Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 45 MINNINGAR Mágkona mín, Steinunn Vilhjálms- dóttir, er látin. Með henni er gengin mikilhæf og góð kona. Kynni okkar Steinunnar eða Systu, eins og hún var jafnan nefnd af vinum og ættingjum, hófst fyrir rúmum fjór- um áratugum er ég giftist bróður hennar, Manfreð. Fjölskyldutengsl voru mikil í þess- ari fjölskyldu. Systkinin voru þijú; Manfreð, Steinunn og Karen. Foreldr- ar þeirra, Marta og Vilhjálmur, lögðu ríka áherzlu á að flölskyldan hittist og væri saman. Eigum við öll fagrar minningar um góðar stundir á heim- ili þeirra, einkum jólaboðin sem voru sannkallaðar fjölskylduhátíðir. Það er því margs að minnast eftir öll þessi ár, en í minningunni er Systa alltaf svo hress og kát og vil ég nú að leiðar- lokum þakka henni innilega allar góðu stundirnar, sem við áttum saman. Systa átti miklu bamaláni að fagna. Það var hennar gæfa. En hún varð líka fyrir þeirri sáru sorg að missa son sinn, Þorstein, ungan að aldri. Bömin hennar fjögur em allt hið mesta manndómsfólk. Þau hafa reynzt móður sinr' afar vel og stutt hana í hennar veikindum. Og nú er lífshlaupi Systu lokið. Erfítt veikindastríð er á enda en þar sýndi hún hvílíkt þrek og hugprýði hún hafði til að bera. Ég kveð mágkonu mína með virð- ingu og þökk. Guð veri með bömum hennar og þeirra fjölskyldum. Blessuð sé minning Steinunnar Vilhjálmsdóttur. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E. Ben.) Erla Siguijónsdóttir. Samstarfsmaður í meira en tvo áratugi er nú kvaddur. Steinunn Vil- hjálmsdóttir kom til starfa í Seðla- bankann árið 1966 og starfaði þar allar götur til miðs árs 1995, að vísu með nokkram hléum. Fyrstu fímm árin vann Steinunn í hagfræðideild bankans, en haustið 1972 kom hún til starfa hjá undirrituðum á aðalskrif- stofu bankans og unnum við þar sam- an að starfsmannamálum o.fl. Reynd- ist Steinunn mér frábær starfsmaður og góður félagi. Síðar var hún í starfí fyrir bankastjómina og lögfræðinga bankans sem ritari fram til 1987. Síðustu starfsár hennar í bankanum vora í deild erlendra viðskipta þar sem hún starfaði fram á mitt ár 1995, er hún varð að láta af störfum vegna alvarlegra veikinda. Með alla þá reynslu í starfi sem Steinunn hafði fengið var hún góður liðsauki fyrir Rauða krossinn árin 1972 og 1973, þegar mest gekk á í hjálparstörfum fyrir Vestmannaey- inga vegna gossins í Heimaey og þeir á faraldsfæti suðvestanlands. Fékk ég leyfi hjá bankastjóm fyrir Steinunni til að vinna fyrir Rauða krossinn að þessum mikilvægu störf- um í nokkum tíma þessi tvö ár. Steinunn barðist sem hetja fyrir lífi sínu seinustu árin. Sumarið 1994 fór sá er þetta ritar gangandi „Lauga- veginn". Fararstjóri í þeirri ferð var Sigrún, dóttir Steinunnar. Hún sagði mér frá veikindum móður sinnar og kvað hana hafa sagt, að hún væri staðráðin í því að lifa út það ár. Stein- unn náði enn lengra eða langt fram á þetta ár og var það líkt henni með alla þá þrautseigju og viljastyrk sem hún var búin. Samstarfsfólk Steinunnar í Seðla- bankanum, fyrr og síðar, minnist hennar með hlýju og þakklæti og tjá- ir ættingjum hennar og vinum ein- læga