Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Bömín okkar og grunnskólarnir SUNNUDAGINN 13. okt. sl. birtist í Morgunblaðinu grein eftir Gunnar Kvaran sellóleikara undir heitinu „Börnin okk- ar“. Grein þessi fjallar um uppeldi bama og skólagöngu, þær hættur sem í dag steðja að uppvaxandi æskufólki, og m.a. koma fram í aukinni neyslu vímuefna, og nauðsyn þess að bregðast við þeim vanda. Greinin er samfelld hvatning og „áskorun til stjórn- valda og allra landsmanna", eins og segir í undirtitli, að taka til hendi við að bæta uppeldi og al- menna menntun barna og unglinga bæði á heimilum og í skólum. En sérstaklega gerir Gunnar sér vonir um að bætt tónlistaruppeldi og ■músíkþjálfun í grunnskólum mundi styrkja þjóðaruppeldið og geta ráð- ið bót á mörgu sálarmeini sem nú hijáir fjölda einstaklinga og samfé- lagið. Ekki má minna vera en þakka Gunnari Kvaran fyrir þessa þörfu og bráðsnjöllu hugvekju. Ég tek heils hugar undir hugmyndir hans um alhliða menntunaráhrif tónlist- ar svo sem þegar lært er að leika á hljóðfæri eða hlusta á tónlist. Að vísu er ég lítt dómbær á skoðan- ir hans í þessu efni. En ég trúi því ''fastlega að hann hafi rétt fyrir sér. Og þessi trú mín nær ekki aðeins til tónlistar heldur einnig og jafnframt til annarra listgreina og handlista. - Sérstaklega finnst mér almennur söngur vera alltof lítið iðkaður í grunn- skólum. - En hér er hægara um að tala en úr að bæta eins og margir hafa komist að raun um. Svo vill til að undi- ritaður hefur í pistlum sínum um skóla- og menntamál oft bent á nauðsyn þess að auka þátt lista og handverks í grunnskólum. Sama hafa margir aðrir skólamenn gert en árangur af þessari við- leitni er harla rýr, a.m.k. innan grunn- skólans. Hins vegar hafa, eins og Gunnar víkur að, á undanfömum 20-30 árum verið stofnaðir margir tónlistarskólar víða um land sem eru ýmist reknir beint af sveitarfélögum eða sem sjálfseignar- eða einkastofnanir með íjárhagslegum stuðningi við- komandi sveitarfélaga (sjá lög nr. 75/1985 og reglugerðir). Nemend- ur þessara skóla borga allhá skóla- gjöld, sbr. grein Gunnars. Tón- listarskólarnir hafa unnið ágætt verk í þágu músíkmenntunar í landinu og eru ein helsta undir- staða þess fjölbreytta tónlistar- starfs sem nú blómstrar og allstór hópur landsmanna nýtur sem betur fer. í grein sinni kemst Gunnar svo að orði á einum stað: „Þótt segja megi að stór hópur barna og ungl- inga stundi tónlistarnám í landinu, hefur þetta nám ekki hlotið þann sess í almenna skólakerfinu, sem það ætti að hafa. Allir nemendur grunnskóla ættu að eiga kost á tónlistarnámi ókeypis." Hér er vik- Grunnskólar, segir J6n- as Pálsson, verði mið- stöðvar fræðslu, félags- starfa og menningar. ið að grundvallaratriði, stöðu tón- mennta í skyldunáminu og þá einn- ig óbeint annarra list- og verk- greina. Ekki er rúm hér til að rekja stöðu list- og verkgreina innan grunn- skóla né heldur ræða kennara- menntun grunnskólakennara í þessum fögum (tónmennt, mynd- mennt, handmennt, heimilisfræði og íþróttum). Ég er í hópi þeirra sem hafa beitt sér fyrir því að þessar greinar væru hluti af hinu almenna kennaranámi og þær eru nú allar kenndar sem valgreinar innan Kennaraháskóla íslands. En vissulega er námstíminn sem ætl- aður er þessum greinum í þriggja ára kennaranámi of naumt skammtaður og mundi svo einnig vera þótt námið