Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 54

Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 54
54 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ t Morgunblaðið/Silli SIGURVEGARARNIR Óli Kristinsson og Guðmundur Hákonarson spila gegn Þóru Sigurmundsdóttur og Magnúsi Andréssyni. BRIPS U m s j 5 n Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Húsavíkur Lokið er hausttvímenningi Bridsfélags Húsavíkur og urðu úr- slit þessi: Óli Kristinsson - Guðmundur Hákonarson 616 Friðgeir Guðmundsson - Gaukur Hjartarson 553 Sveinn Aðalgeirsson - Björgvin R. Leifsson 539 Þóra Sigurmundsdóttir - Magnús Andrésson 522 Bergþóra Bjamadóttir - Jón Sigurðsson 508 Næst verður spiluð fjögurra kvölda hraðsveitakeppni. Silli Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 28. október byijaði 4 kvölda A. Hansen barómeter tví- menningur félagsins. 24 pör taka þátt í mótinu og 1. kvöldið voru spilaðar 5 umferðir. Staða efstu para: Jón Hjaltason — Gylfi Baldursson +92 Friðþj. Einarss. - Guðbr. Sigurbrandss. +67 Jón Pálmason - Ragnar Hjálmarsson +55 ÁmiÞorvaldsson-SævarMapússon +44 Guðlaupr Ellertsson - Björn Amarsson +38 Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson +37 A. Hansen mótinu verður framhald- ið næstu 3 mánudaga og síðan tek- ur við aðalsveitakeppni félagsins. Bridsfélag SÁÁ Þriðjudaginn 29. október var spil- aður eins kvölds tölvureiknaður Mitchell-tvímenningur með for- gefnum spilum. 17 pör spiluðu 9 umferðir með 3 spilum á milii para. Meðalskor var 216 og efstu pör voru: N/S-riðill Yngvi Sighvatsson - Orri Gíslason 247 Sturla Snæbjörnsson - Cecil Haraldsson 247 ÞórhallurTryggvas. - Leifur Aðalsteinss. 246 A/V-riðill Guðlaupr Sveinss. - Lárus Hermannss. 282 RaparT.Jónsson-TryggviIngason 235 Unnsteinn Jónsson - Filipus Þórhallsson 221 Bridsfélag SÁÁ spilar öll þriðju- dagskvöld í nýjum salarkynnum að Ármúla 40, 2. hæð. Spilaðir eru eins kvölds tölvureiknaðir Mitchell- tvímenningar með forgefnum spil- um. Spilamennska byrjar kl. 19.30 og eru allir spilarar velkomnir. Stórmót Munins og Samvinnuferða/Landsýnar Stórmót Munins og Samvinnu- ferða/Landsýnar verður haldið laugardaginn 16. nóvember og hefst kl. 11. Spilastaður er Brids- heimilið Máni við Sandgerðisveg. Spilaður verður tvímenningur eftir monradkerfi. Keppnisgjald 6.000 pr. par. Keppnisstjóri Sveinn Rúnar Þorvaldsson. Heildarverðlaun 180 þús. Frítt kaffi auk léttra veitinga meðan á verðlaunaafhendingu stendur. Takmarkaður parafjöldi. Skráning í BSÍ: Magnús, 423 7759, Vignir, 423 7464, Garðar, 421 3632, Karl E„ 423 7595, Sig- uijón, 423 7771, Eyþór, 423 7788. ÍDAG SKÁK llmsjón Margcir Pétursson STAÐAN kom upp í sögulegri viðureign Bandaríkjamanna og Is- lendinga á Ólympíumótinu í Jerevan. Nick deFirm- ian (2.575) hafði hvítt og átti leik, en Hannes Hlífar Stefánsson (2.560) var með svart. DeFirmian lék 27. Rd5?? Og eftir 27. - fxe4 er málið ekki lengur ein- falt, því svartur hótar máti í borðinu. Framhaldið varð 28. Df6+ - Dxf6 29. Rxf6 - Bf5 30. Rxe8 - Hxe8 og skák- inni lauk um síð- ir með jafntefli. í