Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 57 BRÉF TIL BLAÐSINS Athugasemdir vegna ummæla Guðmundar Oddssonar Frá Erni Alexanderssyni: VEGNA ummæla Guðmundar Odds- sonar á forsíðu Alþýðublaðsins fimmtudaginn 31. október sl. sem höfð voru eftir honum í morgun- þætti Rásar 2 sama dag vil ég fyrir hönd félga minna í Leikfélagi Kópa- vogs byrja á því að þakka Guðmundi fyrir skyndilegan áhuga á starfsemi félagsins og því hversu vel hann virð- ist hafa kynnt sér innra og ytra starf þess! í þau 10 ár sem undirritaður hefur starfað með LK hef ég aldrei, og það ég best veit enginn innan LK séð Guðmund Oddsson á sýningum fé- lagsins eða öðrum uppákomum á þess vegum. Þó hefur hann setu sinnar vegna í bæjarstjóm alltaf fengið boðsmiða á leiksýningar fé- lagsins. Haft er eftir Guðmundi: „Það (leik- félagið) hefur haft alla burði til að gera góða hluti, en það hefur einfald- lega lítið verið gert. Það sorglega er að þetta skuli ekki geta gengið betur því aðstaðan er glimrandi fín. Menn hér hafa viljað fá eitthvað í staðinn en það hefur ekki gengið eftir.“ ... „Það eina sem við viljum sjá er „aksjón" í leiklistarstarfsemi í bænum.“ Hað er ekki „aksjón" í leiklistar- starfsemi hjá áhugaleikfélagi ef ekki eftirfarandi? Verkefnaval LK frá 1990: Barnaleikrit: 1990 Virgill litli eftir Ole Lund Kirkegárd. 28. sýningar. 1991 í Súrmjólkurþorpi eftir Edward Urbenski. 23 sýningar. 1993 Ottó nashyrningur eftir Ole Lund Kirkegárd. (Frumsanin leikgerð fyrir LK). 20 sýningar. 1995 Galdrakarl- inn í Oz eftir Frank Baum. 12 sýning- ar. 1996 Rúi og Stúi. (Nýtt frumsam- ið barnaleikrit sem frumsýnt verður á næstunni.) Fyrir unglinga: 1990 Skítt með’a eftir Valgeir Skagfjörð. (Verkið samið sérstaklega fyrir LK.) 13 sýningar. Með unglingum: 1994 Piltur og stúlka. 2 sýningar. 1994 Silfurtunglið eftir Halldór Kiljan Laxness. 6 sýningar. 1996 Kakófína. (Frumsamið verk fyrir unglinga- deildina. Leikritið var valið sem full- trúi íslands á leiklistarhátíð í Dan- mörku sl. sumar.) 12 sýningar. Klassísk verk: 1994 Hedda Gabler og Brúðuheimilið eftir Henrik Ibsen. (Sérstök leikgerð fyrir LK.) 10 sýn- ingar. Gamanleikir: 1995 Á gægjum eftir Joe Orton. (Frumflutningur á verkinu á íslandi). 10 sýningar. 1992-1995 íþróttungur. (Frumsam- inn látbragðsleikur sem leikinn hefur verið í Kópavogi, lýðveldishátíð á Þingvöllum og víðar á árunum 1992- 1995.) íslensk verk: 1992 Sonur skó- arans og dóttir bakarans eftir Jökul Jakobsson. 12 sýningar. Ljóðakvöld: 1994 Tíu skáld í Kópavogi. (Flutt við opnun Gerðarsafns.) 2 sýningar. Einþáttungur: 1996 Um skaðsemi tóbaks eftir Chekhov. 5 sýningar. Námskeið: 1992 Vinna leikarans. 1993 Leiklistarsaga. (I tengslum við námskeiðið var uppsetning á nokkr- um brotum úr helstu gamanleikum leikbókmenntanna og var farið með þá dagskrá m.a. í leikför til Akur- eyrar.) 1993 Götuleikhús. (Hausa- gerð, þeir voru m.a. notaðir á 17. júní hátíðahöldunum og við fleiri tækifæri í Kópavogi.) 1994 Nám- skeið fyrir unglinga. 1994 Leik- spuni. 1995 Leikspuni fyrir unglinga. 1995 Götuleikhús. (Sirkuslistir m.a. í tengslum við 17. júní hátíðahöld í Kópavogi.) Þátttaka á leiklistarhátíð- um: 1992 Patreksfjörður (íþróttung- ur). 