Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 21 ERLENT TWA rannsókn- indýr RANNSÓKN Öryggisstofnunar samgöngumála í Bandaríkjunum (NTSB) á flugslysinu, sem varð undan ströndum Long Island í New York-ríki 17. júlí sl., er Boeing-747 þota TWA-flugfélagsins splundrað- ist á flugi, hefur kostað 24 milljónir dollara, jafnvirði 1,6 milljarðs króna, og sér ekki fyrir endann á henni, að sögn blaðsins Washington Post. Bandaríska þingið samþykkti strax eftir slysið að veita sex millj- ónum dollara til rannsóknar NTSB og er kostnaðurinn því kominn langt fram úr þeirri áætlun. Kostnaður við rannsóknina er í raun orðinn mun meiri því í framan- greindri tölu eru margra milljóna dollara útgjöld alríkislögreglunnar (FBI) og annarra opinberra stofn- ana, Suffolk-sýslu, New York-borg- ar, New York-ríkis, TWA, Boeing og fleiri fyrirtækja, ekki reiknaður með. Ekki skammhlaup í mælistikunum í fyrradag voru birtar niðurstöð- ur úr rannsókn á tveimur mælistik- um úr aðal eldsneytistanki TWA- þotunnar. Talið var, að skamm- hlaup kynni að hafa orðið í þeim er kveikt hefði í eldfimum bensín- gufum í tómum tankinum, en sýnt þykir nú, að svo hafi ekki orðið. Til stendur að valda sprengingu í aðaltanki 747-breiðþotu eða jafn- vel sprengja hana alla í loft upp til þess að freista þess að finna skýr- inguna á TWA-slysinu. Bob Dole segist ætla að taka úrslitum forsetakosninganna með jafnaðargeði Vill vinna að málefnum fatlaðra Guðs vilji bíði hann Washington. The Daily Telegraph. BOB Dole, forsetaefni bandarískra repúblikana, kallar jafnt guð almátt- ugan sem Abraham Lincoln sér til vitnis í kosningabaráttunni en fátt bendir til, að það muni duga til að koma honum í Hvíta húsið. Gerir Dole sér fulla grein fyrir því og að undanförnu hefur hann gefíð í skyn við stuðningsmenn sína, að hann muni taka því með jafnaðargeði þótt hann tapi fyrir Bill Clinton forseta. Fyrir þá Dole og Jack Kemp, vara- forsetaefni hans, er kosningabarátt- an fremur farin að líkjast langdreg- inni líkvöku en alvöruslag og Dole virðist vera búinn að sætta sig við ósigur. í viðtali, sem Sir David Frost átti við hann, ræddi hann meðal ann- ars um hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur að kosningum loknum. osigur „Ég er ekki að segja, að ég muni tapa kosningunum en fari svo mun ég áreiðanlega finna mér eitthvað að gera. Ég vil vinna að málefnum fatlaðra og öðrum verðugum verk- efnum en ég mun ekki segja við sjálf- an mig, að öllu sé lokið,“ sagði Dole. Dole kvaðst ekki efast um tilvist drottins og hann er með nisti um háls með áletruninni „Verði þinn vilji“. Sagði hann það vera guðs vilja ef hann biði lægra hlut fyrir Clinton. Þegar Dole sagði af sér sem öld- ungadeildarþingmaður í júní sl. sagði hann kjósendum, að hann væri frambjóðandi, sem færi „ann- aðhvort í Hvíta húsið eða heim til sín“ en þótt hann segist bara vera venjulegur Kansasbúi þá er ekki víst að hann vilji setjast að í heimabæ BOB Dole tók dálítinn þátt í hrekkjavökunni í Bandaríkjunum í fyrradag með því að deila út sæl- gæti og öðru slíku til blaðamannanna, sem fylgja honum hvert fótmál. Af sama tilefni settu tveir blaðamannanna upp Clintongrímu. sínum, Russell. Þar er heldur fátt um að vera fyrir mann, sem verið hefur í orrahríðinni í Washington áratugum saman, og auk þess hefur Elizabeth, kona hans, ákveðið að snúa aftur til starfa fyrir Rauða krossinn. Á kosningafundum sínum lætur Dole þó engan bilbug á sér finna og á fimmtudag sagði hann, að sér hefði aukist styrkur við að fara með bæn við minnismerkið um Lincoln í Washington. Líkti hann baráttu sinni við Clinton við baráttu Lincolns fyr- ir að halda ríkinu saman. Ofurölvi ráð- herra rekinn Mínsk. Reuter. ALEXANDER Lúkashenko, for- seti Hvíta-Rússlands, ákvað í gær að víkja varnarmálaráð- herra landsins frá fyrir að mæta drukkinn í opinbera athöfn, að sögn rússnesku fréttastofunnar Interfax. Varnarmálaráðherrann, Leo- níd Maltsev, kom með forsetan- um til athafnar í tilefni af 75 ára afmæli læknastöðvar í Minsk. „Ástæða brottvikningarinnar var hegðun ráðherrans, sem var drukkinn þegar hann átti að lesa setningarræðu athafnarinnar," sagði fréttastofan. „Yfirmaður hersins var ekki fær um að lesa textann þannig að það skildist." Interfax sagði að Lúkashenko hefði gripið fram í fyrir ráðherr- anum og skipað honum að hypja sig út. Forsetinn hefði síðan lýst því yfir að ráðherranum yrði vik- ið frá. Lífverðir Lúkashenkos vísuðu Maltsev út. Nokkrum klukkustundum áður hafði ráðherrann verið í veislu í tilefni af opnun fjarskiptamið- stöðvar í höfuðborginni. 50 ár frá prestvígslu páfa JÓHANNES Páll II páfi minnt- ist þess í gær að hálf öld er liðin frá því hann var vígður prestur og kvaðst þakklátur Guði fyrir að hafa fengið að þjóna kaþólsku kirkjunni þennan t.íma. Páfi er að ná sér eftir botnlangauppskurð í síð- asta mánuði og virtist þreyttur en hrærður við rúmlega tveggja tíma messu í Péturs- kirkjunni í tilefni af vígsluaf- mælinu. Viðstaddir voru kard- inálar og biskupar hvaðanæva úr heiminum, og hundruð presta sem voru einnig vígðir árið 1946, auk ýmissa tiginna gesta. LAUGARDAG OG SUNNUD^VG (í Sigtúni) DAGSKRA í Propoliskynning kli 14-18 10% kynningarafsláitur Ragnar Þjóðólfsson fræðir fólk um gagnsemi propolis, drottningarhunangs og blómafrjókorna. 2. Hallgrímur Þ. Magnýsson læknir heldur stutta fyrirlestra um næringu og heilsu. Hann mun einnig fjalla um fæðubótaefni og svara fyrirspurnum. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 15 og kl. 16 báða dagana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.