Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn
SIGRÍÐUR WAAGE,
lést á heimili sínu í Danmörku 24. október sl.
Jarðsett hefur verið í kyrrþey.
Þórdis K. Pétursdóttir,
Hákon J. Waage, Margrét Guðnadóttir,
Indriði Waage,
Inga Þórunn Waage,
Eli'sabet Wage, Sigríður Þorláksdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJARNI R. JÓNSSON
forstjóri,
Drápuhlfð 40,
lést á dvalarheimilinu Skjóli 5. nóvem-
ber.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valgerður B. Gröndal,
Halla Bjarnadóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaöir, afi og
langafi,
ÓLAFUR E. EINARSSON
stórkaupmaður
frá Garðhúsum i Grindavík,
siðast til heimilis
á Hrafnistu íReykjavik,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudag-
inn 5. nóvember.
Einar G. Ólafsson, Sigríður Þóra Bjarnadóttir,
Steinunn Ólafsdóttir, Ólafur Hallgrímsson,
Ólafur E. Ólafsson, Þorbjörg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
AUÐUR KRISTÍN
JÓHANNSDÓTTIR,
Stangarholti 36,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 8. nóvemþer kl. 13.30.
Óskar Waagfjörð Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRNI VILBERG,
Rauðalæk 32,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
á morgun, föstudaginn 8. nóvember,
kl. 15.00.
Jónfna Magnúsdóttir,
Svandi's Árnadóttir, Sævar Jóhannsson,
Gylfi Vilberg Árnason, Soffía Guðlaugsdóttir
og afabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR JENSSON
prófessor
og fyrrv. forstöðumaður
Blóðbankans,
Laugarásvegi 3,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í dag, fimmtudaginn 7. nóvember,
kl. 15.00.
Erla Guðrún ísleifsdóttir,
Arnfri'ður Ólafsdóttir, Þórður Sverrisson,
ísleifur Ólafsson, Erna Kristjánsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir, Þorkell Sigurðsson
og barnabörn.
+ Kristín Jóhann-
esdóttir fædd-
ist i Reykjavík 28.
apríl 1906. Hún lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 22.
október siðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Helga
Vigfúsdóttur frá
Ytri Sólheimum í
Mýrdal, f. 16. nóv.
1876, d. 15. nóv.
1918 úr spönsku
veikinni, og Jó-
hannes Jónsson
trésmiður, ættaður
frá Deildartungu í Borgar-
firði, f. 22. maí 1872, d. 17.
des. 1944. Systkini hennar eru
Þórdís, f. 1. okt. 1904, Jónina,
f. 27. ágúst 1907, d. 4. ágúst
1996, Vigfús, f. 5. des. 1908,
d. 14. apríl 1996, Karl, f. 30.
sept. 1910, Þorbjöm, f. 10.
mars 1912, d. 4. júlí 1989,
Theodór, f. 18. sept. 1913, Elín,
f. 4. apríl 1914, d. 24. júlí 1916.
Hálfbræður Kristinar sam-
Ég heiðra mína móður vil
af mætti sálar öllum
og lyfti huga Ijóssins til
frá lífsins boðaföllum.
Er lít ég yfir liðna tíð
og Iöngu fama vegi,
skín endurminning unaðsblíð
sem ársól lýsi degi.
Að færa slika fóm sem þú
mun flestum ofraun vera,
en hjálpin var þín heita trú.
Þær hörmungamar bera.
I hljóði barst þú hveija sorg,
sem hlaustu oft að reyna
en launin færðu í ljóssins borg
og lækning allra meina.
Nú er of seint að þakka þér
og þungu létta sporin
þú svífur yfir sjónum mér
sem sólargeisla á vorin.
Þú barst á örmum bömin þín
og baðst þau guð að leiða,
ég veit þú munir vitja mín
og veg minn áfram greiða.
(Eiríkur Einarsson)
feðra: Sólmundur
Jósep, f. 31. mars
1930, d. 12. júlí
1989, Guðmundur,
f. 31. mars 1930.