1994 Mosfellsbær (HeddaGabler og Brúðuheimilið/íþróttungur.) 1995 Strömstad í Svíþjóð (íþróttungur). 1996 Danmörk (Kakófína). 1996 Unglist ’96 í Reykjavík (Kakófína). Leiklistarhátíð á vegum LK: 1996 Leiklistarhátíð grunnskóla Kópavogs og LK. Auk þess má nefna að LK hefur jafnan komið fram á helstu tyllidög- um í Kópavogi t.d. á þrettándanum, sumardaginn fyrsta, 17. júní, Hlíða- garðshátíðum, þegar kveikt er á jóla- trénu og um áramót. Þess utan hefur félagið verið með ýmiskonar skemmtidagskrár sem nefndar hafa verið vökur. Svo sem jólavökur, bamavökur, þorravökur, o.fl. Á þeim hefur verið sungið, flutt tónlistaratr- iði, lesin ljóð, sögur, og settir upp frumsamdir leikþættir sem sýndir hafa verið með mörg önnur tækifæri. í þessu ljósi geta lesendur síðan dæmt orð Guðmundar Oddssonar um starfsemi LK: ÖRN ALEXANDERSSON, félagsmaður í LK. Kærkomin breyting Frá Kristjáni Ragnari Asgeirssyni: í KJÖLFAR greinar Ástu Dísar Óladóttur um afleiðingar hækkunar hámarkshraða á bundnu slitlagi utan þéttbýlis, úr 90 km hraða í 110 km hraða, fínnst mér sjálfsagt að svara þessum hugleiðingum hennar með mínum eigin. Fyrst vil ég benda áðurnefndum greinarhöfundi á það að íslendingar eru ekkert sérstaklega iðnir við að virða núverandi hraðatakmarkanir og flestir sem aka mikið um t.d. þjóðveginn okkar gera það ekki beinlínis ánægjunnar vegna. Þar sem það hefur hér með verið opin- berað er réttast að ræða hverjar afleiðingar hækkunarinnar yrðu og yrðu ekki. Líklegar afleiðingar: Hraðasekt- um myndi fækka til muna. Fólk sem ferðast mikið á þjóðveginum þarf ekki að hægja á sér í hvert skipti sem það sér hvítan bíl nálgast úr gagnstæðri átt. Fólk verður rólegra og afslappaðra við aksturinn og það myndi stuðla að öruggari aksturs- hætti. Ekki líklegar afleiðingar: Að fólk sem venjulega ekur á u.þ.b. 120 km hraða fari að auka við hraðann. Menn eru vanir að keyra eins og aðstæðurnar leyfa og ég held að ég sé ekki að uppljóstra neinum hernaðarlegum leyndarmálum þeg- ar ég segi að margir, ef ekki flest- ir, mölbijóta svoleiðis núverandi 37. grein umferðarlaganna um leyfileg- an hámarkshraða einfaldlega vegna þess að 36. grein umferðarlaganna, um að haga beri akstri samkvæmt aðstæðum, krefst þess! í grein Ástu fær'maður á tilfínn- inguna að hún ferðist voðalega lítið á þjóðvegi vorum þar sem hún vill halda því fram að aðstæður þar séu bágbomar. Ef sú er staðreyndin vil ég bara enda þessi orð mín með því að hvetja hana til að ferðast innan- lands næsta sumar og kynnast okk- ar fagra landi betur svo ekki sé minnst á akstursaðstæðumar á okk- ar frábæra malbikuðu vegum. KRISTJÁN RAGNAR ÁSGEIRSSON, nemi í Verzlunarskóla íslands og nýbúi í Reykjavík. HLUTAFJARUTBOÐ Útboðsfjárhæð: 20.000.000 kr. Fóðurverksmiðjan Laxá hf. kt.440791-1749 Krossanesi, 603 Akureyri Sölutímabil: 30. október - 31. desember 1996. Gengi fyrsta söludag 2,05. Forkaupsréttartímabil: 30. október -19. nóvember 1996. Gengi til forkaupsréttarhafa 1,85. Ekki er gert ráð fyrir skráningu hlutabréfanna á Verðbréfaþingi íslands að svo stöddu. Umsjón og sölu annast Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. Útboðslýsing