Morgunblaðið - 02.11.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 31
Island eina landið sem verð-
tryggir skuldir heimilanna
RÍKISSTJÓRNIN telur að sívax-
andi skuldir heimilanna séu merki
um að heimilin eyði um efni fram.
Ríkisstjórnin talar minna um að
heimilin í landinu eru oft neydd til
að taka lán til að eiga til hnífs og
skeiðar frá degi til dags og fyrir
gluggaumslögunum frá lánastofn-
unum vegna skulda sem sífellt vefja
upp á sig. Ríkisstjórnin talar heldur
ekki um hvernig verndarstefnan og
ofurtollar í landbúnaði, sem heimil-
in eiga enga sök á, hafa aukið
skuldir heimilanna.
Grænmetisverð
eykur skuldir heimilanna
Stöðugleiki hefur ríkt í efnahags-
lífinu á udanförnum árum- fyrir til-
stuðlan launafólks og verðbólgan
verið með því minnsta sem þekkist.
Fólkið skilur því ekki hvernig höfuð-
stóll skuldanna vex sífellt. Er nema
von að það skilji ekki ástæðurnar,
eins og þegar kartöflur hækkuðu
tímabundið í sumar, þá leiddi vísital-
an og verðtrygging til þess að skuld-
ir heimilanna jukust um 500 milljón-
ir króna. Hækkun á grænmeti á einu
ári, sem mörg heimili hafa ekki efni
á að kaupa vegna ofurtolla og vemd-
arstefnu ríkisstjómarinnar, juku
engu að síður skuldir heimilanna um
1300 milljónir króna.
Verðtryggð lán
ekki afnumin
Undirrituð beindi fyrirspurn til
viðskiptaráðherra á Alþingi um
verðtryggingu lána og skuldir heim-
ilanna. Þar kom margt athyglisvert
fram sem kallar á viðbrögð.
Alltaf tilbúnir í fjörið!
Efnahagsleg rök og
sanngirni mæla með því
að verðtrygging á lán-
um til heimilanna verði
alfarið bönnuð. Jó-
hanna Signrðardóttir
telur að ríkisstjórnin sé
föst í gamla verðbólgu-
hugsunarhættinum.
Meginniðurstaðan er að verð-
trygging er ekki á lánum til heim-
ila í löndum OECD, að íslandi und-
anskildu. Notkun hennar í öðrum
löndum hefur einskorðast við ríkis-
skuldabréf en þó í mjög litlum
mæli. Skuldir heimila í árslok verða
350 milljarðar króna og hafa aukist
á þessu ári um 25 milljarða króna.
90% af lánunum eru verðtryggð,
en einungis 10% óverðtryggð.
Af hálfu stjórnvalda eru engin
áform uppi um að takmarka verð-
tryggingu lána, umfram það sem
þegar hefur verið ákveðið.
Staða heimilanna hér
og á hinum Norðurlöndunum
Skuldir heimilanna á hinum
Norðurlöndum hafa farið hrað-
minnkandi frá 1986. Hér á landi
hafa þær farið vaxandi á þessum
tíma og voru á síðasta ári 125%
af ráðstöfunartekjum eða 25% um-
fram það fé sem heimilin hafa til
ráðstöfunar. Gjaldþrot heimilanna
hafa vaxið gífurlega. Á árinu 1993
voru þau 414 - á árinu 1995 - 871
gjaldþrot. Þannig hafa gjaldþrot
heimilanna meira en tvöfaldast á 2
árum. Laun og lífskjör eru hér með
því lægsta sem þekkist og vinnutími
hvað lengstur. Auk þess þurfa ís-
lensk heimili að búa við verðtrygg-
ingu á lánaskuldbindingum sínum
sem hvergi þekkist innan landa
OECD. Því til viðbótar
eru bæði raunvextir og
nafnvextir mun hærri
hér á landi. Þannig
voru nafnvextir um
2-3% hærri á íslandi,
en hinum Norðurlönd-
um í október sl., þó
verðbólgan sé svipuð í
þessum löndum.
Ríkisstjórnin hefur
enga trú á
stöðugleikanum
Stöðugleiki, lítil
verðbólga og lengst af
jákvæður viðskipta-
jöfnuður hefur ríkt hér-
lendis á síðustu misser-
um. Jafnframt sýna mörg fyrirtæki
mikinn hagnað og greiða niður
skuldir sínar.
Þessi umskipti í efnahags- og
atvinnulífi má að langmestu leyti
þakka launafólki, en afleiðing þess
hefur bitnað á launafólki, með
auknum skuldum þeirra og litlum
launahækkunum. Allt þetta ætti nú
að skapa forsendur til að afnema
verðtryggingu á fjárskuldbinding-
um heimilanna. En allt kemur fyrir
ekki. Rökstuðningur ráðherrans í
svari við fyrirspurn minni byggist
á gamla verðbólguhugsunarhættin-
um, - sem ríkisstjórnin virðist föst
í. Hún hefur enga trú á að stöðug-
leikinn haldist til fram-
búðar.
Er ísland öðruvísi?
Það vekur líka at-
hygli í svari ráðherrans
að þó stjómvöld hafi
þegar ákveðið að
banna verðtryggingu á
sparifé landsmanna frá
1. janúar árið 2000
stendur ekki til að
banna verðtryggingu
útlána umfram það
sem þegar hefur verið
ákveðið á skammtíma-
lánum. Það mæla bæði
efnahagsleg rök og
sanngirni með því að
verðtrygging á lánum til heimilanna
verði alfarið bönnuð á næstu miss-
erum.
Við viljum ekki endurtaka leikinn
frá 1983 að kippa úr sambandi
verðtryggingu iauna en ekki lána.
Ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að
svara af hveiju ísland, sem býr við
svipað efnahagsumhverfi og þjóðir
sem við berum okkur saman við,
hafi eitt landa verðtryggingu á lán-
um til heimilanna. Og það sem verra
er. Ætli að viðhalda henni. Því verð-
ur að breyta.
Höfundur er alþingismaður.
OPID LflQGflRDflG OG SQNNQDflG KL. 13:00 -18:00
Úrval veitíngahúsa og þjónustafyrírtoikja
kynna starfsemi sína og
gcfa bita a6 smakka I
f
/
(? ,<b
. £inar Thoroddsen ■ Garö ^.O
Ara • Marion Herrera ■ ° _,as°'
Lionsklúbburinn
Víðarr
<b' A ^stunga • Marion Herrera • ^ s
0'm<ners • Ra99' Bjarna • Pórir
^ Styrktarframlag: 500 kr.
PLÓM
UNWR STK3ANUM
Kökugerð
HP
ISLENSK
M MATVÆLI
IÉl
AUGLÝSINGASTOFA
BLOMAMIÐSTOÐIN
Jóhanna
Sigurðardóttir