Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEMT
Haldið fram að mistök flugmanns hafi valdið flugslysinu á Indlandi
Viðvörun barst nokkrum
sekúndum fyrir áreksturinn
Nýju Delhi. The Daily Telegraph.
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR á
flugvellinum í Nýju Delhi vöruðu
flugmenn flutningavélarinnar frá
Kasakstan við nokkrum sekúndum
áður en vél þeirra lenti í árekstri
við farþegaþotu frá Saudi Arabíu
á þriðjudag með þeim afleiðingum
að 349 manns létu lífið.
Indversk yfírvöld sögðu líklegast
að um mistök flugmanns hefði
verið að ræða og vörðu öryggisvið-
búnað á Indlandi. í gær hófu Ind-
veijar opinbera rannsókn málsins
og var hæstaréttardómari skipaður
til að stjórna henni.
H.D. Deve Gowda, forsætisráð-
herra, sem fór á slysstað á mið-
vikudag, varaði við fljótfærni og
sagði að rétt væri að bíða þar til
skýrsla um málið kæmi fram. Fyrr
væri ekki hægt að slá því föstu
að um mistök flugmanna hefðu
leitt til slyssins.
Yfirmaður öryggismála hjá ind-
verska flugfélaginu Indian Airli-
nes, S.S. Panesar, var ekki jafn
varkár og forsætisráðherrann:
„Þetta voru 100 prósent mistök
flugmanns. Við gerum stundum
mistök."
Srikanta Kumar Jena ferða-
málaráðherra hafnaði tilgátum um
að rekja mætti slysið til úrelts rat-
sjárbúnaðar og sagði að jafnt bún-
aður sem starfslið uppfylltu alþjóð-
leg skilyrði.
Flugmálayfírvöld á Indlandi
birtu á miðvikudag afrit af sam-
skiptum flugstjóra vélanna við
flugtum á flugvellinum í Nýju
Delhi síðustu augnablikin áður en
slysið átti sér stað. Þar kemur fram
að flugmaður kasakstönsku vélar-
innar spurði: „Segið mér, hvað eru
margar mílur í vélina?“ Flugum-
ferðarstjóri svaraði að farþegaþot-
an nálgaðist og væri í 13 mílna
fjarlægð. Nokkrum augnablikum
síðar skullu vélamar saman 60
mílum vestur af Nýju Delhi.
Afritið sýnir að flugmaður Ily-
ushin-76-vélarinnar frá Kazakh
Airways hafí fengið fyrirskipanir
um að halda sig í 15 þúsund feta
hæð í aðfluginu að Indira Gandhi-
flugvellinum. Farþegaþotan, sem
var að fara á loft, hafði fengið
fyrirmæli um að vera í 14 þúsund
feta hæð.
Flugmenn meðtóku
skipanir
Samkvæmt frásögnum á mið-
vikudag var talið að vélin frá Kas-
akstan hefði hafnað ofan á far-
þegavélinni í 14 þúsund feta hæð
sex mínútum eftir flugtak þeirrar
síðarnefndu. Samkvæmt afritum
af samtölum úr flugturni höfðu
flugmenn beggja véla meðtekið að
þúsund fet ættu að vera á milli
véla þeirra.
„Það kemur skýrt fram á upp-
Reuter
ÆTTINGJAR leita að eigum skyldmenna, sem fórust í flugslysinu
á Indlandi á þriðjudag með þeim afleiðingum að 349 manns létu lífið.
Árið 1996 ár
flughörmunga
London. Daily Telegraph.
JAFNVEL fyrir harmleikinn við
Nýju Delhí var árið 1996 að
verða hið versta í sögunni hvað
flugöryggi varðar í a.m.k. ára-
tug. Flugslys, sem höfðu dauða
í för með sér, voru orðin rúm-
lega 30 og manntjónið i þeim
meira en 1.100 manna ársmeðal-
taliðfrá 1986.
Það sem veldur sérfræðingum
mestum áhyggjum er, að dauðs-
föllin undanfarin þijú ár eru 25%
fleiri en 10 ára meðaltalið segir
til um. Flugfélög haldaþvi enn
fram, að tölfræðilega sé flug
öruggasti samgöngumátinn því
aðeins verði eitt slys í hverri
hálfri milljón flugferða.
