Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Bílaumferð um göngngötu í Hafnarstræti Nauðsynlegt að efla verslun við götuna GREINARGERÐ skipulagsdeildar Akureyrarbæjar um lágmarksað- gerðir og kostnað við að opna göngugötuna í Hafnarstræti tíma- bundið fyrir bílaumferð verður lögð fram á fundi bæjarráðs í dag, fimmtudag. Nokkrar umræður urðu um málið á fundi bæjarstjómar í vikunni, en kaupmenn við Hafnarstræti sendu á dögunum bréf til bæjaryfirvalda þar sem m.a. var spurst fyrir um hvað liði athugun skipulagsnefndar á erindi þeirra frá í fyrra um um- ferð bíla um göngugötu Hafnar- strætis. Lögðu þeir til að gerð verði tilraun með hæga takmarkaða bíla- umferð um götuna frá 15. nóvem- ber næstkomandi til apríl loka á næsta ári, en unnt verði að loka henni ef þurfa þyki. Bæjarfulltrúar voru sammála um að nauðsynlegt væri að reyna að efla verslun við götuna, en skiptar skoðanir eru uppi um hvort lausnin felist í að leyfa bílaumferð um göt- una. „Við verðum að taka á þessu máli, setja í það einhvern pening," sagði Þórarinn B. Jónsson, Sjálf- stæðisflokki; og tók svo til orða að göngugatan við Hafnarstræti væri steindauð. Nefndi hann sem dæmi um að eitthvað væri að þegar svo væri komið að blómabúð á besta stað í miðbænum þrifist vart lengur. Fulltrúar Alþýðubandalags í bæjar- stjórn vilja greiða húsaleigubætur Tillagan felld TILLAGA fulltrúa Alþýðubanda- lagsins um að bærinn greiði húsa- leigubætur til reynslu næsta ár var felld á fundi bæjarstjórnar í vik- unni. Bæjarráð ítrekaði þá skoðun sína á fundi í fyrri viku að það væri hlynnt greiðslu bótanna, en teldi lögin um bæturnar meingölluð og sæi sér því ekki fært að taka þær upp. Telur ráðið að húsaleigu- bætur eigi að greiða í gegnum vaxtakerfið á sama hátt og vaxta- bætur. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði flokkinn ekki leng- ur sjá sér fært að neita að greiða húsaleigubætur á Akureyri, reynt hefði verið að knýja fram nauðsyn- legar breytingar en það ekki tekist. „Það er erfitt að standa gegn því MENNTASMIÐJA kvenna á Akur- eyri býður nú í nóvember tvö helg- arnámskeið fyrir almenning. Það fyrra nefnist „Greinaskrif á tölvu“ en þar flétta Lára Stefáns- dóttir kerfisfræðingur og Björg Ámadóttir blaðamaður saman vinnu á tölvu, ritvinnslu og upplýs- ingaöflun á alnetinu ásamt greina- skrifum. Byggist það námskeið á að ritunin og tölvunotkunin séu samþætt en ekki aðgreind. Seinna námskeiðið ber nafnið „Hvað býr í hellinum?“ og felst í leikrænni tjáningu/meðferð í leið- sögn Kolbrúnar Ernu Pétursdóttur leikara og Magneu B. Jónsdóttur sálfræðings. Þar verður farið með þátttakendur í ferð til að sækja til- að láglaunafólk á Akureyri fái ekki þessar bætur,“ sagði Sigríður. Miðað við upplýsingar frá Reykjavíkurborg áætlaði Sigríður að þegar jafnvægi kæmist á greiðslu bótanna myndu um 200 manns á Akureyri fá greiddar húsa- leigubætur. Meðalupphæð í Reykja- vík væri um 10.300 kónur á mán- uði, heildarupphæðin á Akureyri gæti því numi 24-25 milljónum króna, ríkið greiddi 60% þannig að hlutur bæjarins yrði 8-10 milljónir króna. Bæjarfulltrúar sem til máls tóku töldu ekki ástæðu til að hvika frá fyrri stefnu, þó svo menn væru hlynntir því að greiða bætumar væm lögin svo meingölluð að ekki væri við unandi. finningar sem fá sjaldan að líta dagsins ljós. Unnið verður m.a. með slökun, hreyfingar eftir tónlist og „fantasíu". Skráning á námskeiðin er á skrif- stofu Menntasmiðju kvenna á Akur- eyri, Hafnarstræti 95, 4. hæð, þar sem allar frekari upplýsingar fást. Menntasmiðja kvenna héfur nú hafið sitt þriðja starfsár og eru þrettán nemendur við skólann á þessari fimmtu önn. Menntasmiðjan starfar að fyrirmynd lýðháskóla á Norðurlöndum og hefur starfsemin verið í stöðugri þróun, enda skólinn þróunarverkefni, styrktur af Akur- eyrarbæ, félags- og menntamála- ráðuneytum. Helgamámskeiðin eru ein af nýjungum Menntasmiðjunnar. Morgvnblaðid/Margrét Þóra Bangsabam- ið dregur út vinningshafa LEIKFÉLAG Akureyrar sendi fyrr í haust bækling inn á öll heim- ili á Akureyri þar sem vetrarstarf- ið var kynnt. Bæklingurinn var jafnframt happdrættismiði og eft- ir sýningu á Dýrunum i Hálsa- skógi nýlega fékk bangsabarnið, Auður Jónsdóttir, það hlutverk að draga út 100 heppna vinnings- hafa. Varaformaður leikfélagsins, Hreinn Pálsson lögmaður, fylgdist með, en hann er til hægri á mynd- inni, vinstra megin er leikhússtjór- inn Trausti Ólafsson en á bak við skráir Rebekka Þráinsdóttir niður númerin sem dregin voru út. Stolið úr bókabúð TÖLUVERT tjón var unnið í innbroti í bókaverslunina Eddu í