Morgunblaðið - 02.11.1996, Page 14
14 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ómetanlegt Ijón þegar Vallakirkja í Svarfaðardal brann
Möguleikar á endurbót-
um kannaðir eftir helgi
Morgunblaðið/Kristján
DANÍEL Snorrason og Gunnar Jóhannsson í rannsóknardeiíd
lögreglunnar leituðu eldsupptaka í Vallakirkju í gærmorgun.
ÓMETANLEGT tjón varð þegar
Vallakirkja í Svarfaðardal varð eldi
að bráð í fyrrinótt. Kirkjan var reist
af grunni 1861 og er hún elsta
bygging í Svarfaðardal. Undan-
farna mánuði hafa kostnaðarsamar
endurbætur verið gerðar á kirkjunni
og var ætlunin að endurvígja hana
eftir þijár vikur. Eftir helgi verður
gerð úttekt á ástandi kirkjunnar
og skoðað hvort einhver möguleiki
er á að lagfæra hana. Þá eru fulltrú-
ar tryggingafélaga einnig væntan-
legir til að meta tjón. Nokkrir af
munum kirkjunnar líta þokkalega
út, að sögn Jóns Helga Þórarinsson-
ar sóknarprests, og verða þeir send-
ir á Þjóðminjasafnið þar sem litið
verður á þá.
Eins og púðurtunna
Sigurður Jónsson, slökkviliðs-
stjóri í Slökkviliði Dalvíkur, sagði
að liðið hefði verið kallað út
skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt
og voru alls 19 menn úr liðinu
mættir að Völlum um hálftíma síð-
ar. Útkallið gekk, að sögn slökkvi-
liðsstjóra, vel en það kom um Neyð-
arlínuna. Ábúendur á Völlum urðu
eldsins fyrst varir. Mikil hríð var
og þæfingsfæri og þá var töluvert
frost. Forkirkjan var alelda þegar
að var komið en eldurinn hafði enn
ekki náð inn í kirkjuna. Tveimur
tímum áður en eldsvoðinn varð
höfðu menn verið að störfum í
kirkjunni, en fernisolía hafði verið
borin á gólfið. Sigurður sagði loft-
ið hafa verið mjög olíumettað í
kirkjunni. „Þegar eldurinn hafði
brotið sér leið gegnum skilrúmið
og fram í aðalkirkjuna var þetta
nánast eins og púðurtunna,“ sagði
Sigurður.
Þegar slökkvilið hafði náð tökum
á eldinum var allt innandyra ónýtt,
þó svo kirkjan sjálf hafi ekki hrun-
ið. Veðrið setti mark sitt á slökkvi-
störfin og olli mönnum erfiðleikum,
gijót komst í dælu og þá fraus
hvað eftir annað á stútum, þannig
að stöðugt varð að skipta um.
Daníel Snorrason, lögreglufull-
trúi á rannsóknardeild Lögreglunn-
ar á Akureyri, sagði tvær möguleg-
ar skýringar á eldsupptökum, ann-
ars vegar vegna hita frá óvarinni
peru eða vegna samspils uppgufun-
ar fernisolíu, sem verið var að bera
á gólf kirkjunnar, og spólurofa í
rafmagnstöflu. Spólurofinn stýrir
hitastilli og er hugsanlegt að mynd-
ast hafi neisti þegar á honum kvikn-
ALTARIÐ í kirkjunni er illa
útleikið eftir eldsvoðann.
aði og þannig hafi kviknað I mett-
uðu lofti sem var í kirkjunni.
Menningar- og
tilfinningagildi
Vallakirkja er timburkirkja, reist
af grunni sumarið 1861 og er elsta
bygging í Svarfaðardal. Hún lask-
aðist töluvert í kirkjurokinu svo-
nefnda árið 1900, rifnaði eftir endi-
löngu og færðist til á grunninum
en viðgerð gekk fljótt og vel. Margt
fágætra muna var í kirkjunni, m.a.
predikunarstóll frá árinu 1747.
„Þetta er mikið áfall, Vallakirkja
er elsta hús í Svarfaðardal og hún
hafði mikið menningar- og tilfinn-
ingalegt gildi fyrir sóknarbörnin,“
sagði sr. Jón Helgi Þórarinsson
sóknarprestur. Tæplega 90 manns
eru í sókninni en auk þess eru
margir brottfluttir Svarfdælingar
tengdir kirkjunni tilfinningabönd-
um. „í þessari kirkju hafa margir
átt sínar gleði- og sorgarstundir,"
sagði Jón Helgi.