Kristín giftist
Árna Ólafi Pálssyni
bifreiðastjóra, f.
12. nóv. 1898, d. 14.
júlí 1978, Hafliða-
sonar skipstjóra og
Guðlaugar A. Lúð-
víksdóttur. Börn
þeirra eru: 1) Jó-
hannes Árnason, f.
26. feb. 1925, maki
Guðrún Ólöf Svein-
jónsdóttir og eiga þau 3 börn.
2) María Árnadóttir, f. 4. sept.
1926, maki Friðrik E. Björg-
vinsson, f. 29. jan. 1923, d. 13.
sept. 1976 og áttu þau 5 börn.
3) Ólafur Helgi, f. 17. okt. 1930,
d. 30. okt. 1932. Langömmu-
börnin eru 16 og langa-
langömmubörnin eru 5.
Utför Kristínar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku mamma mín. Þakka þér
fyrir allt og allt.
Maria.
Elskuleg tengdamóðir mín, Krist-
ín Jóhannesdóttir, er látin, og lang-
ar mig að minnast hennar með fá-
einum orðum.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
fyrir 50 árum, er ég ung stúlka kom
með syni þeirra inn á heimiljð þeirra
Áma og Kristínar, og voru þau mér
alla tíð síðan eins og væri ég dóttir
þeirra.
Ámi var sá mesti öðlingur og
ljúfmenni, sem ég hef kynnst, og
var mikil eftirsjá þegar hann lést
fyrir 18 ámm. Kristín bjó ein eftir
að Árni dó, en hún var ekki ein í
orðsins fyllstu merkingu, því hún
var mikil félagsvera, og hafði mjög
gaman af að vera með fjölskyldunni
og frændrækin var hún með af-
brigðum. Ef afmæli eða einhver
uppákoma var hjá fjölskyldunni, var
hún sjálfkjörin. Því eins og sagt er,
var hún sameiningartákn okkar.
Það var hún sem hringdi og
spurði frétta. Ef einhver var búsett-
ur utanlands, þá skrifaði amma
Kristín, og sagði tíðindi að heiman.
Þegar ég segi skrifa, þá hafði hún
þá fallegustu rithönd sem ég hef
séð, og var hún fengin til að skrifa
á jólakort, og eins ef þurfti að vanda
sig, þá var amma Kristín beðin um
að skrifa.
Ég á henni svo margt að þakka,
fyrir hennar væntumþykju á mér
og minni fjölskyldu. Vona ég að ég
hafi verið væntumþykju hennar
verð. Það verður tómlegt hjá okkur
á jóladag, þegar ijölskyldan kemur
saman, því í öll okkar hjúskaparár
höfum við borðað saman á jóladag.
En nú eru báðar ömmurnar farn-
ar. Andrea amma, móðir mín, lést
í júlí og Kristín amma núna, og
skipuðu þær heiðurssæti við borðið
hjá okkur, en þetta er nú einu sinni
gangur lífsins, og þökkum við fyrir
að hafa átt þær í 90 ár hjá okkur.
Það verða ekki famar fleiri Bón-
us-ferðir, og fenginn sér kaffisopi
á eftir, en við fórum vikulega sam-
an og þótti gömlu konunum báðum
þetta vera skemmtiferð, eins og
tengdamamma sagði, og hlakkaði
til næstu Bónus-ferðar.
Vonandi er hægt að hlakka til
margs þar sem hún er nú, og kveð
ég elskulegu tengdamóður mína
með þakklæti.
Guð geymi þig.
Þín,
tengdadóttir.
Elsku mágkona mín og vinkona.
„Ef við lítum yfir farinn veg
færast löngu liðnar stundir okkur
nær.“
Þessar Ijóðlínur, blátt áfram og
einfaldar, fela í sér svo ótal margt
að minningarnar streyma að og
fylla hugann.
