Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
\
FRÉTTIR
Fyrirtækin í
Orfirisey um-
flotin um tíma
HVASSVIÐRI gerði nokkurn usla
í Reykjavík og nágrenni í gær-
morgun, en engar teljandi
skemmdir hlutust af. Einu
skemmdirnar, sem tilkynntar voru
lögreglu, urðu þegar vinnupallar
féllu á bíl við Laugaveg. Eina
skráða tilfellið um meiðsli vegna
veðurofsans varð þegar eldri kona
fauk um koll. Hún kvartaði undan
eymslum í mjöðm og var flutt á
slysadeild.
Vindhraðinn í Reykjavík var að
meðaltali 9-10 vindstig í gær-
morgun, en úr honum dró þegar
leið að hádegi, þótt hraðinn ryki
upp í skörpum hviðum. Þang og
smásteinar gengu upp á götuna
við Eiðisgranda, eins og oft gerist
í hvassri suðvestanátt, en engin
vandræði sköpuðust í umferðinni
vegna þessa.
Sjór gekk á land
Á Hólmaslóð úti í Örfirisey gekk
sjór á land og voru fyrirtæki þar
nánast umflotin um tíma. Sjór
flæddi inn í hús, en lögreglan hafði
engar upplýsingar um skemmdir.
Sjórinn lét einnig vita af sér í
Skeijafirðinum. Slökkviliðið var
kallað að húsi við Gnitanes og
flæddi þar inn í kjallara. Húsið
stendur nánast frammi á sjávar-
kambinum. Slökkviliðið leitaði að-
stoðar borgarstarfsmanna við að
stemma stigu við flóðinu.
Slökkviliðið þurfti að veita að-
stoð víðar. Þakplötur losnuðu af
húsi við Barmahlíð og öðru við
Sólheima, en í báðum tilvikum var
létt verk að hindra fok. Að sögn
varðstjóra slökkviliðsins var
óvenju lítið um tilkynningar vegna
foks. Hann sagði að fólk virtist
hafa haft varann á.
Morgunblaðið/Júllus
LÖGREGLAN strengir borða og lokar þannig umferð á Örfirisey, þar sem fyrirtæki voru umflotin sjó.
Veginum lokað
Loka þurfti veginum um Kolla-
§örð um tíma í gærmorgun, þar
sem gijót kastaðist á land og upp
á veg. Vegfarendur gátu þó notað
gamlan veg, sem liggur hærra
uppi í landi við Mógilsá.
Þá var vegurinn að sandgryfjum
í norðanverðum Kollafirði lokaður
vegna mikils sandfoks.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
BORGARSTARFSMENN og íbúar þurftu að taka til hendinni
þegar sjórinn leitaði inn, eins og í kjallara húss í Skjólunum.
Níu til tíu
vindstig og
miklar rok-
ur á milli
VINDHRAÐI í Reykjavík í gær-
morgun var að meðaltali 9-10 vind-
stig, að sögn Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings. Stórstreymt
var í gærmorgun og gekk sjór því
víða á land.
Einar sagði að erfitt væri að
meta hvenær hámark hvassviðrisins
var. „Vindurinn hafði náð 9-10
stigum um kl. 6 um morguninn og
hélt þeim styrk fram eftir morgni.
Um hádegi hafði lítillega dregið úr,
en rauk enn upp í éljum.“
Úr 40 hnútum upp í 83
Einar sagði að á Vestfjörðum
hefði verið staðbundið mjög slæmt
veður í fyrrinótt. „Víða voru 9-11
vindstig með morgninum og það
sama má segja um Norðurland
vestra. Einkenni þessa vinds fram-
an af var hvað hann var byljóttur.
Það komu miklar rokur. Sem dæmi
má nefna, að á ísafjarðarflugvelli
var meðalvindhraði 9 vindstig, eða
40 hnútar, en svo rauk hann upp
í 83 hnúta í einstaka hviðum. Svona
hegðar hann sér oft á þessum slóð-
um í suðvestanátt."
Einar sagði að í dag myndi lægja
um allt land. Áfram yrði éljagangur
á Vestur- og Norðvesturlandi en
um helgina yrði hæg norðvestan-
og norðanátt með kólnandi veðri.
-----------♦ ♦ «-----
Ekkert flug
innanlands
INNANLANSDFLUG Flugleiða lá
niðri í gær, vegna hvassviðrisins.
Síðdegis í gær var ljóst að ekk-
ert yrði flogið til Vestfjarða, en þá
var vonast til að hægt yrði að fljúga
til annarra landshluta. Ekki lægði
þó nóg til þess og endaði því með
að innanlandsflugið lá alveg niðri.
i
Umræður um Ríkisendurskoðun og umboðsmann Alþingis
Hlutverk stofnana Al-
þingis skilgreint nánar
FRUMVÖRP til laga sem miða að
breytingum á löggjöf um Ríkisend-
urskoðun og þingsköp eru nú á
lokastigi vinnslu og munu verða
kynnt þingflokksformönnum á
næstunni. Þetta kom fram í máli
Ólafs G. Einarssonar, forseta Al-
þingis, er hann mælti fyrir starfs-
skýrslu Ríkisendurskoðunar 1995
á þingi í gær. Sambærilegt frum-
varp um breytingu á lögum um
embætti umboðsmanns Alþingis
er einnig væntanlegt.
