Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍAUKi
BLAÐSINS
I Mm mm
I
M0RGUN
Jólamatur, gjafir og föndur
Sunnudaginn i. desember nk. kemur út hinn árlegi blaðauki
Jólamatur, gjafir ogfóndur. Blaðaukinn verður sérprentaður á þykkan
pappír og í auknu upplagi þar sem jólablaðaukar fyrri ára hafa selst upp.
í blaðaukanum verður fjallað um hvernig menn gera sér dagamun í mat og drykk
um jólin og hvernig jólaundirbúningi og jólahaldi er háttað. Birtar verða uppskriftir
af hátíða- og jólamat, meðlæti, eftirréttum, smákökum, konfekti og fleira góðgæti,
að ógleymdri umfjöllun um jólavín og aðra jóladrykki. Einnig verður fjallað um
þýðingu jólanna í huga fólks, rætt um jólasiði, jólagjafir, skreytingar og föndur við
fólk víðs vegar um land og þá sem haldið hafa jól á erlendri grund.
Agnes Amardóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir og Petrína Ólafsdóttir,
sölufulltrúar í auglýsingadeild, veita allar nánari upplýsingar í símum
569 1171 og 569 1111 eða með símbréfi 569 1110.
Skilafrestur auglýsingapantana
er ti! kl. 12.00 þriðjudaginn 19. nóvember.
ilfargimMfttoifr
- kjarni málsins!
MIWWINGAR
STEINUNN
VILHJÁLMSDÓTTIR
+ Steinunn Vil-
hjálmsdóttir
fæddist í Reykjavík
1. maí 1930. Hún Iést
í Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 31. október
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Vil-
hjálmur Jónsson
smiður, f. 31.5. 1901,
d. 10.7. 1972, og
Marta Ólafsdóttir, f.
3.6. 1894, d. 12.11.
1983. Systkini henn-
ar eru Karen kenn-
ari, f. 4.1. 1934, og
Manfreð arkitekt, f.
21.5. 1928. Steinunn
lauk verzlunarprófi frá Verzlun-
arskóia íslands 1949. Hún var
mestan hluta starfsævi _ sinnar
einkaritari í Seðlabanka íslands.
Arið 1950 giftist Steinunn
Konráði Þorsteinssyni kaup-
manni, f. 31.8.1919, d. 10.3.1978.
Þau skildu 1964. Fyrrverandi
sambýlismaður hennar er Karl
Karlsson, f. 2.9. 1920. Böm henn-
ar em: 1) Vilmar Þór Kristinsson
flugstjóri, f. 5.6. 1948, giftur
Unni I. Gunnarsdóttur húsmóður,
f. 23.9. 1957. Böm Vilmars em
Vilhjálmur, f. 29.11. 1972, Hlyn-
ur, f. 2.8. 1976, Elísabet, f. 2.12.
Tengdamóðir mín, Steinunn Vil-
hjálmsdóttir, eða Systa eins og hún
var nefnd í daglegu tali, er látin. Mig
langar að minnast hennar hér með
fáeinum orðum. Leiðir okkar lágu
fyrst saman fyrir 17 árum er ég
kynntist dóttur hennar, Mörtu. Systa
var mikill kvenskörungur og það er
óhætt að segja að það var engin logn-
molla í kringum hana enda átti hér
í hlut mikil atorkukona. Eftirfarandi
saga er gott dæmi um það.
Við Marta bjuggum fyrsta árið
okkar í Lönguhlíð og einhvem tíma
barst það í tal hversu ljót væri borð-
platan á eldhúsinnréttingunni. Næsta
laugardag er Systa mætt á staðinn
með nýja plötu og stingsög tilbúin
að taka til hendinni eins og henni var
lagið. Ég veit ekki hvaða iðngrein hún
kunni ekki, og þegar hún gerði upp
íbúðina í Drápuhiíð eftir fráfall móður
sinnar, þá tók hún að sér pípulögn,
parketlögn, flísalögn og rafmagns-
lögn. Garðurinn í Drápuhlíðinni ber
þess líka merki að hann hafi verið
hirtur af dugnaðarforki.
Systa var sannur Islendingur hvað
varðaði ættfræði og var mikill visku-
brunnur um ættir margra íslendinga.