En alltaf verður það eitthvað
sérstakt, sem sker sig úr. Eitthvað,
sem bundið er við sérstaka menn,
málefni eða stund. Viss atvik í lífí.
Minningin, sem efst er í huga
mínum, er hún Stína mín, sem var
aldrei kölluð annað en Stína mág-
kona.
Hún var mér mjög hjálpleg í svo
mörgu. Hún vann hjá manni sínum
í tólf ár, í Kjötbúðinni Borg, og var
sárt saknað, er hún hætti störfum.
Ennþá einu sinni hefur verið
höggvið í systkinahópinn. Þau eru
farin þtjú á sama árinu.
Allar minningamar um Stínu
bera sama svip, brosandi blíðleg og
góð kona, sem öllum þótti vænt um.
Oll börnin og barnabömin mín dáðu
hana mjög mikið og nú er Stína allt
í einu horfín. Farin yfir landamærin
miklu. Farin þá leið, sem enginn
fær umflúið.
Við þökkum Stínu allar góðar og
hugljúfar samverustundir.
Við biðjum Guð að blessa heim-
komu hennar og leiða hana áfram
í ljósi ódauðleikans.
Ég bið guð að blessa og styrkja
ástvini hennar, sem syrgja og
sakna. Við vitum að fagrar og góð-
ar minningar milda sorgina.
Sigríður H. Einarsdóttir.
Elskuleg föðursystir mín, Kristín
Jóhannesdóttir, er kvödd hinstu
kveðju í dag. Hún var orðin rúmlega
90 ára og í öll þau ár var hún hinn
sanni sólargeisli fjölskyldunnar. Ég
hef dvalið langdvölum erlendis, en
Stína hélt uppi bréflegu sambandi
öll þessi ár og aldrei fannst mér ég
vera komin alveg heim fyrr en ég
fékk að njóta hins dillandi hláturs,
sem Stína var alþekkt fyrir.
Því verður heldur ekki neitað, að
við hjónin höfum haldið mikið upp
á kenningar hennar í næringar-
fræði, sérstaklega þá, að þeyttur
ijómi innihéldi ekki eina einustu
hitaeiningu.
Stína var í miklu uppáhaldi hjá
sonum okkar, enda var hún þeim
einstaklega góð. Einn þeirra var í
Reykjavík í nokkur ár og mér er
það sérlega kært, að elsta dóttir
hans var skírð í höfuð þeirra mág-
kvennana, Kristínar og Sigríðar.
Því er það, að fráfall Kristínar
er mikill missir fyrir okkur öll.
Nú þegar Stína er komin til Árna
síns sendi ég börnum þeirra og öll-
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR SIGURJÓNSSON
skipstjóri,
fyrrverandi forseti
Slysavarnafélags íslands,
Háholti 16,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 8. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysavarnafélag (slands.
Jóhanna Guðrún Brynjólfsdóttir,
Brynja Einarsdóttir, Jón Birgir Þórólfsson,
Sigurjón Einarsson, Guðný Birna Rosenkjær,
Einar Jónsson, Eygló Karlsdóttir,
Guðný Agla Jónsdóttir,
JóhannGunnarJónsson,
Þórey Einarsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, þeirra sem
auösýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför sambýliskonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞÓREYJAR HJARTARDÓTTUR
frá Stóru-Þúfu,
Mávahlíð 33,
Reykjavik.
Guðmundur J. Þorsteinsson,
Þór Hreiðarsson, Alma ísleifsdóttir,
Sævar Hreiðarsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir,
Sváfnir Hreiðarsson, Hafdís Haraldsdóttir,
Linda Sjöfn Hreiðarsdóttir,
Agla Hreiðarsdóttir, Gunnar B. Gunnarsson,
Freyr Hreiðarsson, Elín Óladóttir
og barnabörn.
KRISTIN
JÓHANNESDÓTTIR
-
$
4
4
C
<
i
i
i
(
(
(
(
(
'i