væri fjögur ár eins og lögin frá 1988 um Kennarahá- skólann gera ráð fyrir en fjárveit- ingar fást ekki til að framkvæma. (Ég nota eða misnota tækifærið og legg til að almenn kennara- menntun verði 5 ára nám með aukinni áherslu á valgreinar eða valgreinasvið og æfingakennslu. Jafnframt verði almennt mennta- skólanám til stúdentsprófs stytt um eitt ár.) En hvað sem öðru líður hvet ég alla til að lesa hina ágætu grein Gunnars Kvarans og set í lokin á blað fáeina punkta svo sem eins og innlegg í þá umræðu sem grein- in vonandi vekur. Jónas Pálsson. 1. Þeir sem nú vinna að endur- skoðun námskrár fyrir grunnskóla hljóta að gefa hugmyndum Gunn- ars Kvarans sérstakan gaum. Per- sónulega legg ég til að námskrá fyrir byrjendur, 6-9 ára, verði tek- in til gagngerðrar endurskoðunar; grunngerð námsins nánast snúið við^ mikil áhersla frá upphafi lögð á að iðka dans, hljóðfæraleik, söng og frásögn. Börnunum kennt að hlusta einbeitt á músík, sögur og ljóð. Æfð myndræn og leikræn tján- ing og beiting líkamans. Ritun, lest- ur og reikningur samofin þessu grunnefni í markvissri framvindu námsins og í samræmi við getu og skilning hvers nemanda. Með þessu er ekki gefíð í skyn að slá skuli slöku við kennslu og nám í lestri, skrift og reikningi enda sannfæring mín að með þessu lagi muni nám í þess- um greinum ganga betur en ella. 2. Stórauka ber samvinnu milli kennara í leikskólum og fyrstu bekkjum grunnskóla; í rauninni ætti að sameina þessi skólastig hið allra fyrsta. Foreldrar taki skipu- lega þátt í starfí kennara og nem- enda, einkum á yngri aldursstigum. Þetta er sennilega eina leiðin til að gera samstarf heimila og skóla raunhæft og leggja grunn að traustu forvamastarfí með tilstyrk foreldra. 3. Grunnskólar verði í miklu rík- ari mæli en nú er miðstöðvar fræðslu, félagsstarfa og menning- ar í sínum hverfum eða sveitarfé- lagi. Þetta tekur til hvers konar íþróttaiðkana, skemmtana, list- kynninga, upplýsingamiðlunar og stuðnings við nám fólks á ýmsum aldri, bæði barna og fullorðinna. 4. Skilgreina þarf að nýju hlut- verk, starfsskyldur og vinnutíma kennara. Kennslustundin er of ein- hæft vinnuform við núverandi sam- félagsaðstæður. Bekkurinn verði áfram grunneining í skólastarfi en í mun sveigjanlegra formi en nú er algengast. Bæta verður kjör kennara verulega frá því sem nú er og hækka stöðu þeirra í launa- stiga samfélagsins, sbr. grein Helga Hálfdanarsonar „I vænd- um“, Mbl. 1. okt. sl.). 5. í samræmi við þessar hug- myndir er sjálfsagt að tónlistarnám í núverandi tónlistarskólum verði fært, a.m.k. að hluta til, _ inn í grunnskólana eða tónlistarskólarn- ir starfi í nánum tengslum við þá skóla. 6. Meðan landsfeður og stjórn- völd hugleiða málin sýnist mér til- valið fyrir einstaka grunnskóla að móta námskrá eitthvað í þessa veru og starfa sem tilrauna- eða módelskólar. í nokkrum grunn- skólum kunna þegar að vera til drög að námskrá fyrir vissa aldurs- hópa sem stefna í þá átt sem að framan er drepið á. Og einstakir kennarar, einkum í yngri deildum grunnskóla, hafa án efa mótað starfshætti þar sem tónmennt, myndmennt og handlistir eru með ýmsu móti tengdar kennslu í lestri, skrift og reikningi. Vera má að meira svigrúm reynist til skipu- legrar nýbreytni nú þegar grunn- skólinn hefur færst til sveitarfé- laga. Ég skora á sveitarstjórnir að sýna metnað í þessu efni