Það var eins gott að vera vel að sér
þegar menn og málefni bar á góma,
því oftar en ekki fylgdi ættartala við-
komandi manna í nokkra ættliði og
því brýnt að fylgjast vel með. Sérstak-
lega fannst henni gaman að ræða um
þau málefni, sem voru efst á baugi
hvetju sinni. Hún var mikil sjálfstæð-
iskona og hafði gaman af að rökræða
um pólitík.
Þau voru ófá skiptin sem Systa og
1977, Steinunn, f.
21.9. 1979, Þórunn,
f. 31.7. 1984, og
Valdís, f. 20.9. 1995.
2) Þorsteinn Kon-
ráðsson, f. 6.5. 1951,
d. 11.11. 1959. 3)
Marta Konráðsdótt-
ir, menntaskóla-
kennari, f. 15.12.
1953, gift Yngva Pét-
urssyni konrektor, f.
11.12. 1951. Börn
þeirra eru Ástrós, f.
26.3. 1981, og Yrsa,
f. 5.12. 1991, en dótt-
ir Yngva af fyrra
hjónabandi er Bára,
f. 23.10.1975. 4) Sigrún Konráðs-
dóttir skrifstofumaður, f. 17.8.
1956, gift Ólafi Guðmundssyni
tölvuráðgjafa, f. 6.8. 1956. Börn
þeirra eru Þorsteinn Konráð, f.
25.7. 1975, Guðmundur Bjarni,
f. 5.4. 1982, og Lóa Sigríður; f.
11.11. 1983. 5) Steinunn Osk
Konráðsdóttir húsmóðir, f. 8.11.
1963, gift Sveini Orra Tryggva-
syni söiustjóra, f. 14.1.1963. Börn
þeirra eru Steinar, f. 10.9. 1987,
og Ásdís, f. 12.9. 1992.
Utför Steinunnar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
fyrrverandi sambýlismaður hennar,
Karl Karlsson, komu í heimsókn til
okkar hjóna til að taka í spil. Oft var
spilað brids fram í morgunsárið og
okkur Systu fannst mjög gaman að
skeggræða um spilin eftir á við tak-
markaðar vinsældir hinna.
Systa var sannkölluð ættmóðir
fjölskyldu sinnar. Um hver jól bauð
hún allri fjölskyldunni heim í mat
og á hveiju sumri fór hún með fjöl-
skyldu sína í vikudvöl í hinum ýmsu
sumarbústöðum Seðlabanka ísiands
víðs vegar um landið. Þá var oft glatt
á hjalla.
Systa var hvíldarþurfí eftir erfíð
veikindi. Hún gekkst undir uppskurð
vegna krabbameins 1990 og háði
harða baráttu við þennan illvíga sjúk-
dóm. Er það með ólíkindum hversu
langvinn þessi barátta hefur verið
en Systa var mjög líkamlega sterk
kona og skaplaus var hún ekki. Það
er fyrst og fremst hinum mikla vilja-
styrk og mannkostum Systu að
þakka hversu lengi henni tókst að
þrauka.
Að endingu vil ég þakka Steinunni
Ósk og fjölskyldu hennar fyrir alla
þá umhyggju sem þau sýndu henni
síðustu árin en ég veit að hún var
móður sinni mikil stoð þetta erfíða
veikindatímabil.
Stórt skarð er höggvið í frænd-
garð fjölskyldunnar í Drápuhlíð við
fráfall ættmóðurinnar, Steinunnar
Vilhjálmsdóttur. Hún var ógleym-
anleg þeim sem kynntust henni, og
það var mér mikið lán að tengjast
henni. Blessuð sé minning hennar.
Yngvi Pétursson.
rlE
xíeí'Öir i>oLa6
slíka meðEfez'ð?
- Magnús Leópoldsson rýfur þögnina um 105 daga gæsluvarðhaldsvist
Árla morguns fyrir tveimur áratugum sótti lögreglan
Magnús Leópoldsson á heimili hans og færði hann í
gæsluvarðhald í Síðumúlafangelsið. í 105 daga var hann í
einangrun, sakaður um morð - jafnvel þótt fljótlega hafi
orðið Ijóst að hann væri saklaus. í bókinni fjallar Jónas
Jónasson um hvaða áhrif það hefur á ungan mann að
lenda saklaus í klóm réttvísinnar á íslandi.
Eftirminiiilegt vcrk
um álíikiiiilc<Ja rcyusln.
4>
VAKA- HELGAFELL