Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 43
AÐSENDAR GREINAR
Sambýli flugs
og byggðar
ENN OG aftur stel-
ur Reykjavíkurflug-
völlur senunni við gerð
aðalskipulags Reykja-
vikur. Miðað við nýjstu
upplýsingar um
ástand vallarins og
kostnað við að tryggja
öryggi flugs og
byggðar er umræðan
þó býsna sérkennileg
í þetta sinn.
Vanræksla og
gáleysi
Umræðan snýst
nefnilega ekki um Álfheiður
vítaverða vanrækslu Ingadóttir
ríkisvaldsins, sem hef-
ur í áratugi látið flugbrautir vallar-
ins drabbast niður og engu kostað
til endurnýjunar þeirra. Hún snýst
heldur ekki um vítavert gáleysi
flugmálayfirvalda sem hafa hunds-
að allar tillögur áhættumatsnefnd-
ar frá 1991 um öryggisaðgerðir á
og við völlinn. Nei - í stað um-
ræðu um þessi mikilvægu mál og
þann ásetning borgaryfirvalda að
taka nú heildstætt á málum við
endurskoðun aðalskipulags,
ástunda menn pólitískan hrá-
skinnsleik. Þar fer samgönguráð-
herrann fremstur en einnig tveir
embættismenn hans, ferðamála-
stjóri og flugmálastjóri, sem vitna
opinberlega um vonsku og heimsku
borgaryfirvalda. Síðast bættist í
hópinn Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, þingmaður Þjóðvakans sál-
uga, og kennir Reykjavíkurlistan-
um og þó sérstaklega Guðrúnu
Ágústsdóttur um ástand flugvall-
arins.
Malbiki slett i poila
Reykjavíkurflugvöllur er upp-
haflega herflugvöllur sem Bretar
skelltu upp, eða réttara sagt, niður
í Vatnsmýrina í stríðsbyrjun þrátt
fyrir hörð mótmæli bæjarstjórnar
sem taldi hann stórhættulegan svo
nærri byggð. Þessir tímar gáfu
Passumyndir • Portretmyndir
Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir
Brúðkaupsmyndir • Stúdentamyndir
PETUR PETURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624
HVAÐ ER
Hornitex?
ÞÝSKAR ÞILPLÖTUR
GÆÐAVARA í STÍL
Fyrirliggjandi
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁHMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 / 568 6100
ekki tilefni til mikilla
vangaveltna um það
sem nú þykir skipta
máli við gerð flugvalla
s.s. fráveitu á af-
rennslisvatni, olíu-
gildrur eða aðrar
mengunarvarnir.
Stríðsrekendur 1940-
1945 höfðu líka meiri
áhyggjur af loftárás-
um og afleiðingum
þeirra en hávaðmeng-
un og loftmengun frá
flugvélum. Þegar ís-
lendingar tóku við
rekstri flugvallarins í
stríðslok hélt hann
áfram að þróast en að
mestu skipulagslaust. Nýjum þörf-
um fylgdu oft skammtímalausnir
og menn skelltu niður malbiki hér
og malbiki þar, þegar einhver flug-
brautin seig ofan í mýrina.
Á hann að fara eða vera?
Það var ekki fyrr en Reykja-
víkurborg gerði sitt fyrsta aðal-
skipulag 1960-1964, að farið var
að fjalla um stöðu flugvallarins í
borgarlandinu. Þá óskuðu flug-
málayfirvöld eftir leyfi til að leggja
tvær nýjar 2000 metra langar flug-
brautir vegna þotuflugsins sem var
í augsýn. Borgarstjóm neitaði og
samþykkti þvert á móti að leitað
skyldi að öðru flugvallarstæði fyrir
millilandaflugið. Loftleiðir fluttu
svo allt sitt flug til Keflavíkur
1964 og Flugfélag íslands flutti
millilandaflug sitt þangað 1967.
Frá þeim tíma hefur svo átt að
heita að Reykjavíkurflugvöllur
þjónaði innanlandsfluginu einu.
Farþegaflug i innanlandsflugi er
þó aðeins 20% af umferðinni um
flugvöllinn: 80% af u.þ.b. 100-110
þúsund lendingum og flugtökum á
ári er vegna æfinga- og kennslu-
flugs, einka- og þjónustuflugs,
feijuflugs og annars millilanda-
flugs. Þessi mikla umferð er ein-
mitt ástæðan fyrir því að sama
Ábyrgðin er ráðherrans
og þingsins, segir Álf-
heiður Ingadóttir, sem
hér skrifar um ónógt
viðhald Reykjavíkur-
flugvallar.
spurningin kemur upp í hvert sinn
sem aðalskipulag Reykjavíkur er
endurskoðað: Á flugvöllurinn að
fara eða vera? Við endurskoðunina
nú eru aðstæður hins vegar allt
aðrar en áður.
Tíu tillögur til úrbóta
í ágúst 1988 fórust tveir menn
þegar feijuflugvél hrapaði utan
vallar við gatnamót Njarðargötu
og Hringbrautar. í kjölfar þessa
hörmulega slyss var skipuð nefnd
til að meta áhættuna af flugvellin-
um. í henni sátu Guðjón Petersen,
þáverandi framkvæmdastjóri Al-
mannavama ríkisins, Pétur Ein-
arsson, þáverandi flugmálastjóri,
Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgar-
verkfræðingurinn í Reykjavík, Jó-
hann H. Jónsson, fulltrúi flugmála-
stjómar og undirrituð.
Skýrsla nefndarinnar, „Reykja-
víkurflugvöllur, sambýli flugs og
byggðar," kom út 1991 og í fáum
orðum sagt komst nefndin að þeirri
niðurstöðu að ýmislegt mætti betur
fara í öryggismálum vallarins.