hluta- bréfanna, ársreikningur og samþykktir Fóðurverksmiðjunnar Laxár ásamt öðrum upplýsingum liggja frammi hjá Verð- bréfamarkaði Islandsbanka hf., Kirkjusandi og Akureyri. VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi tslands • Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910. Veisluscilir Q ’ Vcitlnoahú/lð lís Gflpi-mn sími 555 4477 IÐNAÐARHURÐIR HÖFÐABAKKA9, 112 REYKJAVÍK SiMI 587 8750 - FAX 587 8751 Námskeið í leðurviimu og reiðtygjasmíði LEÐURVORUDEILD BYGGGARÐAR 7 170 SELTJARNARNES S. 561 2I4I • FAX 56I 2I40 Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator féiag laganema. &BÍ ] öryrkjabandalag tslands Lands^ [P l.ix)skalij«il|) auntökin Þroskahjálp Ráðstefna um ferðamál: Ferðalög fyrir alla haldin af Landssamtökun- um Þroskahjálp og Öryrkjabandaiagi íslands Ráðstefnan verður haldin 8. og 9. nóvember 1996 á Hótel Sögu, A-sal DAGSKRÁ: Föstudagur 8. nóvember Kl. 9.00 Húsið opnað. Kl. 9.30 Setning. Ólöf Ríkarðsdóttir, formaður Öryrkjabandalags islands. Kl. 9.45 Ávarp frá samgönguráðuneytinu. Ármann K. Ólafsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Kl. 10.00 Fatlaðir ferðamenn, vannýttur ferðamarkaður. Ingólfur Ingólfsson, framkvæmdastjóri. Kl. 10.30 Kaffi. Kl. 10.45 Reykjavík — áfangastaður án hindrana? Anna Margrét Guðjónsdóttir, ferðamálafulltrúi Reykjavíkurborgar. Kl. 11.05 Ferða- og tómstundamál fatlaðra. Margrét Frimannsdóttir, alþingismaður. Kl. 11.25 Pallborðsumræður undir stjórn Helga Seljan, féiagsmála- fulltrúa. Kl. 12.15 Hádegisverður. Kl. 13.15 Ferðalög fyrir alla í Evrópu. Els de Vries, Mobility International. Kl. 13.45 Aðgengismál fatlaðs fólks í Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt. Kl. 14.00 Nautnin að ferðast. Arnþór Helgason, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags íslands. Kl. 14.15 Skipulagning ferða fyrir blandaða hópa sem innihalda hjólastólanotendur. Poul Erik Fink, Egmont Hojskolen. Kl. 14.45 Þjónusta við fatlaða ferðamenn á íslandi. Kristín Sif Sigurðardóttir, Samvinnuferðum - Landsýn. Kl. 15.00 Aðgengi fyrir fatlað fólk á ferðaþjónustubæjum. Paul Richardson, Ferðaþjónustu bænda. 15.15 Yfir fjöll og firnindi — ferðsaga. Reynir Pétur Ingvarsson, Sóiheimum, Grimsnesi. Kl. 15.30 Kaffi. Kl. 15.45 Það er vandi að ferðast í henni veröld. Sigurður Björnsson, launafulltrúi hjá Sjáifsbjargarheimiiinu. Kl. 16.00 Flutningar, framtíðarsýn. Steinn Lárusson, Fiugieiðum. Kl. 16.15—17.00 Pallborðsumræður undir stjórn Kristjáns Sigur- mundssonar, þroskaþjálfa og starfsmannastjóra. Laugardagur 9. nóvember Kl. 9.30 Samnorræn sumardvöl. Solveig Theodórsdóttir, þroskaþjálfi og fararstjóri. Kl. 9.45 „Fötluð ferðamennska"? Jackie Scott, Can be done, London. Kl. 10.15 Aðgengi að strætisvögnum. Hörður Gislason, skrifstofustjóri hjá SVR. Kl. 10.30 Kaffi. Kl. 10.45 Pallborðsumræður undir stjórn Dr. Sigrúnar Stefánsdóttur, fjölmiðlafræðings. Kl. 11.45 Samantekt og slit. Guðmundur Ragnarsson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Fundarstjórar: Guðmundur Magnússon, leikari og forstöðumaður og Hildur Davíðsdóttir, starfsmaður Ass. Aðgangur ókeypis Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.