staðinn gat hvítur leikið: 27. Bxe5+!! - Hxe5 28. Dd8+ - He8 29. Dd4+ og svart- ur getur aðeins frestað mátinu í tvo leiki með því að fórna þungu mönnunum. Það skyldi þó enginn draga þá álykt- un að Íslendingar hafi ver- ið heppnir í þessari viður- eign. Allar hinar skákirnar þijár töpuðust úr vænleg- um töflum. Bandaríska sveitin fylgdi þessum stóra sigri eftir með því að hreppa bronsverðlaun á mótinu. a b c d • ( 9 h HVÍTUR leikur og mátar í fimm HÖGNIHREKKVÍSI VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Þingmenn hafa um þarfara að hugsa GUÐMUNDA Jónsdótt- ir, Elliheimilinu Grund, hringdi og sagði að þing- menn ættu ekki að rífast út af þjóðsöngnum eða of miklum hraða. Þeir eiga að hugsa um gamla fólkið en Guðmunda seg- ist vera tví- eða þrískött- uð, Léleg póstþjónusta ÉG VONA að Póstur og sími í Reykjavík velji bréfbera sem kunna að lesa. Um síðustu jól fékk ég bréf sent til baka. Nafn og heimilisfang viðtakanda voru skrifuð fullkomlega. Bréfin mín eru alltaf send tímanlega. Með kveðju til pósthússins í Reykjavík í von um að þeir læri af mistökunum. Anna María Aradóttir, Laxárnesi í Aðaldal. Of mikill hraði SIGRÚN Magnúsdóttir hringdi og átti ekki til orð yfir frumvarpi á þingi um að auka lögleyfðan hraða. Hún telur þetta óðs manns æði og vill þjóðaratkvæðagreiðslu um málið og að fólk greiði atkvæði á móti þessu frumvarpi. Tapað/fundið Barnagleraugu töpuðust PÍNULÍTIL stelpugler- augu, gyllt með bleikum yijum, töpuðust í Holts- búð eða Ásbúð sl. fimmtudag. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 565-1779. Armband tapaðist BREITT gullarmband tapaðist nýlega. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 568-5293. Fundarlaun. Hringur tapaðist STÓR karlmannsgull- hringur með bláum steini tapaðist á leiðinni frá Hafnarhúsinu að Lækjartorgi sl. mánu- dag. Finnandi er beðinn að hringja í síma 567-5978. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót o.fl. lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afmælistilkynningum og eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329 sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. TOPPTILBOÐ RUSKINNSOKKLASKOR LANGUR LAUGARDAGUR OPIÐ FRA KL. 10-16 Póstsendum samdægurs joppskórinn Austurstræti 20, sími 552 2727 Teg: Yellow Stone Stærðir: 36-42 ■ ■ * 1 1 O C Litir: Brúnir og svartir YCfO I • I # Jf Ath. Mikið úrval af góðum skóm ó tiiboði - kjarni málsins! Víkverji skrifar... NÚ ER vetur genginn í garð og bílar manna stundum alhrím- aðir á morgnana. Það kemur Vík- veija alltaf jafnmikið á óvart að sjá ökumenn, sem hafa rétt haft fyrir því að skafa örlítið gat á klaka- brynjuna yfir framrúðunni og sjá líkast til fram á veginn, en hvorki til hliðanna né í baksýnis- og hliðar- speglana. Þessir ökumenn skipta svo um akreinar eins og herforingjar og demba sér þá gjarnan í veg fyrir næsta bíl. Það hlýtur að vera þess virði að eyða fimm mínútum í við- bót á morgnana í að gera bílinn ökufæran, 5 stað þess að stofna lífi samborgaranna í hættu með svona trassaskap. XXX VÍKVERJA berst mikið af