Morgunblaðið - 07.11.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 53
i.
I
I
f
>
>
>
J
)
J
I
*
I
>
J
§
y
DANS
Islendingar eiga
marga frábæra dansara
- sagði danski dómarinn Vagn Nymand
DANS
íþróttahúsiö viö
Strandgötu í Ilafnar-
f i r ö i.
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í
5&5 DÖNSUM MEÐ
FRJÁLSRIAÐFERÐ
íslandsmeistaramót í 5&5 dönsum,
með fijálsri aðferð, fór fram í
Iþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði, síðastliðinn sunnudag
3. nóvember.
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNI í
5&5 dönsum, með ftjálsri aðferð,
fór fram í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði síðastliðinn
sunnudag, 3. nóvember. Um 100
keppendur voru skráðir til leiks og
var keppt í 5 flokkum auk flokks
atvinnumanna. Einnig var boðið
uppá keppni í dansi með grunnað-
ferð og í hana voru skráðir rúmlega
160 keppendur.
Keppnin hófst á setningarathöfn
og ræðu varaforseta D.í. Báru
Magnúsdóttur. Ræða Báru var
ákaflega gott innleg í dansumræðu
á Islandi. Þar á eftir fór fram dans-
sýning frá Jazzballetskóla Báru.
Var það stúlknahópur sem dansaði
við kraftmikla tónlist úr Carmina
Burana (Fortuna). Gott atriði það!
Keppendur stóðu sig ákaflega vel
og er hér ætlunin að rekja örlítið
úrlsit dagsins. í flokki 12-13 ára eru
mörg feikilega góð og efnileg dans-
pör og var það strax ljóst að barátt-
an um úrslitasæti yrði hörð. Sérstak-
lega fannst mér standarddansarnir
góðir hjá þessum aldursflokki.
Gunnar Hrafn og Ragnheiður sigr-
uðu, mjög verðskuldað í báðum
greinunum, þau dönsuðu af miklum
krafti og sýndu svo sannarlega hvað
í þeim býr. Þau staðsettu sig sérstak-
lega vel á gólfinu og var það þeim
einnig til góðs. ísak og Halldóra
hafa eflaust komið fast á hæla
þeirra. Þar er á ferðinni ákaflega
gott danspar, með mikla útgeislun
og góða tækni, í þetta sinn held ég
að þau hafi reynt of mikið, á kostn-
að dansins, en góður dans engu að
síður.
Keppnin í flokki 14-15 ára var
nokkuð góð. Það verður þó að viður-
kennast að Benedikt og Berglind
dönsuðu í allt öðrum flokki en hin
pörin, ekki svo að skilja að hin pör-
in hafi ekki dansað vel, þvert á
móti. Benedikt og Berglind báru sig-
ur af hólmi í báðum greinum. í öðru
sæti, í báðum greinum, komu Haf-
steinn og Laufey, sem dönsuðu
standarddansana ákaflega vel, þeim
hefur farið mikið fram að undan-
förnu, dansstaðan þeirra er miklu
afslappaðri og allar línur miklu
hreinni og skýrari, að ekki sé talað
um fótaburðinn. Gott mál! Þau
mættu nota hné og ökkla betur, í
annars ágætlega dönsuðum latin-
dönsum.
Einna mesta spennan var í flokki
16-18 ára. Þar eru pör sem hafa
gert það mjög gott í gegnum tíð-
ina, bæði hér heima og erlendis.
íslandsmeistarar í báðum greinum
urðu Brynjar Örn Þorleifsson og
Sesselja Sigurðardóttir. Þau döns-
uðu sérlega vel á sunnudaginn, af
miklum krafti og innlifun. Þau eru
■greinilega í toppformi þessa dagana
og er árangurinn eftir því. Sigur-
steinn og Elísabet Sif lentu í öðru
sæti í báðum greinum, eftir harða
keppni. Það þarf engum að bland-
ast hugur um það að þarna eru á
ferð ekki síður frábærir dansarar
en Brynjar og Sesselja. Þegar mað-
ur er kominn í þennan gæðaflokk
í dansi er dagsformið það sem skipt-
ir orðið hvað mestu máli, pörin eru
orðin það jöfn tæknilega séð. Form-
ið var einfaldlega Brynjars og Sess-
elju á sunnudaginn.
