Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ _______________________________ÚRVERINU________________________________ ísberg Ltd. í Hull hefur starfað í áratug við innflutning á ferskum og frystum fiski Rúm 20.000 tonn af ís- físki til Bretlands í ár Morgunblaðið/Guðni PÉTUR Björnsson, framkvæmdastjóri ísbergs Ltd., við skemmti- bátalægið í Hull. Morgunblaðið/Guðni FISKKAUPENDUR hvísla í eyra uppboðshaldarans hvað þeir vilja borga fyrir fiskinn. ÚTFLUTNINGUR á ísfíski héðan Bretlandi er nú ekki nema þriðjung- ur af því sem hann var mestur í lok síðasta áratugar. Pétur Bjömsson í ísberg Ltd. í Hull átti stóran þátt í þeirri byltingu sem varð með gámaflutningum á ísfíski frá ís- landi. Þessi útflutningsleið opnaði útgerðarmönnum fiskiskipa af öll- um stærðum aðgang að ferskfisk- mörkuðum í Bretlandi. Pétur Björnsson og samstarfs- maður hans, Vic Morrow, stofnuðu ísberg í janúar 1986 og hóf fyrir- tækið starfsemi 1. febrúar sama ár. Þá var Pétur búinn að vinna frá vorinu 1981 við innflutning á ísfíski frá íslandi og afgreiðslu fískiskipa hjá J. Marr-fyrirtækinu, bæði í Fleetwood og Hull. Markmið ís- bergs var að annast innflutning og sölu á ísfíski í Bretlandi og veita fískiskipum nauðsynlega þjónustu. ísberg Ltd. fæst enn við verslun með ferskan ísfisk en athafnasviðið hefur víkkað. Nú selur fyrirtækið einnig frosnar sjávarafurðir, annast þjónustu við fískiskip og sölu veið- arfæra. Hjá ísberg í Hull starfa 13 manns og hjá dótturfyrirtækinu ís- brand í Grimsby vinna 5 starfs- menn. ísberg hefur einnig flutt físk til íslands, það hefur til dæmis keypt smokkfisk frá Falklandseyj- um og selt hingað í beitu. Gámabyltingin „Það varð bylting í útflutningi á ísfíski haustið 1982 þegar farið var að flytja físk í gámum,“ segir Pét- ur. Þessi útflutningur óx hröðum skrefum og um miðjan síðasta ára- tug varð hreinlega sprenging. Gámafiöldinn skipti þúsundum á hveiju ári og ísfiskur varð veruleg- ur hluti af flutningi íslensku skipa- félaganna til Englands. Oft fékkst þar hærra verð en hér heima, ekki síst fyrir aðrar tegundir en þorsk og ýsu. Smærri bátar gátu nú selt fisk á erlendum mörkuðum og stærri skip gátu landað hluta afla síns til útflutnings í gámum. Þessi nýja flutningsleið sparaði þann tíma og kostnað sem áður fór í siglingar fiskiskipa til Englands. Þegar kom fram á tiunda áratuginn má segja að siglingar íslenskra fískiskipa með afla til _ Englands hafi nær alveg lagst af. Áður komu allt að 150-180 skip á ári og stund- um þurfti að afgreiða 5-6 skip og báta á viku í Hull. Pétur segir að það sé orðinn viðburður að sjá ís- lenskt fiskiskip í Hull eða Grimsby. Yfirleitt komi þó einhver skip í árs- byijun, fýrstu dagarnir í janúar séu nokkuð öruggur sölutími. Eins hafi skip komið þegar vel hafi fískast í Smugunni en slíkar komur hafi hvorki verið margar né tíðar. Megnið strax til neyslu I lok síðasta áratugar bárust 60-65 þúsund tonn af ísfíski á ári til Humbersvæðisins. Nú kemur ekki nema þriðjungur af því og seg- ir Pétur að reikna megi með rúmum 20 þúsund tonnum af ísfiski