Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • UT er komin Orðaskrá úr stjörnufræði með nokkrum skýringúm. Skráin er samin af orðanefnd Stjarnvísindafélags Is- lands sem stofnað var árið 1990 undir formennsku Þorsteins Sæ- mundssonar stjörnufræðings, en ásamt honum hafa þeir Gunn- laugur Bjömsson stjarneðlis- fræðingur og Guðmundur Arn- iaugsson stærðfræðingur og fyrr- verandi rektor unnið lengst að verkinu. Skráin er bæði ensk- íslensk og íslensk-ensk og nær yfir rúmlega tvö þúsund hugtök. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Orðaskrá Stjamvísindafélagsins er 160 bls. að lengd og kostar kr. 1.000. • ÚT er komin Brjálað vald eftir Jón Þorleifsson. Þetta er tuttug- asta og sjöunda bók hans frá því hann sendi frá sér bókina Nútíma- kviksetning 1974, þá hálfsjötug- ur. „í bókinni deilir Jón á Samein- uðu þjóðimar og rekur mörg dæmi um misgjörðir þeirra. Myndin sem Jón dregur upp af heimspólitík og íslenskum yfirvöldum, Nato o.fl., er ófögur,“ segir í kynningu. Bijálað vald er 52 bls. Hún er prentuð í Fjölföldun Þorbergs Sig- urjóns. Höfundur gefur hana sjálf- ur út. __________LISTIR_______ Maðurinn og verkin Ævisaga Harolds Pinters fjallar um hvernig líf hans endurspeglast í leikritum hans NÝLEG ævisaga breska leik- skáldsins Harolds Pinters, sem leiklistargagnrýnandi The Guard- ian, Michael Billington, skráði, hefur fengið góða dóma í Bret- landi. Bókin nefnist „The Life and Work of Harold Pinter“ og þykir bera nafn með rentu þar sem fyrst og fremst er fjallað um tengsl lífs Pinters og verka hans. Bókin er unnin með samþykki leikskáldsins og byggir Billington að stórum hluta á skjalasafni Pint- ers, auk þess sem rætt er við hann sjálfan og fólk honum tengt. Endurminningar leika æ stærri þátt í verkum Pinters en þegar á sjöunda áratugnum var ljóst hversu mjög hann sótti efnivið í leikritin í eigið líf. Hann var einka- barn, sonur gyðinga og varð að yfirgefa heimili sitt á stríðsár- unum. Helstu mótun- arárin voru þó eftir stríð er unglingurinn Pinter féll inn í hóp menningarvita af gyð- ingaættum sem lásu Kafka og Dostojevskíj og horfðu á myndir eftir Bunuel. Sam- skipti vinanna er efni einu skáldsögu Pint- ers„„The Dwarfs" (Dvergamir) sem kom út í upphafi sjötta ára- tugarins. Fjölmörg dæmi eru um hvernig reynsla Pinters endur- speglast í verkum hans. „The Hot- house" (Gróðurhúsið), frá 1958, byggir á reynslu Pinters af því að vera „tilraunadýr" á spítala, er hann var ungur og félítill. í „Old Times" (Liðnar stundir) er rakið bóhemliferni hans tuttugu árum fyrr. Fyrirmyndirnar að aðalper- sónunum í „The Caretaker" (Hús- vörðurinn) eru menn sem bjuggu í sama húsi og Pinter. Þá er „Betrayal“ (Svik) byggð á ástarævintýri sem Pinter átti er hann var giftur fyrri eigin- konu sinni. Pinter hefur átt æ erfiðara með að skrifa og eru nýjustu verk hans mun styttri en þau eldri, auk þess sem sum þeirra eru várt annað en skissur. Pint- er hefur hins vegar leikstýrt fjölda verka eftir sig og aðra, leikið í nokkrum eigin verka, og samið 22 kvik- myndahandrit. Billing- ton telur ljóst að fyrri eiginkona Pinters. Vivien Merch- ant, sé fyrirmynd flestra kvenn- anna í verkum Pinters, hún hafi verið skáldgyðja hans, þrátt fyrir spennuna í hjónabandinu, sem batt að lokum enda á það. Hins vegar er lítið fjallað um áhrif síðari eigin- konunnar, Anthoniu Fraser, sem ritdómari The Independent segir hafa fært leikskáldinu hamingju og öryggi en að um leið hafi eitt- hvað horfið úr verkunum. Harold Pinter Metnaðarfull nú- tímaskáldsaga SKÁLDSAGAN í luktum heimi eftir Fríðu Á. Sigurðar- dóttur kom nýtverið út í sænskri þýðingu hjá Rabén Prisma bókaforlaginu í Stokkhólmi. Þýðandi er Inge Knutsson. Fjölmargir gagnrýn- endur hafa fjallað um söguna sem hlotið hefur lofsamlega dóma. „Hin nýja skáldsaga Fríðu Á. Sigurðardóttur er ekki síður heiliandi lestur en verðlauna- sagan sem áður hef- ur komið út á sænsku,“ segir Tore Winquist í Uppsala Nya Tidning og fleiri gagnrýnendur taka í sama streng. I Göteborgs-Posten fjallar Björn Gunnarsson ítarlega um söguna. Hann kveðst aldrei hafa komið til íslands en segist hafa kynnst því mætavel í nútíma- skáldskap þjóðarinnar. Þar opnist lesendanum heimur sem liggi kannski ekki í augum uppi en sé þeim mun áleitnari og hann hælir Fríðu fyrir það hversu vel henni tekst að beina straumum nútím- ans inn í sögur sínar. í dagblaðinu Norra Skáne seg- ir Caroline Alesmark meðal ann- ars: „Þó að tónninn sé dökkur í þessari sögu varð mér það sann- kölluð nautn að lesa hana. Satt að segja greip þessi saga mig sterkari tökum en fyrri saga Fríðu, Meðan nóttin líður, sem hlaut Bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992.“ í umfjöllun sinni um söguna spyr gagnrýnandi Borás Tidning, Per-Ove Ohlson, sjálfan sig í upphafi hvort sögu- hetjan Tómas sé enn ein af þessum lífs- þreyttu hetjum bók- menntanna, upptek- inn af sjálfum sér og fullur sjálfs- vorkunnar, en segir síðan: „Smám saman fær lesandinn áhuga á honum Tómasi. Skáldinu hefur heppnast að blása lífi í per- sónu sem miðlar tíðaranda samfé- lagsins í sögunni, einkum þó á sviði tilfinningalífsins og jafn- framt nær frásögnin af hlutskipti Tómasar æ skerkari tökum á les- andanum eftir því sem líður á verkið... Ég fæ ekki séð að neinn sænskur skáldsagnahöf- undur jafnist fyllilega á við Fríðu Á. Sigurðardóttur. Þessa stundina kemur mér engin sænsk nútíma- skáldsaga í hug sem ég treysti mér til að skipa á bekk með þessu metnaðarfulla skáldverki.“ Fríða Á. Sigurðardóttir Ágústína Vilborg Þóra Jónsdóttir Dagbjartsdóttir Jónsdóttir Nýjar bækur Þijár skáldkonur í einu kveri LJÓSAR hendur nefnist nýtt ljóð- verk og er þar safnað saman úr- vali ljóða eftir þijár skáldkonur, en þær eru Ágústína Jónsdóttir, Vil- borg Dagbjartsdóttir og Þóra Jóns- dóttir. í kynningu á bókinni segir Þorsteinn Thorarensen útgáfustjóri Fjölva, að það hafi dottið í sig að gefa út einskonar þakkargerðar- kver til forsjónarinnar fyrir þá ein- stæðu árgæsku sem við höfum notið í sumar. Hann orðar það svona: „í tilefni af því hvað sumarið var indælt með sólskini, yl og gróanda vildi Fjölva- útgáfan gleðjast með þjóðinni og varð úr að ég valdi þijár skáldkon- ur, sem mér þykir hvað vænst um.“ Ljósar hendur er í sama bóka- flokki og Vegaljóð Tolkiens og Hækur Gunnars Dal sem komu út fyrr á árinu og útgáfan nefnir „Litlu gimsteinana". Þrátt fyrir lít- ið brot er kverið mjög efnismikið sem sjá má af því, að þar birtast valin ljóð úr samtals 16 fyrri ljóða- bókum höfundanna, en einnig áður óbirt ljóð. Tvær þeirra, Ágústína og Þóra, eru jafnframt myndlistar- konur og myndskreyta þær verk sín en Snorri Sveinn Friðriksson listamður myndskreytti ljóð Vil- borgar.“ Bókin Ljósar hendur er í litlu gjafabókarbroti, öll litprentuð með skreytingum á hverri síðu. Hún er 96 bls. PMS Súðarvogi vann filmu- vinnu, prentsmiðjan Grafík sá um prentun og bókband. Verð er kr. 1.490. ISLENSKUR DJASS TÓNLIST Gcisladiskur GENGIÐ Á HLJÓÐIÐ Geisladiskur Sigurðar Flosasonar, Gengið á hljóðið. Flytjendur: Sigurð- ur Flosason altsaxófónn, Scott Wend- holt trompet, Eyþór Gunnarsson pianó, Lennart Ginman kontrabassi og John Riley trommur. Heildartími 68,27 mínútur. Útgefandi: Jazzis, 1996. GENGIÐ á hljóðið er annar geisla- diskur Sigurðar Flosasonar. Hann er skráning á talsverðum breyting- um á ferli þessa snjalla saxófónleik- ara og lagasmiðs frá því fyrri disk- ur hans, Gengið á lagið kom út 1993. Breytingar sem lúta aðallega að fínna og faglegra yfirbragði tónlistarinnar fremur en viðhorfs- breytingum til viðfangsefnis. Þó má glöggt heyra nýja strauma í lagasmíðum Sigurðar sem er skrif- aður fyrir öllum lögunum tíu á disknum. Einkum þó í Heimboði til Havana þar sem áhugi Sigurðar fyrir rytmískri tónlist frá Kúbu skín í gegn. Einhvern veginn nær salsan þó ekki því ástríðufulla