samúð. Björn Tryggvason. Látin er í Reykjavík skólasystir okkar og vinkona, Steinunn Vil- hjálmsdóttir. Kynni okkar era orðin löng og ná alit aftur til skólagöngu í Verzlunar- skólanum árin 1945-’49. Á þeim árum stofnuðum við saumaklúbb, sem hefur verið starfandi alla tíð síðan. Steinunn er önnur, sem fellur frá úr hópnum. Hún var góðum gáfum gædd og námið í Verzlunarskólanum veittist henni auðvelt. Ekki var hún síður mikil hagleiksmanneskja og allt lék í höndunum á henni. Bar heimili henn- ar þess glöggt vitni. Lífsgleði og kjarkur einkenndu hana alla tíð, enda sagðist hún vilja lifa lífínu en ekki lesa um það. Hún var félagslynd og glaðvær og fylgdist alla tíð vel með mönnum og málefnum. Einnig átti hún þess kost að ferðast töluvert um heiminn sér til mikillar ánægju, og nutum við í saumaklúbbnum þess að heyra hana segja frá ferðum sínum. Einni okkar er sérstaklega minnis- stæð ferð til Rúmeníu sumarið 1974, þar sem Steinunn naut sín til hins ýtrasta, og kom þá í ljós hversu fljót hún var að átta sig á staðháttum og kringumstæðum og fá sem mest út úr ferðinni. Síðustu árin urðu Steinunni erfíð, en þá kom glöggt í ljós dugnaður hennar og kjarkur. Árið 1990 greind- ist hún með krabbamein og gekkst undir uppskurð. Sjúkdómurinn lá niðri en tók sig upp aftur 1994 og hefur hún barist hetjulegri baráttu við hann síðan. Þótt hún væri sárþjáð lét hún sig ekki vanta þegar klúbburinn hitt- ist. Okkur er í fersku minni síðast þegar við komum allar saman á fögra sumarsíðdegi. Steinunn var stolt af börnum sínum og bamabömum og minntist oft á hve góð þau væra við sig, og var þakklæti hennar til þeirra augljóst fyrir umhyggjusemi og kærleika. Á tímamótum í lífí okkar, þegar gamlir vinir kveðja, er margs að minn- ast og margt að þakka. Áratuga sam- vistir hafa styrkt vináttuböndin og aukið skilning og samheldni. Við munum sakna glaðværðar hennar og dillandi hláturs. Bömum hennar, tengdabömum og öðram ættingjum vottum við innilega samúð. Blessuð sé minning Steinunn- ar. Saumaklúbburinn. CLINIQUE Glæsileg jólagjöf á tilboðsverði: Tasba: • Augnhreinsivökvi 60 ml. • Rakamjólk 30 ml. • „Body lotion" 45 ml. • Rakakrem 15 ml. • Kinnalitur. • Púðurbursti. Verð 3.085," Sendum i póstkröfu. snyRtivöRuyí:Rsiuni\ (.1 LSIftl' Álfheimum 74, sími 568 5170 5ENDUM I P057KR0FU Art skór áðurkr. 11.490 nú kr. 6.990 Dr. Martens skór herra áður kr. 8.490 nú kr. 4.990 dömu áður kr. 7.990 nú kr. 4.990 Adidas skór áður kr. 6.990 nú kr. 2.990 Laugavegi 67 sími 551 2880 ONNUR TILBOÐ • ÖNNUR TILBOÐ ln Rúllukragapeysur áður kr. 2.990 nú kr. 2.490 Bolir áður kr. 2.490 nú kr. 1.990 TILBOÐIÐ GILDIR EINNIG í KÓKÓ KRINGLUNNI mm Taktur er 10 ára og í tilefhi þess bjóðum við 10-40% af slátt af öllum vörum, Ujómtækjum og geisladiskum Fullkomnustu heimabio landsins veróa í gangi ... , Kf- 9 M ? alarabuoin i bænum nni DOtBY SUHROUNdI flTI 1 DOLBY SURROUNp] I HX P R O • L 0 G I C AW P R O • L O G 1 C “ KENWOOD NAD Æ Acousnc RESEARCH /s lllin þar sem gœðin heyrast Ármúla 17, Reykjavlk, slmi 568 8840 ŒRVER Powerful • Uusical • Accurato Blað allra landsmanna! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.