En þau eru þó meðvituð um,
að flugslysum muni fjölga misk-
unnarlaust með vaxandi flug-
umferð. Farþegafjölgunin nem-
ur 6% á þessu ári og búist er við
að árið 2008 ferðist tvöfalt fleiri
í áætlunarflugi í heiminum en í
dag.
Bandaríska loftferðaeftirlitið
(FAA) hefur haldið fram, að
„stórslys" gæti átt sér stað 10.
hvern dag þegar flugumferðin
nær því marki. Myndi það leiða
til þverrandi trausts á flugi sem
samgöngumáta verði ekki auk-
inn kraftur settur í að reyna
draga úr hættum á flugslysum.
í norðanverðri Ameríku og
Evrópu kemur flugferðum til að
fjölga jafnt og hægt en því er
spáð, að fjölgunin verði mun
hraðari í Asíu og á Kyrrahafs-
svæðinu. Er þó álagið á óskilvirk
og vanþróuð flugsljórnarsvæði á
þeim slóðum ærið fyrir.
Að mati alþjóðasamtaka at-
vinnuflugmanna (IFAPA) eru
helstu hættusvæðin í dag yfir
miðri Afríku þar sem flugmenn
eigi oft í mestu erfiðleikum að
ná talstöð varsambandi við flug-
stjórnarmiðstöðvar. Svipaðra
aðstæðna gæti á vissum svæðum
Suður-Ameríku.
tökunni af samtalinu að áhafnir
beggja véla skildu og staðfestu
fyrirmælin," sagði Yogesh
Chandra, framkvæmdastjóri ind-
versku flugmálastjómarinnar.
Chandra sagði að við fyrstu
skoðun flugrita virtust mannleg
mistök hafa valdið slysinu. Svo
virtist sem vélamar hefðu ekki
skollið beint saman, enda væri
flugstjómarklefí og skrokkur Ily-
ushin-vélarinnar í heilu lagi, fram-
rúða vélarinnar hefði verið heil og
engin merki um bruna væru á lík-
um þeirra 38 manna, sem vom um
borð í henni.
Vélin frá Saudi Arabíu varð hins
vegar fyrir sýnu meira tjóni, enda
var mun meira eldsneyti í vélinni
þegar áreksturinn varð.
Tvær tilgátur hafa verið settar
fram um orsakir slyssins. Annars
vegar er talið að það megi rekja
til ófullnægjandi og úrelts ratsjár-
búnaðar á flugvellinum í Nýju
Delhi og hins vegar að ástæðan
sé tungumálaörðugleikar flug-
stjóra vélarinnar frá Kasakstan.
Lítið svigrúm af
„öryggisástæðum"
Flugmenn og samtök flugum-
ferðarstjóra sögðu að einn þáttur
í því að slys af þessu tagi gæti átt
sér stað væri að indverski herinn
neitaði að veita nægilegt rými fyr-
ir flutninga- og farþegaflug um-
hverfís Delhi. Höft á flugumferð
við borgina hefðu verið sett af
óútskýrðum „öryggisástæðum“.
í raun liggur ein rás til og frá
flugvellinum í Nýju Delhi og sagði
flugmaður hjá Indian Airlines að
þessi rás annaði ekki vaxandi flug-
umferð um alþjóðlega og innan-
landsflugvöllinn, sem er skammt
frá. Hann sagði að sjö af 27 flug-
slysum á Indlandi frá 1966 hefðu
átt sér stað á og í grennd við flug-
vellina í Nýju Delhi og mætti að
miklu leyti rekja til þessarar einu
rásar að þeim.
Túlkarí
flugstjórnarklefum
Tungumálaörðugleikar eru tíðir
í samskiptum við flugmenn véla
frá Sovétríkjunum fyrrverandi og
hafa indversk yfirvöld sagt að
sennilega sé ástæðuna að finna
þar. Embættismenn indversku
flugmálastjórnarinnar sögðu, að á
undanfömu ári hefði legið við
árekstri 10 sinnum vegna sam-
skiptavanda. Stjóm flugmála á
Indlandi hefði fyrir þessar sakir
haldið fund erlendra flugfélaga,
flestra frá Sovétríkjunum fyrrver-
andi, til að ráða bót á vandanum.
Skorað hefði verið á flugmenn frá
Samveldi sjálfstæðra ríkja að bæta
enskukunnáttu sína og bæta flug-
hæfni.