þrátt fyr- ir að víða hljóti fjárhagsstaðan að vera þröng. Og vonandi láta for- eldrar og kennarar ekki sinn hlut eftir liggja. Hér er kjörinn vett- vangur fyrir foreldrafélögin. Kunn- átta kennara til að vinna tilrauna- og þróunarstörf af þessu tagi hefur aukist mikið á síðustu árum. En til þess að nýta þá þekkingu þurfa sveitarfélögin og aðrir opinberir aðilar að bjóða fram tækifæri til vinnu og leggja til fjármagn. - Hugsjónir eru ekki hreyfiafl okkar tíma með sama hætti og í upphafi þessarar aldar. Sem betur fer kunna einhveijir að segja. - En hvað sem um það er skal því áfram treyst að vonir okkar Gunnars Kvarans um „betri“ grunnskóla sem hafi jafnframt jákvæð lang- tímaáhrif á líf fólks í samfélag okkar séu, þrátt fyrir allt, ekki ein- berir draumórar. Höfundur erfyrrv. skólastjóri Æfingaskólans ogfyrrv. rektor Kennaraháskólans. Vandamál taugasálfræðingsins DOKTOR Þuríður Jónsdóttir sendir frá sér þanka um tón- listargagnrýni og veltir þar fyrir sér atriðum, sem hún líklega ætlast til að fái einhveija umfjöllun, þótt reynd- ar sé fátt í vangavelt- um Þuríðar í spurnar- tóni. Greinin byijar á greiningu orðsins gagnrýni og þó ein- göngu um fyrri lið orðsins gagn. Mörgum myndum nær konan út úr þessum fyrri hluta og kann ég ekki að fylgja Þuríði þá ref- ilstigu, enda aldrei dottið í hug að leggja _ slíkan afurþunga á þetta gagn. í einfeldni minni hef ég litið á hugtakið tónlistargagnrýni líkum augum og erlendir löngu viður- kenndir tónlistargagnrýnendur, þó með þeirri undantekningu að reyna að særa ekki þann sem gagnrýnin beinist að og síst af öllu þá sem eru á byijunarreit og fyrst og fremst þurfa ráð og ábendingar ef gagnrýnanda sýnist, eða heyrist, þeir vera á villigötum. Þuríður nefnir engin nöfn í grein sinni, en hún nefnir tónleika Höllu Margrétar, sem fram fóru í íslensku óper- unni og undirritaður var beðinn að skrifa um. Móðursystirin, en svo kynnir Þuríður sig tvisvar í umræddum vangaveltum, kallar þessa umfjöll- un „ótrúlega niðurrifsgagnrýni“. Ef Þuríður getur bent mér á eina setningu í þeim dómi sem kalla mætti niðurrifsgagnrýni, með nokkrum rétti, þá þætti mér það mjög leitt. Að fara nánar út í þessa Ég ráðlegg sálfræð- ingnum, segir Ragnar Björnsson, að dæma ekki þá hluti, sem hann stendur ekki fýrír sem fagmaður. sálma held ég þó að yrði engum til góðs og síst Höllu Margréti. Orðið gagnrýni fínnst mér ekki hafa svo spennandi yfirbragð að borgi sig að liggja lengi yfír því, svona einu sér. Aftur á móti fengi það töluvert skarpara yfírbragð og orðið meiri þunga ef framan á sig fengi það nokkra viðbót, t.d. næt- ur- og yrði þá nætur-gagn-rýni, þannig yrði orðið ólíkt innihaldsrík- ara og skemmtilegra til greiningar. Þuríður kynnir sig sem móður, móðursystur og dr. í taugasálfræði og segist ekki taka mark á gagn- rýni á sitt starf frá öðrum en aðilum úr sama fagi. Mikið vildi ég geta verið sammála henni, og kannski er ég það reyndar innst inni, en mér var kennt og síðar lærði ég, að slíkt er hroki, a.m.k. gagnvart þeirri listgrein sem ég starfa við. Taugasálfræði þekki ég líklega lítið en finnst orðið spennandi og efnið forvitnilegt til greiningar. Hvað veldur því t.d. að taugasálfræðing- ur, sem hlustar ekki á aðra gagn- rýni en frá fagmanni, ætlast til að Ragnar Björnsson hlustað sé á sig sem gagnrýnanda á grein sem hann er ekki fagmaður