Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LANGT ÚTHALD
OG EINANGRUN
ÞRÍR ÞINGMENN Alþýðubandalagsins, Bryndís Hlöð-
versdóttir, Sigurður Hlöðversson og Steingrímur J. Sig-
fússon hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar
um að ríkisstjórninni verði falið að skipa nefnd er geri úttekt
á aðbúnaði og starfsumhverfi skipverja um borð í íslenzkum
fiskiskipum. Bryndís mælti fyrir tillögu sinni á þriðjudag, en
í henni er gert ráð fyrir að nefndin skili tillögum eigi síðar
en 1. júlí 1997.
Nefndinni er falið að gera tillögur til úrbóta, er taki til
öryggismála og alls aðbúnaðar í íbúðum um borð og við
störf, möguleika skipverja til líkamsræktar og tómstundaiðk-
unar með tilliti til þess tíma, sem veiðiferð tekur, möguleika
skipveija á að hafa samband við umheiminn og þá sérstak-
lega fjölskyldur sínar, Iengd útilegu og hvenær slíkt sé í
síðasta lagi ákveðið, lengd dvalartíma í landi milli veiðiferða
og hvenær hann sé ákveðinn og vaktafyrirkomulag og hvíld-
artíma.
Flutningsmenn segja, að í umræðum um veiðar, t.d. í
Smugunni og á fleiri fjarlægum miðum, hafi mest farið fyr-
ir deilum um hafréttarmál og fréttum af aflabrögðum. Minna
hafi farið fyrir umræðu um einangrun lengst úti í hafi, vik-
um og mánuðum saman, á skipum, sem bjóða ekki upp á
aðstöðu til afþreyingar eða líkamsþjálfunar. Þetta hafi vald-
ið fjölda sjómanna alvarlegum skaða. Andleg og líkamleg
vanlíðan, þunglyndi og sjálfsvíg eru meðal þeirra afleiðinga
sem úthafssjómenn og læknar, sem hafa fengið þá til með-
ferðar, lýsa, segir í fylgiskjali með frumvarpinu.
Nú er auðvitað alveg ljóst, að hinn ytri aðbúnaður í íslenzk-
um fiskiskipum hefur gjörbreytzt til hins betra og mörg
þessara skipa eru mjög vel búin, svo að ekki sé meira sagt.
En góður ytri aðbúnaður dugar skammt, ef langt úthald á
fjarlægum miðum og í mikilli einangrun hefur neikvæð áhrif
á sálarlíf sjómanna. Þegar margar ábendingar hafa borizt
um, að í þessum efnum sé ekki allt sem skyldi, geta menn
ekki lokað augunum fyrir þeim. Þingsályktunartillaga þing-
mannanna þriggja er til þess fallin að beina athyglinni að
þessu sérstaka vandamáli, sem finna verður lausn á.
SAMEINING VIÐ
EYJAFJÖRÐ
SEX SVEITARSTJÓRNIR við utanverðan Eyjafjörð hafa
rætt möguleika á auknu samstarfi og/eða sameiningu.
Bæjarstjórnir Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar hafa
sent frá sér viljayfirlýsingu um sameiningu, ef það mætti
verða til þess að flýta fyrir gerð jarðganga, sem tengdu
Siglufjörð betur Eyjafjarðarsvæðinu og sameiningarferlinu.
Sjávarútvegsfyrirtæki í Ólafsfirði og Siglufirði hafa og þeg-
ar með sér nokkurt samstarf og Þormóður rammi í Siglu-
firði hefur keypt 20% hlut í Sæbergi í Ólafsfirði, sem er
stærsta atvinnufyrirtækið þar.
Jarðgangagerð á Vestfjörðum styrkir ótvírætt atvinnulíf
og byggð í fjórðungnum, m.a. með því að auðvelda og flýta
fyrir samstarfi og sameiningu fyrirtækja og sveitarfélaga.
Sú yrði og raunin með jarðgangagerð sem tengdi Siglufjörð
um Héðinsfjörð við Eyjafjarðarsvæðið. Það á og að vera
forsenda þess að landssjóður og skattborgarar standi undir
kostnaðarsömum framkvæmdum af þessu tagi, að þær séu
í raun fjárfesting í atvinnulífi og skili sér með tíð og tíma
til baka í stærri og sterkari einingum fyrirtækja og sveitarfé-
laga, samnýtingu og ódýrari yfirstjórn.
