Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 25 Gastilræðin í neðan- jarðarlestum Tókýó Meintir tilræðis- menn gefa sig fram Tókýó. Reuter. TVEIR af eftirlýstum forsprökkum sértrúarsafnaðar, sem er sakaður um mannskætt gastilræði í neðan- jarðarlestum i Tókýó, komu úr fel- um í gær og gáfu sig á vald lög- regiu eftir 18 mánaða flótta. Mennirnir tveir, Koichi Kitamura og Zenji Yagisawa, eru á meðal sjö félaga í söfnuðinum Aum Shinri Kyo (Söfnuði æðsta sannleika) sem lögreglan hefur leitað út um allt landið síðustu mánuði. Lögreglan segir að Kitamura, sem er 28 ára, hafi verið á meðal tíu manna sem komu taugagasi fyrir í fimm neðan- jarðarlestum í Tókýó 20. mars í fyrra. Tólf manns létu lífið í tilræð- inu og 6.000 veiktust. Yagisawa, 34 ára, er grunaður um að hafa komið fyrir búnaði til að dreifa eiturgasi á salerni versl- anamiðstöðvar í Tókýó 5. maí í fyrra, en ræstingakona fann búnað- inn og lögreglan íjarlægði hann. Talið er að þúsundir manna gætu hafa beðið bana ef tilræðið hefði tekist. „Ég er of þreyttur" Yagisawa birtist skyndilega í lög- reglustöð í Tókýó, hélt á spjaldi með auglýsingu um eftirlýsta félaga í söfnuðinum og benti á mynd af sér. „Ég er of þreyttur," sagði hann og vísaði lögreglunni á félaga sinn. Fimm félaga í söfnuðinum er enn leitað. Réttarhöld eru þegar hafin yfir leiðtoga þeirra, Shoko Asahara, sem er sakaður um morð og fleiri glæpi og á dauðadóm yfir höfði sér. Alls hafa rúmlega 100 manns verið sóttir til saka vegna starfsemi safnaðarins. ------»-»• ...— Samið um leysivopn í Boeing 747þotur Washington. Reuter. NOKKUR flugvélafyrirtæki, undir forystu Boeing, hafa tryggt sér samning við Bandaríkjaher um hönnun leysivopna sem komið verð- ur fyrir í farþegaþotum af gerðinni Boeing 747 og eiga að geta grand- að eldflaugum á flugi. Fyrirtækin fá 1,1 milljarða dala, jafnvirði 72 milljarða króna, fyrir hönnun vopnsins. Gert er ráð fyrir að fyrsta vopnið verði sett í þotu eftir sex ár til að rannsaka hvort það geti brennt skammdrægar og meðaldrægar eldflaugar eftir að þeim er skotið á loft. Ronald Fogelman hershöfðingi, yfirmaður bandaríska flughersins, kynnti samninginn á blaðamanna- fundi í bandaríska varnarmálaráðu- neytinu. Hann sagði að leysivopna- tæknin gæti gerbreytt afstöðu hers- ins til varna gegn eldflaugum. Vopnin eiga að verja hermenn og herstöðvar fyrir eldflaugum sem bera kjarna-, efna- eða sýklaodda eða hefðbundnar sprengihleðslur. Reynist vopnið vel gætu flugvéla- fyrirtækin samið um smíði fleiri slíkra vopna fyrir sem svarar hundr- uðum milljarða króna. Stefnt er að því að tilraunir verði gerðar með vopnið árið 2002 og að það geti grandað eldflaugum í allt að 100 km fjarlægð. Snjóþungt í New York MIKIÐ hefur snjóað í norð- austurhluta Bandaríkjanna undanfarna daga. A stóru I svæði í vesturhluta New York- ríkis og Pennsylvaníu mældist jafnfallinn snjór á miðvikudag 30 sentimetrar og hélt áfram að snjóa í gær. Hér sést Don nokkur Olson hreinsa snjóinn af sendiferðabíl sínum í Jam- estown í New York. Italskur glæsileiki! Sófasett í sérflokki! Sýning í HP-húsgögnum um helgina. Við höfum fengið sendingu af glæsilegum, ítölskum sófasettum í sérflokki. Þar sameinast kjör- viður og fagurlega unnið leður í einstöku, listrænu handbragði. Þetta eru húsgögn fyrir pá sem sætta sig aðeins við pað allra besta! Aðeins nokkur sett. Opið laugardag frá kl. 10 til 16 og sunnudag frá kl. 13 til 16. húsgögn Ármúla 44 sími 553 2035
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.