Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 44
44 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
MINNINGAR
Allra heilagra messa
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala
Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir
messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Allra heilagra messa. Látinna
minnst. Prestur sr. Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Organisti Kjartan
Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr.
Halldór S. Gröndal. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
morgunn kl. 10. Höfundur Hall-
grímskirkju Guðjón Samúelsson.
Pétur Ármannsson arkitekt. Barna-
samkoma og messa kl. 11. Barna-
kór Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunn-
laugsdóttur. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson. Kvenfélag Hallgrímskirkju
selur léttan hádegisverð að lokinni
messu. Minningar- og þakkarguðs-
þjónusta kl. 17. Scola cantorum
syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Inga Rós Ingólfsdóttir leikur
einleik á selló. Minnst látinna. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Helga Soffía Konr-
áðsdóttir. Messa kl. 14. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveins-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Allra heilagra messa. Minnst
látinna. Prestur sr. Tómas Guð-
mundsson. Organisti Jón Stefáns-
son. Kammerkór Langholtskirkju
syngur. Tónlistarflutningur á veg-
um minningarsjóðs Guðlaugar
Bjargar Pálsdóttur. Kammerkór
Langholtskirkju ásamt Kammer-
sveit flytja kantötu Actus tragicus
eftir J.S. Bach. Fermingarbörn og
foreldrar þeirra hvött til að mæta.
Kaffisopi eftir messu. Barnastarf
kl. 13.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá sr. Gylfa Jóns-
sonar, héraðsprests. Félagar úr
Kór Laugarneskirkju syngja. Org-
anisti Gunnar Gunnarsson. Barna-
starf á sama tíma. Ólafur Jóhanns-
son.
NESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11 sameiginleg fyrir barnastarfið
í Neskirkju og Frostaskjóli. Kirkju-
bíllinn ekur um hverfið. Sr. Frank
M. Halldórsson. Guðsþónusta kl.
14. Organisti Reynir Jónasson.
Ræðumaður Egill Viggósson, guð-
fræðinemi. Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA; Messa
kl. 11. Allra heilagra messa. Prest-
ur sr. Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir. Organisti Violetta Smid. Barna-
starf á sama tima í umsjá Hildar
Sigurðardóttur, Erlu Karlsdóttur og
Benedikts Hermannssonar. Eftir
messu flytur dr. Pétur Pétursson
erindi um, hvers vegna kirkjan hef-
Fríkirkjusöfnuðurinn
íReykjavík
í dag, iaugardag,
markaðsdagur Kvenfélagsins
í Safnaðarheimilinu fró kl. 14.00.
Sunnudag barnaguðsþjónusla
kl. 11.15.
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Fimmtudag
fundur Kvenfélagsins f
í Safnaðarheimilinu ||
kl. 20.30.
Guðspjall dagsins:
Jesús predikar
um sælu.
Matt. 6.
ur hafnað spíritisma og fram verður
borinn léttur hádegisverður.
ÁRBÆJARKIRKJA: Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11, ath. breyttur
messutími. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Skráning í fyrirhugaða
kirkjuferð sunnudagaskólans þ. 10.
nóv. Organleikari Kristín G. Jóns-
dóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Allra heil-
agra messa. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Altar-
isganga. Laufey Geirlaugsdóttir
syngur stólvers. Kaffisala til styrkt-
ar orgelsjóði. Samkoma Ungs fólks
með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Organisti Sigríður Sól-
veig Einarsdóttir. Sóknarprestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón Ragn-
ars Schram. Kirkjurútan gengur
eins og venjulega. Organisti Lenka
Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón Hjart-
ar og Rúnu og kl. 12.30 í Rimaskóla
í umsjón Jóhanns og Ólafs. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sigrún Gísladóttir
framkvæmdastjóri Ellimálaráðs
prédikar. Sigurður Skagfjörð syngur
einsöng. Organisti Hörður Braga-
son. Kaffisala líknarsjóðs eftir guðs-
þjónustu. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Látinna minnst. Sr. Hjörtur
Hjartarson þjónar. Kór kirkjunnar
syngur. Barnaguðsþjónusta kl. 13
í umsjá frisar Kristjánsdóttur. Org-
anisti Oddný J. Þorsteinsdóttir. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKiRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Kópa-
vogskirkju syngur. Organisti Örn
Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: í dag, laugar-
dag, markaðsdagur Kvenfélagsins
í Safnaðarheimilinu frá kl. 14.