Ferðamálaráðherra Indlands,
Srikanta Kumar Jena, sagði að
verið gæti að flugmaðurinn frá
Kasakstan hefði misskilið fyrir-
mæli flugtums. „Mér hefur verið
sagt að flugmanninum frá Kas-
akstan hafí verið skipað að halda
sig í 15 þúsund fetum, en hann
hafí haldið áfram að lækka flug-
ið,“ sagði Jena.
Ajit Singh, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri flugmannasam-
bands Indlands, sagði að flugmenn
frá Sovétríkjunum fyrrverandi
hefðu oft túlk til aðstoðar í flug-
stjómarklefanum. Margir ættu erf-
itt með að átta sig á flughæð og
leiðum, sem flugumferðarstjórar
segðu þeim að fylgja. Ekki minnk-
aði vandinn við það að þessir flug-
menn reiknuðu fjarlægðir í metmm
en ekki fetum.
BBC setur sér
víðtækar siðareg-lur
Ströng
ákvæði um
kynlíf og
ofbeldi
London. The Daily Telegraph.
BBC, breska ríkisútvarpinu,
hafa verið settar nýjar og
strangar reglur varðandi of-
beldi, kynlíf og klúrt orðbragð
í sjónvarpi og starfsmönnum
þess hefíir verið skipað að
gæta fyllsta hlutleysis enn
betur en áður.
Sir Christopher Bland, yfír-
maður BBC, segir, að nýju
reglurnar séu „víðtækustu
siðareglur fyrir hljóðvarp",
sem settar hafi verið, en þær
koma á sama tíma og Vigin-
ia Bottomley þjóðmenningar-
ráðherra hefur boðað til
fundar með forsvarsmönnum
sjónvarpsstöðva í Bretlandi.
Þar verður rætt hvernig
dregið skuli úr ofbeldi í sjón-
varpi.
í nýju reglunum er frétta-
mönnum til dæmis bannað
að greiða vitnum í glæpamál-
um fé fyrir að segja sögu sína
og er það að gefnu tilefni,
réttarhöldunum yfír Rose-
mary West. Þá er sérstakur
kafli um börn og hvers skuli
gæta þegar þau koma fram
i sjónvarpsmyndum og nýjar
og strangari reglur eru um
friðhelgi einkalífsins.
Vaxandi áhugi á friðhelgi
einkalífsins
Will Wyatt, aðalfram-
kvæmdastjóri BBC-útvarps-
ins, segir, að raunar hafi
afstaða almennings breyst
mikið og fólk kippi sér ekki
lengur upp við kynlífslýsing-
ar. „Fólk hefur samt alltaf
haft áhyggjur af ofbeldi og
nú hefur áhugi flestra á frið-
helgi einkalífsins aukist mik-
ið. Fólk er líka miklu við-
kvæmara fyrir því hvernig
konum er lýst en það var
fyrir 15 eða 20 árum,“ sagði
hann.
Um kynlífslýsingar á
skjánum segir, að þær megi
ekki slíta úr samhengi við
þær siðferðilegu spurningar,
sem kynlífínu fylgja í daglega
lífínu, og sagt er, að kynlífs-
lýsingamar eigi ekki aðeins
að tengjast eða snúast í
kringum kynþokka viðkom-
andi persóna. Þá segir einnig,
að framleiðendur verði að
hafa í huga, að stór hluti
áhorfenda hafí ímugust á
ástaleikjum samkynhneigðra.
Um leið er minnt á, að sam-
kynhneigðum sem öðrum
minnihlutahópum verði að
sýna fyllstu virðingu.
Föstudaginn 15. nóvember kynnum við hina frábæru netþjéna
frá IBM sem nú fara sigurför um allan heim.
Við kynnum mismunandi gerðir
netþjéna, með áherslu á þær gerðir
sem fslensk fyrirtæki hafa tekið í
þjónustu sína. Sérfræðingar Nýherja
veita ráðgjöf varðandi val á netþjónum
□ g tengdum búnaði i samræmi við
þarfir hvers fyrirtækis.
Nýherji býður nú viðskiptavinum sínum til sérstakra
frœðslustunda alla fðstudega frá kl. 13:00-18:00. Á
hvarjum föstudegi verður tekið fyrir ákveðið svið i
tengslum við tölvu- og skrifstofubúnað. Gestum gefst
tækifæri til að kynnast helatu nýjungum og ræðe
við sériræðinga Nýherja á viökomandi sviði.
Skaftahlíð 24 - Simi 569 7700
http://www.nyherji.is