Morgunblaðið - 02.11.1996, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUN
Canal
Plus sem-
ur við
Universal
París. Reuter.
FRANSKA sjóvarpið Canal
Plus, sem byggist á áhorfi
gegn greiðslu, hefur gert
samning við bandaríska kvik-
myndafélagið Universal Pict-
ures og tryggt sér einkarétt
til sýninga á kvikmyndum
þess.
Canal Plus hleypti af stokk-
unum . gervihnattasjónvarpi
sínu Canalsatellité í apríllok.
Franski keppinauturinn TPS
tekur upp slíka þjónustu fyrir
jól og gerði nýlega samninga
við kvikmyndaverin Para-
mount og .MGM í Hollywood
upp á 650 milljónir dollara.
Canal Plus og MCA-dóttur-
fyrirtæki Seagram fyrirtækja-
hópsins í Kanada sögðu að þau
hefðu gert með sér langtíma-
samkomulag, meðal annars
um einkarétt á sýningum á
kvikmyndum og sérstaka Uni-
versal-rás á Canalsatellité.
Universal Pictures tilheyrir
MCA.
Einkaréttur á nýlegum
kvikmyndum
Bæði Canal Plus og Kirch
Gruppe í Þýzkalandi segjast
eiga mesta kvikmyndasafn
Evrópu.
Á rás Universal verða send-
ir út spennandi sjónvarpsþætt-
ir á borð við „Columbo",
„Magnum", „Murder She
Wrote“ og „A-Team“. Canal
Plus og Canalsatellité fá einn-
ig einkarétt til sýninga í sjón-
varpi á nýlegum kvikmyndum
eins og „Waterworld“, „Babe“
og „Apollo 13“ auk eldri
mynda Universals.
Keppinauturinn TPS
Télévision Par Satellité — eru
fyrirtækjasamtök undir for-
ystu óháða sjónvarpsins TFl,
sem er í eigu Bouygues og
ríkissjónvarpsins France Télé-
vision. Deild Lyonnaise des
Éaux, M6, og Compagnie Lux-
embourgeoise de Télédiffusion
(CLT) tilheura einnig þessum
samtökum.
CLT rekur RTL rásir í
Þýzkalandi, Benelúx-löndun-
um og austurhluta Frakk-
lands.
Misheppnaðar fjárfestingar í tölvufyrirtæki
Verður Pearson skipt upp?
STÓRFYRIRTÆKIÐ Pearson í
Bretlandi hefur verið metið á
7,5 mílljarða Bandaríkjadoll-
ara yrði hver einstakur hluti þess
seldur eða um 500 milljarða ís-
lenskra króna. Það á m.a. hið virta
dagblað Financial Times, helming í
tímaritinu The Economist og Pengu-
in-forlagið auk Thames TV sjón-
varpsframleiðandans og námsbóka-
forlagsins Addison Wesley Long-
man. Undanfarin þijú ár hafa ráða-
menn Pearson reynt að búa sig und-
ir framtíðina með því að breyta
áherslum og færa út kvíarnar á sviði
tölvuleikja og sjónvarps en árangur-
inn hefur verið misjafn.
Seld voru m.a. hlutabréf í olíufyr-
irtækjum og ákveðið að kaupa
Thames TV sem er stærsti sjálf-
stæði framleiðandi sjónvarpsefnis í
Bretlandi. Einnig voru fest kaup á
Mindscape Inc. í Kaliforníu sem
framleiðir tölvuleiki og hefur hið síð-
astnefnda reynst þungur baggi en
fyrirtækið kostaði hátt á fímmta
hundrað milljóna dollara.
Kaupin á Mindscape voru talin
bráðnauðsynleg, tölvuleikj afyrir-
tækið væri eins konar aðgöngumiði
að fjölmiðlaheimi framtíðarinnar,
segir í tímaritinu Business Week.
Þar yrði hægt að framleiða geisla-
diska með efni úr Financial Times
og bókum frá Penguin. Reyndin
hefur orðið sú að Mindscape lagði
of mikla áherslu á útþenslu á sviði
spennuleikja og hafði ekki erindi sem
erfíði. Segja sérfræðingar að and-
virði Mindscape sé nú aðeins helm-
ingur þess sem það var keypt á.
Tapið á Mindscape átti dijúgan
þátt í því að arður af hlutabréfum
Pearson minnkaði um 40% á fyrri
helmingi ársins. Hlutabréf Pearson
hafa ekki verið jafn eftirsótt á mörk-
uðum og bréf í öðrum fjölmiðlasam-
steypum og hefur þetta valdið því að
Pearson-samsteypan í Bretlandi á öfluga fjöl-
miðla og sjónvarpsfyrirtækið Thames TV en
tókst illa upp er ráðamenn hugðust tryggja
sér hlut í margmiðlun framtíðarinnar.