Úrslit í flokki 19 ára og eldri
komu svolítið á óvart. í standard-
dönsunum sigruðu Brynjar Örn og
Sesselja eftir að hafa dansað frá-
bærlega vel. Árni Þór og Erla Sóley
fundu sig ekki alveg á gólfínu á
sunnudag og hafa oft dansað betur
og tel ég að þar sé aftur komin
spurningin um dagsformið. Það
sama má segja með latin-dansana.
Þar sigruðu Víðir og Magda og
Árni og Erla voru í öðru sæti. Víð-
ir og Magda eru mjög heillandi par
og hafa mikla útgeislun. Þau döns-
uðu miklu betur núna en þau gerðu
í keppni hér heima á dögunum og
eru greinilega að bæta sig. Árni
og Erla dönsuðu latin-dansana vel
á sunnudag og gæti verið að hér
séu að koma fram þau ummæli sem
þau fengu, eftir frábæran árangur
þeirra á World Open á dögunum,
að sporin þeirra séu óvenjuleg og
því marki brennd að annaðhvort lík-
aði dómurunum mjög vel við þau,
eða alls ekki?
í flokki atvinnumanna komu
úrslit í latin-dönsunum á óvart.
Ólafur Már og María voru að keppa
sem atvinnumenn í fyrsta sinn og
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu. I
standarddönsunum sigruðu Jóhann
Örn og Unnur Berglind og komu
þau úrslit ekki svo mjög á óvart!.
Keppnin á sunnudaginn gekk vel
fyrir sig og voru áhorfendur
ánægðir með góðan dag. Dans er
greinilega ennþá á uppleið hér á
Islandi og verður gaman að sjá
meira til þessara frábæru dansara,
sem við eigum, í vetur, þá sérstak-
lega á Norðurlandamótinu, sem
fram fer hér á íslandi 7. desember
nk.
Ég var sammála flestum dómum
og held ég að svo hafi verið um
flesta og tel ég að dómarar hafi
komizt vel frá sínu, en þeir voru;
Vagn Nymand frá Danmörku, Rob-
ert Bellinger, David Osborn, Eddie
Noyce og Sue Walker frá Englandi.
I lokin vil ég hvetja dansáhuga-
fólk til að fjölmenna á keppni sem
þessa, því þar er tímanum vel varið.
Jóhann Gunnar Arnarsson
Leiðrétting!
í greininni um Baráttu hinna beztu
féll út eitt par í upptalningu úr-
slita._ Það voru Daníel Traustason
og Ásta Sóllilja Snorradóttir sem
voru í 6. sæti í flokki 16-18 ára,
þau eru frá Dansfélaginu Kvistum.
Eru þau beðin velvirðingar á þess-
um mistökum.
SIGURSTEINN Stefánsson og Elísabet
Sif Haraldsdóttir lentu í 2. sæti í báð-
um greinum á sunnudaginn. Hér dansa
þau ástardansinn rúmbu.
HÉR eru íslandsmeistarar, í báðum
greinum, í flokki 16-18 ára þau Bryi\j-
ar Örn Þorleifsson og Sesselja Sigurð-
ardóttir. Hér dansa þau paso doble.
GÁMAN að sjá Davíð Arnar Einarsson
á gólfinu á ný. Hér er hann i léttri
sveiflu með nýju dömunni sinni, Berg-
lind Petersen.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
TVÖFALDIR íslandsmeistarar Bene-
dikt Einarsson og Berglind Ingvars-
dóttir. Þau kepptu í flokki 14-15 ára.