Full samstaða var um tíu tillög-
ur til úrbóta. Þær byggðust allar
á þeirri stefnu þáverandi og núver-
andi borgaryfírvalda að flugvöllur-
inn yrði enn um hríð miðstöð
innanlandsflugs en að dregið skyldi
úr annarri umferð og lágflugi beint
frá byggðinni. Það er athyglisvert
að ein tillaga nefndarinnar var ein-
mitt sú að hraða skyldi fram-
kvæmdum við endurbætur og ný-
byggingu akbrauta á flugvellinum
vegna árekstrahættu, en akbrautir
voru þá löngu ónýtar vegna skorts
á viðhaldi. Onnur var um stýringu
að- og brottflugs í vallarsviði þann-
ig að þessir áhættumestu kaflar í
fluginu fari ekki fram yfir þéttri
byggð, yfir stærstu sjúkrahúsum
landsmanna eða miðstöð menning-
arlífs og stjórnsýslu í Kvosinni.
Ennfremur var gerð tillaga um
byggingu nýs flugvallar fyrir æf-
inga- og kennsluflug þar sem menn
gætu æft snertilendingar óháð
annarri flugumferð og utan byggð-
ar og loks var gerð tillaga um
flutning feijuflugsins til Keflavík-
ur, lokun NA- SV-brautar og flutn-
ing eldsneytisgeyma af flugvallar-
svæðinu svo nokkuð sé nefnt.
Flugbrautirnar ónýtar líka
Ljóst var að framkvæmd þess-
ara tillagna - sem enn hefur ekk-
ert orðið af - yrði mjög dýr, jafn-
vel 2-3 milljarðar króna. Sl. vetur
var svo skyndilega upplýst að sjálf-
ar flugbrautimar væru ónýtar líka
og að skipta þurfi um jarðveg í
Vatnsmýrinni ef byggja ætti þær
upp að nýju. Talið er að það muni
kosta 1,3 milljarða króna. Með
byggingu flugstöðvar, sem er á
skipulagi frá 1986, má því reikna
með að það kosti 4-5 milljarða
króna að gera Reykjavíkurflugvöll
þannig úr garði að hann uppfylli
sjálfsagðar öryggis- og þægind-
akröfur. Þetta eru gríðarlega mikl-
ir fjármunir og nauðsynlegt að
vega og meta alla kosti í stöð-
unni. Og það er einmitt það sem
loks er verið að gera núna - t.d.
að meta umhverfisáhrif fyrirhug-
aðra framkvæmda og jarðvegs-
skipta í Vatnsmýrinni, gera könn-
un á áhrifum flugrekstrarins á
atvinnulíf í borginni, gera hávaða-
mælingar og aðrar athuganir sem
varða öryggismál í framhaldi af-
skýrslunni frá 1991, o.s.frv.
Ábyrgðin er ráðherrans
Þeir sem reyna að gera þessa
vinnu borgaryfírvalda tortryggilega
hafa greinilega slæma samvisku.
Reykjavíkurlistinn er aðeins búinn
að vera við völd í 2 ár og 5 mán-
uði og á þeim tíma hefur borgarráð
tvívegis ályktað um nauðsyn þess
að ráðast í framkvæmdir á Reykja-
víkurflugvelli. Það kemur því úr
hörðustu átt þegar samgönguráð-
herra og áðumefndur þingmaður
kenna Reykjavíkurlistanum eða
einstaka borgarfulltrúum hans um
ástand mála á flugvellinum.
Reykjavíkurlistinn ber enga ábyrgÚ'-
á áratugalöngum trassaskap ríkis-
valdsins. Ábyrgðin er ráðherrans
og þingsins. Það er hins vegar fagn-
aðarefni ef borgaryfírvöld ætla ekki
að láta það líðast lengur að menn
sletti malbiki í stærstu pollana og
láti þar við sitja.
Höfundur var formaður nefndar
til að vinna áhættumat vegna
Reykja víkurflugvailar 1988-1990.
Kilmanock
HIGH PERFORMANCE
ÚLPUR
VIHD- OG VATNSHELDAR
í fullorðinsstærðum:
XS-S-M-L-XL-XXL
Margir litir
Sendum í póstkröfu
whummél^
SPORTBÚÐIN
Nóatún 17 • S: 511 3555
Bestu kaupin núna
DAEW00 D5320
Intel pentium 120 Mhz örgjörvi
16MB innra minni
1280MB IDE diskur
256 KB skyndiminni
14" skjár
Windows 95 lyklaborð
2 PCI og 3 ISAtengiraufar lausar
miro
miroVideo 22SD skjákort með 2MB ED0
8x geisladrif
SoundBlasterVibra 16 hljóðkort
Hátalarar
129.900
stgr. m. vsk.
i-;
• Kassi rúmar þrjú drif (CO-Rom ofl.)
• Windows 95 lyklaborð mod ibrenndum táknum
• Fylgibúnaður- Windows 95 og mús
• Plug’n Play, EPA Energy Star. hljóílút vifta
• MPEG og AVI afspilun í fullri stærð
Hafðu samband við sölumenn okkar eða komdu
í verslunina. Við setjum saman með þér pakka
sem hæfir óskum og verðhugmyndum þínum.
Með:
Intel Pentium 133 Mhz örgjörva
15" skjá
8x geisladrifi
145.900
stgr. m. vsk.
| RAÐGREIÐSLUR
Grensásvegur 10, bréfasími 5G8 7115
http://WWW.ejs.is/tilbori • s<tln®ejs.is
Sími 563 3050