Undanfarin misseri hefur verið
unnið að kostnaðarsömum endur-
bótum á kirkjunni og hún færð í
upprunalegt horf. Til stóð að endur-
vígja hana sunnudaginn 24. nóvem-
ber næstkomandi. „Það hafði verið
alveg sérlega vandað til allra verka
og kirkjan var orðin mjög glæsileg,
eldsvoðinn er okkur öllum því mikið
áfall,“ sagði sóknarprestur.
Messur
Útgerðarfélag Akureyringa
Hlutabréf fyrir
43 milljónir seld
AKUREYRARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11 í kirkjunni.
Allir velkomnir. Munið kirkjubílana.
Guðsþjónusta kl. 14. Minnst verður
látinna, þeim þakkað og beðið fyrir
þeim. Einsöngur, Sigríður Elliðadótt-
ir. Bílferð verður frá Víðilundi og
Hlíð. Kvenfélag Akureyrarkirkju
verður með veitingar í Safnaðar-
heimilinu að lokinni messu. Biblíu-
lestur í Safnaðarheimili á mánudags-
kvöld kl. 20.30. Mömmumorgunn frá
kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og
bænastund í kirkjunni kl. 11 í dag,
laugardag. Barnasamkoma kl. 11 á
morgun, sunnudag. Foreldrar hvattir
til að mæta með börnum sínum.
Messa verður kl. 14, kirkjukaffi
kvenfélagsins Baldursbrár í safnað-
arsal kirkjunnar að athöfn lokinni.
Fundur æskulýðsfélagsins kl. 17 á
sunnudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, fjöl-
skyldusamkoma kl. 17, KK-krakkar
sýna leikþátt og börn og unglingar
syngja. Tilvalin dagskrá fyrir alla
fjölskylduna. Heimilasamband á
mánudag kl. 16, krakkaklúbbur, 6
ára og yngri kl. 17 á mánudag, 11 +
fyrir 10-12 ára á fimmtudag kl. 17,
hjálparflokkur kl. 20.30. Flóamark-
aður á föstudag frá 10 til 17. Ungl-
ingakór kl. 19.30 og unglingaklúbbur
kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safn-
aðarsamkoma kl. 11 á morgun,
ræðumaður Sam D. Glad. Samkoma
kl. 14 á sunnudag, stjórnandi Anna
Höskuldsdóttir, ræðumaður Sam D.
Glad. KK fyrir 10 til 13 ára áþriðju-
dag kl. 17.30, biblíulestur og bæna-
samkoma kl. 20 á miðvikudag,
krakkaklúbbur kl. 17.15 á föstudag,
öll börn velkomin. Unglingasam-
koma kl. 20.30 á föstudag. Bæna-
samkomur verða frá 5. til 7. nóvem-
ber kl. 20 öll kvöldin.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrar-
landsvegi 26, Messur í dag, laugar-
daginn 2. nóvember, á allra sálna
messu, kl. 8.30, 12.00 og 18.00.
Messa kl. 11 á sunnudag.
KFUM og K, Akureyri, bænastund
kl. 20.30 á sunnudag.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun.
Messa kl. 17. Látinna minnst. Geng-
ið til kirkjugarðs eftir messu, þar sem
vígður verður minnisvarði um ástvini
sem hvíla annars staðar. Kirkjukaffi
eftir vígslu. Mömmumorgunn í safn-
aðarheimili á miðvikudag, 6. nóvem-
ber, frá kl. 10 til 12.
HLUTABRÉF í Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa, sem Akureyringum eldri
en 18 ára og starfsfólki ÚA voru
boðin með forkaupsrétti, voru seld
fyrir 43 milljónir króna, en sölu-
verðmæti bréfanna sem boðin voru
starfsfólki og Akureyringum var
að upphæð um 650 milljónir króna.
Forkaupsrétturinn rann út kl. 18 í
gær.
Jón Hallur Péturssson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
Iands, sem annast sölu bréfanna,
sagði að menn hefðu átt von á að
FYRSTU tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands á fjórða starfs-
ári hennar verða á sunnudag, 3.
nóvember, í Akureyrarkirkju kl. 17.
