Morgunblaðið - 07.11.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 33
LISTIR
Þættir úr Borgar-
firði og Skaga
BÆKUR
Þjódlcgur
fróðlcikur
ÆÐRULAUS MÆTTU
ÞAU ÖRLÖGUM SÍNUM
Frásagnir ef eftirminnilegum
atburðum og skemmtilegu fólki
eftir Braga Þórðarson.
Hörpuútgáfan 1996 — 237 síður.
Á ÞESSA bók eru ritaðir
tólf þjóðlífsþættir frá fyrri tíð.
Allir voru þeir fluttir í Ríkisút-
varpinu haustið 1995, en birt-
ast nú á prenti auknir og eitt-
hvað breyttir. Sögusviðið er
Borgarfjörður og Akranes.
Virðist höfundi vera þetta efni
handgengið og
hugleikið, því
sjálfur er hann
Skagamaður og
hefur raunar fjall-
að mikið um skylt
efni í fyrri bókum
sínum t.a.m.
Borgfirzkri
blöndu.
Þættirnir tólf
fjalla um ýmis efni
og eru nokkuð
misjafnlega efnis-
miklir og sjálf-
stæðir. Fyrsti
þátturinn rekur í
stuttu máli ævi-
kjör og aðstæður
afa höfundar og ömmu. Það
er eftirminnilegur og einkar
vel gerður þáttur. Þátturinn
Réttir og réttaferðir í Borgar-
firði er borinn uppi af tveimur
frásögnum af slarksömum
göngum og harðsóttri rekstr-
arferð. Næsti þáttur, Sam-
göngur og svaðilfarir, sýnir vel
um hvaða erfiðleika gat verið
að etja. Athyglisverðar eru þar
frásagnir Þórðar í Haga.
Fremur er lítið að græða á
þættinum Brúðkaupssiðir og
brúðkaupsveislur í Borgarfirði,
því flest það sem þar er sagt
er annars staðar að finna.
Skemmtanalíf á Skaganum á
fyrri tíð er nokkuð góður þátt-
ur, einkum vegna kveðskapar-
ins sem þar er. Þá er ágæt
frásögn um skottulækna og
hómópata og ekki síðri um
fyrstu lækna í Borgarfirði. Þar
fannst mér tvennt bera hæst,
hina merku sjúkrastarfsemi
Kristrúnar á Bjargi og upp-
skurð Jón læknis Blöndals í
baðstofunni á Hofstöðum. Góð-
ur er einnig þátturinn af Bjarna
Ólafssyni skipstjóra. Sandgerð-
isár Ákurnesinga og upphaf
verkalýðsbaráttu er fremur los-
aralegur og lítil þörf á honum,
því eflaust kemur mun fyllri
frásögn í 2. bindi Sögu Akra-
ness, sem verið er að skrifa.
Þátturinn Ekkjan og yfirvaldið
Qallar um samskipti Kristrúnar
á Bjargi við Hallgrím hrepp-
stjóra í Guðrúnarkoti. Það er
velsögð og áhrifamikil frásögn,
en ekki fæ ég séð að hún bæti
miklu við hina
góðu bók Þorsteins
frá Hamri. Æsku-
minningar frá
Akranesi eru
minningar höfund-
ar sjálfs og eiga
sem slíkar vissu-
lega fullan rétt á
sér.
Þá kemur að
síðasta þættinum,
Fréttaritarinn
Oddur. Þar segir
frá Oddi Sveins-
syni sem lengi var
fréttaritari Morg-
unblaðsins á Akra-
nesi. Þóttu margar
fréttir hans skrítnar. Þetta er
að mínu viti langbesti þáttur
bókarinnar, byggður á tals-
verðum heimildargögnum.
Oddur þessi var á marga lund
sérstæður maður, velmennt-
aður hugsjónamaður, bind-
indismaður til fimmtugs. Hann
fékkst við ýmis störf, kennslu,
sjómennsku og verslun. Ferð-
aðist vítt um heim. Var laglega
skáldmæltur og orti mikið.
Talsvert er af skáldskap hans
hér, dagbókarbrotum og frétta-
klausum hans úr Morgunblað-
inu.
Vel er frá bókinni gengið og
henni fylgir heimildaskrá og
nafnaskrá. Víst er hún hugnan-
legur lestur þeim sem njóta
þjóðlegs fróðleiks.
Sigurjón Björnsson
Bragi
Þórðarson
Sögur til næstu bæja
LEIKLIST
Frcyvangsleikhúsið
EINÞÁTTUNGAR
Grobbbragur. Texti: Helga Ágústs-
dóttir Dúett: Eraa Ólafsdóttir og
Ingólfur Jóhannsson Smekksatriði.
Höfundar: Helgi Þórsson, Ólafur
Theódórsson og Hannes Öra Bland-
on Ein sveitastemmning. Höfundur:
Ólafur F. Rósinkrans Leikdeild
U.M.F. Reykdæla: Snorri Sturluson.