ÚRSLIT í DANSIMEÐ
FRJÁLSRIAÐFERÐ
12-13 ára, standard-dansar
1. GunnarH.Gunnars./RagnheiðurEiríksd. GT
2. ísak N. Halldórss./Halldóra Ó. Reynisd. HV
3. Haraldur A. Skúlass./Sigrún Ýr Magnúsd. PM
4.0ddurA.Jónss./KristínMaríaTómasd. HV
5. Guðni R. Kristinsson/Helga Dögg Helgad. HV
6. Gunnar Þór Pálsson/Bryndís Símonard. KV
12-13 ára, suður-amerískir dansar
1. Gunnar H. Gunnarss/Ragnheiður Eiríksd. GT
2. ísak N. Halldórss./Halldóra Ó. Reynisd. HV
3. Haraldur A. Skúlason/SigrúnÝrMagnúsd. PM
4. Ámi Traustason/Aðalheiður Sigfúsdóttir GT
5. Oddur Amþór Jónss/Kristfn M. Tómasd. HV
ó.GunnarÞórPálsson/BryndisSímonard. KV
14-15 ára, standard-dansar
1. Benedikt Einarason/Berglind Ingvarsdóttir GT
2. HafsteinnJónass/LaufeyKaritasEinarsd. GT
3. Snorri Engilbertss./Dóris Ósk Guðjónsd. ND
4. HuginnAmares./SólrúnóskBjömsd. ND
5. Helgi E. Eyjólfes./Helga Huld Bjamadóttir GT
6. Hafsteinn Vaiur Guðjónss./Nfna Haraldsd. Ýr
14-15 ára, suður-amerískir dansar
1. Benedikt Einareson/Berglind Ingvaradóttir GT
2. Hafsteinn Jónass./Laufey K. Einarsd. GT
3. Snorri Engilbertss./Dóris Ósk Guðjónsd. ND
4. Helgi Eiríkur Eyjólfss./Helga H. Bjamad GT
5. Hjörtur Hjartarss./Elín B, Skarphéðinsd. KV
6. Hafsteinn Valur Guðjónss./Nína Haraldsd. Ýr
16-18 ára, standard
1. Brynjar Ö. Þorleifss./Sesse(ja Sigurðard. KV
2. Sigureteinn Stefánss./Elísabet S. Haraldsd. GT
3. DavíðAmarEinareson/BerglindPetereen GT
4. Þorvaldur S. Gunnares./Jðhanna E. Jónsd. ND
ö.HinrikÖmBjarnason/ÞórunnÓskarsdóttir ND
6. Danfel Traustas./Ásta Sólli(ja Snorrad. KV
7. Snorri Júliusson/Eva Hermannsdóttir Ýr
16-18 ára, suður-amerískir dansar
1. Brynjar Ö. Þorleifss./Sesselja Sigurðard. KV
2. Sigursteinn Stefánss./Elísabet S. Haraldsd. GT
3. Baldur Gunnbjömss./Karen B. Björgvinsd. GT
4. Hinrik Öm Bjamason/Þórunn Óskaredóttir ND
5. Þorvaldur S. Gunnarss./Jóhanna E. Jónsd. ND
6. Öm I. Björgvinss./Svanhvít Guðmundsd. GT
19 ára og eldri, standard-dansar
1. BrynjarÖ. Þorleifsson/Sesselja Sigurðard. KV
2. Árni Þór Eyþórsson/Erla Sóley Eyþörsd. KV
3. Davíð Amar Einarsson/Berglind Petereen GT
4. Þorvaldur S. Gunnares./Jóhanna E. Jónsd. ND
ö.HinrikÖmBjamason/ÞómnnÓskaredóttir ND
6. Öm Ingi Björgvinss./Svanhvít Guðmundsd. GT
19 ára og eldri, suður-amerískir dansar
1. VíðirStefánsson/MagdaPozareka GT
2. Ámi Þór Eyþórsson/Erla Sóley Eyþórsd. KV
3. Sigursteinn Stefánss./Elísabet S. Haraldsd. GT
4. HansTómasBjömss./KolbrúnÝrJónsd. Ýr
5. Baldur Gunnbjömss./Karen B. Björgvinsd. GT