frá íslandi í ár. Nær allur fískurinn sem fer á markað er handflakaður og seldur strax til neyslu. Pétur veit ekki nema um einn aðila í Hull sem er með vélflökun. Sá kaupir ekki á físk- markaðnum heldur notar uppþíddan rússafisk og framleiðir blokk. Á árum áður var þessi aðili stór kaup- andi að íslenskum físki en nú er viðburður ef hann kaupir. Pétur seg- ir að aðalástæðan sé líklega sú að undanfarin ár hafí lítið borist af ís- lenskum þorski. Bæði hafi þorskverð verið hátt á íslandi miðað við verð í Hull og svo hafí 20% kvótaálag dregið úr útflutningi. Þegar kvóta- leiga sé upp úr öllu valdi muni veru- lega um þetta. í staðinn fyrir fískinn frá íslandi hefur einkum komið heil- frystur fiskur frá Rússlandi og ís- fískur frá Noregi og Færeyjum. Á fiskmarkaðnum Flestir virkir dagar hjá Pétri byija á fískmarkaðnum. Þar er allt komið á fulla ferð á sjöunda tíman- um. Þá er búið að færa fiskinn úr gámum og fiskiskipum, flokka og setja í kassa. Margir miðar með nafni seljanda eru í hveijum kassa. Pétur segir það ævinlega vekja at- hygli íslendinga hvað Bretarnir eru örlátir á miðana. Kaupendur ganga um og skoða fiskinn, lyfta þunnildi og þefa, skoða fiskinn og meta. Uppboðið hefst svo klukkan 7. Fisk- markaðurinn í Hull er lítið meira en húsin, seljendur útvega uppboðs- haldarana. Hver uppboðshaldari er með tvo skrifara sér við hlið. Uppboðshaldarinn byijar boðið nokkuð fyrir ofan þá upphæð sem honum fínnst líklegt að fiskurinn seljist á og telur svo niður. Kaup- endumir gefa til kynna áhuga sinn á kaupum með handarhreyfingu. Því næst koma kaupendurnir og hvísla tilboð sitt í eyra uppboðshald- arans. Sá sem á hæsta boð á kost á öllu partíinu í hverri tegund. Morguninn sem blaðamaður heimsótti fiskmarkaðinn í Hull var afli í tveimur skemmum. í þeirri fyrri var slatti af heimamiðum en þeirri síðari vom um 150 tonn á vegum ísbergs sem komið höfðu daginn áður í gámum með skipum Eimskips og Samskips. Að sögn Péturs var helmingurinn af fiskin- um frá Færeyjum og helmingurinn frá Vestmannaeyjum og Austfjörð- um. Þennan morgun fengust um 170 krónur fyrir kílóið af þorski en yfir 200 krónur fyrir kíló af stein- bít. Nokkrar stórar lúður voru boðn- ar upp og fengust milli 600 og 700 krónur fýrir kílóið. Ekki var fyrr búið að samþykkja boðið en kaupendur dreifðu merki- miðum sínum í kassana sem þeir höfðu keypt. Kassarnir voru dregn- ir eða ekið út í flutningabíla og laust eftir klukkan 8 var gólfíð á markaðnum tómt. Aukning frá Færeyjum Á þessu ári hefur orðið mikil aukning á ísfíski frá Færeyjum. „Ég hugsa að það verði ekki fjarri lagi að Færeyingar verði með jafn mikið eða meira af ísfíski á þessum mark- aði í ár en við. Það hefur aldrei gerst áður,“ sagði Pétur. ísberg hefur selt físk frá Færeyjum og eink- um leitað þangað eftir þorski, því þorsk hefur vantað á markaðinn. Á þessu ári reiknar Pétur með að Is- berg selji einungis um helminginn af þvi magni sem selt var var þegar best lét. Þó er veruleg aukning frá því í fyrra, sem var lélegasta árið sem ísberg hefur átt í ísfíski. En hvers vegna er framboð á ísfíski að aukast frá íslandi og Færeyjum? „Markaðurinn hefur verið betri og gefið hærra verð,“ segir Pétur. „Aðalástæðan er líklega sú að fisk- neysla jókst í kjölfar nautafársins. Menn eru nokkuð bjartsýnir á að það muni hafa varanleg áhrif til aukningar á fískneyslu hér.