Sunnudag barnaguðsþjónusta kl.
11.15, guðsþjónusta kl. 14.
Fimmtudag kl. 20.30 fundur Kven-
félagsins í Safnaðarheimilinu. Org-
anisti Pavel Smid. Cecil Haralds-
son.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Hátíðarmessur kl. 8, 9 og
10 f.h. Messa kl. 14. Sunnudag:
Hámessa kl. 10.30, messa kl. 14,
messa á ensku kl. 20. Mánudaga
til föstudaga: Messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Fjöl-
skyldusamkoma á morgun kl. 17.
Hugleiðingu hefur Kristbjörg Gísla-
dóttir.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Ove
Petersen frá Noregi. Allir hjartan-
lega velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öil sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna-
þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Bænastund kl.
19.30. Hjálpræðissamkoma kl. 20.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 14.
Kirkjudagur aldraðra. Predikun sr.
Ólöf Olafsdóttir. Vorboðarnir
syngja undir stjórn Páls Helgason-
ar. Kirkjukór Lágafellssóknar. Org-
anisti Guðmundur Ómar Óskars-
son. Barnastarf í safnaðarheimilinu
kl. 11. Jón Þorsteinsson.
GARÐAKIRKJA:Messa kl. 14. Lát-
inna minnst. Séra Karl Sigurbjörns-
son prédikar. Bragi Friðriksson.
VÍDALÍNSKIRJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. 11 ára nemendur
ú Flataskóla taka þátt í athöfninni.
Skólakór Garðabæjar: Litli kor
syngur undir stjórn Aslaugar Ólafs-
dóttur. Sunnudagaskóli í Hofs-
staðakóla kl. 13. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umsjónarmenn:
Sr. Þórhallur Heimisson, Ingunn
Hildur Hauksdóttir og Bára Friðriks-
dóttir. Messa á allra heilagra messu
kl. 14. Altarisganga, látinna minnst.
Einsöngur: Erna Guðmundsdóttir.
Organisti: Natalía Chow. Prestur
sr. Þórhildur Ólafs. Tónlistar- og
bænaguðsþjónusta kl. 18. Einsöng-
ur Natalia Chow. Organisti Helgi
Pétursson. Fyrirbænir fyrir látnum.
Hugleiðingarefni: Dauðinn og eilífð-
in. Sr. Þórhallur Heimsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14 í umsjá Sigríðar Valdimarsdótt-
ur, djákna. Hreiðar Stefánsson,
æskulýðsfulltrúi, leiðir söng. Tón-
list: Aðalheiður Þorsteinsdóttir og
Örn Arnarson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli fer fram í Ytri-
Njarðvíkurkirkju. Börn sótt að safn-
aðarheimilinu kl. 10.45.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Kirkjukórinn syngur
undir stjórn Steinars Guðmunds-
sonar organista. Sunnudagaskóli
kl. 11.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Kirkjudagur
eidri borgara: Sunnudagaskóli kl.
11. Munið skólabílinn. Guðsþjón-
usta kl. 14. Látinna minnst. Eldri
borgarar lesa lestra dagsins. Prest-
ur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Guð-
mundur Ólafsson syngur einsöng.
Organisti og stjórnandi: Einar Örn
Einarsson. Kaffiveitingar í Kirkju-
lundi eftir messu í boði sóknar-
nefndar. Bílferðir verða frá Hvammi
og Hlévangi hálftíma á undan guðs-
þjónustu og eftir kaffið í Kirkjulundi.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Minning látinna. Jón Ragnars-
son.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Ath. að áður
boðuð messa kl. 14 verður að
þessu sinni kl. 11.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Úlfar Guðmunds-
son.
ODDAKIRKJA, Rangárvöllum:
Messa kl. 14. Sunnudagaskóli í
húsakynnum grunnskólans á Hellu
kl. 11. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason héraðsprestur þjónar.
Barnasamvera meðan á prédikun
stendur. Messukaffi. Poppmessa
kl. 20.30. Hljómsveitin prelátar leið-
ir safnaðarsöng í léttri sveiflu. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Eftir
messu er boðið til altaris og fyrir-
bæna í kirkjunni. Kaffi á eftir í safn-
aðarheimili.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Vigfús Ingvar
Ingvarsson.
