Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 56
>6 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Ferdinand
Smáfólk
MF(?E,CHAKLIE BROWN.. THANK HOU..
A DRINK OF LDATER
UIILL CALM YOUR
__NERVE5..
C'
IT'5 JU5T
UIMAT I
NEEP..
Gjörðu svo vel, Kalii
Bjarna... vatnssopi
mun róa taugarnar...
5EE? I'M MARDLV
5HAKIN6..ANP
PRETENPIN6 LUCV
ISN'T E\/EN AROUNP..
Þakka þér
fyrir ... þetta
var einmitt það
sem ég þarfn-
aðist...
Sérðu? Ég skelf
varla nokkuð ... og
ég læt sem að Gunna
sé hvergi nærri...
Jæja þá, komum þessari sýningu af stað!
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Reykjavík -
Keflavík
Frá Selmu Hannesdóttur:
FLUTNINGUR innanlandsflugsins
frá Reykjavík til Keflavíkurflugvall-
ar er að mínu mati hin mesta firra,
vegna fjarlægðar og veðurs.
Eg er nýkomin úr utanlandsferð
og lenti á Keflavíkurflugvelli, sem
ekki er svo sem í frásögur fær-
andi. Við lentum í roki, rigningu
og myrkri og svo tók við klukkutíma
akstur til Reykjavíkur. í þessu til-
felli var þetta allt í lagi. En hefði
ég verið að koma úr innanlands-
flugi með lendingu í Keflavík og
þurft að bæta klukkutíma akstri
við ferðina (og það kannski í miklu
verra veðri), þá hefði ég bölvað
mikið ef Reykjavíkurflugvöllur væri
ekki fyrir hendi. Ég tel að öllum
sem ferðast í flugi finnist alveg nóg
hin langa bílferð í viðbót eftir fiug-
ið, bara frá vellinum í Reykjavík
einum saman. A.m.k. öllu lands-
byggðarfólkinu og öllu fólki, sem
er með börn og farangur. Að bæta
50 km akstri við hvert innanlands-
flug (100 km ef farið er báðar leið-
ir) finnst mér bara vitleysa og tíma-
eyðsla. Við lifum í stóru landi þar
sem pláss er alveg nóg og þessi litli
skiki, sem Reykjavíkurflugvöllur er,
dugir skammt til lóðaúthlutunar
borgarinnar í framtiðinni.
Hvað slysahættu varðar, sem
þeir sem vilja völlinn burt ala á,
gæti maður haldið að þeir hefðu
ekki flogið innanlands.
Suðuraðflugið kemur frá sjó frá
Kópavogi, vesturaðflugið kemur frá
sjó. Norðuraðflugið kemur frá sjó
yfir höfnina, þvert á fjórar götur
og svo strax yfir tjörnina. Austurað-
flugið kemur yfir kirkjugarðinn og
þeir sem þar búa eru sjálfsagt ekki
að rekagáttast í því þótt nokkrir
ofan moldu svífí þar yfir á dag. í
flestum borgum erlendis, jafnt höf-
uðborgum sem og öðrum borgum,
fljúga flugvélar yfir byggð og þykir
engum þar það umhugsunarvert
enda batna stöðugt öryggistæki
flugvélanna.
Eitt vil ég benda á, sem ég tel
kost fyrir Reykjavíkurflugvöll og
það er það, að þótt ekki sé á honum
þjónustumiðstöð þá er í grennd ein
besta flugstöðvarþjónusta sem völ
er á, án þess að skuldabaggi fylgi
á ríki eða borg.
Þar nefni ég Kringluna. Þar eru
matstaðir, kaffihús, verslanir og
snyrtiaðstaða. Allt undir sama þaki,
sem kæmi vel að notum sem oft
er þörf á í okkar rysjótta veðri.
SELMA HANNESDÓTTIR,
einkaflugmaður.
Orkugjafinn
Naten
Frá Margréti, Steingerði, Helen og
Svövu Steinarsdætrum:
ÞEGAR haustmyrkrið færist yfir
og vetrarkvíðinn sest að mönnum
fer fólk að hugsa fyrir bætiefnum
til að hjálpa sér gegnum skamm-
degið. Við systur rákumst á umfjöll-
un um undraefnið propolis og
ákváðum að reyna á sjálfum okkur
áhrifamátt þess. Propolis reyndist
ekki fáanlegt en við vorum hins
vegar svo heppnar að rekast á sér-
fræðing í afurðum býflugnabúsins
og hann benti okkur á Natenstauk-
inn; sá inniheldur blómafijókorn,
drottningarhunang og propolis í
réttum dagskammti. Efni þessi eru
talin vinna mjög vel saman og
bæta hvert annað upp. Blómafijó-
kornin innihalda öll næringarefni
sem h'kaminn þarfnast, drottningar-
hunangið er hreinn orkugjafi og
byggir auk þess upp frumur líkam-
ans og propolis byggir upp ónæmis-
kerfið.
Og reynslan hefur sýnt að vænt-
ingar til þessara efna standast. Við
erum allar sammála um að við finn-
um minna fyrir þreytu en áður,
þurfum minni svefn og dregið hefur
úr matarlyst hjá einni sem sannar-
lega fagnar því. Á ferð yfir nokkur
tímabelti nú um daginn þótti henni
með ólíkinum hversu lítið hún fann
fyrir ferðaþreytu.
Önnur er haldin sykursýki, mígr-
eni auk velja- og liðagigtar. Hún
telur sig hafa meiri orku en áður
og finnur þar af leiðandi til aukinn-
ar bjartsýni og höfuðverkjarköstum
hefur fækkað. Sú þriðja hefur verið
viðkvæm í maga en síðan líða tók
á Naten-kúrinn hefur minni borið
á því.
Við erum allar ákveðnar í að
halda áfram að taka inn undraefni
býflugnabúsins okkur til heilsubót-
ar og það sem meira er að fjölskyld-
an er öll farin að taka inn Naten.
Fyrir hönd okkar systranna,
STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík.
Hvað skal segja? 58
Er rétt að segja: Ég ætla til Lúxembúrgar.
Svar: Orðliðurinn burg í erlendum staðanöfnum hefur að eðlileg-
um hætti orðið borg á íslensku. Rétt væri: Ég ætla til Lúxemborg-
ar. Vonandi verður Hamborg seint kölluð Hambúrg á voru máli.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.