Ólafur sagði tilgang breyting-
anna á lögum um Ríkisendurskoð-
un vera fyrst og fremst þann að
lýsa hlutverki og heimildum stofn-
unarinnar með skýrari og fyllri
hætti en gert er í gildandi lögum.
í þessu sambandi vísaði Ólafur
einnig til breytinga á þingskapar-
lögum, sem nú er frumvarp í burð-
arliðnum um.
Farvegur fundinn til umræðna
um skýrslur
Hann sagði að meðal breytinga
sem hann og forsætisnefnd þings-
ins vildi sjá á þingsköpunum væri
að stjórnsýsluendurskoðunar-
skýrslum Ríkisendurskoðunar
yrði fundinn fastur farvegur til
umræðu á Alþingi. Til þessa væri
heppilegast að stofna nýja fasta-
nefnd Alþingis, sem hefði það
hlutverk m.a. að fjalla um þessar
skýrslur Ríkisendurskoðunar og
leggja fram nefndarálit um þær
þannig að þær geti komið til
umræðu á þinginu með formleg-
um hætti en ekki einungis í um-
ræðum utan dagskrár eins og nú
er.
Benti Ólafur á að í þjóðþingum
Norðurlandanna eru starfandi svo-
kallaðar stjórnarskrár- og eftirlits-
nefndir sem m.a. er ætlað að fjalla
um stjómarskrárfrumvörp sem og
að sinna sérstaklega eftirlitshlut-
verki þingsins með framkvæmda-
valdinu.
Brezka ríkisendurskoðunin
gerir úttekt á þeirri íslenzku
í máli þingforseta kom einnig
fram, að starfserhi Ríkisendur-
skoðunar sjálfrar sé ekki undan-
skilin óháðu eftirliti í því skyni að
kanna hvort stofnunin gegni vel
því hlutverki sem henni er ætlað.
Ólafur greindi frá því að brezka
ríkisendurskoðunin hefði í kjölfar-
ið á þar að lútandi beiðni Sigurðar
Þórðarsonar ríkisendurskoðanda
frá sl. sumri tekið að sér að taka
út starfsemi systurstofnunarinnar
íslenzku, og til standi að vinna að
þeirri úttekt heíjist á fyrri hluta
næsta árs.
Almennt gerðu þingmenn góðan
róm að starfsskýrslunni og lýstu
ánægju sinni með þá reynslu sem
fengizt hefur af starfsemi Ríkis-
endurskoðunar.
Skýrsla umboðsmanns
Alþingis
Sömu sögu er að segja af um-
ræðum um skýrslu umboðsmanns
Alþingis 1995. Sólveig Péturs-
dóttir, formaður allsherjarnefnd-
ar, kynnti skýrsluna. í máli henn-
ar kom fram að tillögur um nán-
ari skilgreiningu á hlutverki og
heimildum embættisins yrðu
kynntar bráðlega í nýju lagafrum-
varpi. Jóhanna Sigurðardóttir
óskaði eftir nánari upplýsingum
um í hveiju fýrirhugaðar breyt-
ingartillögur fælust. Ólafur Ein-
arsson svaraði því til fyrir hönd
forsætisnefndar að ekki væri
tímabært að greina frá efnisatrið-
um frumvarpsins að svo stöddu
en hét því að það yrði lagt fram
á haustþingi.
I
I
I
I
l
i
I
i
I
I-
Safn til minningar
um Eystein Jónsson
ILONGUBUÐ á Djúpavogi
hefur verið opnað safn, Ráð-
herrastofa Eysteins Jónssonar,
til minningar um Eystein Jóns-
son ráðherra og konu hans
Sólveigu Eyjólfsdóttur. Þar
eru til sýnis ýmsir persónuleg-
ir munir og húsgögn úr skrif-
stofu Eysteins og handunnir
gripir eftirSólveigu.
Það var Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, sem
opnaði safnið ásamt Sigríði
Eysteinsdóttur þann 13.
nóvember en þann dag hefði
Eysteinn orðið 90 ára. Við opn-
unina fluttu ávörp þeir Halldór
Ásgrímsson formaður Fram-
sóknarflokksins, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Ólafur Ragnars-
son sveitarstjóri og Eyjólfur
Eysteinsson talaði fyrir hönd
aðstandenda.
Að sögn Ólafs Ragnarsson-
ar, verður safnið í Löngubúð
formlega tekið í notkun í júní
næstkomandi þegar verk Rík-
harðs Jónssonar myndhöggv-
ara, hafa verið sett upp en
hreppurinn hefur eignast safn
hans, sem er á Grundarstíg í
Reykjavík.