Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ____________ VIÐSKIPTI Franskir bílafram- leiðendur vilja yngri starfsmenn París. Reutcr. FRÖNSKU bifreiðaframleiðendum- ir Renault SA og Peugeot PSA segj- ast eiga í viðræðum við stjómvöld um langtíma áætlun um yngingu starfsliðs. En fyrirtækin vilja ekki staðfesta blaðafrétt um að þau reyni að fá samþykki fyrir fyrirætlun um að fækka störfum um 40.000 með starfslokasamningum gegn því að ráða 14.000 unga starfsmenn. Blaðið Les Echos segir að þetta muni kosta 30 milljarða franka eða um 400 milljarða króna. Talsmaður Renault sagði að stjórnarformennimir Louis Schwe- itzer og Jacques Calvet hefðu skrif- að Alain Juppe forsætisráðherra bréf í júlí með tillögu, að viðræður hefðu farið fram síðan en stjórnin ekki svarað. Meðalaldur yfir 40 ár Talsmaður Peugeot sagði að franski bflaiðnaðurinn þyrfti að yngja upp starfslið sitt. „Meðalaldur bifreiðaverkamanna í Frakklandi er 42-43 ár, en í samkeppnislönd- um, einkum í Asíu, er hann innan við 30 ár,“ sagði hann. Þetta kvað hann há Peugeot og Renault í samkeppninni á sama tíma og markaðir yrðu sífellt opn- ari. Frá 1999 verður kvótum á inn- flutningi japanskra bíla til Evrópu aflétt. „Yngri verkamenn eru ódýrari í rekstri, sveigjanlegri og opnari fyr- ir nýjum aðferðum, meðal annars hugmyndum um að verkamenn beri meiri ábyrgð í starfi,“ sagði fulltrúi Peugeot. Meðalaldur starfsmanna Renault er 45 ár. „Verksmiðjur fyrirtækisins eru gamlar, sú elzta er úr stríðinu, og meðalaldurinn því nokkuð hár,“ sagði talsmaður Renault. Starfsmenn Renault í heiminum voru 139.950 í árslok 1995. Þar af unnu 72.163 vil bílaframleiðslu í Frakklandi. Hjá PSA Peugeot Citroen starfa 139.900, þar af 122.600 við bfla- framleiðslu í Frakklandi. Swissair hótar að hætta við Sabena BrUssel. Reuter. YFIRMAÐUR belgíska flugfélags- ins Sabena segir að Swiss Air hóti í raun að afsala sér 49,5% hlut sínum í félaginu fari Sabena ekki að skila hagnaði. Forstjóri Sabena, Paul Reutling- er, sagði að Swissair íhugaði að afskrifa fjárfestingu sína í Sabena og þar með gæti Swissair ákveðið hvað sem væri, meðal annars að segja skilið við Sabena. Swissair kann að afskrifa fjár- festinguna ef afraksturinn verður ónógur, sagði Reutlinger Þegar Swissair tók við rekstri Sabena 1995 hét félagið fjárfest- ingu upp á sex milljarða belgískra franka eða 193 milljóna dollara af alls 10 milljarða franka viðbótar- fjármagni. Reutlinger sagði að Swissair vildi 4% afrakstur af fjárfestingu þess 1998, 6% 1999, 8% 2000 og 10-12% eftir þann tíma. Talsmaður Swissair í Ziirich sagði að ákvörðun um afskriftir hlutabréfa í Sabena yrði ekki tekin fyrir áramót. í svipinn hefði Swissair ekki í hyggju að segja skilið við belgíska félagið. Reutlinger sagði einnig frá upp- kasti að samningi við fjögur verka- lýðsfélög um 4.7 milljarða franka áætlun um að bjarga Sabena. Hann greindi líka frá því að flug- menn Sabena hefðu lagt niður vinnu til að mótmæla áætluninni, sem gerir meðal annars ráð fyrir að störfum verði fækkað og laun verði fryst í tvö ár. ------» » «----- Sumitomo sak- arHamanaka um fjársvik Tókýó. Reuter. YASUO Hamanaka, fyrrum aðalkop- arsali Sumitomo, hefur verið ákærður fyrir skjalafals og hið gamla fyrir- tæki hans sakar hann um fjársvik vegna koparhneykslisins sem kostaði það 2,6 milljarða dollara. Kæra Sumitomo mun líklega leiða til þess að Hamanaka verði ekki lát- inn laus þegar gæzluvarðhaldsúr- skurður hans rennur út. í Japan eru strangari viðurlög við fjársvikum en skjalafalsi. FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 19 ALLIR VIÐSKIPI4VINIR DAGSINS FÁAFMÆLISGJÖF Kpnið ykkur sérstök tilboð sem eru í gangi nœstu daga - Glös • Hnífapör • Stell Faxafeni Sími 568 4020 Kringlunni, Sími 568 9955 |J*J| 1- H áfej' i?j f ÆMs* á m&m v E* *Wj Jy qwiwk. w . U fjT,, VIÐ HOFUM STÆKKAD STOR OG GLÆSILEG VöamSi lu/U'i cUia - fletna u&vb Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! Stærsti viðburður á sviði upplýsingatækni hér á landi til þessa Ráðstefna um Scandic Hótel Loftleiðir 26. - 27. nóvember ‘ T * S - -í' V 't ► Network / i I: YM http://www.oracle.is/ 4^íjm' GF/-C Pcrd'c', 6r. íyrírf\fúr>n- Oracle • Sun • Netscape • Legato • Skýrr • Þróun • Intranet • deCode • Unisys •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.