í, nema að hann telji tíu ára nám í píanóleik hafa gert sig að fag- manni í greininni, en þeir sem kynnst hafa tónlistamámi vita að til eru þeir margir, sem eftir þriggja ára hljóðfæranám ná meiri árangri en margir hinna sem dundað hafa við nám í tíu ár eða lengur. Að verða síðan gjaldgengur fagmaður er önnur saga og önnur ár. Þarna fínnst mér doktorinn flæktur orðinn í einhverskonar taugasálfræði, ef ég skil hana rétt. Hreinni og heil- brigðari þótti mér sálfræði frétta- mannsins, sem var, eins og Þuríð- ur, ósáttur við skrifin um Höllu Margréti í Mbl. en tók fram, áður, eða eftir að hann lýsti vanþóknun á skrifín, að hann hefði raunar ekki þekkingu á því sem hann væri að agnúast út í. Slík yfirlýsing er heið- arleg og á henni tekur maður mark. Þuríður taugasálfræðingur segir í grein sinni að hvarflað hafi að sér hvort heyrn tveggja roskinna gagnrýnenda þurfti athugunar við - og svo frv. Hér gengur fræðing- urinn líklega of langt í vítaverða átt sem kannske er ástæða til að kanna nánar og síðar. Engum seg- ir hún þó neinar nýjar vísindalegar niðurstöður með yfirlýsingu um að heyrnin gefi sig hjá „rosknu fólki“, það vita allir, einnig þeir sem ekk- ert dr. hafa framan við nafn sitt. Hitt þyrfti sálfræðingurinn að vita, að samkvæmt vísindalegum mæl- ingum byijar heyrnin oftast að gefa sig við 25 ára aldur. Annað þyrfti dr. tónleikagestur einnig að vita, að þessi tegund heyrnarmissis hefur ekkert með tónlistarlega skynjun að gera. Um það hvernig gagnrýni ætti að vera er undirritaður nokkurn- vegin sammála doktornum, unnin af fagmennsku, óhlutdrægni og velvilja og þannig held ég að við öll sem við þetta störfum reynum að vinna og ef þessum vegvísum er fylgt er afar sjaldgæft að þol- andinn líti á skrifin sem niðurrifs- gagnrýni og ef flytjandinn á rétt til að kallast listamaður þá veit hann, innst inni, hverju hann á að taka mark og hveiju ekki og ein- hverjir heimskir gagnrýnendur geta ekki eyðilagt sannan og sterk- an listamann, sem eitthvað hefur að segja og þarf að segja það. Listamaðurinn sjálfur móðgast sjaldnast, ef einhver særist eða móðgast þá eru það helst móð- ursystur, móðurbræður eða nánir vinir. Doktorinn leggur til að tónlistar- gagnrýni verði lögð niður ef ekki verði á þeim nótum sem hún telur upp í grein sinni. Ef doktorinn meinar þetta í alvöru og heldur sig tala fyrir hönd allra tónlistar- manna, heur hún greinilega ekki fylgst með umræðum um einmitt þessa hluti, sem nokkrum sinnum hafa komið upp. Ef, aftur á móti, að doktorinn er með sína nánustu í huga þá legg ég til að hann ráði sjálfur þá gagnrýnendur sem hann best treystir til að skrifa um eigið fólk. Ég vona að sálfræðingurinn fari ekki á taugum við lestur þessa skrifs, en ýmsir aðrir eru kannski orðnir langþreyttir á óánægjuskrif- um úr þessari átt og mál að linni. Forvitnilegt væri að vita hvort satt er að doktorinn hafi ekki verið á tónleikunum í íslensku óperunni, sem hann vitnar til í grein sinni. Að lokum vil ég ráðleggja sál- fræðingnum, ef hann vill í ein- hveiju svara þessum skrifum, að reyna að falla ekki í eigin gröf með því að dæma þá hluti sem hann stendur ekki fyrir sem fag- maður, með fullri virðingu fyrir móður, móðursystur og vini margra ungra tónlistarflytjenda. Höfundur er orgelleikari og tónlistargagnrýnandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.