Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Um utanferðir og ís-
lenskt verslunarfólk
MIKIÐ SKELFING
varð ég hissa á grein
sem Magnús L. Sveins-
son ritar í Morgunblað-
ið og birtist laugardag-
inn 2. nóvember sl.
Mér virðist Magnús
hafa verið eitthvað
vanstilltur þegar hann
setti þessa grein sam-
an, og víst er að hann
vandar mér ekki kveðj-
urnar.
Ástæða þessarar
reiði Magnúsar er við-
tal sem Ríkisútvarpið
átti við mig sunnu-
dagsmorguninn 20.
október sl. eftir að fréttamaður
þess hafði sýnt mér bréf til félags-
manna VR, 65 ára og eldri og
óskaði eftir viðbrögðum mínum við
því. Bréfíð er með aðalfyrirsögn-
inni: „Þrjár nætur í Glasgow á
aðeins kr. 19.900 á mann í tví-
býli á Charing Cross Tower.“
Síðan segir: „Nú býðst þér ein-
stakt ferðatilboð. Þriggja nátta
ferð til Glasgow fyrir aðeins
19.900 krónur.“ Og áfram orðrétt:
„Ástæða þessa tilboðs er sam-
komulag sem Versl-
unarmannafélag
Reykjavíkur og Flug-
leiðir hafa gert um
að bjóða félagsmönn-
um VR sem eru 65
ára og eldri að fara í
þriggja daga ferð til
Glasgow.“
Síðar í bréfínu er
rætt um að hótelið
sem dvalið verður í
sé stutt frá öllum
verslununum á Sauc-
hiehall Street, og
ennfremur að
Glasgowborg hafí
lengi verið ein vinsæl-
asta verslunarborgin á meðal ís-
lendinga. Tilboðið gildir í október,
nóvember og til 15. desember
1996 á tilteknum dögum.
Hér fór ekkert á milli mála að
verið var að efna til verslunarferða
til Skotlands af hagsmunasamtök-
um verslunarfólks og Flugleiðum.
Viðbrögð mín voru fyrst og fremst
undrun, þar sem mér fannst þetta
einkar klaufalegt þegar tekið er
tillit til þess hvert er farið, undir
hvaða formerkjum og á hvaða
Ég vísa því algjörlega á
bug, segir Sigurður
Jónsson, að fólk ætti
ekki að fara til útlanda.
tíma. Einnig vegna þess að VR
hafði hafnað aðild að átakinu ÍS-
LENSK VERSLUN - ALLRA
HAGUR sem aðilar í verslun,
þ.e.a.s. Kaupmannasamtök ís-
lands, Félag íslenskra stórkaup-
manna, Samtök samvinnuverslana
og Hagkaup stóðu að til að efla
íslenska verslun og tryggja jafn-
framt atvinnu og kjör verslun-
arfólks. Vissulega kom líka í hug-
ann að um 800 verslunarmenn
hafa að jafnaði verið atvinnulausir
síðustu misserin á félagssvæði
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur. Reyndar kom í ljós síðar að
ég var ekki sá eini sem varð undr-
andi á tilboðinu þegar skrifstofu
Kaupmannasamtakanna fóru að
berast undirskriftalistar frá fé-
lagsmönnum VR í nokkrum versi-
unarfyrirtækjum þar sem tekið var
HUSGAGNAHOLUN
Bíldshöföi 20-112 Rvík - S:587 1199
mm
Þá skaltu koma og líta á ítölsku
leðursófasettin frá PIQUATRO en
þau eru klassísk í alla staði.
Þessi sett eru alklædd nautsterku
gegnumlituðu leðri og er allur
frágangur hinn vandaðasti.
Efþú vilt vandað og fallegt
© ® © leðursett -skaltu velja Piquatro.
Verðdæmi: Melissa sófasett 3-1-
3-2-1 Kr. 335.170,-
-Að sjálfsögðu er
svo hægt að dreifa
greiðslum til
margra mánaða.
Veríö velkomin til okkar
í
Kr. 310.290,-
undir ummæli mín í umræddum
fréttaþætti Ríkisútvarpsins.
Átakið ÍSLENSK VERSLUN -
ALLRA HAGUR miðaði að því að
draga fram þá staðreynd að ís-
lensk verslun á í mikilli samkeppni
við erlenda verslun, ekki síst í
Skotlandi og írlandi. Þetta er ekk-
ert óeðlilegt, og kaupmenn gera
sér fulla grein fyrir að þeir verða
að standa sig í samkeppninni.
Enda vita allir sem það skoða, að
mikið hefur áunnist í þessu efni
og má t.d. nefna að s.k. merkja-
vara t.d. í fatnaði, skóm, úrum og
mörgum fleiri vöruflokkum er á'
sama verði eða ódýrari hér á landi
en í nágrannalöndunum. Markmið
átaksins fólst í því að ná til þriggja
markhópa:
• Neytenda, en þeir voru hvattir
til að kynna sér vöruframboð,
verð og gæði í íslenskum versl-
unum áður en þeir héldu utan
í hinar s.k. borgarferðir sem
einkum eru til Skotlands og
írlands. Með þessu skapaðist
grundvöllur undir raunhæfan
samanburð. Einnig að vekja
athygli á því að fleira skiptir
máli en verð, og því var undir-
strikuð þýðing gæða, ábyrgðar,
skilaréttar og íslensks máls
þegar samanburður er gerður
á innkaupum í íslenskri verslun
eða erlendri.