RÁÐAMENN Pearson, Frank Barlow og Michael Blakenham.
margar kenningar um yfírtöku hafa
verið settar fram. Er einkum rætt um
sjónvarpsframleiðandann Gran-ada
Group PLC í þessu sambandi.
Rætt er um að draga verði úr
umsvifum Pearson til að treysta
grundvöllinn og þá oftast bent á að
Madame Tussaud’s vaxmyndasafnið
og þemagarðar þess verði að líkind-
um seldir. Einnig er rætt um sölu á
hlut í fjárfestingafyrirtækinu Lazard
Frere & Co. en fjármálaforstjóri
Pearson, John Makinson, er lítt hrif-
inn af síðastnefndu hugmyndinni.
Hagnaðurinn af hlutabréfunum í
Lazard var um 20 milljónir dollara,
1.300 milljónir króna, á fyrri helm-
ingi ársins. Ljóst þykir að auðvelt
yrði að selja Thames TV með góðum
hagnaði.
Ekki fylgst
með breytingum
Fjármálamenn deila margir hart
á yfirstjórn Pearson fyrir stefnuleysi
og efast um að stjórnendurnir fylg-
ist nægilega vel með hinum hröðu
breytingum sem einkenna fjölmiðla-
heiminn. Samsteypan sé greinilega
ekki fær um að halda utan um alla
þætti starfseminnar samtímis og það
sé illþolanlegt, einkum þar sem fyrir-
tækið sé á margan hátt mjög væn-
legt.
Michael Blakenham, stjórnarfor-
maður Pearson, er 58 ára gamall
og afkomandi stofnanda fyrirtækis-
ins. Er sagt ólíklegt að arftaki hans
verði úr röðum íjölskyldunnar.
Frank Barlow framkvæmdastjóri er
66 ára gamall og búist við að hann
hætti á næsta ári.
Margir hluthafar eru sagðir
þrýsta á um að fenginn verði utan-
aðkomandi framkvæmdastjóri, ef
til vill Bandaríkjamaður, með
trausta þekkingu á stjórnun flók-
innar fjölmiðlasamsteypu. Verði
hins vegar leitað til innanbúðar-
manns eru einkum nefndir til sög-
unnar áðurnefndur Makinson, sem
er 41 árs og fyrrverandi blaðamað-
ur, David Bell, 49 ára gamall, einn-
ig fyrrverandi blaðamaður og
stjórnandi Financial Times sem
núna er yfirmaður upplýsingadeild-
ar Pearson, og loks Greg Dyke, 49
ára gamall sem stjórnar umsvifum
samsteypunnar í sjónvarpsmálum.
Allir þrír tóku þeir sæti í stjórn
Pearson fyrr á árinu er þar varð
mikil uppstokkun.
Tímamótaval
Sagt er að valið geti haft úrslita-
áhrif á stefnu Pearson. Verði fyrr-
verandi starfsmaður Financial Times
ráðinn megi gera ráð fyrir að hann
haldi áfram að byggja upp rafræna
viðskiptaþjónustu blaðsins sem þeg-
ar gefi orðið jafn mikið af sér og
sjálft blaðið. Hann sé jafnframt lík-
legur til að ýta undir sókn blaðsins
á alþjóðlegum mörkuðum. Aðal-
framkvæmdastjóri þess, Stephen
Hill, sem er aðeins 35 ára gamall,
hefur gefið starfsmönnum þess í
skyn að slík sókn gæti verið í vænd-
um. Hefur ekki veitt af bjartsýni til
að styrkja starfsandann en mikill
niðurskurður hefur verið gerður á
blaðinu að undanförnu.
Verði á hinn bóginn fyrir valinu
maður sem unnið hefur hjá fjölmiðla-
samsteypu á borð við Walt Disney
Co. eða Time Warner Inc. er líklegt
að hann myndi fremur huga að fjár-
festingum í sjónvarpi og Penguin,
segir í Business Week.
Miami. Reuter.
ÞRJÁR umsvifamiklar blaðaútgáfur hafa skýrt frá
stórauknum hagnaði á þriðja ársfjórðungi vegna
aukinna auglýsingatekna og lægra verðs á dag-
blaðapappír.
Knight-Ridder Inc. segir að hagnaður fyrirtæk-
isins hafi fimmfaldazt, meðal annars vegna minna
taps af 15 mánaða gömlu verkfalli hjá Detroit
Free Press. Times Mirror Co. skýrir frá 50% aukn-
ingu að eingreiðslum undanskildum og Washing-
ton Post Co. segir að hagnaður hafi aukizt um
33 af hundraði.
Utkoman er í samræmi við eða heldur betri en
það sem búizt hafði verið við í Wall Street. Sér-
fræðingar segja að koma sé í ljós árangur af niður-
skurði, sem dagblöð hafi hafizt handa um fyrir
sex til níu mánuðum.