6. Hinrik Öm Bjarnason/Þórunn Óskarsdóttir ND
35 ára og eldri, standard-dansar
1. Jón Stefnir Hilmarss./Berglind Freymóósd. ND
2. Bjöm Sveinsson/Bergþóra M. Bergþórsd. GT
Atvinnumenn, standard-dansar
1. Jóhann Öm Ólafsson/Unnur BergLind Guðmundsd.
Atvinnumenn, suður-amerískir dansar
1. Ólafur M. Guðnason/María D. Steingrímsdóttir 2. Haukur
Ragnarsson/Esther Inp Níelsdóttir 3. Jóhann Öm Ólafs-
son/Unnur Berglind Guðmundsdóttir
ÚRSLIT í KEPPNIMEÐ
GRUNNSPORUM
9 ára og yngri, cha, cha, cha
1. Jónatan Örlygsson/Bryndis Maria Bjömsd. GT
2.StefánClaessen/EmaHalldórsd6ttir GT
3. Ásgrímur Geir Logason/Ásta Bjömsdóttir GT
4. Guðmundur R. Gunnarss./Jónína Sigurðard. GT
5. Baldur Kári Eyjólfsson/Sóley Emilsdóttir GT
6. Friðrik Ámason/Inga Maria Backman KV
9 ára og yngri, D-riðill
1. Ólöf K. Þórarinsd./Sigrún Anna Knútsd. GT
2. Anna M. Pétursd./Gunnhildur Emilsd. GT
3. Hólmfriður R. Einared./Stefanía B. Blumenstein GT
4. Bryndís Þórðard./Brynhildur Boliadóttir GT
10-11 ára, cha, cha og jive
1. Davíð Gili Jónsson/Halldóra Sif Halldórsd. GT
2. Sigurður Á. Gunnares./Guðbjörg Þrastard. PM
3. HrafnHjartarson/He!gaBjömsdóttir KV
Ú.GunnarMárJónsson/SunnaMagnúsdóttir GT
5. Benedikt Þór Ásgeiras./Tinna Rut Pétured. HV
5,ÞorlákurÞórGuðmundss./ElvaÁrnad. ND
10-11 ára, D-riðill
1. JóhannaGM/SigrúnLiljaTraustad. GT
2. Lóa Fatumata/Sólveig Gunnarsdóttir ND
3. BerglindÁstþóred./ÞóninnM.Ríkharðsd. Ýr
4. Berglind Helgadóttir/Harpa Kristinsdóttir GT
5. Eva Dögg Sigtryggsd./Laufey Sigurðard. GT
6. Halla Jónsdóttir/Heiðrún BaJduredóttir PM
12-13 ára, standard-dansar
1. HilmirJensson/JóhannaBertaBemburg KV
2. Conrad McGreal/Kristveig Þorbergsdóttir HV
3. Guðmundur F. Hafsteinss./Ásta Sigvaldad. HV
4. HafsteinnM.Hafeteinss./IiljaR.Þórarinsd. HV
5. Eyþór Atli Einarsson/Auður Haraldsdðttir Ýr
6. Páll Kristjánss./Steinunn Þ. Kristjánsd. KV
12-13 ára, D-riðill
1. Guðný Gunnlaugsd./Sigriður S. Sigurgcired. GT
2. Freyja Rós Óskarsdóttir/Ósk Stefánsdóttir KV
S.BjameylngaSigurðard./HildurKarlsd. GT
4. Maria Russo/Svandís Hreinsdóttir GT
14-15 ára, suður-amerískir dansar
1. VictorKnúturVictores./ÞóreyGunnarsd. Ýr
2. Ólafur E. Ólafss./Sigrún B. Blomsterberg GT
3. Bjarki Steingrimsson/Klara Steingrimsd. Ý r
14-15 ára, D-riðilI
1. Hafrún Ægisd./Kolbrún Þorsteinsd. ND
2. Sigrún Ösp Sigutjónsd./Tinna I ngibergsd. PM
16-24 ára, suður-amerískir dansar
1. ArnlaugurEinarsson/KatrinírisKortsd. Ýr
2. Ingi B. Harðars./V algerður Steinbergsd. PM
3. Hlynur Rúnarsson/Elisabet Jónadótttr HY