fyrrinótt. Þeir sem þar voru að verki rifu niður hlera á austurhluta hússins Hafnarstræti 100 og komust þannig inn í gegnum millihurð í bókabúðina. Þjófur- inn eða þjófarnir höfðu á brott með sér tölvu, símbréfstæki, töluvert magn af töskum, m.a. skjalatöskum, bækur, ritföng og skiptimynt. Biblíusýning á Ólafsfirði BIBLÍUSÝNING verður opnuð í safnaðarheimili Ólafsfjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn 7. nóvember, og er hún opin frá kl. 17 til 19. Hið íslenska Biblíufélag hefur látið gera sýningarfleka með mynd- um og fræðslu um Bibliuna og er sýningin á ferð um landið. Einnig verða til sýnis fjölmargar Biblíur. Menntasmiðja kvenna á Akureyri Tvö helgarnámskeið haldin í nóvember Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson STÓRIR og smáir sýningargestir fengu að gæla aðeins við sumar slöngurnar. Skriðdýrasýning í Eyjum Vestmannaeyjum - Stóra skrið- dýrasýningin var á ferð í Vest- mannaeyjum í vikunni og voru skriðdýrin til sýnis fyrir Eyja- menn í húsi Hvítasunnusafnað- arins. Sýningin var opin i þrjá daga og var góð aðsókn að henni. Jörundur Guðmundsson, sem stendur fyrir sýningunni, sagði í samtali við Morgunblaðið, að dýrin á sýningunni kæmu frá slöngugarði í Finnlandi og eru margs konar lifandi slöngur, snákar, eðlur, skjaldbökur, sporðdrekar og tarantúlur til sýnis auk safns fiðrilda, flugna og skordýra. Hann sagði að eftir að sýning- in hefði verið opin þrjár vikur í Reykjavík hafi verið haldið með hana í ferð um landið og hafi Vestmannaeyjar verið fyrsti viðkomustaðurinn. Dýrin, sem eru 106 talsins, eru flutt í búrum þeim sem þau eru í á sýningunni í sérstaklega útbún- um sendibíl sem er kyntur þann- ig að ailtaf er um 25 stiga hiti í honum, enda verða dýrin að vera í góðum hita. Fæði handa dýrunum, svo sem mýs, rottur, kjúklingar og fleira hafa starfs- menn sýningarinnar meðferðis en svo fengu þeir einnig síld og loðnu til að fóðra þau á í Eyjum. Jörundur hefur staðið fyrir ýmiss konar sýningum og uppá- komum undanfarin ár. Hann hefur flutt til landsins sex sirk- usa, fimm tívolí og skriðdýra- sýningin er það nýjasta sem hann býður landsmönnum uppá. Jörundur hefur verið öt- ull að ferðast með sýningar sín- ar um landið. „Það er kostnað- arsamt, til dæmis fyrir fjögurra manna fjölskyldu, að koma utan af landi til Reykjavíkur og því vil ég ferðast með þetta um landið til að sem flestir hafi tækifæri á að njóta þess sama og boðið er uppá í höfuðborg- inni og fyrir sama verð og þar er greitt,“ sagði Jörundur. Sérkennslumál rædd á Austurlandi Egilsstöðum - Niðurstöður könn- unar á þróun og stöðu sérkennslu- mála í grunnskólum á Austurlandi voru ræddar á fundi sem haldinn var hjá Svæðisskrifstofu um mál- efni fatlaðra á Egilsstöðum. Þessi könnun er hluti af stærri könnun um þróun heildstæðrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu fyr- ir fatlaða í heirtiabyggð og var hún gerð í 10 bæjar- og sveitarfélögum á Austurlandi. Það var Berit H. Johnsen sem vann þessa könnun og kynnti hún niðurstöðurnar á fundinum. Greindi hún frá viðhorfi til þróunar og stöðu kennslu við hæfi nemenda sem þurfa á sérkennslu að halda og hvemig ábyrgð skiptist milli aðila sem vinna að sérkennslumál- um. Benti Berit á þörf fyrir fræðslu- og ráðgjafarþjónustu grunnskóla og sagði að í könnuninni hefðu komið fram fjölmargar ábending- ar um samstarf og samstarfsaðila svo og að auka og bæta þyrfti samstarf við sérstofnanir á vegum ríkisins, sérskóla og greiningarað- ila á ýmsum sviðum. Mikil áhersla var lögð á að kennsla og þjónusta við nemendur með sérkennslu- þarfir ætti að fara fram í heima- héraði. Heilsubótardagar í Kjarnalundi Arnarneshreppur - Hjónin Sigrún Olsen og Þórir Barðdal hafa ákveð- ið að nýta ákjósanlega aðstöðu í Kjarnalundi og halda þar framveg- is hinn vinsæla heilsubótardag. Starfsemi þeirra er orðin þekkt eftir níu ára starfrækslu á Reyk- hólum. í glæsilegu húsnæði Náttúru- lækningafélags Akureyrar er gest- um boðið upp á fyrsta flokks að- stöðu í eins eða tveggja manna herbergjum sem öll eru með snyrt- ingu og sturtu. „Náttúrufegurð og veðursæld í Kjarnalundi er einstök og eru margvíslegar gönguleiðir í Kjarna- skógi, og gönguferðir eru eitt af því sem boðið er upp á. Annars leggjum við mikið upp úr sérstöku heilsufæði, jóga, hugkyrrð og slök- un,“ sögðu Sigrún og Þórir, „svo og fræðsluerindum og tónleikum en í nýju umhverfi bjóðast að auki nýir möguleikar.“ Hvert námskeið stendur í sjö daga og verður það fyrsta í Kjarna- lundi yfir áramótin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.