Ósögulegur ærslaleikur um ævi, ást-
ir og andlát Snorra Sturlusonar eftir
Þorvald Jónsson Einþáttungar sýnd-
ir í Freyvangi í Eyjafirði,
2. nóvember.
HEIMAMENN kölluðu þetta
gleðivöku í Freyvangi og víst er það
að létt var bæði yfir dagskránni og
áhorfendum. Eyfirðingar fengu í
heimsókn félagsmenn í leikdeild
Ungmennafélags Reykdæla í Borg-
arfirði sem sýndi ósögulegan ein-
þáttung um ævi og ástir Snorra
Sturlusonar, en sjálfir brugðu
heimamenn á leik með tveimur
skemmtilegum og á köflum mein-
fyndnum einþáttungum.
En fyrst er að segja frá grobb-
bragnum sem kom undirrituðum
verulega á óvart, svo vel var hann
fluttur. _ Þau sem dúettinn sungu,
Ema Ólafsdóttir og Ingólfur Jó-
hannsson, hafa bæði bráðfallegar
raddir og kunna vel að beita þeim,
einkum þó Ingólfur sem hefur mikla
innlifun og talsverða breidd á radd-
sviðinu. Þau voru bæði kankvís og
glettin og gaman væri að sjá meira
til þeirra og við aðrar aðstæður.
Séra Hannes Örn Blandon leik-
stýrði báðum einþáttungum þeirra
Eyfirðinga og fórst það verk vel úr
hendi. Ekki er mér þó grunlaust um,
hafandi séð fleira til þeirra í Frey-
vangsleikhúsinu, að hann hafi notið
góðar samvinnu leikaranna, en þeir
hafa sumir hveijir prýðilega fram-
sögn og furðu afslappaða og góða
sviðsframkomu. I Smekksatriðinu er
gert góðlátlegt grín að stöðlun og
eftirliti með hreinlæti til sveita og
þar vakti ekki minnsta athygli hund-
ur einn fríður og fagur á feldinn sem
hélt stóískri ró hvað sem á dundi í
kring um hann á sviðinu.
í Einni sveitastemmningu er skop-
ast að ferðalagi Gests Einars Jóns-
sonar um dreifðar byggðir í sjónvarp-
inu í vetur leið. Þar fóru flestir á
kostum og ekki síst Ólafur Theodórs-
son sem fírna fyndinn í framsögn og
látbragði. Einnig er Valþór Brynjars-
son eftirminnilegur sem idíótið og
fyllibyttan Brói Hólm, sem keyrði upp
fjörið hvað sem það kostaði.
Eftir hlé tróðu Borgfirðingar uppi
með Snorra sinn Sturluson. Heldur
voru þeim mislagðar hendur í leiklist-
inni enda þurftu þau að glíma við
efni sem hvorki er fugl né fiskur.
Hins vegar var talsvert sungið í þess-
um einþáttungi um Snorra og þar
margt vel gert, ekki síst hjá Þorvaldi
Jónssyni stórkúabónda í Brekkukoti
í Reykholtsdal (eins og segir í leik-
skrá), en hann er höfundur verksins
og auðsjáanlega mikil driffjöður.
Þá stigu einnig fram fjórir söngv-
arar úr Borgarfirðinum og fóru vel
með nokkur falleg lög, ekki síst hið
fyrsta eftir Bellman.
Guðbrandur Gíslason
Bítur þegar hann flaðrar
KVIKMYNPIR
Bí 6 h ö11 i n
RÍKHARÐUR III
„RICHARD 111“ ★ ★ ★ «/2
Leikstjóri: Richard Loncraine. Hand-
rit: Loncraine og Ian McKellen eftir
leikriti Riciiard Eyre byggðu á leik-
riti Shakespeares. Aðalhlutverk: Ian
McKellen, Annette Bening, Kristin
Scott-Thomas, Maggie Smith, Nigel
Hawthorae, Robert Downey.
MGM/UA. 1996.
MIKIL eftirspurn eftir og áhugi
er nú á bíómyndum gerðum eftir
leikritum William Shakespeares.
Hvert verka hans á fætur öðru er
fest á filmu og njóta þau talsverðra
vinsælda í bíóhúsum. Upphafsmað-
ur bylgjunnar er breski leikhús- og
kvikmyndagerðarmaðurinn Kenn-
eth Branagh, sem lýsti því yfir þeg-
ar hann gerði Hinrik V. fyrir nokkr-
um árum, að hann vildi taka helgi-
svipinn af skáldinu og gera Sha-
kespeare aðgengilegan öllum al-
menningi. Þetta hafa höfundar Rí-
harðs III mjög að leiðarljósi og hafa
gert einskonar „topphasarspennu-
mynd“ (frasi sem bíóin gjarnan
nota til að auglýsa amerískar af-
þreyingarmyndirj og pólitískan
samsæristrylli úr leikriti Shakespe-
ares. Sögusviðið er nýstárlegt í leik-
gerð leikstjórans Richard Loncraine
og leikarans Ian McKellen. Þeir láta
leikritið gerast eftir borgarastyijöld
í Bretlandi í kringum 1930 þegar
uppgangur fasismans var sem
mestur í Evrópu. Og myndin lýsir
einmitt fasistaríki þar sem valda-
sjúkur Ríkharður III í magnaðri
túlkun Ian McKellen fer um eins
og skógareldur með lævísleg ráða-
brugg samsæris og morða á vörum
og er aldrei hættulegri en þegar
hann flaðrar upp um fólk.