Bæjarstjórinn í Siglufirði segir í viðtali við Morgunblaðið
í gær að meginröksemdin fyrir þessum jarðgöngum þar
nyrðra sé stækkun eininga og tenging við Eyjafjarðarsvæð-
ið. „Jarðgöngin myndu skapa grundvöll fyrir liðlega 5.000
manna sveitarfélagi,“ sagði bæjarstjórinn, „og með Akur-
eyri og öðrum byggðum Eyjafjarðar yrði hér 23.000 til 25.000
manna byggðarlag, sem ég sé fyrir mér að verði að einu
sveitarfélagi innan fárra ára. Þetta yrði næststærsta sveitar-
félag landsins og langöflugasti byggðakjarninn utan höfuð-
borgarsvæðisins."
Augljóst er að átök eru framundan á milli Norðlendinga
og Austfirðinga um hvar næstu jarðgöng verða byggð. Hér
er um svo kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða að gera
má ráð fyrir að það taki næstu tvo áratugi að byggja jarð-
göng í báðum landshlutum. Þess vegna verður undirbúning-
ur að vera vandaður og rök fyrir framkvæmdum augljós og
skýr.
Samvörður 97, almannavarnaæfing friðarsamstarfs NATO
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
LIÐSFORINGJAR og embættismenn frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins og níu friðarsamstarfsríkjum
báru saman bækur sínar í Borgartúni 6 í gær.
Undirbúningur er
kominn vel á veg
Undirbúningsráðstefna fyrir almannavama-
æfíngu friðarsamstarfs NATO, Samvörð ’97,
*
stendur nú yfír hér á landi. Olafur Þ. Steph-
ensen segir frá undirbúningi þessarar um-
fangsmestu björgunaræfíngar hér á landi.
RAÐSTEFNUSALIR ríkisins
í Borgartúni voru einna
líkastir herstjórnarmið-
stöð í gær, en þar var sam-
an kominn á ráðstefnu fjöldi foringja
úr heijum Atlantshafsbandalagsins
og samstarfsríkja þess í Austur- og
Mið-Evrópu, sem grúfðu sig yfir
landakort og skjöl. Þarna var hins
vegar ekki um skipulagningu hern-
aðaraðgerða að ræða, heldur undir-
búningsráðstefnu fyrir fyrstu al-
mannavarnaæfingu Friðarsamstarfs
NATO, Samvörð ’97 (Cooperative
Safeguard ’97), sem fram fer hér á
landi næsta sumar. Undirbúningur-
inn er nú kominn vel á veg og byij-
að að skýrast hvert verður framlag
hvers ríkis til æfingarinnar.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra hafði frumkvæði að því í fyrra
innan Atlantshafsbandalagsins að
æfíng af jiessu tagi yrði haldin hér
á landi. Á meðal markmiða Friðar-
samstarfsins, sem 43 ríki eiga aðild
að, er að auka samstarf ríkjanna á
sviði leitar- og björgunaraðgerða
vegna náttúruhamfara. Æfingin á
íslandi verður fyrsta sameiginlega
almannavarnaæfing friðarsam-
starfsríkjanna. Hún er söguleg af
fleiri ástæðum, t.d. þeirri að hún er
fyrsta marghliða friðarsamstarfsæf-
ingin, sem Rússland tekur þátt í.
Rússneskir embættismenn ----------
eru því staddir hér á landi
til skrafs og ráðagerða
ásamt herforingjum og
embættismönnum frá tólf __________
öðrum ríkjum, alþjóðlegu ”
starfsliði NATO og íslenzkum emb-
ættismönnum.
Af NATO-ríkjum eiga Bandaríkin,
Danmörk og Noregur fulltrúa á ráð-
stefnunni. Af friðarsamstarfsríkjum
komu fulltrúar frá Finnlandi, Aust-
urríki, Lettlandi, Litháen, Ungveija-
landi, Tékklandi, Rússlandi, Rúmen-
íu og Úkraínu. Gera má ráð fyrir
Suðurlands-
skjálfti settur
á svið
að nokkur ríki til viðbótar taki þátt
í æfingunni, til dæmis Eistland og
Svíþjóð.
