Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Nóvembertilboð
á hreinlætistækjum, stálvöskum,
sturtuklefum o.fl. 25-40% afsláttur
Nýjar bækur
Jón Múli Árnason
• ÞJÓÐSÖGUR Jóns MúIa Árna-
sonar eftir Jón Múla Árnason eru
komnar út.
Þetta eru endurminningar revíu-
höfundarins, útvarpsþularins og
djassáhugamannsins. í bókinni seg-
ir Jón Múliírá. ýmsu sem bar fyrir
augu og eyru þegar hljóðneminn
heyrði ekki til. „I henni má lesa
bæði dularfullar og kímilegar út-
varpssögur frá löngu liðnum tímum,
ævintýri af dísum og álfum, söngv-
urum, af lúðurþeyturum í Iðnó og
Hljómskálanum, sjóarasögur af
sönnum alþýðuhetjum á síld - og
öðrum þeim mönnum sem sjaldnar
er minnst fyrir hetjuskap," segir í
kynningu. Ennfremur segir í kynn-
ingu að Jón Múli kunni að gæða
frásögnina leiftrandi húmor og
hjartahlýju. Bókin er prýdd fjölda
mynda úr lífi og starfi höfundar.
Útgefandi er Mál og menning.
ÞjóðsögurJóns Múla er 335 bls.,
unnin íPrentsmiðjunni Odda hf.
Guðjón Ketilsson gerði kápuna.
Bókin er bók mánaðarins ínóvem-
ber og kostarnú 2.700 kr., en
hækkarí3.880 kr. 1. desember.
HEIMSBYGGÐIN
SONY KV-29X1 SJÓNVARP
frá Japis
að verðmæti 109.650 kr
JAPIS3
Gylfi Magnússon, Kaplaskjólsvegi 41, 107 Reykjavík
FERÐ FYRIR 2 TIL DYFLINNAR
með Samvinnuferðum-Landsýn
að verðmæti 70.000 kr:
Ögmundur Snorrason, Hæðargötu 14, 260 Njarðvík
FRANCITAL HLÍFÐARJAKKI
prjsm
rSKATABUÐIN
Gunnlaugur Atli Sigfússon, Þórunnarstræti 125, 600 Akureyri
Hannes Þröstur Hjartarson, Jöklafold 18, 112Reykjavík
Safnkort ESSO - enginn kostnaður,
aðeins ávinningur
Essdl
Olíufélagiðhf
~50dra —
ingju
iinlnginn!
liiUiiillllJ
bók frá Máli og menningu
að verðmæti 7.980 kr:
Mál
Ámi Þórarinsson, Stekkjartröð 5, 700 Egilsstaðir
Einar Jónasson, Strýtuseli 16, 109 Reykjavík
Ema Tryggvadóttir, Árvangi, 270 Mosfellsbær
Guðlaugur Þór Böðvarsson, Hraunbæ 102b, llOReykjavík
Halldóra Jóhannsdóttir, Teigaseli 1, 109 Reykjavík
Jón Ásmundsson, Ásabraut 12, 245 Sandgerði
Jón Valur Baldursson, Hjarðarholti 15, 800 Selfoss
Kristjana Steinþórsdóttir, Sveighúsum 1, 112Reykjavík
Sophus Magnússon, Túngötu 12,400 ísafjörður
Sturlaugur Jón Einarsson, Heyklifi, 755 Stöðvarfjörður
ogmenrang
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
DOFRI Hermannsson, Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir í
hlutverkum sinum.
Segðu mér eitt-
hvað skemmtilegt
LEIKLIST
Stopp-lcikhópurinn
SKIPTISTÖÐIN
Höfundur: Valgeir Skagfjörð. Leik-
stjóri: Þórarinn Eyfjörð. Hljóðntynd:
Baldur Björnsson, Kári Þór Arnþórs-
son og Þórarinn Eyfjörð. Leikmynd:
Þorvaddur Böðvar Jónsson og Þórar-
inn Eyfjörð. Búningar: Hópurinn.
Förðun: Anna Toher. Tæknimenn:
Guðmundur Pétursson og Walter
Geir. Leikarar: Dofri Hermannsson,
Eggert Kaaber, Hinrik Ólafsson og
Katrin Þorkelsdóttir. Þriðjudagur
5. rióvember.
UNDANFARIN ár hafa skotið
upp kollinum hér á landi leikþætt-
ir, söngleikir og kvikmyndir er-
lendar sem innlendar sem hafa
fjallað að einhveiju leyti eða öllu
um misnotkun vímuefna ýmiskon-
ar. Flest þessara verka hafa haft
takmarkað áróðursgildi gegn fíkn-
inni og sum hver í raun upphafið
heim eiturlyfja og áfengis í mis-
skilinni viðleitni til að skemmta
fólki.
Það er því ánægjulegt að ekk-
ert af framangreindu á við um
þessa sýningu Stopp-leikhópsins.