Lægra verð á pappír
Verð á dagblaðapappír náði hámarki í janúar
þegar tonnið kostaði 743 dollara. Viðbrögð úgef-
enda voru meðal annars þau að fækka fréttasíðum
og segja upp fólki.
Nú kostar dagblaðapappír yfírleitt 550 dollara
Samtök
héraðs-
fréttablaða
funda
Egilsstöðum - Árlegur fundur
„ Samtaka bæjar-og héraðs-
Morgunblaðið/Anna Ingolfsdóttir p x
FRÁ aðalfundi Samtaka bæjar- og héraðsfréttablaða. áEgSbSXr’ nyle&a haldinn
Farið var í skoðunarferð um
Egilsstaði og ýmis fyrirtæki
heimsótt, en það er stefnan að
fundargestir fái sem besta
kynningu af fundarstað hveiju
sinni. Fundinum lauk með
heimsókn til Hákons Aðal-
steinssonar bónda í Fljótsdal
og var hann útnefndur „Hér-
aðshöfðingi“ af samtökunum.
Þetta er fyrsta útnefning sam-
takanna en það var ákveðið á
fundi í fyrra að útnefna ein-
stakling sem hefur vakið at-
hygli á sinni heimabyggð á já-
kvæðan hátt.
Aukinn hagnaður þriggja
stórra blaðaútgefenda
tonnið og sérfræðingar telja að verðið verði
550-600 dollarar tonnið út næsta ár.
Hagnaður Knight-Ridder í Miami á ársfjórð-
ungnum jókst í 35.4 milljónir dollara, 37 sent á
hlutabréf, úr 6.6 milljónum dollara, 7 sentum á
hlutabréf, á sama tíma 1995. Undanskilinn er
90.9 milljóna dollara hagnaður, 94 sent á bréf,
af sölu á fjármálafréttaþjónustu Knight-Ridder til
Global Financial Information Corp. fyrir 275 millj-
ónir dollara í júlí.
Auk Detroit Free Press gefur fyrirtækið út
Miami Herald, Philadelphia Inquirer og 28 önnur
blöð í Bandaríkjunum.
Þjónusta á veraldarvefnum
Fyrirtækið hyggst ráðast í kostnaðarsama fjár-
festingu til að bjóða upp á Knight-Ridder upplýs-
ingarþjónustu sína á veraldarvef alnetsins og mun
sá kostnaður draga úr hagnaði til ársloka 1998,
en auka hann síðan.
Hagnaður Times Mirror Co. í Los Angeles jókst
á fjórðungnum í 55.7 milljónir dollara, eða 43
sent á hlutabréf, úr 37.1 milljón dollara, eða 21
senti á hlutabréf á sama tíma 1995. Á ársfjórð-
ungnum í fyrra var undanskilin 435 milljóna doll-
ara eingreiðsla og tap vegna endurskipulagningar.
Rekstrarhagnaður Times Mirror rúmlega tvö-
faldaðist á tímabilinu. Auglýsingatekjur jukust um
4% og kostnaður minnkaði vegna niðurskurðar
og Iægra verðs á dagbiaðapappír.
Fyrirtækið gefur út Los Angeies Times,
Newsday og The Baltimore Sun auk fleiri dag-
blaða og tímarita..
Þegar Mark Willes tók við starfi forstjóra fyrir-
tækisins í fyrra var hætt við útgáfu New York
Newsday og Baltimore-blaðsins Evening Sun og Los
Angeles Times minnkað til að draga úr kostnaði.
Washington Post Co. skýrir frá auknum hagn-
aði af dagblöðum, sjónvarpi, útvarpi og vikuritinu
Newsweek. Hreinar tekjur jukust í 55.4 milljónir
dollara, 5 dollara á hlutabréf, úr 41.8 milljónum
dollara, eða 3,79 dollurum á hlutabréf.
Hlutabréf í Knight-Ridder lækkuðu um 1 dollar
í 36,625 dollara, bréf í Times Mirror lækkuðu um
25 sent í 44,875 dollara og í Washington Post
lækkuðu um 3,375 dollara í 330,875 dollara.
Ný stjórn
í tengslum við fundinn flutti
Stefán Jón Hafstein fyrirlestur.
Ræddi hann um blaðaútgáfu
almennt og kynnti hugmynda-
fræðina sem liggur á bak við
Dag-Tímann.
Ný stjórn var kjörin á fundin-
um og hana skipa: Steinþór
Þórðarson, Austurlandi, for-
maður, Arndís Þorvaldsdóttir,
Austra, ritari, og Kristján Jó-
hannsson, Nesfréttum, gjald-
keri. Fráfarandi formaður er
Elma Guðmundsdóttir.