HOLTSPRESTAKALL, Önundar-
firði: Barnaguðsþjónusta í Flateyr-
arkirkju kl. 11.15. Bænir og söngv-
ar. Guðspjallið í myndum. Börnin
lita og læra. Afmælisbörn fá glaðn-
ing. Gunnar Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta í dag, laugardag, kl. 11. TTT-
samvera sama dag í safnaðarheimil-
inu kl. 13. Stjórnandi Sigurður Grét-
ar Sigurðsson. Hátíðarguðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Kirkjudagurinn.
Kaffiveitingar safnaðarheimilinu eftir
messu. Björn Jónsson.
+ Guðrún Ágústa
Ágústsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 2.
nóvember 1909.
Hún lést á sjúkra-
húsi Vestmanna-
eyja 23. október
síðastliðinn. Guð-
rún var dóttir hjón-
anna Ágústs Bene-
diktssonar sem
fæddur var í Mar-
teinstungu og Guð-
rúnar Hafliðadótt-
ur frá Fjósum í
Mýrdal. Systkini
hennar voru Sigríður, Jóhanna
og Jóhann Óskar og er hann
einn eftirlifandi af þeim systk-
inum. Hinn 4. júní 1933 giftist
Lóa Willum Jörgen Andersen,
f. 30. sept. 1910, d. 17. júlí
1988. Þau eignuðust fimm
börn. Þau eru: 1) Guðrún And-
ersen, hennar börn eru Ágúst
Heiðar, Hrafnhildur, Aðalheið-
ur Lóa, Guðrún Vilborg og
Elsku mamma. Ég þakka þér
fyrir allt. Ég þakka þér fyrir að
hafa verið til. Ég þakka þér fyrir
að hafa komið mér á fætur. Ég
þakka þér fyrir að hafa komið mér
í skóla. Ég þakka þér fyrir að hafa
komið mér út í lífið. Ég þakka þér
fyrir að hjálpa mér að mannast.
Ég þakka þér fyrir hjálpina með
börnin mín. Ég þakka þér fyrir
stuðning í sorg. Ég þakka þér fyr-
ir hjálp í neyð. Ég þakka þér fyrir
hjálp í veikindum. Ég þakka þér
fyrir skilning og gæði.
Ég óska þér góðrar ferðar heim
í blómagarðinn sem ég trúi að bíði
þín. Þú hlýtur að spila þar á nýtt
orgel og nýjan, mjúkan, lítinn Levi-
gítar. Takk fyrir mig.
Þín
Jóhanna.
Elsku mamma. Þú elskaðir af-
komendur þína skilyrðislaust og
fórnaðir okkur næstum öllum tíma
þínum. Þú krafðist einskis í stað-
inn. Þú hafðir einfalda, bjarta og
dásamlega lífsskoðun, vildir öllum
vel, elskaðir börn, blóm og tónlist.
Við höfum næstum því alltaf
búið saman svo að í líf mitt er nú
komið tóm sem aldrei verður fyllt.
En þú bjóst yfir miklum aðlögunar-
hæfileikum sem ég get vonandi
lært að tileinka mér.
Ég veit það birti á himnum þeg-
ar þú komst þangað.
Guð geymi þig.
Halla.
Tengdamóðir mín, Guðrún Ág-
ústa Ágústsdóttir, eða Lóa frá
Kiðjabergi eins og hún var nefnd
í daglegu tali, er látin. Mig langar
að minnast hennar með fáeinum
orðum. Leiðir okkar lágu fyrst sam-
an fyrir einum 36 árum er ég ung-
ur maður kynntist dóttur hennar
Ágústu Þyrí. Efst í huga mínum
þegar ég lít yfir farinn veg, er hve
gott það var fyrir ungan mann að
koma inn á heimili þeirra hjóna Lóu
og Willums. Heimilið á Heiðarvegi
55 var miðstöð fjölskyldunnar, þar
var ævinlega glatt á hjalla og var
Lóa miðpunktur gleðinnar sem ríkti
þar. Var vel passað uppá að enginn
væri svangur og að allir fengju
eitthvað í gogginn sinn.