• Stjórnvalda, sem hvött voru til
að jafna starfsskilyrði íslenskr-
ar verslunar við erlenda. Ymsir
skattar og innflutningsgjöld
eru lögð á íslenska verslun sem
verslanir í nágrannalöndunum
þurfa ekki að greiða. Vakin var
athygli á því að verslunin skilar
þriðjungi allra skatta af at-
vinnustarfsemi á íslandi og rík-
issjóður og sveitarfélög eru í
samkeppni við lönd og borgir
erlendis um tekjur af verslun.
Ætla má að á haustdögum tapi
ríkið um 400 milljónum aðeins
vegna virðisaukaskatts vegna
verslunar íslendinga erlendis,
og 400 verslunarstörf flytjist
með þessari verslun til útlanda.
• Verslana sem þurfa að standa
sig enn betur í samkeppninni
og koma jafnframt á framfæri
sjónarmiðum sínum og áhersl-
um. Árangur átaksins er erfítt
að meta, en vissulega hefði
verið ánægjulegt að hafa versl-
unarmenn sem þátttakendur í
átakinu.
Magnús leyfír sér að halda því
fram að ég sé á móti því að fólk
fari til útlanda þrátt fyrir að hann
telji sig þekkja vel það sem ég hef
sagt eða skrifað á opinberum vett-
vangi á því eina ári sem ég hef
gegnt starfi framkvæmdastjóra
fyrir Kaupmannasamtök íslands.
Þetta er eins fjarri sanni og verða
má, enda hef ég í útvarpi og blaða-
viðtöluni einmitt lagt áherslu á að
það sé sjálfsagt að fólk fari til
útlanda og njóti þess sem þar er
boðið upp á í menningu og afþrey-
ingu. Auðvitað kaupir fólk ýmis-
legt í slíkum ferðum, en ferðaskrif-
stofufólk, sem hefur með örfáum
undantekningum ekki selt haust-
ferðirnar sem verslunarferðir á
þessu hausti, telur að innkaup ís-
lendinga erlendis hafí minnkað
miðað við það sem áður tíðkaðist,
og einkum sé þetta áberandi með-
al yngra fólks og þeirra sem gefa
sér tíma, t.d. viku, í slíkar ferðir.
Ég vísa því algjörlega á bug að
ég hafí nokkurn tíma haldið því
fram að fólk ætti ekki að fara til
útlanda. Mér er tamt að taka svo
til orða að heimskt sé heimaalið
barn, og mér er ljúft að staðfesta
að ég er sömu skoðunar og Magn-
ús að eðlilegt sé að fólk geti farið
til útlanda fyrir skaplegt verð.
Magnús heldur því fram í grein
sinni að ég hafi lítið álit á íslensku
verslunarfólki og andi köldu frá
mér í þess garð. Enn verður mað-
ur undrandi á vitleysunni. Það er
enginn að veitast að öldruðu versl-
unarfólki þótt bent sé á klaufaskap
forystumanna þess, og þegar ég í
sumar gat þess í blaði, að danskt
verslunarfólk hefði áralanga sér-
menntun sem íslenskt verslunar-
fólk hefði ekki, þá var ég aðeins
að skýra frá staðreynd. Ur því að
Magnús fylgist svona vel með orð-
um mínum, hefði hann eins mátt
minnast á að ég hef haft sér-
stakan áhuga á að bæta starfs-
menntun verslunarfólks á íslandi.
í grein sem ég skrifaði nýlega í
Verzlunartíðindi var ljallað um
verslunarmenntun í Danmörku, en
ég sat þar nýlega fund um versl-
unarmenntun á Norðurlöndunum.
Ég hef átt þátt í að móta nýtt
verkmenntanám í verslunarfræð-
um við hinn nýja Borgarholtsskóla
í Reykjavík og ennfremur starfað
í samstarfsnefnd um eftirmenntun
verslunarfólks. Ber þetta vott um
lítið álit á verslunarfólki og andúð
á því?
Magnús bítur svo höfuðið af
skömminni með því að gera mér
upp þær skoðanir vegna fyrri
starfa minna, m.a. í samvinnu-
hreyfingunni, að allir eigi að versla
í kaupfélagi, og vænir mig um
hugarfar þeirra sem dæmdu menn
til hýðingar fyrr á öldum fyrir að
versla á röngum stað. Þar fór
hann alveg með álitið sem maður
hafði af litlum kynnum byggt upp
af honum sem snyrtilegum og
dagfarsprúðum manni. Þegar
menn grípa til þess í málefnaum-
ræðu að reyna að gera lítið úr
persónu andmælenda sinna, er
málefnafátæktin orðin mikil og
fokið í flest skjól. Ég hygg að slík-
ur málflutningur stækki engan.
Ég óska Magnúsi L. Sveinssyni
alls góðs í störfum sínum fyrir
reyk- vískt verslunarfólk.
Höfundur er framkvæmdustjóri
Kaupmannasamtaka íslands.
- kjarni málsins!