Myndin er firnaskemmtileg,
fantalega vel leikin, ekki síst af
McKellen í titilrullunni, og feikilega
spennandi. Loncraine, sér til þess
að ekki er dauður punktur í allri
uppfærslunni en þeir McKellen hafa
þjappað stykkinu í 110 mínútur svo
hér er fráleitt allt leikverkið á ferð-
inni. Ríkharður III er ein magnað-
asta leikpersóna Shakespeares,
djöfull í mannsmynd, bæklaður
bæði á sál og líkama, samsærismað-
ur ógurlegur, samviskulaus barna-
morðingi, bróðurmorðingi, morðingi
kvenna og vina sinna. Valdagræðgi
hans á sér engin takmörk og eins
og McKellen leikur hann nýtur hann
hverrar stundar og er að kafna úr
hrifningu á djöfulskapnum í sjálfum
sér; hvert nýtt óþokkabragð kemur
honum til að brosa og jafnvel í
myndavélina til okkar áhorfenda
með sígarettu í kjaftinum, lítið
montskegg og kryppuna upp í loft.
Stundum hreinlega geislar hann af
taumlausri samsærisgleði. McKell-
en er eins og nýsleginn túskildingur
í hlutverkinu; það glampar á hann
af leikgleði.
Og ef þú vilt færa Ríkharð III í
átt til nútímans hvar betra er þá að
bera niður en í fasistaríki? Myndin
er byggð á leikriti eftir Richard
Eyre, sem vann það fijálslega uppúr
Ríkharði Shakespeares, en sviðsbún-
aður fasismans með hástígvéluðum
svartstökkum og sálarlausum arkí-
tektúr á einkar vel við þegar lýst
er valdasýki Ríkharðs. Hinn fasista-
legi umbúnaður um leikritið er ábúð-
armikill og mjög í takt við innihald-
ið. Ef markmiðið hefur verið að búa
til skemmtilegt bíó fyrir þá sem
annars líta ekki við Shakespeare þá
hefur það náðst.
Leikhópurinn er mjög kræsilegur
og slær hvergi feilnótu og fara
fremstir í flokki Nigel Hawthorne,
Maggie Smith, Annette Bening,
Kristin Scott-Thomas og Robert
Downey. Ríkharður III er öndvegis-
skemmtun.
Arnaldur Indriðason
Ahugasamir listiðkendur á Héraði
Egilsstöðum - Morgunblaðið.
Hópur myndlistarfólks hittist
reglulega á laugardags-
morgnum í Menntaskólanum á
Egilsstöðum og iðkar þar list
sína. Þetta er fólk úr Myndlist-
arfélagi Fljótsdalshéraðs og
hefur það hist við myndsköp-
un að vetrarlagi allt frá því
félagið var stofnað 1991. Til-
gangur félagsins er m.a. að
efla skilning og áhuga á mynd-
list með því að beita sér fyrir
almennri fræðslu, hvetja fólk
til myndsköpunar og styðja
félagsmenn við að koma verk-
um sínum á framfæri. Laugar-
dagsmorgnarnir eru alltaf
fráteknir og þá er teiknað,
málað, skoðuð myndbönd og
spjallað saman. Áuk þessa
hefur félagið staðið fyrir nám-
skeiðum og haldið samsýning-
ar félagsmanna. Félagið fékk
Rakel Pétursdóttur með lit-
skyggnur frá Listasafni ís-
lands sem m.a. voru sýndar í
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
HLUTI félagsmanna úr Myndlistarfélagi Fljótsdalshéraðs
sem hittist á laugardagsmorgnum.
öllum skólum á Héraði.
Stærsta verkefni félagsins
hingað til er yfirlitssýning á
verkum Steinþórs Eiríkssonar
1995 en sú sýning var í ME
og stóð frá júní til ágúst. í
nóvember mun Örn Ingi koma
á vegum félagsins og halda
námskeið fyrir félagsmenn og
aðra áhugasama, en það er í
annað sinn sem hann kemur
og vinnur fyrir félagið.
Kjarvalsstaðir
Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur.
Opið daglega frá kl. 10-18.
fö) SILFURBUÐIN
AX/ Kringlunni 8-12» Sími 568 9066
Þar færöu gjöfina
Nú eru að verða
síðustu forvöð að
panta barna-
myndatökuna og
fá stækkanir
fyrir jól
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 565 4207
Ljósmyndastofa
Kópavogs sími 554 3020
3 Ódýrari