Lóa sat oft við orgelið og spilaði
af hjartans lyst svo allir viðstaddir
hrifust með. Lög Oddgeirs Krist-
jánssonar voru henni hugleikin og
oftar en ekki fékk hún alla við-
stadda til að taka lagið. Lóa var
mikil mannkostamanneskja og var
fjölskyldan henni allt. Hún tengdi
fólkið sitt vel saman og léttleiki
og hlýja voru aðalsmerki hennar.
Það má segja um Lóu að hún rækt-
aði garðinn sinn vel, blómaræktin
Lilja. 2) Jóhanna
Andersen, hún
eignaðist 4 börn,
synina Helga Þór
og Halldór Jörgen,
en 2 dætur missti
hún, Guðrúnu Ág-
ústu í bílslysi og
aðra stúlku í fæð-
ingu. 3) Ágústa
Þyrí Andersen, gift
Þór Guðmundssyni
og eiga þau 3 syni,
Willum Þór, Örn og
Val. 4) Willum Pét-
ur Andersen,
kvæntur Sigríði
Ingólfsdóttur. Þeirra börn eru
Þórunn, Inga Hanna, Willum
og Pétur. 5) Halla Júlía And-
ersen, gift Baldvin Kristjáns-
syni, en þeirra börn eru Erla,
Lóa og Arnar. Barnabarna-
börnin eru 26 og barnabarna-
barnabörnin 3.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Landakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
var henni mikils virði og nutu
margir góðs af því. Ég undirritaður
lærði margt af tengdamóður minni
í þeim efnum, sem hefur fært mér
ómælda gleði hin síðari ár og marg-
ir eru afleggjararnir sem fluttir
voru úr garðinum af Heiðarvegin-
um í Kópavoginn. Lóa var víðlesin
og var gaman að skiptast á skoðun-
um við hana um málefni líðandi
stundar.
Að endingu vil ég koma kæru
þakklæti til Höllu og fjölskyldu
hennar fyrir umhyggju fyrir for-
eldrum þeirra systkina síðustu árin.
Veit ég að ég mæli fyrir munn
þeirra allra. Einnig veit ég að Jó-
hanna hefur verið móður sinni mik-
il stoð síðustu árin, og hafi hún
þökk fyrir.
Ekki get ég minnst tengdamóður
minnar nema minnast tengdaföður
míns, Willums, sem lést eftir erfið
veikindi. Það var gott að leita til
þeirra, traust og virðing var þeirra
leiðarljós. Ég vil að lokum biðja
hinn hæsta höfuðsmið himins og
jarðar að varðveita minningu
þeirra.
Rétt eins og velheppnaður dapr
endar í notalegum svefni,
deyja þeir hamingjusamir
sem hafa varið lífí sínu vel.
Þór Guðmundsson.
í dag fer fram frá Landakirkju
í Vestmannaeyjum útför föðursyst-
ur okkar, Guðrúnar Ágústu Ág-
ústsdóttur (Lóu) frá Kiðjabergi.
Lóa frænka hefði orðið 87 ára í
dag. Það er hár aldur en samt var
hún ekkert gömul. Hún var jafnung
og þegar við munum fyrst eftir
henni. Þó hárið hafi gránað, fæt-
umir stirðnað og stafur hafi verið
við hliðina á stólnum hennar var
það breyting sem við tókum lítið
eftir. Góða skapið, fallega brosið
hennar, dillandi hláturinn, söngur-
inn, orgelspilið, frásagnir, spjall um
ættfræði og sterka kaffið, ekkert
af þessu breyttist. Við eigum marg-
ar góðar minningar frá Kiðjabergi
þar sem afi okkar bjó ásamt Lóu,
Willum og börnum. Seinna fluttu
þau á Heiðarveg 55 og þar eignað-
ist Lóa stóran garð sem hún rækt-
aði af mikilli alúð og rósirnar henn-
ar eru til í mörgum húsagörðum í
Eyjum.
Lóa var mjög músíkölsk, söng
vel og spilaði á orgelið sitt sem hún
eignaðist þegar hún var 9 ára.
Þegar við komum í heimsókn sett-
ist Lóa við orgelið og spilaði og
urðu þá allir að syngja með. Það
voru lögin hans Geira (Oddgeirs
Kristjánssonar) sem vom í háveg-
um höfð en Lóa taldi víst að allir
kynnu þessi fallegu lög sem hún
hélt svo mikið uppá. Mörg undan-
GUÐRÚN ÁGÚSTA
ÁGÚSTSDÓTTIR