Morgunblaðið - 02.11.1996, Síða 52
>2 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ferdinand
Emelía? er þetta virkilega þú? Auðvitað man ég ... Paraballið? Ertu að biðja mig um að koma á para-
frá dansskólanum ... Hvemig gæti ég gleymt því? ballið?
Þetta er sennilega rangt númer ... legðu bara Þetta hlýtur að verða rangt númer... legðu
á... bara á ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Tónlistarguðs-
þjónustur í Hafnar-
fjarðarkirkju
Frá Þórhalli Heimissyni:
ALLT frá fornu fari hafa menn
tilbeðið Guð sinn með tónlist og
söng. Söngurinn er undirstaða
Davíðssálma sem við þekkjum úr
Gamla testamentinu, en þeir voru
sungnir og leiknir í musterinu í
Jerúsalem til forna. í kirkjunni
hefur söngur og tónlist verið
mótandi afl í helgihaldinu frá
fyrstu tíð og er svo enn í mörgum
kirkjudeildum. Segja má að okkar
kirkjudeild, hin lúterska, hafi
valið að leggja höfuðáherslu á
annað svið tilbeiðslunnar, þ.e. hið
talaða orð, textalestur og fræði-
lega útleggingu. Því miður hefur
ofuráherslan á hið talaða orð oft
orðið til þess að gera hlut söngs
og tónlistar heldur lítinn. Á okkar
tímum hefur orðið mikill tónlist-
arleg vakning víða um lönd innan
kirkjunnar. Menn hafa í auknum
mæli skynjað að tónlistin er
sterkur farvegur trúarinnar, að
hin orðlausa upplifun lifandi tóna
getur tengt sál mannsins Guði
jafnvel, ef ekki betur, en hið tal-
aða orð eitt sér.
í Svíþjóð og Finnlandi hafa
systurkirkjur hinnar íslensku
þjóðkirkju þróað tilbeiðsluform
sem notað er samhliða hinu hefð-
bundna messuformi, einmitt til
þess að koma til móts við þessa
endurnýjun tónlistarinnar í helgi-
haldinu. Er hér um að ræða guðs-
þjónustur sem kallaðar eru „Tón-
listarguðsþjónustur". í þeim er
lögð höfuðáhersla á söng, bænir
og tónlist, en einfaldur textalest-
ur og stutt hugleiðing tengir sam-
an bænir og tóna. Einnig fær
þögnin að njota sín, því hluti af
guðsþjónustunni fer fram í al-
gerri þögn og þá gefst tóm til
djúprar persónulegrar íhugunar
og hugleiðslu.
I Hafnarfjarðarkirkju eru á
þessum vetri haldnar slíkar tón-
listarguðsþjónustur annan hvern
sunnudag að sænskri fyrirmynd.
Sá er þetta skrifar og hefur heim-
fært þetta guðsþjónustuform upp
á íslenskar aðstæður, hefur starf-
Haf narfjar ðarkirkj a
að sem prestur í sænsku kirkj-
unni undanfarin ár, en þar eru
tónlistarguðsþjónusturnar orðnar
fastar í sessi og haldnar hvern
helgan dag.
Ymsir tónlistarmenn koma að
þessum guðsþjónustum í Hafnar-
fjarðarkirkju. En sérstaklega má
nefna börn og unglinga úr Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar sem
tekið hafa þátt með tónlistar-
flutningi, og munu gera svo
áfram í vetur.
Tónlistarguðsþjónusta er
vissulega einnig kirkjupólitísk.
Margir innan íslensku þjóðkirkj-
unnar hafa á undanförnum miss-
erum kosið að gera lítið úr tónlist-
inni í guðsþjónustunni en hampa
í staðinn hinni fræðilegu útlegg-
ingu. Við, sem að tónlistarguðs-
þjónustunum stöndum, gerum
þvert á móti. Við teljum að verði
að fara saman í kirkjunni orð og
tónlist og hitt má ekki heldur
gleymast, íhugunin og hugleiðsl-
an. Þvi aðeins ef allir liðir helgi-
haldsins fá að njóta sín öðlumst
við samhljóm með Guði í kirkj-
unni. Og ekki veitir nú af!
Næsta tónlistarguðsþjónusta er
sunnudaginn 3. nóvember, á Allra
heilagra messu kl. 18.00
SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON,
aðstoðarprestur
í Hafnarfjarðarkirkju.
Hvað skal segja? 54
Væri rétt að segja: í Laxá veiddust tuttugu laxar miðað við sjö-
tíu laxa úr Svartá.
Svar: Hér er ekki um neina viðmiðun að ræða. Rétt væri: í
Laxá veiddust tuttugu laxar en sjötíu í Svartá. E.t.v. væri rétt-
mætt að segja: Tuttugu laxar úr Laxá var lítil veiði miðað við
sjötíu laxa úr Svartá.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.