flugi sem nauðsynlegt er til þess að tón- list af þessu tagi virki þrátt fyrir góð tilþrif frá höfundinum sem á stundum minnir á sjálfan Paquito D’Riviera. Allt er gert af kunnáttu og útsjónarsemi en það er eins og verkið sé of mikið skrifað og samið. Sigurði lætur betur að semja til- tölulega hefðbundin djasslög, main- stream djass með alvarlegum lagl- ínum, þjóðlegum á sinn hátt. Hrifn- astur var undirritaður af tveimur fyrstu lögunum á disknum sem heita Hjartarætur og Illar tungur. Fyrrnefnda lagið er með fallegri og dálítið tregafullri laglínu sem altsaxófónn og trompet spila í sam- hljóm og radda undir hjá hver hjá öðrum og vefa keðjulínur. Sigurður leikur síðan tilfinningaríkan og heitan sóló. Styrkur geisladisksins er algjör fagmennska jafnt í flutningi sem upptöku og fyrsta flokks tónlistar- menn, þrír frábærir sólóistar og feykigóð rytmasveit. Nýjar plötur • ÚT er komin geislaplata með söng Smárakvartettsins í Reykjavik. Á plötunni eru 22 lög. Smárakvartettinn í Reykjavík skipuðu þeir Sig- mundurR. Helgason 1. ten- ór, Halldór Sigurgeirsson 2. tenór, Guðmundur Ólafsson, 1. bassi og Jón Haraldsson 2. bassi. Þeir voru skólabræður í Háskólanum og stofnuðu kvartettinn haustið 1951. Und- irleikari þeirra var Carl Billich. Vegna utanferðar fé- laga til náms og starfa hætti Smárakvartettinn starfsemi á árinu 1956. Það sumar fór kvartettinn í hljómleikaferð um Norðurland svona í kveðju- skyni og hélt að lokinni ferð- inni kveðjutónleika í Reykjavík í ágúst sama ár. í kynningu segir, elstu menn muni ekki aðrar eins móttökur og söng- flokkurinn fékk hjá hljómleika- gestum að skilnaði. Um sama leyti söng Smárakvartettinn sjö lög á segulband hjá Ríkisút- varpinu og voru þau flutt í sérstökum útvarpsþætti. Þess- ar upptökur „fundust" ef svo má segja í segulbandasafni útvarpsins og urðu kveikjan að hljómplötu sem var gefin út árið 1986 með endurútgefn- um lögum af hljómplötum Smárakvartettsins og frum- útgáfum af ýmsu sem kvartett- inn flutti í útvarpi og kemur núna 10 árum seinna á geisla- diski. Útgefandi erJapis. Verð 1.999 kr. • ÚT er komin geislaplata með söng Leikbræðra. Kvartett- inn skipuðu þeir Gunnar Einarsson, fyrsti tenór, Ást- valdur Magnússon, annar tenór, Torfi Magnússon, fyrsti bassi og Friðjón Þórð- arson, annar bassi. í kynningu segir, að kvart- ettinn hafi orðið til er þeir fé- lagar voru á siglingu sólskins- bjarta Jónsmessunótt út í Flat- ey á Breiðafirði árið 1945, þá tóku þeir lagið saman og voru lengi eftir það ómissandi á hverri skemmtun Breiðfirð- ingafélagsins í Reykjavík og reyndar víðar, því þeir voru orðnir vel þekktir er þeir héldu sína fyrstu opinberu tónleika 1952 og höfðu meðal annars sungið inn á tvær eða þrjár hljómlötur. En kvartettinn varð ekki eldri en tíu ára, því skyld- an kallaði þá félaga til starfa. Á geislaplötunni eru 14 lög og geymir hún flestar hljóðrit- anir sem til eru með söngkvart- ettinum Leikbræðrum, en þeim var upphaflega safnað saman og þær gefnar út á einni hæg- gengri hljómplötu í nóvember 1977. Tilefni hljómplötuútgáf- unnar 1977 var að þá voru lið- in nákvæmlega 25 ár frá því að Leikbræður héldu sína fyrstu opinberu hljómleika á nokkrum stöðum landsins árið 1952. Þeir síðustu voru haldnir í Gamla Bíói í Reykjavík það ár. Útgefandi er Spor. Verð 1.699 kr. Sigurður fékk til liðs við sig félaga sinn frá námi í Bandaríkj- unum, Scott Wendholt, sem er mjög fær trompetleikari, með breiðan tón og hugmyndaríkan spuna. John Riley, sem er eftirsótt- ur trommuleikari vestra, og Lenn- art Ginman, sem lék með Sigurði á fyrri disk hans, skapa mjög þétt og rytmískt tjald og Eyþór Gunn- arsson á þátt í þeim vefnaði auk þess sem leikur glæsilega einleiks- kafla. Gengið á hljóðið er góður vitnis- burður um íslenska djasstónlist eins og hún gerist best, fag- mennsku og hljóðfæraleik á heims- mælikvarða. Guðjón Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.