“ Fiskvinnslan í Hull virðist komast þokkalega af meðan bolfískvinnslan á íslandi er í lægð. Pétur telur að ástæðan liggi meðal annars í þvi að fiskvinnslan í Hull sé með hráefni á raunverulegu markaðsverði en ekki tilbúnu verði. Fiskur sem er keyptur að morgni á markaði er flakaður og seldur samdægurs á verði sem ræðst af markaðsverðinu. Rétt hrá- efnisverð er því alltaf lagt til grund- vallar söluverði afurða. Engin biðröð eftir að komast í íslenska útgerð Stundum hefur því heyrst fleygt að erlendir aðilar hafi náð tangar- haldi á íslenskum útgerðum, til dæmis með lánafyrirgreiðslum, og tryggt sér þannig aðgang að afla. Pétur telur að þetta sé alger fírra. Hann segir að fýrir nokkuð mörgum árum hafi örlað á áhuga þar ytra að eignast hlutdeild í íslenskri út- gerð. Þá var fískverð mjög hátt í Bretlandi og kvótinn við ísland mun stærri en nú. Pétur segist ekki hafa orðið var við áhuga af þessu tagi lengi og telur að þótt aðgangur útlendinga að íslenskri útgerð yrði gefinn fijáls stæðu þeir ekki í bið- röðum eftir því að fjárfesta í ís- lenskum sjávarútvegi. „Ég veit ekki hversu áhugavert það væri fyrir erlend fyrirtæki að fara í slíkan rekstur norður á íslandi. Ég get ekki ímyndað mér hvað ætti að vekja áhuga þeirra á því,“ segir Pétur. „En það er óneitanlega skondið að á sama tima og íslend- ingar eru að hasla sér völl í útgerð í hinum ýmsu löndum skuli menn heima enn vera að hengja sig í regl- ur sem maður skyldi ætla að væru orðnar úreltar í samskiptum þjóða.“ Á heimleið Pétur og kona hans, Margrét Þorvaldsdóttir, flytja til íslands næsta sumar ásamt fjórum börnum þeirra. Pétur segir að þetta verði ekki jafn mikil grundvallarbreyting og það hljómar, aðalbreytingin verði á ferðamunstrinu. Undanfarin ar hefur hann dvalið talsvert á ís- landi. Pétur hefur rekið veiðarfæra- söluna ísfell ásamt Hólmsteini bróð- ur sínum og Páli Gestssyni undan- farin fimm ár. Þeir hafa flutt inn veiðarfæri frá Bretlandi, togvíra, keðjur og lása. Eins eru þeir með vörur frá Portúgal, Frakklandi, Danmörku og Asíulöndum. Þótt Pétur flytji heim ætlar hann áfram að reka fyrirtæki sitt í Hull og verð- ur með aðsetur í báðum löndum. . mountain jakki: Ur protex 6000 vatnsheldu efni , : , meðútöndun. kr.x“I,UUv áður 19.800 flís peysur: Nýtt útlit, litir og I t"0/ mikið úrval. I J/O Þvkkar og loftmiklar. afsl Frá kr. 5.015. nimbus sett: Úr delfy 1000 vatnsheldu etni með útöndun. kr. Jakki og buxur. 6'xmon ^lTALSKIR GÓNGUSKÓR stubai skór: áður 8.700 Vatnsvarðir með sympatex. Þægileeir skór fyrir léttar gögnuferíir. O'^omon ^ ITALSKIR GONGUSKÓR SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5 I I 2200 f I I l I r f I i t I: f t | ‘ L t t I (: < £ t ( € £ (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.