Á þessum tónleikum skipa hljóm-
sveitina 30 hljóðfæraleikarar undir
stjórn Guðmundar Óla Gunnarsson-
ar, sem er aðalhljómsveitarstjóri
hljómsveitarinnar. Hann nam
hljómsveitarstjórn við Tónlistarhá-
skólann í Utrecht í Hollandi og
stundaði framhaldsnám í Helsinki.
Á efnisskrá tónleikanna er tónlist
eftir Mozart, Hándel, Charles Ives
og Aaron Copland.
Hljómsveitin flytur Lítið nætur-
Ijóð, Eine Kleine Nachtmusik, ser-
enöðu fyrir strengjasveit sem er
eitt frægasta verk Mozarts þessarar
tegundar. Þá flytur hljómsveitin
Vatnasvítur Hándels á þessum tón-
seld yrðu bréf fyrir á bilinu 50 til
100 milljónir króna í þessu útboði.
„Þetta er heldur lakari sala en við
áttum von á, það er greinilegt að
fólki finnst gengið dálítið hátt,“
sagði Jón Hallur, en gengi bréfanna
var 4,98.
. Um 10 þúsund manns höfðu for-
kaupsrétt að hlutabréfum Akur-
eyrarbæjar en um 110 manns nýttu
sér hann.
Ætlunin er að selja hlutabréf
fyrir um 650 milljónir að söluverð-
mæti fyrir áramót.
leikum.
The Unanswered Question eða
Spurning án svars er eftir banda-
ríska tónskáldið Ives. Hann kannaði
tóntegundarleysi, frjálst hljóðfall,
kvarttóna og blandaði saman ólík-
um takttegundum, ólíkum tónteg-
undum og jafnvel óskyldri tónlist.
Tónlist Ives er tengd sterkum bönd-
um við sögu, landslag, heimspeki
og bókmenntir Massachusett og
Connecticut, en ekki síður við dæg-
ur- lúðrasveita- og gospeltónlist.
Copland var fyrstur bandarískra
tónskálda að læra hjá Nadiu Bou-
langer í París, þar sem nýklassíska
stefnan réð ríkjum og bera fyrstu
verk hans þess merki, svo sem Leik-
hústónlist, Music for the Teatre,
sem Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands flytur.
Gleðivaka
í Frey-
vangi
Eyjafjarðarsveit
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ og
Leikdeild Ungmennafélags
Reykdæla í Borgarfirði standa
fýrir svonefndri Gleðivöku í
kvöld í Freyvangi í Eyja-
fjarðarsveit. Freyvangsleik-
húsið er með sinn árlega kaba-
rett, þar sem tekið er á „heit-
um“ málum í sveitinni með við-
eigandi hætti.
Leikdeild Umf. Reykdæla
heimsækir Freyvangsleikhúsið
nú í fyrsta sinn. Frá hennar
hendi verður boðið upp á fjöl-
mörg atriði sungin og leikin.
Þeirra helst er ósögulegur
söng- og ærslaleikur um: Ævi,
ástir og andlát Snorra Sturlu-
sonar, eftir Þorvald Jónsson frá
Brekkukoti í Reykholtsdal.
Eftir að skemmtiatriðum
lýkur verður stiginn dans fram
á nótt undir skagfírskri sveiflu
Geirmundar Valtýssonar og
hljómsveitar hans.
Hatrið og
Frankie
Starlight
KVIKMYNDAKLÚBBUR Ak-
ureyrar sýnir Hatrið (La Ha-
ine) í Borgarbíói sunnudaginn
3. nóvember kl. 15 og og
Frankie Starlight á mánduag,
4. nóvember kl. 18.30.
Kvikmyndin Hatrið er
frönsk, frá árinu 1995 og er
eftir Mathieu Kassovitz. Hún
hefur vakið athygli og umtal í
Frakklandi um aðbúnað inn-
flytjenda í úthverfum Parísar.
Kvikmyndin Frankie Star-
light er írsk og skartar Gabriel
Byrne og Matt Dillon í aðal-
hlutverkum, en myndin fjallar
um dverginn Frankie og minn-
ingar hans um móður sína.
UPPBOÐ
í SJALLANUM
sunnudaginn 3. nóvember kl. 21.00.
Verkin sýnd í Mánasal Sjallans
ídagkl. 16.00-18.00
og á morgun kl. 14.00-18.00.
Kristalbúðin Listhúsið
Hólabraut 13 i3(XFlvT Þing
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Vinsæl verk á fyrstu
tónleikum vetrarins