Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KÆRU sægreifabræður, þetta er hann, Moggakomminn ógurlegi, sem ógnar veldi okkar. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar brýtur stjórnsýslulög Synjun vínveitinga- leyfis gerð ógild FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur úrskurðað að bæjarstjóm Hafnarfjarðar hafi ekki gætt jafn- ræðisreglu 11 gr. stjórnsýslulaga við afgreiðslu á umsókn Þorvaldar Ásgeirssonar um vínveitingaleyfi til bráðabirgða í sex mánuði fyrir veit- ingahúsið Strandgötu 30. Af- greiðsla bæjarstjórnar frá 16. apríl sl. hefur því verið gerð ógild og henni gert að taka málið upp að nýju. I niðurstöðu ráðuneytis kemur m.a. fram að sú mismunun sem varð á afgreiðslu umsóknar Þor- valdar og flestra annarra umsókna um vínveitingaleyfi á sama svæði hafí ekki verið byggð á frambærileg- um og lögmætum sjónarmiðum. Sérstaklega var talið styðja nið- urstöðu ráðuneytisins að samkvæmt áfengislögum er heimilt að binda vínveitingaleyfi margvíslegum skil- yrðum, m.a. gefa þau út tímabundið til reynslu eða afturkalla það ef skil- yrði hafa verið brotin. Vínveitingaleyfi hafnað án rökstuðnings Félagsmálaráðherra, Páli Péturs- syni, barst í júlí sl. stjómsýslukæra frá Hrafnkeli Ásgeirssyni hæstarétt- arlögmanni fyrir hönd Þorvaldar Ásgeirssonar, Viðars Halldórssonar, Lilju Matthíasdóttur vegna sam- þykktar bæjarstjómar Hafnaríjarð- ar um synjun vínveitingaleyfis til handa Þorvaldi Ásgeirssyni. Lögmaður kærenda hélt því fram að umsókninni hafa verið hafnað án rökstuðnings og án þess að tilteknir bæjarfulltrúar hafí gert grein fyrir atkvæðum sínum. Húseignina á Strandgötu 30 höfðu þremenning- arnir keypt af Miðbæ Hafnarfjarðar hf. og töldu að leyfí yrðu auðfengin þar sem áður var þar rekinn skemmtistaður með vínveitingaleyfí. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir ÞÓRDÍS Eva Þórhallsdóttir og vinkona hennar Lára Guðmunds- dóttir með húsamýs í hamstrabúri. Músafar- aldur og allt eitur uppurið Egilsstöðum. Morgunblaðið. ÁGANGUR músa er mikill á Egilsstöðum. Eru það eingöngu húsamýs sem heija á híbýli manna. Að sögn meindýraeyðis á Egilsstöðum, Þórhalls Borgars- sonar, er óvenjumikið um mýs núna og hefur verið alveg síðan í ágúst. Allt eitur er upp urið í herbúðum hans og ekki von á því fyrr en í næstu viku. Þórhallur segir mýsnar það ágengar að ef dyr standa opnar fari þær inn. Hann segir nærveru katta ágæta lausn á músaplág- unni. Heyrst hefur að töluvert hafi sést af uglu hér á Héraði og talið er að það geti haldist í hendur við músaáganginn þar sem uglum þykja mýs hinn vænsti matur. Húsamýs í búri Þórdís Þórhallsdóttir á Egils- stöðum elur tvær húsamýs í hamstrabúrinu sínu. Hún segist ekki ætla að fá sér hamstur held- ur ætlar hún að reyna að verða sér úti um fleiri mýs. Aðra músina veiddi pabbi hennar en hina fékk hún hjá kunningja sem frétti af búrinu og fyrri músinni. Greinasafn um konur og kristni Brautry ðj enda- starf sem opnar marga glugga Inga Huld Hákonardóttir INGA Huld Hákonar- dóttir rithöfundur er ritstjóri bókarinnar Konur og Kristmenn, þættir úr kristnisögu ís- lands, en bókin er unnin upp úr erindum sem flutt voru á ráðstefnu sem hald- in var á síðasta ári um sama málefni. Höfundar efnis í bókinni eru níu og fjalla þeir um rannsóknir sínar á hlut kvenna í kristni, allt frá gerð kirkju- klæða og kvenkyns dýrl- ingum fyrr á öldum til prestkvenna og kvenna í sértrúarsöfnuðum á síðari tímum. „Ég er komin á kaf í vinnu um konur og kristni almennt. Þetta byrjaði fyr- ir tveim árum þegar ég var ráðin ráðgjafí við ljögurra binda rit, sem Alþingi er að láta gera um sögu kristni á íslandi í tilefni af 1000 ára af- mæli kristnitökunnar árið 2000, um hlut kvenna í sögunni, og skrifa sjö blaðsíður í hvert bindi. Verkefnið hefur síðan undið mikið upp á sig. Nú