Suðurlandsskjálfti
sviðsettur
Ráðstefnan, sem lýkur á morgun,
er ein af þremur undirbúningsráð-
stefnum fyrir Samvörð ’97. Fyrsta
ráðstefnan fór fram í Belgíu síðast-
liðið vor og sú síðasta verður hér á
landi í marz á næsta ári. Tilgangur
ráðstefnunnar, sem nú stendur yfir,
er í fyrsta lagi að safna saman upp-
lýsingum frá þátttökuríkjunum í
æfingunni um það hvað þau hyggist
leggja af mörkum til æfingarinnar;
hversu fjölmennt lið þeirra verði og
hvaða búnað þau hafi með sér. I
öðru lagi eru þátttökuríkjunum veitt-
ar upplýsingar um aðstæður hér á
landi, aðbúnað sveita þeirra og fleira
af því tagi. í þriðja lagi er farið í
smáatriðum yfir það hvernig fjar-
skipti, boðleiðir og stjórnkerfi æfing-
arinnar muni virka. Loks er rætt um
skipulag fjölmiðlatengsla og móttöku
ýmissa gesta, t.d. stjórnmálamanna,
hershöfðingja og hátt settra embætt-
ismanna, sem munu koma hingað til
lands að fylgjast með æfingunni.
í Samverði ’97 verður sviðsett að
yfir Suðvesturland hafi riðið öflugur
jarðskjálfti, með upptök á Hengils-
svæðinu og að styrkleika
um 7'/2 á Richter. Hundruð
manna hafi farizt, tugir
þúsunda séu heimilislausir
og samgöngur og fjarskipti
í lamasessi. Islenzk stjóm-
völd sendi Atlantshafsbandalaginu
beiðni um neyðarhjálp og það komi
til aðstoðar ásamt friðarsamstarfs-
ríkjunum.
Æfingin verður haldin dagana
25.-27. júlí á næsta ári og verður
æft stíft frá hádegi á föstudegi og
til sunnudagskvölds. Liðsflutningar
til landsins hefjast 19. júlí og brott-
flutningi sveita þátttökuríkjanna
verður lokið 31. júlí.
Umfangsmesta
almannavarnaæfingin
Samvörður ’97 verður umfangs-
mesta almannavarnaæfíng, sem
haldin hefur verið hér á landi. Gera
má ráð fyrir að bróðurpartur varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli, um
2.000 manns, taki virkan þátt í
henni, auk nokkurra hundruða her-
og björgunarmanna, sem koma frá
Bandaríkjunum, um 400 manna liðs
frá friðarsamstarfsríkjunum í Evr-
ópu og hundruða íslenzkra björgun-
arsveitarmanna. Þótt æfingin sé að
hluta skipulögð af herforingjum,
verður meirihluti liðsins, sem sent
verður hingað til lands, úr borgara-
legum björgunarsveitum.
Nú þegar hefur verið ákveðið að
norskt varðskip og björgunarþyrla
taki þátt í æfingunni. Bandaríkin
munu senda öflugar þyrlur og Rúss-
land sendir þyrlu og flutningaflug-
vél, auk 40-50 björgunarmanna. Þá
mun Litháen leggja til þyrlu, svo
dæmi séu nefnd. Ónnur ríki senda
björgunar- og læknalið, sum senda
jeppa og önnur farartæki og þannig
mætti áfram telja.
Þátttökuríkin munu sjálf greiða
kostnað við flutninga hingað til
lands, en gert er ráð fyrir að Atlants-
hafsbandalagið standi straum af
mestöllum kostnaði við æfinguna
sjálfa.
Aðalframkvæmdastjóri æfingar-
innar fyrir hönd íslenzkra stjórnvalda
er Sólveig Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna ríkis-
ins. Hún er fyrsti borgaralegi stjórn-
andi æfíngar á vegum Friðarsam-
starfsins. Almannavarnir eiga nána
samvinnu við þau ríki, sem þátt taka
í æfíngunni, fyrir milligöngu varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins og varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Almannavarnir annast alla
undirbúningsvinnu fyrir þau verk-
efni, sem hið fjölþjóðlega björgunarl-
ið mun þurfa að takast á við. Al-
mannavörnum til aðstoðar við það
verkefni eru Björgunarsveitin Ingólf-
ur í Reykjavík og Hjálparsveit skáta
í Kópavogi. Þegar æfingin sjálf hefst
munu síðan björgunarsveitir víðs
vegar af landinu streyma til höfuð-
borgarsvæðisins.