Sýningin er miskunnarlaus frá-
sögn um fjóra unglinga sem lok-
ast inni á skiptistöð strætisvagna
í byrjun nætur. Ekkert er dregið
undan; raunsæið ræður ríkjum í
söguþræði, texta og látbragði.
Niðurstaðan verður áhrifarík sýn-
ing þar sem skilaboðin eru skýr:
Ef þú byrjar að nota fíkniefni eða
venur þig ekki af þeim hið fyrsta
áttu á hættu að reyna eitthvað
svipað og persónur leikritsins,
þ.e. ef þú verður enn til frásagnar
um ferðina á botninn. Þar ræður
ömurleikinn einn ríkjum í skipti-
stöð þaðan sem engar leiðir eru
færar.
Valgeir Skagfjörð hefur áður
samið leikrit fyrir svipaðan áhorf-
endahóp, þ.e. síðustu árganga
grunnskóla og fyrstu bekki
menntaskóla. Honum fer það vel
úr hendi; hann þorir að nota
tungutak unglinga og nálgast
þeirra hugmyndaheim fordóma-
laust. Sýningar sem hann hefur
sett upp í menntaskólum hafa
hentað leikendum og áhorfendum
þar vel þó að nokkuð hafi skort á
listræna ögun til að verkin hafí
átt erindi til breiðari hóps. Hér þar
sem unnið er með lærðum leikur-
um og vankantarnir sniðnir af
stendur eftir sterk sýning sem
enginn höfundur hefði getað sam-
ið án þess að gjörþekkja viðfangs-
efnið fyrir.
Hópurinn hefur einnig notið
aðstoðar fyrrverandi vímuefna-
neytenda sem var vel til fundið til
að fínna leiknum stað í núinu. Það
er greinilegt að leikarar og leik-
stjóri hafa unnið sýninguna óvenju
vandlega. Þrátt fyrir að hún sé
álíka að lengd og meðalkvikmynd
er hvergi dauður punktur og at-
hygli áhorfenda haldið út í gegn.
Nosturslega unnin hljóðmynd eyk-
ur áhrifamáttinn og gerir sýning-
una aðgengilegri fyrir ætlaða
áhorfendur.
Hvergi sést vonarglæta, persón-
urnar hafa aldrei nógu mikið hug-
rekki til að bera til að brjótast úr
viðjum þeirra aðstæðna sem þær
eru fastar í. Eina gleðin er fram-
kölluð á efnafræðilegan hátt eða
þess krafist að aðrir segi þeirri
persónunni sem dýpst er sokkin
eitthvað skemmtilegt og bægi
ömurleikanum þannig frá eitt
augnablik.
Leikurinn er mjög heildstæður
og alltaf leikið af öryggi og festu.
Ég leiði getum að því að hlutverk-
in séu samin með leikarana í huga,
svo vel henta þau hveijum einum.
Katrín Þorkelsdóttir fer með erfið-
asta hlutverkið en hún nær að
skapa trúverðuga persónu sem
söguþráðurinn spinnst um. Hinrik
Ólafsson leikur hinn skemmda
smáglæpamann sem er sokkinn í
sjálfsvorkunn og er sérstaklega
sannfærandi í átakaatriðum. Egg-
ert Kaaber leikur flóknustu per-
sónugerðina, fyrirmyndardreng-
inn sem leynir á sér og tekst að
gera honum góð skil. Hann þarf
þó að skerpa framsögnina þegar
hraðinn er sem mestur. Dofri Her-
mannsson er hinn ofurvenjulegi
unglingur sem hafði tekist að sigla
milli skers og báru og ekki tapað
áttum þrátt fyrir erfiðleika. Hann
lagði áherslu á að vera sem eðlileg-
astur og náði með því sterkum
áhrifum.
Engin þessara persóna er týpa
frá hendi höfundar heldur eru þær
þrívíðar og haga sér eftir eigin
forsendum. Verkið gengur alger-
lega upp í lokin, enda byggt upp
af natni. Það er ástæða til að óska
leikhópnum til hamingju með at-
hyglisverða sýningu og vona að
sem flestum unglingum verði gert
kleift að sjá hana.
Sveinn Haraldsson
V ínartónleikar
í Borgarnesi
TÓNLISTARFÉLAG Borgarfjarð-
ar stendur fyrir Vínartónleikum í
Hótel Borgarnesi föstudaginn 8.
nóvember kl. 21 og eru þeir þeir
fyrstu af sex tónleikum sem fyrir-
hugaðir eru á vetrardagskrá Tón-
listarfélagsins.
Flutt verða vinsæl verk eftir:
Lehár, Kálmán, Strauss og fleiri.
Flytjendur eru; Signý Sæmunds-
dóttir sópran, Þorgeir Andrésson
tenór, Jónas Þ. Dagbjartsson
fiðla, Anna Guðrún Guðmunds-
dóttir píanó, Páll Einarsson
kontrabassi og Sigurður I. Snorr-
ason klarínettur.