, nema fyrir helbera tilvilj-
un.“
Sýning þáttarins í Kanada
var aðeins byijunin því fljót-
lega verður þátturinn sýndur í
Bandaríkjunum, Asíu og Evr-
ópu og þar á eftir í gervitungla-
sjónvarpi. Einar gerir ráð fyrir
að heimsóknum muni enn
fjölga og hefur hann því
þegar sótt um þreföldun á
bandbreidd sinni til Hvera-
gerðis.
Aðalsamningamaður í fiskveiðimálum
Reynslan von-
andi styrkur
Jóhann Sigurjónsson
JÓHANN Siguijóns-
son var frá og með
deginum í gær skip-
aður aðalsamningamaður
íslands í fiskveiðimálum
og um leið settur sendi-
herra í utanríkisþjón-
ustunni til eins árs. Jóhann
tekur sér leyfi frá starfi
sínu sem aðstoðarforstjóri
Hafrannsóknastofnunar á
meðan hann sinnir samn-
ingaviðræðum fyrir Is-
lands hönd.
Jóhann er fyrst spurður
hvort það hafi komið hon-
um á óvart er utanríkis-
ráðuneytið leitaði til hans
og bað hann að taka starf-
ið að sér.
„Já, það er óhætt að
segja að það hafí komið
mér á óvart. Þetta var
ekki auðveld ákvörðun, enda mikil
breyting á starfsvettvangi. Ég var
í áhugaverðu og að mörgu leyti
erilsömu og skemmtilegu starfi,
þannig að ég þurfti að hugsa mig
vel um. Starf mitt á Hafrann-
sóknastofnun tengist mörgum
samstarfsaðilum, þannig að fyrst
þurfti ég að kanna hvort það væri
hreinlega gerlegt að fara frá um
tíma. Eg þurfti líka að ræða þessi
mál við fjölskylduna, enda fylgja
nýja starfínu mikil ferðalög.
Allt þetta þurfti ég að gera upp
við mig, en þetta v'*rð niðurstaðan.
Samningar um fiskveiðimál eru
áhugavert og mikilvægt verkefni
og skemmtilegt að einhver telji að
ég geti hjálpað til við að leysa það,
og í raun viðurkenning á því starfí
sem er unnið á Hafrannsóknastofn-
un á þessu sviði. Ég vona að reynsla
min á hinu fiskifræðilega sviði geti
styrkt þá vinnu, sem framundan er
í þessum málum.“
Þú er væntanlega heldur ekki
ókunnugur alþjóðlegu starfi og
samninga viðræðum ?
„Almennt má segja að haf- og
fiskirannsóknir fari fram í mjög
alþjóðlegu umhverfi. Ég hef fengið
stóran skammt af því, bæði á veg-
um Alþjóðahvalveiðiráðsins, Al-
þjóðaspendýraráðsins og Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins. Þar hef ég
eflaust lært eitthvað, sem að gagni
kemur í þessu starfi. Ég hef verið
í mörgum sendinefndum, þar sem
menn hafa reifað málin fyrir ís-
lands hönd og skipzt á sjónarmið-
um.“
Menntun þín og reynsla er ólík
bakgrunni flestra diplómata. Áttu
von á að þú komir með nýtt blóð í
utanríkisráðuneytið?
„Með minni ráðningu kemur
vonandi ný fagþekking inn í ráðu-
neytið, sem ég held að sé fullkom-
lega tímabært að sé þar til staðar.
Burtséð frá mér sjálfum, finnst
mér að svona þekking eigi að sjálf-
sögðu heima í utanríkisráðuneyti,
ekki sízt á Íslandi."
Nú er mikil gerjun í fiskveiði-
málum og ný skipan að
komast á úthafsveiðar
og alþjóðlega samninga
um nýtingu auðlinda.
„Það er margt að
gerast í þessum málum.
Túlkun á ýmsum alþjóðlegum
samningum er að mótast hvað
varðar umgengni við auðlindina. í
samningunum, sem hafa gengið í
gildi í kjölfar umhverfisráðstefn-
unnar. í Ríó, bæði um líffræðilega
íjölbreytni og umhverfi og þróun,
er sett fram hin svokallaða varúð-
arregla, sem menn eiga eftir að
sjá hvernig festist í sessi. Úthafs-
veiðisamningur Sameinuðu þjóð-
anna er nýlega undirritaður og
Hafréttarsamningurinn er ný-
genginn í gildi.
Framundan eru jafnframt samn-
► Jóhann Sigurjónsson er 44
ára gamall. Hann lauk BS-prófi
í líffræði frá Háskóla íslands
1976 og cand. real., embættis-
prófi í sjávarliffræði, frá Ósló-
arháskóla 1980. Hann var sér-
fræðingur við Óslóarháskóla og
síðar sérfræðingur í hvalarann-
sóknum við Hafrannsóknastofn-
un. Hann varð verkefnisstjóri
og yfirdeildarstjóri hvalarann-
sókna við stofnunina 1986 og
hefur verið aðstoðarforstjóri
hennar frá 1994. Jóhann hefur
verið fulltrúi íslands í vísinda-
nefndum Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins, NAMMCO og NAFO, svo
nokkrar alþjóðastofnanir séu
nefndar, og í stjórn Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins. Kona Jó-
hanns er Helga Bragadóttir
arkitekt og eiga þau þrjú börn.
ingaviðræður um marga fiskstofna,
sem íslendingar nýta. Síldarsamn-
ingurinn var aðeins til eins árs og
honum þarf að fylgja eftir. Ræða
þarf ýmis mál varðandi karfaveiðar
á Reykjaneshrygg, þótt þar hafi
náðst árangur í fyrra. Menn eru
ekki á eitt sáttir um veiðar á Flæm-
ingjagrunni og loks er það Smugu-
deilan, sem krefst úrlausnar. Þetta
eru býsna mörg mál, sem þarf að
leiða til lykta með einhveijum hætti
alveg á næstunni."
Hvernig finnst þér hafa gengið
að samræma varúðarreglu um
umgengni við auðlindina efna-
hagslegum hagsmunum íslend-
inga í samningum við önnur ríki?
„Beiting varúðarreglunnar
snýst í raun ekki um annað en að
við reynum að halda okkur á sama
spori og við höfum gert við nýt-
ingu fiskstofna við ísland síðastlið-
in 20 ár. Við höfum reynt að reka
hér fískveiðar, byggðar á sjálf-
bærri nýtingu stofnanna. Það má
deila um hvernig til hafi tekizt,
en ég held að okkur hafi gengið
betur en mörgum öðrum. Við höf-
um hagsmuni af að varúðarreglan
og önnur slík sjónarmið, sem nú
koma upp í samningum
á alþjóðavettvangi, fest-
ist í sessi vegna þess að
þau skipta miklu fyrir
efnahag okkar og fram-
tíð. Þetta samræmist vel
þegar menn gá betur að.“
Hvalir hafa verið eitt þitt helzta
áhugamál og rannsóknarefni. Áttu
von á að taka þátt í spennandi
samningaviðræðum um hvalamál?
„Það kom nú ekki sérstaklega
til tals vegna ráðnirigar minnar.
Samkvæmt okkar skilningi eru
hvalir hins vegar endurnýjanleg
auðlind, líkt og fiskstofnarnir.
Hvalveiðimálin eru enn til skoðun-
ar hjá stjórnvöldum og ákvörðun
hefur ekki verið tekin. En ef slík
mál koma upp, er ég á heima-
velli."
Ekki
auðveld
ákvörðun