bréf- um þessa dagana og hér verð- ur gripið niður í tvö. Annars vegar skrifar Árni Ingvarsson vegna hug- leiðinga Víkveija um steypuvið- gerðir á gömlum húsum. Árni bend- ir á að nota megi efnið Rainseal á útveggi steinhúsa. Efnið hafi fyrst verið reynt á dálitlum bletti undir glugga á blokk í Fossvogi 1980. Tólf árum síðar hafi allt húsið verið sprungið nema þessi hluti þess. „Ef Rainseal-efnið hefði verið sett á alla blokkina 1980 og það hefði reynzt svona vel eins og undir glugganum, þar sem tilraunin var gerð, hefði hver íbúðareigandi spar- að sér 140.000 krónur á 12 árum,“ segir Árni. Lætur Víkveiji nú lokið umijöllun um steypuskemmdir í bili. xxx HITT bréfið er frá öðrum Árna, Brynjólfssyni. Hann er ekki sammála þeirri ábendingu frá for- ystumanni um öryggismál sjó- manna sem Víkveiji birti í fyrra- dag. Sá hafði áhyggjur af því að börn, sem lékju sér við bryggjur landsins, notuðu ekki björgunar- vesti. Árni skrifar: „Hæfilegur viðbún- aður til að varast hættur er af því góða, en ofvernd getur valdið því að fullorðnir og börn hætta að taka mark á slysavörnum. Mér er sem ég sjái böm í sjávarþorpum landsins spranga dagiangt í björgunarvesti með hjálm á höfði eða að þau færu ekki fram á bryggju eða út í bát nema að sækja fyrst heim viðeig- andi öryggisbúnað. Þetta er tómt mál að tala um og er aðeins til þess að auka á öryggisleysi for- eldra, einkum mæðra, og veldur e.t.v. ástæðulausri sektarkennd. Það er varasamt að hrópa í sífellu úlfur, úlfur! Önnur hlið á þessu máli eru við- horf seljenda hvers konar öryggis- búnaðar og tækja, þau er auðvelt að skilja, ekki sízt ef þetta fer sam- an. Þegar ég kom út í nepjuna í morgun fannst mér „æpandi“ að sjá fólk illa búið, án yfirhafnar, ekki með trefil um hálsinn, húfu á höfði og í kuldaskóm. Það gæti verið lausn á vanda heilbrigðisþjón- ustunnar að lögleiða þessa hluti við frostmark og enn öruggara væri að í hálku færi enginn út án mann- brodda og með hjálm á höfði. Ekki veldur sá er varar!“ xxx VÍKVERJA finnst að margt sé til í ábendingu Árna. En þótt ekki eigi að lögleiða allan möguleg- an öryggisbúnað, hlýtur fólk að grípa til þeirra tækja, sem eru til og hafa þróazt hröðum skrefum undanfarna áratugi, til að afstýra slysum. Og hvers konar bábilja er það að tal um öryggisbúnað auki öryggisleysi einkum hjá mæðrmrP. Er feðrum ekki jafnannt um börnin sín og mæðrunum? xxx VÍKVERJI hafði orð á því sl. þriðjudag, hvort ekki væri hægt að hafa meiri starfsemi í fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum á góð- viðrisdögum að vetri til og sagði frá 3ja ára pilti, sem ætlaði að leika golf en koma að læstum dyrum. Nú hefur Víkveija borizt svohljóð- andi bréf frá forstöðumanni garðs- ins: _ „Ágæti Víkveiji. Þökkum ábend- inguna í Víkveija 29.10.96. Við tökum þig strax á orðinu og aukum dagskrá í garðinum um helgar í vetur. Tómas Guðjónsson, forstöðu- maður.“ Þetta eru snögg og jákvæð við- brögð og verða áreiðanlega til þess að auka aðsókn að fjölskyldu- og húsdýragarðinum í vetur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.