Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 31 Island eina landið sem verð- tryggir skuldir heimilanna RÍKISSTJÓRNIN telur að sívax- andi skuldir heimilanna séu merki um að heimilin eyði um efni fram. Ríkisstjórnin talar minna um að heimilin í landinu eru oft neydd til að taka lán til að eiga til hnífs og skeiðar frá degi til dags og fyrir gluggaumslögunum frá lánastofn- unum vegna skulda sem sífellt vefja upp á sig. Ríkisstjórnin talar heldur ekki um hvernig verndarstefnan og ofurtollar í landbúnaði, sem heimil- in eiga enga sök á, hafa aukið skuldir heimilanna. Grænmetisverð eykur skuldir heimilanna Stöðugleiki hefur ríkt í efnahags- lífinu á udanförnum árum- fyrir til- stuðlan launafólks og verðbólgan verið með því minnsta sem þekkist. Fólkið skilur því ekki hvernig höfuð- stóll skuldanna vex sífellt. Er nema von að það skilji ekki ástæðurnar, eins og þegar kartöflur hækkuðu tímabundið í sumar, þá leiddi vísital- an og verðtrygging til þess að skuld- ir heimilanna jukust um 500 milljón- ir króna. Hækkun á grænmeti á einu ári, sem mörg heimili hafa ekki efni á að kaupa vegna ofurtolla og vemd- arstefnu ríkisstjómarinnar, juku engu að síður skuldir heimilanna um 1300 milljónir króna. Verðtryggð lán ekki afnumin Undirrituð beindi fyrirspurn til viðskiptaráðherra á Alþingi um verðtryggingu lána og skuldir heim- ilanna. Þar kom margt athyglisvert fram sem kallar á viðbrögð. Alltaf tilbúnir í fjörið! Efnahagsleg rök og sanngirni mæla með því að verðtrygging á lán- um til heimilanna verði alfarið bönnuð. Jó- hanna Signrðardóttir telur að ríkisstjórnin sé föst í gamla verðbólgu- hugsunarhættinum. Meginniðurstaðan er að verð- trygging er ekki á lánum til heim- ila í löndum OECD, að íslandi und- anskildu. Notkun hennar í öðrum löndum hefur einskorðast við ríkis- skuldabréf en þó í mjög litlum mæli. Skuldir heimila í árslok verða 350 milljarðar króna og hafa aukist á þessu ári um 25 milljarða króna. 90% af lánunum eru verðtryggð, en einungis 10% óverðtryggð. Af hálfu stjórnvalda eru engin áform uppi um að takmarka verð- tryggingu lána, umfram það sem þegar hefur verið ákveðið. Staða heimilanna hér og á hinum Norðurlöndunum Skuldir heimilanna á hinum Norðurlöndum hafa farið hrað- minnkandi frá 1986. Hér á landi hafa þær farið vaxandi á þessum tíma og voru á síðasta ári 125% af ráðstöfunartekjum eða 25% um- fram það fé sem heimilin hafa til ráðstöfunar. Gjaldþrot heimilanna hafa vaxið gífurlega. Á árinu 1993 voru þau 414 - á árinu 1995 - 871 gjaldþrot. Þannig hafa gjaldþrot heimilanna meira en tvöfaldast á 2 árum. Laun og lífskjör eru hér með því lægsta sem þekkist og vinnutími hvað lengstur. Auk þess þurfa ís- lensk heimili að búa við verðtrygg- ingu á lánaskuldbindingum sínum sem hvergi þekkist innan landa OECD. Því til viðbótar eru bæði raunvextir og nafnvextir mun hærri hér á landi. Þannig voru nafnvextir um 2-3% hærri á íslandi, en hinum Norðurlönd- um í október sl., þó verðbólgan sé svipuð í þessum löndum. Ríkisstjórnin hefur enga trú á stöðugleikanum Stöðugleiki, lítil verðbólga og lengst af jákvæður viðskipta- jöfnuður hefur ríkt hér- lendis á síðustu misser- um. Jafnframt sýna mörg fyrirtæki mikinn hagnað og greiða niður skuldir sínar. Þessi umskipti í efnahags- og atvinnulífi má að langmestu leyti þakka launafólki, en afleiðing þess hefur bitnað á launafólki, með auknum skuldum þeirra og litlum launahækkunum. Allt þetta ætti nú að skapa forsendur til að afnema verðtryggingu á fjárskuldbinding- um heimilanna. En allt kemur fyrir ekki. Rökstuðningur ráðherrans í svari við fyrirspurn minni byggist á gamla verðbólguhugsunarhættin- um, - sem ríkisstjórnin virðist föst í. Hún hefur enga trú á að stöðug- leikinn haldist til fram- búðar. Er ísland öðruvísi? Það vekur líka at- hygli í svari ráðherrans að þó stjómvöld hafi þegar ákveðið að banna verðtryggingu á sparifé landsmanna frá 1. janúar árið 2000 stendur ekki til að banna verðtryggingu útlána umfram það sem þegar hefur verið ákveðið á skammtíma- lánum. Það mæla bæði efnahagsleg rök og sanngirni með því að verðtrygging á lánum til heimilanna verði alfarið bönnuð á næstu miss- erum. Við viljum ekki endurtaka leikinn frá 1983 að kippa úr sambandi verðtryggingu iauna en ekki lána. Ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að svara af hveiju ísland, sem býr við svipað efnahagsumhverfi og þjóðir sem við berum okkur saman við, hafi eitt landa verðtryggingu á lán- um til heimilanna. Og það sem verra er. Ætli að viðhalda henni. Því verð- ur að breyta. Höfundur er alþingismaður. OPID LflQGflRDflG OG SQNNQDflG KL. 13:00 -18:00 Úrval veitíngahúsa og þjónustafyrírtoikja kynna starfsemi sína og gcfa bita a6 smakka I f / (? ,<b . £inar Thoroddsen ■ Garö ^.O Ara • Marion Herrera ■ ° _,as°' Lionsklúbburinn Víðarr <b' A ^stunga • Marion Herrera • ^ s 0'm<ners • Ra99' Bjarna • Pórir ^ Styrktarframlag: 500 kr. PLÓM UNWR STK3ANUM Kökugerð HP ISLENSK M MATVÆLI IÉl AUGLÝSINGASTOFA BLOMAMIÐSTOÐIN Jóhanna Sigurðardóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.