Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 1

Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 1
88 SIÐUR B/C 255. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/RAX SKEIÐARÁRSANDUR var i OFT TRITP A FTT TP TTT A T TPQTM^ fram á sandinn, er skoðaður. gær þakinn ísjökum, stórum og wl U IVlvIvilI -L U IV lli-^rALJX OllN O Við jakann er Árni Snorrason, smáum, sem ofurkraftur hlaup- úr jaðri Skeiðarárjökuls og fram. Smæð mannsins frammi augljós þegar þessi tíu metra forstöðumaður vatnamælinga- vatnsins úr Grímsvötnum reif dreifði niður allan sand og í sjó fyrir náttúruöflunum verður breiði jaki, sem hlaupið þeytti sviðs Orkustofnunar. Lykilmenn hverfa úr stjórn Clintons Washington. Reuter. Bhutto leitar til dómstóla Islamabad. Reuter. BENAZIR Bhutto, sem forseti Pak- istans vék úr embætti forsætisráð- herra á þriðjudagsmorgun, sagði á blaðamannafundi í gær að hún myndi leita til æðstu dómstóla landsins til að fá ákvörðuninni hnekkt. Þingið var leyst upp og bráðabirgðastjórn tók við völdum í landinu á þriðjudag. Þingkosningar eru boðaðar í febrúar. Bhutto sakaði á fundinum Farooq Leghari forseta, er talinn var dygg- ur pólitískur samheiji hennar, um að svíkja „heilagt loforð" sem hann hefði gefið sér um að setja aldrei löglega kjörna ríkisstjórn af. Hann hefði auk þess látið ræna eigin- manni hennar, Asif Ali Zardari, sem að sögn nýju valdhafanna er í varð- haldi „undir vernd“ stjórnvalda. Bhutto krafðist þess að fá leyfi til að hitta eiginmann sinn. „Lygar, lygar og aftur lygar,“ sagði Bhutto um ásakanir á hendur henni um að hún hefði leyft liðs- Rcuter STUÐNINGSMENN Benazir Bhutto brenna brúðumynd af Farooq Leghari forseta í Isl- amabad í gær. mönnum öryggislögreglu að myrða fólk að vild, látið spillingu óátalda, grafið undan dómstólunum og hygl- að vinum og ættingjum. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði að brottvikning Bhutto virtist vera í samræmi við stjórnarskrá Pakistans. Fulltrúar erlendra ríkja forðast að skipta sér af deilunum og segja að um innanríkismál Pak- istana sé að ræða. BILL Clinton Bandarikjaforseti sneri í gær sigri hrósandi aftur til Hvíta hússins frá heimili sínu í Arkansas-ríki en fregnir um að lyk- ilmenn í ríkisstjórn hans og nánustu samverkamenn væru á förum urðu þó til þess að beina athyglinni frá kosningasigri hans. Frá því var skýrt, að Warren Christopher utanríkisráðherra, William Perry varnarmálaráðherra og Mickey Kantor viðskiptaráð- herra, hefðu allir ákveðið að draga sig í hlé. Ennfremur var gefið til kynna, að Hazel O’Leary orkuráð- herra væri á förum. Hugsanlega einnig Janet Reno dómsmálaráð- herra. Þá hefur Leon Panetta, skrif- stofustjóri Hvíta hússins, sagst ætla að draga sig í hlé. Venja er, að breytingar eigi sér stað í ríkisstjórn við endurkjör for- seta Bandaríkjanna. Clinton reyndi að gera lítið úr hugsanlegum breyt- Þarf áfram að semja við re- públikana á þingi ingum í gær og sagði það skilning sinn, að hvorki Perry né Kantor hefðu afráðið hvað þeir gerðu. Embættismenn í ráðuneytum þeirra sögðu hið gagnstæða. Aðstoðar- menn forsetans eru sagðir vera að velja nýja menn til ráðherrastarfa og Clinton sagðist myndu fjalla um breytingarnar á blaðamannafundi eftir nokkra daga. Fregnin um brottför helstu sam- verkamanna Clintons undirstrikar þær mikilvægu ákvarðanir sem bíða hans á næstu dögum og vikum. Sú von hans að demókratar endur- heimtu meirihluta í þinginu brást. Bíður hans því það hlutskipti að þurfa að semja við repúblikana til að koma málum í gegnum þingið. Juku þeir meirihluta sinn í öldunga- deildinni. Tryggir órofa samhengi Clinton sagði, að ef áfram ríkti sá góði andi í samskiptum þings og Hvíta hússins sem var við lýði sex síðustu vikur síðasta þings, væri hægt að vinna stórvirki í þágu þjóðarinnar. Ríkisfjármálin verða fyrsta viðfangsefni hans, næst koma atvinnu- og menntamál og tilraunir til að draga úr glæpum. Leiðtogar víða um heim fögnuðu endurkjöri Clintons, sögðu það tryggja reynslu og órofið samhengi í því mikilvæga hlutverki sem Bandaríkjamenn gegndu á alþjóða- vettvangi. ■ Kosningarnar í Bandaríkjun- um/22, 23 og 24.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.