Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ☆☆☆V* s.v. Mbl ☆ ☆☆Vl M.K. DV ☆ ☆☆ Ó.H.T. Ré> 2 ☆☆☆ M.R. D«fl>IJó> ☆ ☆☆☆*.E.Hf ☆ ☆☆ U.M. Dagur-Tlmlnn stórmvnd eftin Friörik Þór Friðriksson SYND I A-SAL KL. 5, 7, 9 og 11 í THX. ATH! gegn framvísun stúdenta- korta fá allir nemar miðann á 300 kr. á ítölsku verðlauna- myndina Bleika húsið. Sýnd ki. 5.10 og 9.10. AMERIKA 7 og 11. Nýjar plötur Oðurum íslenska náttúru Fyrír skemmstu kom út geisladiskurinn íðir sem á er að fínna hyllingri íslenskr- ar náttúru. Höfundur verksins er Rósa Ingólfsdóttir sem segist vera að þakka móðurjörðinni fyrir gott uppeldi með plötunni. RÓSA Ingólfsdóttir hefur í meira en nógu að snúast jafnan, hún er teiknari Sjónvarpsins, er vinsæll fyr- irlesari og baráttukona fyrir íslensku handverki og listiðnaði, leikur aðal- hiutverk í Gullna hliðinu, er blaða- maður í hjáverkum og pistlahöfundur aukinheldur sem hún heldur sitt heimili og þess má geta að hún held- ur 1. desemberræðu hjá félagi ís- lenskra námsmanna í Ósló. Til við- bótar þessu semur hún lög og texta og sendi fyrir skömmu frá sér geisla- diskinn Iðir, sem á er að fínna fjögur lög úr safni hennar, útsett sem óður um íslenska náttúru, útsett fyrir hljóðfæri en engan söng. Rósa segir að á plötunni, sem heitir Iðir, eins og áður er getið, sé sagt frá árstíðunum íslensku, vori, I iBorsÁmíc I AKUREYRI AÐDÁANDINN Sýnd kl. 9 og 11.15 sumri, hausti og vetri, en hún segist tileinka verkið dætrum sínum og íðum, menningarfyrirtæki hennar þar sem hún sé að standa vörð um íslenskt handverk og listiðnað. „Verkið er óður um íslenska náttúru, við bytjum á vorinu þar sem farið er inn í yndis- leik vorsins og síðan yfir í það þegar allt líf er að kvikna og vakna, síðan förum við yfir í sumarið þar sem glettni sumarsins tekur við og meiri hraði, þá er það haustið með tregablæ sínum, laufin eru tekin að falla og hrím sest í fjöll og dala- læðan skríður fram í dalnum þar sem sveitabærinn stendur í stórkostlegum frostbláma íslenskrar náttúru, og loks endum við í drunum og dynkjum vetrarins. Segja má að verkið sé klassík útfærsla íslenskrar veðráttu. Inn í þetta blöndum við Vilhjálmur Guðjónsson, sem stjórnaði upptökum og útsetti verkið af stakri snilld, is- lenskum náttúruhljóðum. Úr hans safni komu íslensk fuglahljóð garg og tíst, rok og vind er einnig að finna, en hann þurfti að búa til vetrarhljóð- in, skriðjökla- og snjóflóðadrunur.“ Til vibótar tónum og áhrifshljóðum orti Rósa líka Ijóð og þau eru prent- uð með í bæklingi geisladisksins á ensku og íslensku. Rósa segist hafa samið lögin fjög- ur fyrir um það bil fimmtán árum og átt þau á bandi, en á liðnum árum hefur hún sankað að sér þó nokkru af lögum sem hún segist taka upp jafnóðum og þau verða til, en það gefíst svo sjaldan tími til að vinna þau áfram. „Mér fannst því tími til kominn að útbúa eitthvað svona, að þakka móðuijörðinni fyrir gott upp- eldi með þessari plötu og sýna henni virðingu mína.“ Listin, lífið og ástin Rósa segist ekki hafa samið lögin á sínum tíma með þessa útfærslu í huga, „þegar ég sem lögin mín er þetta bara tilfínning, vegna þess að Morgunblaðið/Kristinn Rósa Ingólfsdóttir listin, lífíð og ástin eiga það allt sam- eiginlegt að vera fyrst og fremst til- fínning. Ég gef mér aldrei neina sér- staka ástæðu til að semja, þetta bara kemur þegar andinn kemur yfir mig og tónar fara að raða sér saman, ég kemst í stuð, raða saman hljómum og læt það síðan flæða. Síðan fer ég yfír lögin og raða saman eftir á. Lögin fjögur sem mynda íðir valdi ég vegna þess að mér fannst þau hæfa meginstefínu." Rósa segir að heyra megi á lögun- um að þó hún sé afskaplega þjóðleg hafí hún afskaplega gaman af suður- amerískri tónlist og sveiflu, suðræn- um hita. „Ég hef alla tíð blandað þessu saman og lært mest af þeim Sergio Mendes og Burt Bacharach," segir Rósa og því sé mikið um slík áhrif i tónlistinni. Rósa segist ekki hafa velt því fyr- ir sér að hafa lögin fleiri eða verkið lengra á plötunni. „Ég vildi alls ekki hafa það of langt, en árstíðirnar eru líka fjórar og því áttu lögin aldrei að verða fleiri en fjögur. Ég vildi líka fara nýjar leiðir til að opna fyrir nýjum straumum, það er svo margt líkt að koma út að mér fannst þörf á að fara nýjar leiðir. Það er skylda listamanna að fara nýjar leiðir til að endumýja listina." íðir er fýrsta plata Rósu síðan 1973, þegar SG hljómplötur gáfu út plötuna Rósa, en hún segir sú breið- skífa sé væntanleg á geisladisk innan tíðar. „Margir hafa spurt mig um þá plötu, sem er vitanlega löngu upp- seld, en þess má geta til gamans að Páll Óskar Hjálmtýsson fékk að nota eitt lag af henni á nýju plötuna sína og notar uppmnalega útsetningu.“ Rósa segir að hún hugsi íðir sem balletttónlist fýrst og fremst. „Ég á eftir að gera myndband þar sem verk- ið er fært yfir í ballett og lýsi eftir danshöfundi, en við hæfi væri ef kona tæki að sér að semja dansa við verkið.“ ■3ICBCE SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384 NETFANG: http://www.islandia. is/sambioin FRUMSYNING: AÐDAANDINN rívf|J SAMBtOÍ Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott (Crimson Tide, True Romance, Top Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum i maqnaðri túlkun sinni á geðveikum aðdáanda sem tekur ástfóstri vio skærustu stjörnuna i boltanum. Spennan er nánast óbærileg oa hárin rísa á áhorfendum á þessari sannkölluðu þrumu!!! Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Weslev Snipes, Ellen Barkin, Benecio Del Toro og lohnleguizamo. Sýnd kl. 5 og 7. . i ’ >" r?T . l '. * f~.-T rrn ROCKY í kröppum dansi í hnefaleikahringnum. Rocky á frímerki Í TILEFNI af því að á næsta ári eru 20 ár frá frumsýningu fyrstu „Rocky“-myndarinnar, eftir Sylvester Stallone, hafa ríkin Ghana, Gambia, Grenada, Ug- anda og St. Vincent ákveðið að gefa út frímerki með myndum af söguhetjunni, Rocky Balboa. Nú er bara að bíða og sjá hvort fleiri ríki feti í þeirra fótspor og sýni myndinni viðlíka virð- ingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.