er ég búin að sanka að mér efni sem dugar í sjálf- stætt verk sem ég vona að eigi eftir að koma einnverntíma út. - Hver er niðurstaðan af bók- inni í heild? „Það má segja að hún opni augu lesenda fyrir því hve mikið er órannsakað um efnið. Bókin opnar marga glugga inn í aldirnar og ýtir undir frekari rannsókn- arstarf. Þetta er því að miklu leyti brautryðjendastarf. “ - Attirðu von á því að finna miklar heimildir um efnið? „Nei, í rauninni ekki. Ég hélt að það væri lítið um málið að segja og að ekkert efni væri til. Ég fékk styrk frá Alþingi til að halda ráðstefnu um þessi mál og fékk á hana fólk, sem ég vissi að var að grúska í sögunni, í þeirri von að það hefði kannski rekist á eitthvert smáræði. Erindin urðu bæði fróðleg, skemmtileg og fjöl- breytt og bókin varð til í kjölfar- ið.“ - Heldur þú að bókin höfði til almennings? „Ég vona það. Mér fínnst konur hafa sýnt bókinni mikinn áhuga en viðbrögð eru J)ó lítið farin að skila sér ennþá. Ég vona að bókin nýtist bæði framhaldskólanemum sem kennsluefni og þeim fjölda kvenna sem styður kirkjuna á einn eða annan hátt og þeim konum sem eru að velta fyrir sér stöðu sinni innan kirkjunn- ar.“ - Hafðir þú eitt- hvað skrifað um konur áður en þú byijaðir á þessu verk- efni? „Ég hef skrifað fjórar bækur, tvær um verkakonur, eina viðtals- bók við leikkonuna Guðrúnu Ás- mundsdóttur, sem snerist mikið um trúmál, og eina um konur sem var drekkt fyrir barneignir og ástarmál. Nú er ég komin að drottins borði, inn á vettvang kirkjunnar. Fyrsta bókin kom út árið 1981 en á því tímabili fóru bækur um sögu kvenna að koma út í auknum mæli. Þeim fer stöðugt fjölgandi sem skrifa um konur og þeirra sögu og það er mikil uppsveifla í kvennarannsóknum á öllum svið- um. Mörgum finnst við kannski fara fullgeyst en það er svo mik- ►INGA Huld Hákonardóttir er fædd árið 1936. Hún á þijú börn. Sambýlismaður hennar er Krislján Árnason, dósent í erlendum bókmenntum við Háskóla íslands, skáld og þýð- andi. Inga hefur starfað við blaðamennsku og ritstörf um árabil. Hún var blaðamaður við sunnudagsblað Tímans og seinna á DV þar sem hún var meðal annars menningarrit- stjóri. Hún hefur einnig lesið sagnfræði við Kaupmanna- hafnarháskóla. ill tími sem þarf að vinna upp. Konur voru nær ósýnilegar í sögunni allt fram til 1970. Það var gömul hefð að lærðir menn strokuðu helst út allt um konur í ritum sínum og þær voru ekki teknar alvarlega. Konur hafa aft- ur á móti lagt kirkjunni mikið lið án þess að vera með í kirkjustofn- uninni. Sagan var svo mikil stofn- ana- og styijaldasaga og þar koma þær lítt við sögu enda var þeim ekki hleypt inn í háskóla fyrr en á þessari öld og miklu síðar í opinber embætti. Ég er að vinna núna að rann- sóknarverkefni um konur og trú á 19. öld, bláfátækar sveitakonur sem misstu oft helming allra barna sem þær eignuðust. Það eina sem þær áttu var Kristur og trúin á hann hjálpaði þeim að standa uppréttar. Ég mun tala um þessar konur á ráð- stefnu í Þjóðarbókhlöð- unni hjá 18. aldar- félag- inu á laugardaginn og ætla að halda því fram þar að þessar konur hafi haft mjög sterka, ein- falda og trausta menningu sem byggðist að miklu leyti á trú sem barst á milli þeirra munnlega. Þær unnu svo mikið að þær máttu aldr- ei vera að því að líta í bók og sögðu frá á meðan þær spunnu eða prjónuðu.“ - Agnes S. Arnórsdóttir veltir því fyrir sér í bókinni hvort krist- ið hjónaband hafí bætt stöðu kvenna. Hvað segir þú um það? „í kristnu hjónabandi er lögð mikil áhersla á gagnkvæma hjú- skapartryggð og þegar fram liðu stundir var brýnt fyrir körlum að sjá vel um heimili sitt og að hjóna- bandið væri heilög stofnun. Það er mikil fjölskyldupóiitík í kristn- inni sem kemur bæði konum og auðvitað börnum til góða.“ Hjónabandið bætti stöðu kvenna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.